Morgunblaðið - 26.03.2012, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Vel hefur viðrað á Héraði í vetur og
vorið er farið að gera vart við sig í
skógunum þar. Síðustu daga hefur
hæg sunnanátt með 12-14 stiga hita
glatt fólk á Austurlandi.
„Við höfum sloppið við mikla snjó-
komu þegar gert hefur norðanátt og
þegar hann liggur í vestanáttum
með éljagangi, slyddu og rigningu til
skiptis á Vesturlandi þá er hér þurrt
og gott. Í heildina hefur þetta verið
mildur og blíður vetur fyrir utan
svolítinn kulda í desember og smá-
vegis snjó í janúar,“ segir Þröstur
Eysteinsson, sviðsstjóri þjóðskóga
hjá Skógrækt ríkisins á Egils-
stöðum.
Hann sagði að óvenjumikil hlýindi
hefðu verið fyrir austan í febrúar og
það sem af er marsmánuði. Talsvert
er farið að bera á þrútnandi brumum
og sjást í græna sprota á nokkrum
trjátegundum eftir mildan vetur. Að
sögn Þrastar er heggur kominn
einna lengst, en hann er einkum
skrauttegund í görðum. „Í skóg-
ræktinni er farið að sjá verulega
mikið í grænt í brumi lerkis, en það
er margt sem miðast við þá tegund
hérna fyrir austan.“
Unnið við grisjun
Þröstur segir að á þessum árstíma
sé einkum unnið við grisjun í þjóð-
skógunum. Á Hallormsstað sé verið
að grisja greni og lerki, á Suður- og
Vesturlandi greni og furu og á Norð-
urlandi sé m.a. verið að afla arinvið-
ar úr birki.
Ef hret gerir þegar kemur fram í
maí eftir góða vetrartíð eykur það
líkur á skemmdum á trjágróðri.
Slíkt gerðist í fyrra, en eftir hlýjan
aprílmánuð voru nálar farnar að
lengjast verulega á lerkinu og marg-
ar tegundir voru orðnar vel laufg-
aðar þegar gerði kuldatíð í meira en
mánuð með tilheyrandi afturkipp í
vexti á mörgum trjátegundum.
Blíður vetur og
brumin þrútna
Ljósmynd/Hlynur
Á Eyjólfsstöðum á Völlum Skógarhöggsmennirnir Kristján Már Magn-
ússon og Borgþór Jónsson stilla bil milli trjáa í ungum skógi til að gefa trján-
um sem eftir standa nægt vaxtarrými. Sherry Curl og Hlynur Gauti Sigurðs-
son, starfsmenn Héraðs- og Austurlandsskóga, mæla tré í blíðunni í gær.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Staða Vestur-Norðurlanda í ljósi
breytinga á norðurskautinu vegur æ
þyngra í utanríkisstefnu landanna.
Við erum ekki ein um norðurskautið
lengur. Jafnvel Frakkar, Ítalir og
Kínverjar eru farnir að sýna þessu
svæði áhuga. Rússar reistu hér um
árið fána sinn á hafsbotninum við
norðurskaut. Bandaríkjamenn hafa
lýst því yfir að þetta svæði hafi hern-
aðarlegt mikilvægi. Kanadamenn
hafa talað í svipaða veru. Þannig að
Vestur-Norðurlönd geta ekki látið
þessa þróun mála fram hjá sér fara,
enda eiga þau ríkra hagsmuna að
gæta, t.d. sem fiskveiðiþjóðir. Þau
verða að fara að kortleggja sína stöðu
í þessu samhengi,“ segir Ólína
Þorvarðardóttir, formaður Íslands-
deildar og 2. varaformaður Vest-
norræna ráðsins, um málefni þema-
ráðstefnu ráðsins nk. miðvikudag.
Fundarstaðurinn er Ilulissat á
Grænlandi og munu nokkrir fyrir-
lesarar leggja sitt af mörkum til að
kortleggja sameiginlega hagsmuni
Færeyja, Grænlands og Íslands.
Fisktegundir færa sig til
Ólína bendir á að lífríkið á norður-
slóðum sé að breytast vegna hlýn-
unar. Ein afleiðingin sé sú að fiskteg-
undir geti fært sig úr einni lögsögu í
aðra.
„Makríllinn er farinn að koma inn í
íslenska lögsögu og hrygna hér. Gull-
depla er nýr fiskistofn sem hefur ekki
sést mikið áður. Skötuselurinn er
mikið að fjölga sér hér við land.
Bráðnun íssins hefur opnað nýjar
siglingaleiðir sem mun leiða til bæði
aukinna umsvifa og auðlindanýtingar
á þessum slóðum. Þetta hefur áhrif á
afkomu landanna þriggja, bæði sem
tækifæri og ógnanir. Tækifærin geta
legið í þjónustu landanna við flutn-
inga- og farþegaskip svo dæmi sé tek-
ið. Ógnanirnar felast í vaxandi hættu
á umhverfisslysum sem geta haft
áhrif á fiskistofna okkar samfara auk-
inni skipaumferð og auðlindanýtingu.
Breytingarnar í umhverfinu og um-
svifin sem þeim tengjast eru það
miklar að það hlýtur að hafa áhrif á
samskipti þjóðanna og samstarf, t.d.
varðandi umgengni við fiskistofna og
nýtingu þeirra, eins og makríldeilan
sýnir og sannar. Það er svo margt að
breytast að Vestur-Norðurlöndin
þurfa að taka sér stöðu,“ segir Ólína.
Hnattvæðing og hlýnun
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni í
Ilulissat á miðvikudag er Margrét
Cela, sérfræðingur í alþjóðastjórn-
málum og doktorsnemi við Háskól-
ann í Lapplandi. Hún lýsir aðspurð
erindi sínu á ráðstefnunni svo:
„Ég ætla að fjalla um þær breyt-
ingar sem eiga sér stað á norður-
slóðum. Þá tek ég fyrir hnattvæðingu
og loftslagsbreytingar og aukinn al-
þjóðlegan áhuga á svæðinu. Og ég
ætla að setja það í samhengi við smá-
ríkjakenningar. Vestnorrænu ríkin
eru minnstu ríkin á svæðinu. Ég ætla
að ræða hvað það er sem þau þurfa að
gera til að styrkja sína stöðu á svæð-
inu og hvernig þau geta átt í öflugu
samstarfi um að tryggja sína hags-
muni. Flest það sem er að gerast á
norðurslóðum er þess eðlis að ekkert
ríki getur tekist á við það eitt síns
liðs.
Yfirleitt kallar þetta allt á sam-
vinnu og þá alveg sérstaklega hjá
smáríkjunum sem eru ekki nógu
sterk til að geta haft áhrif einsömul.
Mér finnst það mjög knýjandi að
samstarfið sé sett í forgang og sé
raunverulegt. Það má ekki aðeins
vera í orði heldur verður einnig að
vera á borði. Ríkin verða að huga að
því að vera með sína fulltrúa og gæta
sinna hagsmuna. Það má ekki sofna á
verðinum. Það er margt gott sem er
verið að gera í dag. Þörfin kemur til
með að aukast ef eitthvað er,“ segir
Margrét og nefnir hvernig óveður
geti orðið tíðari í heimshlutanum
vegna hlýnunar og breytinga á hita-
stigi sjávar. Þá geti nýjar lífverur
komið sér fyrir og haft áhrif á fæðu-
hringinn í lífríkinu.
Stórveldin horfa til
auðlinda norðursins
Vestnorræna ráðið fundar á Grænlandi á miðvikudag
Morgunblaðið/RAX
Kulusuk Miklar auðlindir er að finna undir íshellunni á Grænlandi.
Ólína Þorvarðardóttir Margrét Cela
Samtök atvinnulífsins hafa fyrir
hönd Iceland Express stefnt Flug-
freyjufélagi Íslands fyrir félagsdóm
vegna ólögmætrar verkfallsboðunar
af hálfu félagsins. Er gert ráð fyrir
að niðurstaða félagsdóms liggi fyrir
fljótlega í þessari viku og kemur
fram í frétt frá SA að því verði engin
röskun á starfsemi félagsins.
„Félagsdómur komst að þeirri
niðurstöðu fyrr í mánuðinum að allir
flugliðar um borð í vélum Iceland
Express skuli vera félagsmenn í
Flugfreyjufélagi Íslands, einnig sú
tékkneska flugfreyja sem Iceland
Express er skylt að hafa um borð að
kröfu tékkneska flugfélagsins og
flugmálayfirvalda í Tékklandi. Ice-
land Express lýsti því þegar yfir eft-
ir dóminn að honum yrði hlítt og að
Flugfreyjufélaginu myndu berast fé-
lagsgjöld vegna tékknesku flugfreyj-
anna. Er það í fullu samræmi við lög
Flugfreyjufélagsins,“ segir í skýr-
ingum SA á vísun málsins til fé-
lagsdóms.
Flugfreyjufélagið hafi hins vegar
krafist þess að flugliðum um borð
yrði fjölgað sem eigi sér enga stoð í
dómi félagsdóms. Þar sem kjara-
samningur milli Iceland Express og
Flugfreyjufélags Íslands er í fullu
gildi er verkfallsboðunin ólögmæt að
mati SA.
Iceland Express er með samning
við tékkneska flugfélagið Holidays
Czech Airlines sem er bundið af al-
þjóðlegum reglum og landslögum í
heimalandinu. Í samningi Iceland
Express við Holidays Czech Airlines
er að sögn SA gert ráð fyrir að fyrsta
freyja komi frá félaginu um það bil
fyrstu sex mánuðina, talið frá ára-
mótum. Að þeim tíma liðnum hyrfu
flugliðar HCA á braut.
Flugfreyjudeilan
til félagsdóms
SA segja verkfallsboðun ólögmæta
Iceland Express Deilt er um
mönnun flugliða.