Morgunblaðið - 26.03.2012, Side 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012
VICTORINOX
VASAHNÍFAR
Opið virka daga frá 9-18
og lau frá 10-16
Laugavegi 29 - sími 552 4320
www.brynja.is - brynja@brynja.is
Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919
Áratuga þekking og reynsla
Verð frá 1.720 kr.
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 28 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Að axla ábyrgð hlægi-
legt er hér á Fróni,
hafirðu stolið, svindl-
að, svikið
sóminn eflist fyrir vik-
ið.
Í fyrri grein fjallaði
ég um hvernig þetta
dvergþjóðfélag með
Sjálfstæðisflokkinn í
aðalhlutverki hefði allt
fram yfir 1990 verið að sökkva
dýpra og dýpra í spillingarfenið og
vitnaði því til staðfestingar í orð
Styrmis Gunnarssonar í skýrslu
Rannsóknarnefndar Alþingis: „Ég
er búinn að fylgjast með þessu í 50
ár. Þetta er ógeðslegt þjóðfélag,
þetta er allt ógeðslegt.“
Nú hlýtur að vakna sú spurning
hvers vegna ritstjórinn þagði
þunnu hljóði, verandi í kjöraðstöðu
til þess að vekja alþjóðarathygli á
því sem miður fór! Svarið getur
varla verið neitt annað, en að á
Davíðs-tímabilinu hafi Styrmir ver-
ið kúgaður af flokkshagsmunagæsl-
unni sem til einföldunar kallast oft
„bláa höndin“. Hér er ekki svigrúm
til að gera Davíð verðug skil en til
marks um ógnvænleg áhrif hans á
jafnvel harðpólitíska andstæðinga
er, að hann er eini stjórnmálamað-
urinn sem mig hefur dreymt og
það margoft. Þar fer vel á með
okkur. Hann hefur gist og staðið
sig vel í smalamennskum og skít-
verkum.
Frjálshyggjan tekur
völdin
Fyrir og um alda-
mótin verða marghátt-
aðar breytingar hjá
Sjálfstæðisflokknum.
Það kemur ekki bara
nýr og sterkur leiðtogi
til sögunnar heldur er
gamla kjörorðið „ger
rétt, þol ei órétt“ af
lagt og nýr fálki tek-
inn upp, sem er með
þeim ósköpum gerður
að hann getur ekki annað en dritað
í stélfjaðrirnar, sem virðist líka
hafa verið mjög táknrænt upp á
framtíðina. Flokkurinn einkavæddi
Póst og síma, sem breyttist við það
úr þjónustustofnun í gróðafyr-
irtæki. Bankarnir voru síðan gefnir
vildarvinum og inn í þá streymdu
herskarar vatnsgreiddra og
áhættusækinna piltbarna nýfrjáls-
hyggjunnar, uppaldir og upp-
fræddir í Heimdalli og Vöku. Þeim
var síðan með bónusgreiðslum sig-
að á almenning með alkunnum af-
leiðingum. Hlutabréf voru það sem
gefa átti lífinu gildi, allt aðhald og
eftirlit með fjármálastofnunum var
skorið niður því markaðsguðinn átti
ekki að vera í neinum vandræðum
með að rétta sig af sjálfur. Útrás-
arvíkingar spruttu upp eins og kan-
ínur úr hatti töframanns. Sam-
kvæmt skilgreiningum Hannesar
Hólmsteins var sjálfstæðismaður sá
sem græddi á daginn og grillaði á
kvöldin. Viðhorf samstjórnar íhalds
og framsóknar til öryrkja og ann-
arra minnimáttar endurspeglast vel
í þessari samtímavísu Aðalsteins L.
Valdimarssonar, bónda á Strand-
seljum hér við Djúp:
Allir þeir sem eiga bágt,
ef að finnast slíkir,
gæti þess að gráta lágt
því góðæri hér ríkir.
Siðblindir sækja í völd
Í afar athyglisverðu viðtali í
Morgunblaðinu 21. janúar síðastlið-
inn við merkan bandarískan lög-
reglumann og afbrotafræðing
greinir hann frá því að samkvæmt
víðtækum rannsóknum sæki sið-
blindir í völd og hjá yfirmönnum
fyrirtækja, stjórnmálamönnum og
fólki í áhrifastöðum greinist sið-
blinda 4% miðað við 1% í samfélag-
inu, valdastöður næri egóið, valda-
þörfina og græðgina. Við þennan
lestur rifjaðist upp fyrir mér þegar
Ólafur Ragnar brá sér af bæ og
handhafar forsetavalds notuðu
tækifærið og veittu uppreisn æru
iðrunarlausum tugthúslim svo hann
gæti aftur orðið gjaldgengur til að
safna til flokksins atkvæðum minn-
is- og siðferðissljórra Vest-
mannaeyinga og Sunnlendinga.
Einnig gríðarlegar eftirlaunahækk-
anir ráðherra, þingmanna og kerf-
ispótentáta. Það var heldur ekki að
furða að hún móðir mín, sú eldheita
framsóknarkona, sneri baki við
flokknum þegar Halldór og Finnur
hófust þar til valda. Væri ekki ráð
fyrir heiðarlega og virðingarvanda
sjálfstæðismenn að skyggnast um
þingflokksbekkina fyrir næsta próf-
kjör til að kanna hvort þar leynd-
ust nokkuð kúlulánakóngar eða
-drottningar, mútuþegar, fingra-
langir, innherjar eða óheppnir fjár-
málagerningamenn?
Glórunni glatað
Eftir Indriða Að-
alsteinsson
Indriði Aðalsteinsson
» Sú spurning hlýtur
að vakna hvers
vegna ritstjórinn þagði
þunnu hljóði, verandi í
kjöraðstöðu til þess að
vekja alþjóðarathygli á
því sem miður fór!
Höfundur er bóndi á Skjaldfönn
við Djúp.
Þegar eldri borg-
arar í Hafnarfirði
héldu aðalfund sinn
22. mars síðastliðinn
kom fram svo ekki
varð um villst að
eldri borgarar eru
langt í frá ánægðir
með hvernig farið
hefur með kjör
þeirra á liðnum ár-
um.
Á þessum aðalfundi var sam-
þykkt að krefjast þess að stjórn-
völd standi vörð um kjör eldri
borgara. Það er gjörsamlega óþol-
andi að yfirvöld noti ávallt tilskip-
unarvald í skatta- og kjaramálum
aldraðra án nokkura skýringa eða
samræðu við hópinn. Aðalfund-
urinn gerir eftirfarandi kröfur og
mótmælir skerðingum en hvetur
um leið til samræðu ríkis og sveit-
arfélaga við eldri borgara um
skipun kjaramála aldraðra til
framtíðar.
Á aðalfundinum var mótmælt
harðlega þeirri miklu kjaraskerð-
ingu sem framkvæmd var 1. júlí
2009, sem var óskiljanleg aðför að
kjörum eldri borgara. Sumir segja
framkvæmd í skjóli myrkurs, alla-
vega framkvæmd með fyrirdregin
gluggatjöld.
Einnig fordæmum við allar þær
hækkanir sem orðið hafa á fram-
færslu og rekstri heimila. Má t.d.
benda á stórhækkun á bensíni
undanfarnar vikur sem kemur að
sjálfsögðu illa við eldri borgara,
ekki síst.
Við krefjumst þess að fjár-
magnstekjuskattur af sparifé eldri
borgara verði aðeins innheimtur
af sparifé umfram 5 milljónir
króna, ef einhverjir skyldu eiga
slíkt í dag?
Þjónusta við eldri borgara sem
búa á heimilum sínum verði aukin
og bætt.
Eldri borgarar vilja eiga raun-
hæft val um hvernig
og hvar þeir búa, og
tekið sé mið af óskum
og aðstæðum, ásamt
þeirri þörf sem er fyr-
ir þjónustu. Aukin
heimilisþjónusta getur
kkað stofnanakostnað
um milljarða. Yfirvöld
eru hvött til að inn-
leiða í búsetumál og
heimaþjónustu við
eldri borgara þá hug-
myndafræði er ríkt
hefur um árabil í þjónustu og bú-
setumálum fatlaðs fólks.
Þá má benda á að dráttur sá er
hefur orðið á framkvæmdum við
hjúkrunarheimili á Völlunum í
Hafnarfirði er með ólíkindum.
Hvað veldur?
Það er ofvaxið mínum skilningi
allavega. Tekin var skóflustunga
fyrir allmörgum mánuðum með yf-
irvöldum í Hafnarfirði og ráð-
herra, síðan ekki söguna meir. Er
svona gaman að láta taka af sér
myndir, kemur ef til vill önnur
mynd er framkvæmdir fara virki-
lega í gang?
Hvenær sem það nú verður.
Það styttist í kosningar og eins
gott að eitthvað raunhæft og já-
kvætt fari að ske í málefnum eldri
borgara hvar sem er á landi voru.
Við erum allavega með kosninga-
rétt, það skulu menn hafa í huga.
Með ósk um bjartari tíma með
hækkandi sól.
Jón Kr. Óskarsson, formaður
Félags eldri borgara Hafnarfirði
Eldri borgarar eru
virkt afl í þjóðfélaginu
Eftir Jón Kr.
Óskarsson
Jón Kr. Óskarsson
»Eldri borgarar: Er
atkvæði þeirra bara
nauðsynlegt í kosn-
ingum og gleymt eftir
kosningar?
Höfundur er formaður
Félags eldri borgara Hafnarfirði.