Morgunblaðið - 26.03.2012, Page 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012
Nethyl 3-3a ▪ 110 Reykjavík
Sími 535 3600 ▪ hillur.is
SKOÐIÐ ÚRVALIÐ Á
HILLUR.IS
20
ára
PLASTKASSADAGAR
20%
AFSLÁT
TUR
GILDIR FRÁ 26. - 30. MARS
ELDRI BORGARA FERÐ
Ævintýraferð til Ilulissat (Jakobshavn)
23. - 26. júní 2012.
Nánari upplýsingar á www.flugfelag.is og hjá Emil Guðmunds-
syni í síma 898 9776 eða emil@flugfelag.is, einnig má senda
tölvupóst á hopadeild@flugfelag.is
flugfelag.is
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/F
LU
58
56
7
02
.2
01
2
GRÆNLAND
Nuuk
IIulissat
Narsarsuaq
Reykjavík
Ittoqqortoormiit
Kulusuk
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Sveit Magnúsar Sverrissonar
vann öruggan sigur í þriggja
kvölda hraðsveitarkeppni, sem lauk
sunnudaginn 18/3. 13 sveitir mættu
til leiks. Röð efstu sveita varð
þessi.
Magnús Sverrisson – Halldór
Þorvaldsson – Oddur Hannesson –
Árni Hannesson 1535
Ingibjörg Guðmundsd. – Sólveig
Jakobsd. – Hulda Hjálmarsd. –
Unnar A. Guðmundsson 1432
Þorleifur Þórarinsson – Haraldur
Sverrisson – Skúli Sigursson –
Böðvar Magnússon 1384
Björn Arnarsson – Jörundur
Þórðarson – Daníel Halldórsson –
Jón Sigtryggsson 1372
Sigrún Andrews – Ólöf Ingv-
arsdóttir – Björgvin Kjartansson –
Bergljót Aðalsteinsdóttir 1325
Sunnudaginn 25/3 verður spilað-
ur eins kvölds tvímenningur.
Sunnudaginn 1/4 verður svo
páskamót Bridsdeildar Breiðfirð-
ingafélagsins.
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum klukk-
an 19.
Sveitarokk á Suðurnesjum
Grethe Iversen og Ísleifur Gísla-
son skoruðu langmest síðasta spila-
kvöld eða 69 impa. Arnór Ragn-
arsson og Óli Þór Kjartansson
skoruðu 26 og Þorgeir Ver Hall-
dórsson og Garðar Garðarsson 22.
Mótið nú u.þ.b. hálfnað og er
Arnór og Óli Þór efstir með 113,3
impa. Bræðurnir Árni og Oddur
Hannessynir eru í öðru sæti með
76 og Pétur Júlíusson og Randver
Ragnarsson þriðju með 49.
Fjórða umferð verður spiluð nk.
miðvikudagskvöld kl. 9 í félags-
heimilinu á Mánagrund. Spilað er á
0 borðum.
Bridsdeild Félags eldri
borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl 4, fimmtudaginn
22. mars. Spilað var á 12 borðum.
Meðalskor: 216 stig. Árangur N-S:
Valdimar Ásmundss. – Björn Péturss. 241
Magnús Oddss. – Oliver Kristóferss. 238
Höskuldur Jónss. – Elías Einarsson 237
Óli Gíslason – Björn Svavarsson 234
Árangur A-V:
Ægir Ferdinandss. – Helgi Hallgrímss. 248
Oddur Halldórss. – Ásgr. Aðalsteinss. 241
Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 240
Helgi Samúelss. – Sigurjón Helgason 236
17 borð í Gullsmáranum
Mjög góð þátttaka var í Gull-
smára fimmtudaginn 22. mars.
Spilað var á 17 borðum. Úrslit í
N/S:
Sigurður Gunnlss. – Gunnar Sigurbjss. 319
Guðrún Hinriksd. – Haukur Hanness. 315
Díana Kristjánsd. – Ari Þórðarson 310
Jón Bjarnar – Katarínus Jónsson 307
Guðrún Gestsd. – Lilja Kristjánsd. 302
A/V
Ármann J. Lárusson – Guðl. Nielsen 371
Skúli Sigurðsson – Rúnar Hauksson 334
Sigrún Pétursd. – Guðrún Jörgensen 331
Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 304
Jón Ingi Ragnarss. – Sæmundur Árnas.
299
Sveit Guðlaugs Bessasonar
efst í Kópavogi
Hraðsveitakeppni Bridsfélags
Kópavogs lauk sl. fimmtudag með
miklu fjöri og látum. Sveit Eiðs
Mars Júlíussonar náði frábæru
skori, eða 57,6% og skaust með því
upp í annað sætið. Sveit Guðlaugs
Bessasonar hélt hins vegar topp-
sætinu nokkuð örugglega með
þriðja besta skori kvöldsins. Með
Gulla í sveit voru Jón Steinar Ing-
ólfsson, Björn Friðriksson, Krist-
ján Snorrason og Kjartan Ingvars-
son.
Lokastaða efstu sveita varð ann-
ars þessi:
Guðlaugur Bessason 2.319
Eiður Mar Júlíusson 2.246
Baldur Bjartmarsson 2.228
Hjálmar S. Pálsson 2.219
Erla Sigurjónsdóttir 2.189
Fimmtudaginn 29. mars verður
eins kvölds páskatvímenningur með
viðeigandi eggjum í verðlaun.
Eldri borgarar Hafnarfirði.
Föstudaginn 23.mars var spilað á
17 borðum hjá FEBH (Félag eldri
borgara í Hafnarfirði), með eftir-
farandi úrslitum í N/S.
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddsson 377
Björn Karlsson – Jens Karlsson 376
Ragnar Björnsson – Pétur Antonss. 357
Ólafur Gíslason – Örn Einarsson 355
Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 352
A/V.
Stígur Herlufsen – Sigurður Herlufsen 389
Erla Sigurjónsd. – Jóhann Benediktss. 373
Ágúst Vilhelmsson – Kári Jónss. 366
Oddur Jónss. – Hrólfur Guðmundss. 358
Friðrik Hermanns. – Sæmundur Björns.
350
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Rúmlega ár er nú lið-
ið síðan jarðskjálftinn
og flóðbylgjan gengu
yfir Tohoku-Kanto
svæðið í Japan þann 11.
mars 2011 og skildu
eftir sig slóð eyðilegg-
ingar meiri en nokkur
hefði geta gert sér í
hugarlund. Fjöldi lát-
inna er hátt í 16.000 og
yfir 3.000 eru enn
ófundnir. Hvert einasta fórnarlamb
var faðir einhvers, móðir, barn, ætt-
ingi eða vinur, hver einasti var óbæt-
anlegur einstaklingur.
Eyðileggingin var gífurleg og þús-
undir manna búa enn í athvörfum og
tímabundnu húsnæði. Hugur minn
leitar til þess gríðarlega fjölda fólks
sem hefur gengið í gegnum ólýs-
anlega erfiðleika.
Þjáningar þeirra sem misstu ást-
vini og lifibrauð sitt í hamförunum
eru enn meiri vegna óvissunnar um
framtíðina t.d. vegna vandamála í
Fukushima-kjarnorkuverinu og
hættunnar á efnahagslegum sam-
drætti. En það er trú mín að við ætt-
um ekki að leyfa vanmáttartilfinn-
ingu að skjóta rótum í hjörtum
okkar. Dr. Ved P. Nanda sérfræð-
ingur í alþjóðalögum sagði í sam-
úðarkveðju sinni til japönsku þjóð-
arinnar: „Núna er tíminn til þess að
rækta andann á djúpstæðan hátt,
okkar innri styrk sem getur unnið
bug á hvaða ógn sem er.“
Í ritningum búddismans segir:
„Það sem er verðmætara en fjár-
sjóður vöruhússins er fjársjóður lík-
amans en fjársjóður hjartans er
verðmætastur allra.“ Það er ekki til
meiri fjársjóður en æðstu eiginleikar
mannsins eins og samkennd, hug-
rekki og von. Hvorki hörmuleg slys
né hamfarir geta tortímt slíkum
fjársjóðum hjartans.
Jafnvel þó jarðskjálftinn og flóð-
bylgjan hafi verið grimmar nátt-
úruhamfarir, sem skildu fólk eftir
niðurbrotið, trúi ég að við getum séð
vonarglætu í myrkrinu.
Í fyrsta lagi er það samstaðan sem
við urðum vör við bæði innanlands
og utan. Við munum aldrei gleyma
því hvernig umheimurinn bauð Jap-
an tafarlausa hjálp eftir hamfar-
irnar. Japanska þjóðin
er óendanlega þakklát
fyrir það. Innan sveit-
arfélaganna, sem urðu
fyrir áhrifum skjálft-
ans, má einnig sjá end-
urnýjaðan og kraft-
mikinn anda samvinnu.
Þegar einstaklingar
standa saman and-
spænis slíkri áskorun
lítur dagsins ljós sam-
félag mannlegrar
reisnar, innblásið af
gagnkvæmri um-
hyggju. Enginn ætti að standa einn í
þjáningu sinni.
Annað vonarmerkið er óbugandi
hugrekki þeirra sem urðu fyrir
áhrifum skjálftans. Orð fá ekki lýst
hversu djúpt ég er snortinn af ósér-
hlífnum verkum í þágu annarra sem
unnin voru af fólki sem sjálft var
fórnarlömb skjálftans. Kona ein frá
Kamaishi bjargaði lífi nágranna
sinna. Þegar ofsafengið flóðið náði
upp á aðra hæð í húsi hennar hélt
hún sér í loftræsibúnað á meðan hún
kom í veg fyrir að maður sem hélt á
ungabarni yrði hrifinn burt, með því
að skorða hann af upp við vegg. Með
lausu hendinni greip hún svo í krag-
ann á öðrum manni og hélt í hann.
Hún sagðist hafa verið harðákveðin í
að sleppa þeim ekki, jafnvel þótt
hendur hennar rifnuðu af. Enn eru
þúsundir slíkra ónafngreindra hetja
að vinna hörðum höndum að endur-
uppbyggingu samfélagsins óbug-
aðar af sársaukafullum missi fjöl-
skyldu,vina heimilis og eigna.
Í menningarmiðstöðvum búdd-
istasamtakanna Soka Gakkai um allt
héraðið buðu eftirlifendur fram
hjálp sína þrátt fyrir eigin sorg og
örmögnun. Hjálparstarf okkar hófst
strax eftir jarðskjálftann og fól með-
al annars í sér að skjóta skjólshúsi
yfir brottflutta. Við erum núna að
styðja bæði skammtíma og langtíma
enduruppbyggingu í héruðum
Miyagi, Iwate og Fukushima.
Í búddískri ritningu stendur:
„Þegar við kveikjum á ljóskeri fyrir
aðra, er okkar eigin vegur upp-
lýstur.“ Þegar maður framkvæmir í
þágu annarra breytist manns eigin
þjáning í lífskraft sem getur knúið
mann áfram; þannig kveikjum við
ljósgeisla vonar fyrir okkur sjálf og
aðra.
Þriðja vonarmerkið er ástríða og
þrek unga fólksins. Ungur maður
sem ég þekki frá Ishinomaki var
hrifinn burt af flóðbylgjunni og flúði
dauðann með því að halda sér fast í
furutré ofan við ískalt vatnið alla
nóttina. Hann er iðnaðarmaður og
missti bæði verkstæði sitt og heimili.
En hann neitaði að gefast upp og að-
stoðaði við að koma nauðsynlegri
þjónustu aftur á í gervallri borginni.
Í miðjum rústunum þar sem heimili
hans hafði staðið reistu hann og vinir
hans risastórt skilti sem á stóð
„Gambaro! Ishinomaki (Ekki gefast
upp, Ishinomaki!)“ Skiltið er orðið
táknmynd fyrir anda fólksins í Is-
hinomaki.
Ungt fólk er birtingarmynd von-
ar. Sama hversu dimmt kann að
verða þá rís sólin þar sem ungt fólk
tekur af skarið. Leiðin til fullkom-
innar enduruppbyggingar verður
löng. En við munum halda áfram að
færast fram á við innblásin af for-
dæmi svo hugaðrar æsku, sem sam-
stiga leggur sig fram til að byggja
upp samfélagið á ný, eftir þessar
miklu hörmungar. Hvert skref,
sama hversu lítið sem það virðist
vera mun hjálpa til við að sá fræjum
vonar og skapa þannig fjársjóði
hjartans.
Anda fólksins í Tohoku má finna í
þessum orðum sagnfræðingsins
Kan’ ichi Asakawa: „Fólk er ekki svo
veikgeðja að það sé alfarið háð
kringumstæðum sínum… Í stað
þess að láta sorgina buga okkur
skulum við hefja okkur stolt yfir
hana.“
Hugrekki til að endurbyggja
Eftir Dr. Daisaku
Ikeda »…við munum halda
áfram að færast
fram á við innblásin af
fordæmi svo hugaðrar
æsku, sem samstiga
leggur sig fram til að
byggja upp samfélagið á
ný.
Dr. Daisaku Ikeda
Höfundur er forseti búddistasamtak-
anna Soka Gakkai International og
stofnandi bæði Soka University og
Toda Institute for Global Peace and
Policy Research.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
...þú leitar og finnur