Morgunblaðið - 26.03.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 26.03.2012, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012 Víkverji stærir sig stundum af því íeinrúmi að vera með eindæmum geðgóður og jafn í lundarfari. Enda er fátt sem kemur Víkverja úr jafn- vægi, svona alla jafna. Það er að segja, alveg þangað til Víkverji sest undir stýri á bíl. x x x Þá flæða stöðluð skammaryrðinfram af vörum Víkverja, og engu er líkara en offramboðið sé slíkt að tappa verði af. „Þessi veit ekki einu sinni hvert hann er að fara!“ fer gjarnan til þeirra sem hægja á sér í miðju hringtorgi, eins og þeir hafi ekki ákveðið alveg hvar þeir ætli að yf- irgefa það. „Er þessi ennþá vakandi?“ er fyrir bílstjóra sem ferðast undir löglegum hámarkshraða við góðar aðstæður. „Sumt fólk er bara eitt í heim- inum!“ er bæði fyrir þá sem svína, og fyrir þá sem gefa ekki stefnuljós. Uppáhaldið er samt „Halló!“ sem samferðafólk Víkverja fær að heyra þegar ekki gefst tími til að flokka ætlað umferðarsiðfræðibrot. x x x Sem betur fer er Víkverji frjór íhugsun og hefur í frístundum sínum lagt drögin að samskiptakerfi milli ökumanna. Slíkt kerfi væri hægt að nýta við aðstæður sem koma upp reglulega í umferðinni; þegar bílstjóri öskrar eitthvað í fram- rúðuna sem ætlað er bílstjóra annars bíls (en sá heyrir auðvitað ekki bofs). x x x Með slíku kerfi væri hægt að komafyrirfram ákveðnum skila- boðum í nærstadda bíla. Til dæmis: „Þú svínaðir á mig!“ Eða: „Drattastu úr sporunum, mér liggur á.“ x x x Og þá kæmi líklega til baka:„Þarft þú ekki aðeins að róa þig?“ Og auðvitað er það málið. Við þurfum öll að vera róleg og yfirveg- uð í umferðinni. Þess vegna er gott að við öskrum bara á framrúðuna. Aðrir bílstjórar þurfa ekki að heyra þau ónot sem við hreytum í átt til þeirra í hugsunarlausri bræði. Internetið þyrfti eiginlega að hafa framrúðu líka. víkverji@mbl.is Víkverji Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Hættu að vorkenna þér og komdu frekar auga á hvar þér misferst. Ef vinir og ættingjar leyfa það ekki verður þú að tala al- varlega við þá þangað til þeir skilja þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu þér ekki til hugar koma að þú þurfir að klára allt eins og skot. Góður und- irbúningur tryggir farsæla framkvæmd. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það sem dregur fólk að þér eru allir þínu einstöku kostir – ekki hæfni þín til að falla í hópinn. Gleði þín er smitandi. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ekki vera reiður við vin, ef þú getur. Taktu þig til og hentu að minnsta kosti fimm hlutum sem þú þarfnast alls ekki lengur. Nýtt fólk hefur líka eitthvað fram að færa – hugs- anlega ást. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það getur tekið tímann sinn að vinna aðra á sitt band. Mörg vandamál munu hverfa ef þú einbeitir þér að því sem er satt og rétt í stöðunni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú munt eiga áhugaverðar samræður í dag. Varastu samt að ganga of langt svo ekki komi til eftirmála. Taktu öllum tilmælum með fyrirvara og gleymdu ekki að standa með sjálfum þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú færð hugmynd í dag, en það gæti verið erfitt að hrinda henni í framkvæmd. Innan fárra ára muntu standa á hátindi starfsferils þíns. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Truflun á vinnu vegna tölvu- eða tæknivandræða er líkleg í dag. En þá reynir líka á að menn taki tillit hver til annars. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú kemur auga á augljósa leið til að hefna þín á einhverjum sem gerði þér rangt til. Hættu að vorkenna sjálfum þér og líttu á björtu hliðarnar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Eitthvað verður til þess að þú ferð að hugsa um hvað það er sem mestu máli skiptir í lífinu. Flýttu þér því ekki að neinu heldur ígrundaðu vel hvað þú tekur til bragðs. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er allt á ferð og flugi í kring- um þig svo þér veitist erfitt að fóta þig í öll- um hamaganginum. Nánir vinir bíða óþreyju- fullir eftir niðurstöðum samtalsins. 19. feb. - 20. mars Fiskar Eitthvað liggur í loftinu sem gerir þig óöruggan. Aðrir líta til þín um forustu svo þú mátt hvergi bregðast. Þú lendir í þeirri að- stöðu að yfirráð þín eru dregin í efa. Ragnar Böðvarsson gaukaðiað umsjónarmanni brag- hendum um skáldskaparlistina, sem hann orti á Iðunnarfundi: Alltaf vekur ánægju að yrkja bögu og finna hvernig orðin óma ef þau saman ná að hljóma. Ekki er nóg að einblína á endarím- ið. Höfuðstafir standi réttir og stuðlar hæfilega þéttir. Þetta er nú eiginlega enginn vandi ef menn réttu orðin finna sem ekki sýnist flókin vinna. Ragnar hefur áður ort um listina að yrkja, meðal annars á Bragaþingi árið 2010: Orð sem hafna erli dagsins, eiga leik við rímsins glóð, stíga dans við strengleik bragsins, stolt og frjáls og verða ljóð. Bjarni Maronsson sendi kveðju að gefnu tilefni: „Í Vísnahorni 6. og 7. mars sl. er minnst á vísu sem hefst svo: „Feginn vildi ég“ og svo framvegis. Spurning um höfund og fl. Hef ekki fylgst með hvort þú hefur vikið aftur að þessarri vísu í horni þínu. Höfundur er Gilsbakka-Jón, f. 1828, d. 1906. Vinnukona á Hof- stöðum í Hofstaðabyggð í Skagafirði hét Sigríður Bjarna- dóttir og Jón nefndi hana fóstru sína. Um kellu orti hann þessa notalegu vísu: Feginn vildi ég fara upp á fóstru mína þó ég af því biði bana, bara til að gleðja hana. Og þessa: Fóstra mín er fögur öðrum megin. Þaðan fæ ég hýrleg hót. Hinum megin er hún ljót. Margt fleira orti Jón sem geymst hefur. Um hann er ágæt- ur þáttur í öðru hefti Skagfirð- ingabókar, ritaður af Hjörleifi Kristinssyni.“ Í Stuðlamálum er kveðskapur Steins Sigurðssonar barnakenn- ara og leikskálds í Vest- mannaeyjum. Þar á meðal er vísan: Nið’r á við er gatan greið, gæfu, dygð að farga. Upp í móti’ er örðug leið æru og sál að farga. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Enn af fóstru og Gilsbakka-Jóni G re tt ir S m áf ó lk H ró lfu r h ræ ð ile g i G æ sa m am m a og G rí m u r F er d in a nd ÉG HEF EKKERT Á MÓTI AFMÆLUM ALLS EKKERT ÞAÐ ER BARA ÞAÐ AÐ ELDAST SEM ÉG Á ERFITT MEÐ AÐ SÆTTA MIG VIÐ AF HVERJU FERÐU EKKI ÞANGAÐ SEM ÉG VIL!? GERIRÐU ÞÉR GREIN FYRIR ÞVÍ AÐ ÞETTA MUN VALDA ÞVÍ AÐ HEIMILISTRYGGINGIN MÍN MUN HÆKKA UPP ÚR ÖLLU VALDI!? EKKI HLUSTA Á HANN HRÓLFUR HANN ER BARA AÐ REYNA AÐ LÁTA ÞIG FÁ SAMVISKUBIT GRÍMUR, HÆTTU AÐ KVARTA! ÞÚ ERT HÉRNA Í KATTHOLTI TIL AÐ AFPLÁNA SAMFÉLAGSÞJÓNUSTU! ÞÚ HLÝTUR AÐ VERA AÐ GRÍNAST! ÞETTA ER EKKI SVONA ERFITT! FARÐU BARA ÚT AÐ GANGA MEÐ KETTINA, ÞEIR ÞURFA HREYFINGU! Orð dagsins: En ef einhver elskar Guð, þá er hann þekktur af honum. (I. Kor. 8, 3.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.