Morgunblaðið - 26.03.2012, Síða 34
Fermingardagurinn minn
Gestabók - myndir - skeyti
Fæst í öllum helstu
bóka- og blómaverslunum landsins
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð
34
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2012
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Undankeppni hljómsveitakeppninnar Músíktilrauna lýkur í kvöld í
Austurbæ, en þá keppa tólf hljómsveitir um síðustu sætin í úrslitum að
viku liðinni. Þegar hafa átta hljómsveitir tryggt sér sæti í úrslitunum og í
kvöld bætast tvær sveitir við eftir keppnina, en dómnefnd velur svo tvær
eða fleiri til úr hópi þeirra hljómsveita sem ekki hafa þegar komist áfram.
Helstu verðlaun Músíktilrauna eru hljóðverstímar að vanda og þá með
upptökumanni, en einnig eru efnilegustu hljóðfæraleikarar verðlaunaðir
og bestu textasmiðir á íslensku. 1. sæti gefur tuttugu tíma í Sundlauginni,
2. sæti upptökuhelgi í Island Studios í Vestmannaeyjum með gistingu og
3. sætið 20 tíma í Stúdíó Ljónshjarta.
Að auki spilar sigursveitin á tónlist-
arhátíð í Delft í sumar.
Dómnefnd Músíktilrauna 2012 er
skipuð ofanrituðum og þeim Arnari
Eggert Thoroddsen, Ásu Dýradóttur,
Hildi Guðnýju Þórhallsdóttur, Krist-
jáni Kristjánssyni, Dönu Rún Há-
konardóttur og Ragnheiði Eiríks-
dóttur.
Aragrúi
Selfosssveitina Aragrúa skipa Tóm-
as Smári Guðmundsson gítarleikari,
Markús Harðarson trommuleikari,
Hulda Kristín Kolbrúnardóttir söngv-
ari, Bergþóra Rúnarsdóttir fiðluleikari,
Margrét Rún Símonardóttir fiðluleik-
ari, Hlynur Daði Rúnarsson bassaleik-
ari og Iðunn Rúnarsdóttir klarinettu-
leikari. Þau eru sextán ára nema Hulda
sem er fjórtán. Þau segjast spila glað-
legt þjóðlagalopapeysurokk með
grindmetal-gripum, fiðlubogum og
mikillegum rörablæstri – eins og flat-
baka með sjö áleggstegundum og
aukaosti.
Síðasti tilrauna-
spretturinn
No Class
Reykvíkingarnir No Class spila raftónlist sem spannar allt frá
nu-disco yfir í future garage og dubstep. Tvíeykið skipa Jón
Reginbald Ívarsson og Ómar Egill Ragnarsson, báðir tvítugir
og báðir trommuheila- og tölvumenn.
White Signal
Hljómsveitin White Signal er skipuð krökkum á aldrinum
14-17 ára úr Reykjavík og Hafnarfirði. Sveitina skipa Guð-
rún Ólafsdóttir, sem leikur á hljómborð og syngur, Brynjar
Guðlaugsson, sem leikur á gítar, Sólrún Mjöll Kjart-
ansdóttir, sem leikur á trommur, Snorri Örn Arnarsson,
sem leikur á bassa, og Katrín Helga Ólafsdóttir, sem leikur
á hljómborð og syngur.
Bakkus
Tríóið Bakkus úr Breiðholti skipa Daníel Ágúst Agueda gítar-
leikari og söngvari, Þór Ragnarsson trommuleikari og Ingvar
Páll Valdimarsson bassaleikari. Meðalaldur þeirra félaga er
20 ár og þeir spila blússkotið rokk.
Cosmos
Tríóið Cosmos er úr Kópavogi og leikur glitch-experimental-rock,
eins og félagsmenn lýsa því. Þeir eru allir sautján ára og heita Jó-
hannes Helgi Friðriksson hljómborðsleikari og tölvuþór, Viktor
Franz Jónsson gítarleikari og Magnús Óli Sigurðsson gítarleikari.
Alli
Alli er úr Reykjavík og í honum
söngkonan Valborg Ólafsdóttir,
píanó-, gítar- og slagverkleik-
arinn og söngvarinn Ásgeir
Trausti Einarsson og gítarleik-
arinn Aðalsteinn Ingi Hall-
dórsson. Þau eru á aldrinum 20-
23 ára.
Volatile
Tvíeykið Volatile er úr Mosfellsbæ skipað þeim Sigurði Ými Krist-
jánssyni og Guðmundi Ara Arnalds. Báðir véla þeir um tölvur og
hljóðgervla, en Guðmundur syngur að auki. Þeir eru sautján ára og
spila raftónlist.
A Day in December
Reykvíkingarnir í A Day in December taka nú þátt í Músíktil-
raunum öðru sinni. Þeir eru á aldrinum sextán til sautján ára
og heita Jóhann Guðmundsson söngvari Gauti Hreinsson gít-
arleikari Flemming Viðar Valmundarson bassaleikari Guðjón
Trausti Skúlason trommuleikari og Alexander Glói gítarleik-
ari. Þeir spila þungarokk í harðari kantinum, en þó ekki þeim
svartasta.
Útrás
Þeir félagar Þorgeir Björns-
son og Eiríkur Eduardo Ei-
ríksson kalla sig Útrás. Þeir
eru úr Kópavogi og segjast
spila tónlist sem lýsa mætti
sem samblandi af ýmsum
stefnum, þar á meðal mörg-
um gerðum innan málmgeir-
ans. Þorgeir, sem er fimm-
tán ára, spilar á bassa og
syngur, en Eiríkur, sem er
sextán, spilar á trommur.
Cleetus the Fetus
Úr Kópavogi kemur sveitin Cleetus the Fetus sem skipuð er
þeim Sindra Má Ágústssyni trommuleikara, Eið Tjörva Páls-
syni gítarleikar og Snorra Skúlasyni bassaleikara. Þeir eru all-
ir sautján ára og spila sækadelikfönkdjassmetal í anda ástr-
ölsku hljómsveitarinnar Bob The Barker.
Free Fall
Free Fall er sextett út Reykjavík, skipaður þeim Andra
Sigurði Haraldssyni gítarleikara, Maríu Arnfinnsdóttur
gítarleikara, Frosta Heimissyni hljómborðsleikara, Ás-
geiri Ólafssyni hljómborðsleikara, Alexíu Rut Guðlaugs-
dóttur söngkonu og Bergeyju Flosadóttur bassaleikara.
Þau eru á aldrinum þrettán til fimmtán ára og segjast
spila mest rokk, en breyti líka til og geri eitthvað öðru-
vísi.
F.I.G.
Úr Reykjavík kemur sveitin F.I.G. eða Fine Intelligible
Gentlemen. Liðsmenn hennar, sem eru á aldrinum fimm-
tán til sautján ára eru Arnór Steinn Ívarsson bassaleikari,
Jón Hálfdán B. Sigurðsson gítarleikari, Brynhildur Ás-
geirsdóttir söngkona og Felix Guðmundsson trommuleik-
ari. Þau segjast spila hart framsækið rokk.
Músíktilraunir 2012