Morgunblaðið - 26.03.2012, Page 40

Morgunblaðið - 26.03.2012, Page 40
MÁNUDAGUR 26. MARS 86. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Lést í umferðarslysi 2. Getur ekki lýst léttinum með orðum 3. Manns leitað í Reykjavíkurhöfn 4. „Það sem ég hefði viljað vita“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp (The Hitman’s Guide to Housecleaning) eftir Hall- grím Helgason er í áttunda sæti yfir þær bækur sem seljast best í Kindle- útgáfu á vef Amazon.com. Bók Hallgríms í 8. sæti á Amazon  Póstlistarsýn- ingin „Saint- Lunaire- Reykjavík: Bréf frá Bretaníu“ verður opnuð á miðvikudaginn kemur kl. 17-19 í Alliance française í Reykjavík. Sýnd verða listilega skreytt umslög bréfa sem Marie Schimpf, sem býr í Saint- Lunaire á Bretaníuskaga, sendi vin- konu sinni í Reykjavík, Valérie Anne. Frönsk póstlistar- sýning opnuð  Útskriftartónleikaröð Listaháskóla Íslands hefst formlega í Neskirkju klukkan 20.00 á fimmtudaginn kem- ur með tónleikum Halldórs Smára- sonar sem útskrifast í vor með BA-gráðu í tónsmíðum. Alls halda 23 nem- endur tónlistar- deildar skólans útskriftartónleika í vor. Tónleikarnir verða alls tuttugu. Útskriftartónleikaröð LHÍ að hefjast Á þriðjudag Suðvestan 8-13 m/s. Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, annars skúrir eða slydduél. Hiti 3-12 stig, hlýjast eystra. Á miðvikudag Vestlæg átt, milt veður. Súld eða rigning með köflum. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hvessir í dag, sunnan 13-18 m/s síðdegis og víða 18-23 m/s á Vestur- og Norðvesturlandi undir kvöld. Úrkomulít- ið norðaustanlands, annars rigning eða súld. Hiti 7 til 17 stig. VEÐUR Kvennalandsliðið í hand- knattleik heldur enn í vonina um að komast í úrslitakeppni Evrópumótsins. Íslenska lið- ið sýndi flotta takta í leikn- um gegn Svisslendingum í Vodafone-höllinni í gær og vann stórsigur, 31:16. Til þess að komast í úr- slitakeppnina þurfa Íslend- ingar að vinna Spán á heima- velli og Úkraínu á útivelli en Úkraína vann í gær óvæntan sigur á Spáni. »4-5 Enn er von að komast á EM Strákarnir í U17 ára landsliðinu í knattspyrnu náðu þeim frábæra ár- angri að vinna sér sæti í úrslita- keppni Evrópumótsins sem haldin verður í Slóveníu í sumar með því að vinna 4:0 sigur á Litháum í loka- umferð í milli- riðlinum í Skot- landi í gær. » 8 Farseðill í úrslitakeppni Evrópumótsins Lið SA Ásynja tryggði sér á laugar- dagskvöldið Íslandmeistaratitilinn í íshokkíi kvenna. Ásynjurnar tóku á móti Birninum í þriðja úrslitaleik liðanna og norðankonur fögnuðu sigri og unnu þar með einvígið, 3:0. Systurnar Diljá Sif og Silvía Rán Björgvinsdætur, sem eru 14 og 12 ára, fóru hreinlega á kostum í leiknum. »3 Ásynjur hömpuðu Ís- landsmeistaratitlinum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Okkur langaði til að gefa skólanum flotta afmælisgjöf,“ segir Gunn- heiður Kjartansdóttir sem ásamt góðum hópi fólks heldur tónleika í tilefni af 60 ára afmæli Myllubakka- skóla í Keflavík. Fjölmargir fyrrver- andi og núverandi nemendur taka þátt í tónleikunum þar á meðal nokkrir af þekktustu popp- og rokk- tónlistarmönnum landsins. „Er þetta ekki komið hjá okkur?“ sagði Magnús Kjartansson tónlist- armaður í lok æfingar með kórum nemenda sem nokkrir fyrrverandi nemendur höfðu gengið til liðs við. Lag hans, To Be Grateful, verður lokalag tónleikanna. „Ég vildi að það hefði verið svona sönghópur þegar ég var í Barnaskóla Keflavíkur. Þá var bara lúðrasveit og ég byrjaði í henni níu ára,“ segir Magnús. Myllubakkaskóli, áður Barnaskólinn í Keflavík, rekur sögu sína aftur til ársins 1897. Ný bygging skólans, við Sólvallagötu, var formlega tekin í notkun fyrir sextíu árum. „Þetta er frábær skóli. Hér hófust kynni við alla mína bestu vini,“ segir Atli Sigurður Kristjánsson, mark- aðsfulltrúi hjá Bláa lóninu og trúba- dor. Hann hafði orð á því þegar hann kom á æf- inguna að lítið hefði breyst í húsnæði skól- ans frá því hann útskrifaðist. „Mér finnst ofsalega gaman að syngja,“ segir Lísbet Helga Helga- dóttir sem syngur í kór skólans. Hún er í söngnámi og lang- ar að verða söngkona. Vegna und- irbúnings tónleikanna hefur Lísbet kynnst gömlum áhugaverðum lög- um sem hún hefur ekki heyrt fyrr. Þrjár konur sem unnið hafa að söngleikjum nemenda standa fyrir tónleikunum með fleirum. Við- brögðin sem þær fengu þegar leitað var til fyrrverandi nemenda voru af- ar góð. „Allir þessir frægu lista- menn sögðu strax já,“ segir Gunn- heiður. Margir þekktir listamenn voru í skólanum og taka þátt í tónleik- unum. Nægir að nefna einn af eldri kynslóðinni og annan af þeirri yngri, Gunnar Þórðarson og Valdimar Guðmundsson. „Ætli það sé ekki rétt að kenna þeim um þetta sem á undan fóru. Þeir ruddu brautina svo við vorum ekki skammaðir fyrir að fara út á hana,“ segir Magnús Kjartansson þegar leitað er skýringa á stöðu Keflavíkur í popptónlistinni. Hann nefnir frægð Hljóma í því efni. Afmælisgjöf til gamla skólans  Frægir popparar og nemendur heiðra Myllubakkaskóla Morgunblaðið/Helgi Bjarnason To Be Grateful Nemendakór æfir lokalag tónleikanna með aðstoð höfundarins, Magnúsar Kjartanssonar. Fyrrverandi nemendur koma til liðs við núverandi. Tónleikarnir „Gamli skólinn minn“ verða haldnir í Andrews Theater á Ásbrú sunnudaginn 1. apríl næstkomandi. Tvennir tónleikar verða, þeir fyrri klukkan 16 og seinni kl. 20. Hagnaður af tónleikunum rennur í Minn- ingarsjóð Vil- hjálms Ketils- sonar sem var skólastjóri Myllu- bakka- skóla en féll frá á besta aldri. Sungið í And- rews Theater TVENNIR TÓNLEIKAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.