Morgunblaðið - 10.04.2012, Blaðsíða 29
sína á Suðurnesjum og víðar.
Hann var stór maður, þéttur á
velli og gæddur miklum söng-
hæfileikum. Hann söng um ára-
bil með sinni miklu og djúpu
bassarödd bæði einsöng og í
kirkjukórum. Jón var einn af
stofnendum Karlakórs Keflavík-
ur og söng hann með kórnum í
fjóra áratugi. Hann var einnig
meðlimur í Keflavíkur-
kvartettinum sem kom fram í út-
varpi og sjónvarpi og skemmti
víða um land.
Sönglistina og tónlistargáfuna
fékk hann í vöggugjöf úr móð-
urættinni en röddina miklu erfði
hann frá móðurafa sínum. Hann
vann ýmis störf til sjós og lands,
hann var bifreiðastjóri hjá SBK
og verkstjóri hjá Olíufélaginu á
Keflavíkurflugvelli en síðar gerð-
ist hann ökukennari og bifreiða-
eftirlitsmaður.
Jón stofnaði fjölskyldu sem
ungur maður með Sonju I. Krist-
ensen, eftirlifandi eiginkonu
sinni til næstum 60 ára. Hann
helgaði líf sitt eiginkonunni og
börnum þeirra sex ásamt því sem
hann notaði flestar frístundir sín-
ar til söngs. Missir Sonju er mik-
ill en þau voru samhent hjón sem
bjuggu börnum sínum gott heim-
ili. Jón var mjög virkur í ýmsu
félagsstarfi með konu sinni en
auk kórastarfs starfaði hann um
árabil í skátahreyfingunni, í
Lionsklúbbi Keflavíkur og í
Stangaveiðifélagi Keflavíkur.
Félagslyndi, glaðværð og hlýja
voru áberandi á fari Jóns. Hann
hafði sterkt og hlýtt faðmlag,
gerði ekki mannamun og hafði
lag á því að láta nærstöddum líða
vel. Hann hafði unun af matar-
gerð og bakstri og nutu gestir og
gangandi góðs af. Hann ferðaðist
víða, bæði hérlendis og erlendis,
og var náttúrunnandi sem naut
þess að renna fyrir lax eða silung
þegar tækifæri gafst til.
Nú þegar komið er að leiðar-
lokum er margs að minnast og
margt að þakka. Liðin eru 24 ár
síðan Jón bauð mig velkomna
sem tilvonandi tengdadóttur í
fjölskyldu sína. Samfylgdin við
þennan mæta mann var einstak-
lega ánægjuleg. Tónlistin, falleg
lífsgildi, uppskriftirnar og minn-
ingar um góðar stundir lifa áfram
með mér og minni fjölskyldu.
Ég kveð hann Nonna með
sömu orðum og hann var vanur
að kveðja mig glettinn á svip:
Blessí. Við sjáumst í næsta stríði.
Jóna Björk Guðnadóttir.
Elsku afi minn, ég get ekki lýst
í orðum hversu sárt ég mun
sakna þín. Ég vissi að þú værir að
fara en ég vildi ekki trúa því, þeg-
ar pabbi hringdi til að láta mig
vita að þú værir farinn stoppaði
hjartað mitt og allt varð hljótt,
fólk var að tala í kringum mig en
ég heyrði aðeins þögnina. Í hvert
skipti sem talað er um þig þarf ég
að berjast við að halda aftur af
tárunum, því í hvert skipti upplifi
ég missinn aftur og veit að ég
mun aldrei heyra þig hlæja aftur
eða segja jawell, jawell, jawell.
Ég man alltaf eftir því þegar ég
kom til þín eftir skóla og við spil-
uðum ólsen-ólsen og veiðimann,
þú varst alltaf tilbúinn til að taka
einn leik eða tvo eða þrjá eða
bara þar til ég fékk nóg. Þú
gafst ekkert eftir, ég tapaði oft
og þótti mér það ekki leiðinlegt
því þá var ég staðráðin í að vinna
næsta leik. Ég held samt að þú
hafir stundum leyft mér að
vinna þó svo ég hafi ekki tekið
eftir því. Þér fannst alltaf svo
gaman að segja mér sögur frá
því þú varst ungur í sveit þar
sem þú þeyttist um á hestbaki
og mér fannst alltaf svo gaman
að heyra þær þar sem ég var og
er með brennandi áhuga á hest-
um. Ef við sátum ekki inni í eld-
húsi að spila eða spjalla var ég
með þér úti í skúrnum á Sól-
vallagötunni. Mér fannst alltaf
voða gaman að vera úti í skúr
með þér og ég man eftir þegar
ég spurði þig um hlerann sem lá
á gólfinu aftast í skúrnum. Þú
sagðir mér að þetta hefði verið
kartöflugeymsla í gamla daga og
þar hefðu börn líka stundum
verið sett ofan í ef þau voru
óþekk, eftir það var ég alltaf
hrædd við þennan hlera. Ég á
ótalmargar minningar um þig
sem ég mun aldrei gleyma.
Mér þykir svo vænt um þig afi
minn og þú munt alltaf eiga
stærsta hlutann í hjarta mínu. Ég
hef alltaf óttast dauðann og mér
fannst hann það versta sem til
var, en ég veit það núna að það að
deyja er ekki það versta sem get-
ur gerst heldur leið til að frelsast
eins og þú gerðir afi. Ég er ekki
lengur hrædd við að deyja, því ég
veit að þú munt taka vel á móti
mér og við munum spila á nýjan
leik.
Ég horfi út en ekkert sé,
fyrir þungum tárum sem falla.
Ég heyri ei hvað talað er,
hef huga minn sem fanga.
Ég hugsa um þig og finn fyrir,
hvernig hjartað mitt fer að sárna.
Ég veit samt best er að líta upp,
minnast lífs þíns og fagna.
Bros þitt í huga mínum brennur,
hlátur þinn í hjarta mínu syngur.
Andliti þínu mun ég aldrei gleyma,
sögur þínar mun ég ávallt geyma.
(Brynja)
Þín
Brynja.
Farinn er í friði minn besti afi.
Þú gafst mér alla þá visku sem
lífsins gildi þurfa. Ég mun sakna
þín mikið en er mjög þakklátur
að hafa haft þig hjá mér í lífi
mínu. Við brölluðum svo margt
saman alla ævi mína og okkur
fannst heimurinn vera okkar þó
svo við værum bara í bílskúrnum
á Sólvallagötunni að rífa gamla
skóda og púsla saman aftur. Man
ég eftir þegar þú söngst fyrir mig
á björtum sumardegi og þegar þú
kenndir mér að syngja, er við lág-
um í grasinu við gömlu trén í
garðinum heima hjá ykkur
ömmu. Ég vil þakka þér fyrir að
hafa gefið mér alla þá ást sem þú
hafðir að færa og eiginleika þína
sem eru glaðlyndi, söngelska og
sú virðing sem allir eiga að njóta
sem maður umgengst.
Ég mun ætíð elska þig af öllu
mínu hjarta og lifa með minn-
inguna um þig í harta mínu alla
ævi.
Takk fyrir allt og ég veit að þér
líður nú vel með mömmu þinni
sem þú saknaðir mikið.
Jón Marinó Sigurðsson.
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012
Raðauglýsingar
Félagslíf
EDDA 6012041010 I
Hlín 6012041019 IV/V
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
Skammtímaleiga 101
Íbúðir fullbúnar húsgögnum og hús-
búnaði. Sjá nánar á mimis4rent.com.
Sími 897-2568.
Gisting Akureyri
Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm
einbýlishús, 4 svefnherbergi. Að-
staða fyrir ca. 13 manns. Leyfilegt að
hafa hund í Skógarhlíð. Orlofshús við
Akureyri með heitum potti.
orlofshus.is Leó 897 5300
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Blekhylki og tónerar
í flestar gerðir prentara, 50-70%
ódýrari, öll hylki framleidd af
ORINK.
Blekhylki.is, Fjarðargötu 11,
Hafnarfirði, sími 517-0150.
Verslun
Fermingargjafir í úrvali
Fjarstýrðar þyrlur, flugvélar, bátar og
m.fl. á góðu verði. Netlagerinn slf.
Dugguvogi 17-19 á 2. hæð.
Sími 517-8878. Netverslun
www.Tactical.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata,
Kópavogi, s. 551-6488
fannar@fannar.is -
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Bókhald
N.P. þjónusta. Annast bókhalds-,
eftirlits- og gæslustörf.
Hafið samband í síma 893 7733.
Bókhaldsstofa með áratuga-
reynslu
Bókhald, ársreikningar og öll
skattþjónusta. Sanngjarnt verð.
Trúnaður og gagnkvæmt traust.
Fyrirtæki og samningar ehf.,
Suðurlandsbraut 46,
108 Reykjavík. S. 552 6688.
Þjónusta
Bílamerkingar
Fyrir allar stærðir og gerðir bíla.
Sendið fyrirspurn á
audmerkt@audmerkt.is
Eða skoðið heimasíðu okkar
www.audmerkt.is
Bílastæðamálun
malbiksviðgerðir og vélsópun,
551 4000 & 690 8000
www.verktak.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
BOÐSKORT
tækifæri
Við öll
580 7820
580 7820
GREEN-HOUSE
Fallegar vor- og sumarvörur.
Opið í dag, þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag frá 13-17.
Einnig fallegar kertaluktir og fleira
fyrir heimilið. Verið velkomin.
Green-house,
Þverholti 18,
105 Reykjavík.
S. 777 2281.
Nýkomnir og sumarlegir
Teg. 3371 - Léttfylltur og yndislegur
í B, C skálum á kr. 5.500, buxur í stíl
á kr. 1.995.
Teg. 810857 - Fínlegur, þunnur í C, D
skálum á kr. 5.500, buxur í stíl á
kr. 1.995.
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugardaga 10-14.
lokað laugardaginn 7. apríl
Þú mætir - við mælum og
aðstoðum.
www.misty.is
- vertu vinur
Teg. 6922 - Léttir og þægilegir
dömuskór úr leðri, skinnfóðraðir.
Litir: Beige, rautt og svart. Stærðir:
37-42. Verð: 11.870.
Teg. 3706 - Fallegir dömuskór úr
leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-42.
Verð: 10.900.
Teg. 3715 - Þægilegir dömuskór úr
leðri, skinnfóðraðir. Stærðir: 36-41.
Verð: 10.900.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími: 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílar
FLOTT EINTAK
SUBARU IMPREZA. Árgerð 2008,
ekinn aðeins 34 þ. km, sjálfskiptur,
ekki bílaleigubíll. Verð 2.490.000.
Rnr. 245430.
.
TILBOÐ 1.990.000.
JEEP GRAND CHEROKEE LA-
REDO 4X4. Árgerð 2005, ekinn 124
þ. km, bensín, sjálfskiptur. Verð áður
2.490.000. Tilboð 1.990.000.
Rnr. 124483.
.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Hjólbarðar
Nama heilsársdekk
175/65 R 14 kr. 11.900
185/65 R 15 kr. 12.990
215/65 R 15 kr. 17.750
205/55 R 16 kr. 16.650
225/55 R 16 XL kr. 19.750
215/55 R 17 kr. 20.600
235/55 R 17 kr. 24.900
235/45 R 17 kr. 21.390
225/65 R 17 kr. 24.290
Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b,
201 Kópavogi, s. 544 4333.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Góður í vetraraksturinn.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is