Morgunblaðið - 10.04.2012, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 10.04.2012, Blaðsíða 40
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 101. DAGUR ÁRSINS 2012 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Veðurfréttamaður vekur athygli 2. Lík Houston illa farið 3. Hera lifir á leiklistinni í London 4. Lýst eftir stúlku »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Dagana 11. apríl - 20. apríl verður haldin Indversk kvikmyndahátíð í Bíó Paradís. Myndir sem verða sýndar eru Dhoom 2 eftir Sanjy Gadhvi, Hálsmenið eftir A.L. Vijay, Stóri dagurinn eftir Maneesh Sharma, Tal- aðu eftir Shoaib Mansoor og Vél- menni eftir S. Shankar. Indversk kvikmynda- hátíð hefst á morgun  Síðasta ár hélt ÓkeiBæ mynda- sögukeppni fyrir tímarit sem var gefið á Ókeypis myndasögudag- inn. Bestu sög- urnar voru birtar ásamt efni frá helstu mynda- söguhöfundum landsins. Topp 5 sög- urnar í ár birtast í Ókeipiss #2. Skila- frestur er til 10. apríl, upplýsingar eru á Fésbókarsetri ÓkeiPiss. Skilafrestur fyrir ÓkeiPiss 2012 Ólöf Arnalds og Eldar í Edrúhöllinni Á miðvikudag Hæg suðaustlæg átt, 5-10 m/s á vestanverðu land- inu og slydda eða snjókoma og hiti kringum frostmark en hæg austanátt austantil, úrkomulítið og vægt frost. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustan 8-18 m/s, hvassast á Vest- fjörðum. Heldur minni úrkoma en í gær. Hiti kringum frostmark, en 2 til 7 stig sunnanlands yfir daginn. VEÐUR Það vantaði ekkert upp á spennuna í fyrsta leik KR og Þórs úr Þorlákshöfn í und- anúrslitum Iceland Express- deildar karla í körfuknatt- leik í gærkvöldi. Joshua Brown skoraði þriggja stiga körfu á síðustu sekúndu leiksins og tryggði KR sigur, 82:79. Í kvöld hefst kapp- hlaup Grindavíkur og Stjörnunnar um sæti í úr- slitum í hinni rimmu undan- úrslitanna í Grindavík. »8 Sigurkarfan á síðustu sekúndu „Ef Íslendingar vilja eiga landslið á heimsmælikvarða og lið sem á mögu- leika á að ná árangri á Ólympíu- leikunum þá verða menn að leggja peninga í það. Það ger- ist ekki af sjálfu sér,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik karla, eftir að ís- lenska landsliðið tryggði sér keppnisrétt á Ól- ympíuleikunum í London í sumar í for- keppni sem fram fór í Varazdin í Króatíu um helgina. Guðmundur segist horfa í alla átt- ir en ekki síst til rík- isvaldsins og Íþrótta- og ólympíusam- bandsins. »4 Það verður að fjárfesta í íslenska landsliðinu „Alla kylfinga dreymir um að klæðast þessum jakka. Núna er það ekki leng- ur draumur hjá mér heldur stað- reynd,“ sagði bandaríski kylfingurinn Bubba Watson sem á sunnudags- kvöldið vann Masters-mótið í golfi eftir æsispennandi keppni og bráða- bana við Louis Oosthuizen frá Suður- Afríku. Watson klæddist græna jakk- anum í fyrsta sinn. »3 „Ekki lengur draumur heldur staðreynd“ ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Þrír klifurgarpar, þeir Ívar Finn- bogason, Björgvin Hilmarsson og Viðar Helgason, unnu það afrek þriðjudaginn síðastliðinn, 3. apríl, að klífa austurvegg Skarðatinds í Öræf- um eftir nýrri leið. Þá klifu aðrir tveir garpar, Styrmir Steingrímsson og Freyr Ingi Björnsson, Hrútsfjalls- tinda milli Skaftafellsjökuls og Svína- fellsjökuls og einnig eftir nýrri og áð- ur ófarinni leið, degi síðar. Félagarnir þrír sem klifu Skarðatind eru allir fjallaleiðsögumenn og þaulreyndir í fjallaklifri. Björgvin Hilmarsson, einn þremenninganna, segir fyrstu leiðina upp austurvegginn hafa verið farna 1988 og tekist hafi að klífa þá leið í fimmtu tilraun. Margir fjallaklifrarar hafi rennt hýru auga til þeirrar leiðar sem farin var fyrir viku en ávallt þurft frá að hverfa vegna veðurs eða slæmra aðstæðna. Fyrir viku hafi að- stæður verið kjörnar og þeir fé- lagarnir því gripið tækifærið og kom- ist á toppinn. Erfiðasti fossinn fimmta gráða Björgvin segir daginn hafa byrjað með um þriggja tíma göngu inn Skaftafellsjökul og þegar að fjalls- rótum kom hafi tekið við skriður og snjóbrekkur en um 400 metra hækk- un er frá jöklinum upp í fyrsta klifur. Þá hafi þurft að tryggja vel með lín- um enda tíu spannir af lóðréttu ís- klifri og klettahryggjum framundan. „Maður þarf að flýta sér svolítið því þegar sólin kemur upp fer hún að baka ísinn og þá fer hann að hrynja niður, meiri hætta á að ísmolar og steinar fari að falla. Því styttri tíma sem það tekur að fara upp, þeim mun betra,“ segir Björgvin. „Þetta er það sem við köllum alvarlega leið,“ svarar Björgvin, spurður að því hvort klifrið sé ekki mikið hættuspil. „Það eru settar gráður á fossana eftir því hvað þeir eru brattir og erfiðir. Erfiðasti fossinn þarna er það sem kallað er fimmta gráða sem er með því stífara sem hægt er að klifra. Svo fer það náttúrlega eftir aðstæðum hversu auðvelt er að koma inn ísskrúfum og snjóhælum og slíku. Þarna var það misgott en þetta er bara þannig leið að það er ekki víst að aðstæður verði neitt betri. Þetta er alltaf alvarlegt og menn verða að hafa það í huga, ekki hoppa í svona lagað nema hafa ágætis reynslu að baki,“ segir Björgvin. „Þegar maður er kominn upp þá tek- ur við að klifra niður brattar snjó- brekkur, síga fram af klettum og ganga í kringum fjallið til að komast niður á skriðjökulinn aftur og svo út jökulinn. Þú lendir hærra en þegar þú byrjaðir að klifra þannig að það er ennþá lengra labb til baka,“ segir Björgvin en gangan öll, þ.e. frá bíl að bíl aftur, tók um 19 klst. Frekari upplýsingar um klifrið má finna á vef Íslenska Alpaklúbbsins, isalp.is. „Þetta er alltaf alvarlegt“  Mikilfenglegir tindar klifnir eftir nýjum leiðum Ljósmynd/Björgvin Hilmarsson Bratt Hér sjást Viðar (í svörtu) og Ívar nálgast megintryggingu í lok fyrstu spannar á leið sinni upp Skarðatind, nýrri leið áður ófarinni. Ekki fyrir lofthrædda eða lítt reynda að stunda slíkt klifur, eins og sjá má. Ljósmynd/Viðar Helgason Stórfenglegt Ívar gengur síðasta spölinn upp á topp, í baksýn Skaftafells- jökull lengst til vinstri og Kristínartindar fyrir miðju.  Tuttugasta kvöldið í tónleikaröð- inni Kaffi, kökur & rokk & ról fer fram í Edrúhöllinni, Efstaleiti 7, í kvöld. Í þetta skipti koma Ólöf Arnalds og Eldar fram. Húsið verður opnað kl. 20, það er talið í á slaginu 20.30 og tón- leikum lýkur fyrir 22. Aðgangseyrir er 500 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.