Morgunblaðið - 10.04.2012, Blaðsíða 37
EGILSHÖLL
16
7
ÁLFABAKKA
10
12
12
12
12
12
VIP
VIP
L
12
12
12
L
7
12
12
12
L
AKUREYRI
TITANIC 3D ÓTEXTUÐ KL. 5 3D
WRATH OF THE TITANS KL. 8 - 10:10 3D
FRIENDS WITH KIDS PÁSKATILBOÐ 450 KR KL. 6 2D
JOHN CARTER KL. 8 - 10:10 2D
12
16
SELFOSS
WRATH OF THE TITANS KL. 5:50 - 8 - 10:10
SVARTUR Á LEIK KL. 6 - 8 - 10:10
L
12
12
12
12
KEFLAVÍK
AMERICAN PIE : REUNION KL. 8 2D
WRATH OF THE TITANS KL. 10:20 3D
LORAX KL. 6 3D
FRIENDS WITH KIDS KL. 5:50 - 8 2D
SVARTUR Á LEIK KL. 10 2D
Missið ekki af þessari stórbrotnu
tímamótamynd nú í 3-D á stóra tjaldinu!
- séð og heyr/kvikmyndir.is
DREPFYNDIN MYND SEM GEFUR
FYRSTU MYNDUNUM EKKERT EFTIR!
KOMIN Í BÍÓ
BRIDESMAIDS
eru æðisleg í þessari frábæru gamanmynd
FRIENDS WITH
AMERICAN PIE KL. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 2D
AMERICAN PIE VIP KL. 3:40 - 8 - 10:20 2D
WRATH OF THE TITANS 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 3D
WRATH OF THE TITANS KL. 3:20 - 10:40 2D
WRATH OF THE TITANS VIP KL. 5:50 2D
GONE KL. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 2D
FRIENDS WITH KIDS KL. 8 - 10:20 2D
JOHN CARTER KL. 5:20 - 8 2D
HUGO MEÐ TEXTA KL. 5:30 2D
L
L
L
16
12
12
KRINGLUNNI
WRATH OF THE TITANS 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 3D
GONE KL. 8 - 10:10 2D
THE LORAX- 3D M/ÍSL.TALI KL. 4 - 6 3D
THE LORAX M/ÍSL.TALI KL. 4 - 6 2D
THE LORAX M/ENSKU.TALI KL. 8 2D
PROJECT X KL. 10 2D
TITANIC ÓTEXTUÐ KL. 5 - 8 3D
WRATH OF TITANS KL. 5:40 - 8 - 10:20 3D
GONE KL. 10:20 2D
PROJECT X KL. 5:50 - 9 - 11 2D
JOHN CARTER KL. 5:10 2D
FRIENDS WITH KIDS KL. 8 2D
Amanda Seyfried úr
MAMMA MIA er mætt í einum
besta þriller þessa árs.
MÖGNUÐ SPENNUMYND
Fjöldamorðingi gengur laus og hefur klófest
systur hennar en það trúir henni engin!
Kristen Wiig, John Hamm, Maya Rudolph og Chris O´Dwod úr
Cable knit chic.
Peysa,
3995,–
Fylgstu með okkur á
Facebook-Lindex Iceland.
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012
Pete Doherty trúði NME fyrir því á
dögunum að hann væri með tólf lög
klár fyrir nýja sólóplötu. Doherty,
sem býr í París, er að vinna að plöt-
unni með upptökustjóranum, Adem
Hilmi. Doherty sagðist skulda út-
gáfufyrirtækinu EMI plötu og
Hilmi væri nú með harða diskinn
hans og væri að vinsa út lög til út-
gáfu. Lög sem nefnd hafa verið sem
mögulegir kandidatar á plötuna
eru „Gambling Man“ og „Cell Ceil-
ing Blues“. Síðasta sólóplata Do-
hertys, Grace/Wastelands (2009),
var í upptökuumsjá Stephens
Streets, sem er þekktastur fyrir
vinnu sína með Smiths og Blur.
Doherty hefur eins og flestir
kannast við verið mikið í fréttum
undanfarið fyrir flest annað en tón-
list. Eiturlyf og annað skaðræði
hefur markað feril þessa hæfi-
leikapilts sem varð frægur sem
einn af meðlimum The Libertines í
upphafi fyrsta áratugar þessarar
aldar. Libertines komu saman á
nýjan leik fyrir stuttu og af þessari
frétt að dæma og myndskeiði sem
fylgdi með, en það var tekið upp í
París, virðist Doherty vera í sæmi-
legum málum nú um stundir.
Doherty klár í slaginn
Bækur bandaríska rithöf-undarins og teiknaransDr. Seuss ættu flestir aðþekkja sem unna góðum
barnabókum en þeirra þekktastar
eru eflaust Kötturinn með höttinn og
Þegar Trölli stal jólunum. Barnabók
hans, The Lorax, kom út árið 1971
og nú er sú saga komin á hvíta tjald-
ið í teiknimyndarformi og virðast
höfundar hafa fylgt teikningum Dr.
Seuss að hluta til, með ágætri út-
komu en þó hefði mátt ganga lengra
í þeim efnum. Dr. Seuss var nefni-
lega bráðskemmtilegur teiknari.
The Lorax segir af 12 ára dreng,
Tedda, sem býr í smábæ einum sem
girtur er af með háum stálveggjum.
Engar plöntur eða tré er að finna í
þessum bæ, einungis rafmagnstré og
verða bæjarbúar að kaupa súrefni af
illa innrættum kaupsýslumanni til að
lifa af. Þeir una þó sáttir við sitt, eru
þeirrar trúar að náttúruleg tré séu
skítug og til mikillar óþurftar. Þó
eru ekki allir á því. Teddi er hrifinn
af ungri stúlku sem á sér þann
draum heitastan að sjá raunverulegt
tré. Amma Tedda segir honum frá
dularfullum manni, Einsaranum,
sem býr utan borgarmúranna og veit
hvar tré er að finna. Teddi heldur út
fyrir múrana í leyfisleysi og finnur
Einsarann sem segir honum söguna
af því þegar hann var ungur maður
og fann mikinn skóg, töfrum lík-
astan, með trjám sem líktust einna
helst litskrúðugum biðukollum.
Hann hjó eitt trjánna niður og óf úr
„hárum“ þess flík eina forvitnilega.
Verndari trjánna og dýranna í skóg-
inum, furðuvera að nafni Lorax, kom
þá af himnum ofan og lét Einsarann
lofa sér því að fella ekki fleiri tré.
Einsarinn sveik það loforð, græðgin
varð honum að falli þegar allir vildu
eignast þessa furðuflík og að lokum
hafði hann fellt hvert einasta tré
skógarins. Ekki er þó öll von úti því
Einsarinn hefur í fórum sínum
trjáfræ sem hann færir Tedda.
Teddi reynir að sá því í bænum með
hinn illgjarna súrefnissala og skó-
sveina hans á hælunum.
The Lorax er litskrúðug og ærsla-
full teiknimynd, svo mjög að á köfl-
um keyrir um þverbak og jaðraði við
flog hjá rýni, slíkur var hamagang-
urinn og litskrúðið. Hoppandi og
syngjandi bangsar og fiskar í skær-
litum skógi eru dálítið mikið af því
góða. En boðskapurinn er góðra
gjalda verður, þ.e. að við mennirnir
göngum ekki á náttúruna í gróða-
skyni með tilheyrandi mengun og út-
rýmingu lífvera (sem við reyndar
gerum og virðumst ekkert ætla að
hætta því). En skyldi sá boðskapur
komast til skila í öllum hamagang-
inum? Þar er efinn og að mati und-
irritaðs hefði mátt hægja aðeins á
svo yngstu áhorfendur gætu notið
sögunnar betur.
Fimm ára sonur rýnis var þó sátt-
ur og til fyrirmyndar þegar hann bað
um lakkrís en hætti við og sagði:
„Nei, annars, ég þarf hann ekki.“
Allt er jú gott í hófi. Regla sem
teiknimyndagerðarmenn mættu
fylgja oftar.
Fallegur boðskapur en
fullmikill hamagangur
Smárabíó, Háskólabíó,
Laugarásbíó, Sambíóin
Dr. Seuss’ The Lorax bbbnn
Leikstjórar: Chris Renaud, Cinco Paul,
Ken Daurio og Kyle Balda. Bandaríkin,
2012. 94 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Náttúruvernd Hinn rauðguli Lorax með Einsaranum og dýrum skógarins. Litadýrðin og fjörið er mikið og boð-
skapurinn fallegur í myndinni en hætt er við því að hann fari fyrir ofan garð og neðan sökum útúrdúra og ofhlæðis.
Will Oldham og Dav-
id Byrne leggja til
lög á plötu með tón-
list við myndina This
Must Be the Place,
þar sem Sean Penn
fer með hlutverk
gotarokksstjörnu sem
má muna sinn fífil
fegurri. Kalla þeir sig
Pieces of Shit. Jónsi
og Alex, Iggy Pop og
fleiri eiga líka lög á
plötunni. Myndin
heitir eftir sam-
nefndu lagi Talking
Heads og er það á
plötunni í nokkrum
útgáfum.
Oldham, Byrne, Penn
Angurværð Það er eitthvað sorglegt, og fallegt, við
hann Sean Penn á þessari mynd.