Morgunblaðið - 10.04.2012, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.04.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2012 Viðskiptablaðið birti í liðinniviku tölulega samantekt á við- mælendum Spegils RÚV eftir stjórnmálaflokkum.    Skemmst er frá því að segja aðsamantektin sýnir að Ríkis- stjórnarútvarpið stendur fyllilega undir nafni.    Í samantektinni er tímabilið eftirbankahrun skoðað og þá kemur í ljós að núverandi ríkisstjórnar- flokkar eiga 75% viðmælenda í þættinum en stjórnarandstaðan 25%.    Vinstri grænir viðmælendur eru44% allra viðmælenda, sem verður að teljast nokkuð gott þegar horft er til stærðar flokksins meðal landsmanna.    Einungis 12% viðmælenda eruhins vegar tengd Sjálfstæðis- flokknum sem má teljast rýrt þegar horft er til fylgis þess flokks.    Hvernig skyldi þetta val Spegils-ins á viðmælendum fara sam- an við lög um RÚV þar sem segir að stofnunin eigi að „tryggja hlutlæga upplýsingagjöf um íslenskt sam- félag“?    Eða þetta ákvæði sömu laga:„Gæta skal fyllstu óhlut- drægni í frásögn, túlkun og dag- skrárgerð.“    Ætli stjórnendur Ríkisstjórn-arútvarpsins telji enga ástæðu til að hafa hliðsjón af lands- lögum í störfum sínum? Spegill hvers? Ekki þjóðarinnar STAKSTEINAR Veður víða um heim 9.4., kl. 18.00 Reykjavík 8 skýjað Bolungarvík 0 snjókoma Akureyri 1 snjókoma Kirkjubæjarkl. 7 skýjað Vestmannaeyjar 7 skýjað Nuuk -2 snjókoma Þórshöfn 7 alskýjað Ósló 1 slydda Kaupmannahöfn 5 alskýjað Stokkhólmur 5 léttskýjað Helsinki 2 léttskýjað Lúxemborg 7 skýjað Brussel 10 skúrir Dublin 10 skýjað Glasgow 11 skýjað London 11 skúrir París 11 skúrir Amsterdam 8 alskýjað Hamborg 7 skúrir Berlín 11 skýjað Vín 11 léttskýjað Moskva 2 skúrir Algarve 17 heiðskírt Madríd 22 heiðskírt Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 13 heiðskírt Aþena 10 þrumuveður Winnipeg -2 skýjað Montreal 7 skúrir New York 13 heiðskírt Chicago 13 heiðskírt Orlando 24 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 10. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:12 20:47 ÍSAFJÖRÐUR 6:09 20:59 SIGLUFJÖRÐUR 5:52 20:43 DJÚPIVOGUR 5:39 20:18 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16 Erum að taka á móti verkum á næsta uppboð Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400. Listmuna uppboð Gallerís Foldar Vefuppboð á verkum lýkur 11. apríl Guðmundur frá Miðdal Guðmundar frá Miðdal Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012 Birgir Möller, fyrrver- andi forsetaritari, lést á Droplaugarstöðum á páskadag, 89 ára að aldri. Birgir Möller fæddist í Reykjavík 14. október 1922. Foreldrar hans voru Tage Möller, kaup- maður og hljómlistar- maður í Reykjavík (1898- 1987) og Guðrún Fon- tenay, húsfreyja í Reykjavík (1903-1988). Stjúpfaðir Birgis var Frank le Sage de Fontenay, sendi- herra Danmerkur í Reykjavík og Ankara. Birgir var stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1942, cand. phil. frá Háskóla Íslands 1943, BA í hagfræði frá Brown University í Providence á Rhode Island 1945 og MA í alþjóðastjórnmálafræði frá Fletcher School of Law and Diplo- macy í Boston 1946. Birgir var enn- fremur löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi í dönsku. Birgir var starfs- maður í sendiráði Danmerkur í Ankara 1947-48, fulltrúi í utanríkisráðuneytinu 1948-54, sendiráðsrit- ari í Stokkhólmi 1954-60, í París 1960- 65 og í Kaupmanna- höfn árið 1965. Hann var sendiráðunautur í Kaupmannahöfn á árunum 1965-68, deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu 1969-80 og jafnframt forsetaritari 1970-81. Hann var sendifulltrúi í utanríkisráðuneytinu 1980-83 og sendifulltrúi í Kaupmannahöfn 1983- 92. Birgir var ennfremur orðuritari í orðunefnd frá 1970 til 1983. Eftirlifandi eiginkona Birgis er Gunella Möller, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi. Synir þeirra eru Carl Friðrik og Birgir Þór, cand. mag. í kvikmyndafræði. Andlát Birgir Möller Óskað var eftir aðstoð Suðurnesja- lögreglu vegna flugfarþega sem hafði orðið uppvís að því að reykja inni á salerni flugvélar Icelandair á föstudaginn langa. Farþeginn reyndist vera rúmlega fertug erlend kona, sem færð var til varðstofu Flugstöðvardeildar til nánari upp- lýsingar málsins. Hún kvaðst hafa reykt inni á salerni flugvélarinnar þar sem hún hefði verið á svo löngu ferðalagi. Konan var frjáls ferða sinna að svo búnu en málið er í hönd- um lögreglunnar á Suðurnesjum. Lögreglan hafði í ýmsu að snúast um helgina. Ökumaður var stöðvað- ur við hefðbundið eftirlit vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í fyrstu neitaði ökumað- urinn að stöðva bifreiðina en lög- regla veitti honum eftirför. Elting- arleikurinn tók enda á bifreiðastæði í Reykjanesbæ, þar sem ökumaðurinn yfirgaf bifreiðina og tók á rás. Hann faldi sig á bak við gám aftan við hús- næði fyrirtækisins þar sem hann fannst. Hann var síðar handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem akstur undir áhrifum fíkniefna fékkst staðfestur. Gripnir við hraðakstur Nokkrir voru gripnir við hrað- akstur á Reykjanesbraut um helgina. Mesti hraði mældist 138 km/klst., en ökumaður þeirrar bifreiðar var karlmaður á þrítugsaldri og mældist hraðaksturinn þar sem leyfilegur há- markshraði er 90 km/klst. Kona á svipuðum aldri ók á 120 km/klst. og önnur á 118 km/klst., en sú seinni reyndist ekki vera með ökuskírteini þegar að var spurt. Lögreglan hvet- ur ökumenn til að virða hámarks- hraða og sýna aðgát við aksturinn. Gripin við reyk- ingar í flugvél  Annríki hjá Suðurnesjalögreglu Niðurhal gagna yfir farsímanet Vodafone tvöfaldast á u.þ.b. sex mán- aða fresti og í febrúar sl. var gagna- notkunin 27 sinnum meiri en í janúar 2009. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Mest er notkunin vegna 3G-nettengla en með ört vax- andi vinsældum snjallsíma hefur hlutdeild þeirra í gagnaniðurhali vaxið mikið. Vitnað er í ummæli for- stjóra fyrirtækisins í ársskýrslu um að viðskiptamódel fjarskiptafyr- irtækja um allan heim séu í gagn- gerri skoðun, enda noti fólk í aukn- um mæli ýmis forrit sem gera því kleift að hringja án þess að greitt sé fyrir símtalið. „Þessi þróun mun lík- lega valda því, að hefðbundnar mæli- einingar eins og fjöldi símtala, tal- aðra mínútna eða SMS-sendinga verði aflagðar innan fáeinna ára og fyrirtækin byggi farsímatekjur sínar á gagnaflutningum eingöngu.“ Umbylting vegna tækni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.