Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012
Er þitt fyrirtæki að borga of mikið í símkostnað á mánuði? Nú býður Svar tækni tvær leiðir til sparnaðar með IP símkerfum. Annarsvegar
! "
!!
# $ %&
'
#
# þinn. Við erum í síma 510-6000.
Lækkaðu símreikninginn
Öflugt IP símkerfi frá Snom
3 stk Snom 300 símtæki, 1 Snom 320 símtæki
Snom hugbúnaðarleyfi fyrir allt að 10 notendur
Snom IP símkerfi – 4 SÍMTÆKI
8.500 m/vsk
Öflugt IP símkerfi frá Snom
5 stk Snom 300 símtæki, 1 stk Snom 320 símtæki
Snom hugbúnaðarleyfi fyrir allt að 10 notendur
Snom IP símkerfi - 6 SÍMTÆKI
Stofngjald 39.900 m/vsk
Mánaðargjald
10.500 m/vsk
Stofngjald 39.900 m/vsk
Mánaðargjald
SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS
Mikið úrval þráðlausra höfuðtóla
Mikið úrval þráðlausra höfuðtóla
Svalaskjól
-sælureitur innan seilingar
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 28 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
„Mikilvægustu niðurstöður þessarar
fræðigreinar sem ég hef rannsakað
eru að þær þjóðir sem hafa dregist
aftur úr glíma fyrst og fremst við
stjórnmálalegan vanda en ekki efna-
hagslegan,“ segir Þráinn Eggerts-
son. „Vandinn er alla jafna sá að þeim
hefur ekki tekist að skapa þjóðríki
sem veitir nauðsynlega opinbera
þjónustu, heldur ríki þar sem valda-
klíkur vaða uppi og úthluta bitlingum
til stuðningsmanna sinna.“
Þannig kynnir Þráinn til sögunnar
greinina Instution Economics, sem
rannsakar hagkerfi landa heims.
Þráinn hefur kennt við New York-
háskóla og við Háskóla Íslands. Í dag
og á morgun, föstudag og laugardag,
stendur HÍ fyrir ráðstefnu til heiðurs
Þráni.
Þráinn segir rannsóknir á hag-
kerfum meðal annars geta vísað veg-
inn þegar kemur að uppbyggingu
þjóða sem eru illa staddar, hvort
heldur um er að ræða vanþróuð Afr-
íkuríki eða vestrænt ríki eins og Ís-
land, lurkum lamið eftir bankahrun.
Í orði eða á borði?
„Rannsóknir benda allar til þess
að það fyrsta sem þarf að gera er að
rjúfa sambandið á milli stjórnmála og
atvinnulífs. Að markaðurinn sé hafð-
ur sem opnastur og helstu greinar at-
vinnulífsins ekki lokaðar fyrir al-
mennri þátttöku. Þetta kann að
virðast vera einfalt verk en raunin er
að sárafáar þjóðir hafa náð að stíga
þetta skref til fulls og í miklum meiri-
hluta tilvika er aðgangur að atvinnu-
lífi landa heims allt annað en frjáls.“
Þráinn segir einnig að bókstafur
laganna skipti fremur litlu máli ef
stjórnvöld og landsmenn standa ekki
við það sem þar er ritað. „Þetta má
orða sem svo að nafngildi laganna
skipti ekki máli heldur raungildi
þeirra,“ segir hann. „Í grófum drátt-
um eru t.d. allar þjóðir heims með
sömu stjórnarskrána, og þær næst-
Vandi á höndum á
„Nafngildi laganna skiptir ekki máli heldur raungildi
þeirra“ Huga þarf að því hvernig kerfið útdeilir kostnaði
og ábata Hugmyndafræðilegir uppvakningar komnir á stjá
Ein helsta undirstaða blómlegra
hagkerfa er að eignarrétturinn sé
tryggilega varinn. „Eignarrétturinn
þarf að vera stöðugur og forðast
þarf í lengstu lög að gera óvæntar
breytingar á eignarrétti fólks og
fyrirtækja, t.d. með fyrirvaralitlum
breytingum á sköttum,“ útskýrir
Þráinn. „Markaðurinn kallar á að
teknar séu ákvarðanir langt fram í
tímann s.s. um fjárfestingar og
sparnað. Fátt er þá til verra en að
hringla stöðugt í þeim ramma sem
er utan um atvinnugreinar og
efnahagsmál.“
Þráinn segir að þungir skattar
séu slæmir en óvæntar skatta-
breytingar fram og til baka enn
verri. „Frá mínum bæjardyrum séð
er það t.d. algjörlega óskiljanlegt
að þjóð sem er allt að því á barmi
glötunar skuli spila rússneska rúll-
ettu með undirstöðugrein eins og
sjávarútveginn, með óundirbúnu
og vanhugsuðu fikti með skatt- og
gjaldheimtu af greininni.“
Hringlað með eignarréttinn
ÓVÆNTAR SKATTBREYTINGAR STÓRVARASAMAR
● Ráðstefnan hefst á föstudeg-
inum með fyrirlestri nóbelsverð-
launahafans Edmunds Phelps, kl.
13 í sal 101 í Odda.
Á laugardag hefst dagskráin í
hátíðarsal HÍ, kl. 13. Þar taka til
máls Lee Alston, John N. Drobak,
James Robinson, Shanker Satya-
nath, Sonja Opper, Carl Hampus
Lyttkens, og Stefan Voigt.
Aðgangur er öllum heimill og
ókeypis.
Úrvalshópur fræðimanna
Vegfarandi tekur myndir af kirsuberjatré í fullum skrúða. Í bakgrunn-
innum er upplýsingaskjár japanska markaðarins.
Japanska jenið lækkaði á fimmtudag gagnvart bæði Bandaríkjadal og
evru. Lækkunin er rakin til þess að markaðurinn væntir þess að japanski
seðlabankinn muni grípa til fjármagnsinnspýtingar á næstunni.
Reuters
Rautt, grænt og hvítt
● Dómari í Kaliforníu hefur ákveðið að
taka til skoðunar kæru á hendur Google,
Apple, Intel og fjórum öðrum hátækni-
fyrirtækjum en þau eru ákærð fyrir ólög-
legt samráð í starfsmannamálum.
Nánar tiltekið eru fyrirtækin sökuð um
að hafa gert samkomulag sín á milli um
að reyna ekki að „tæla“ starfsmenn
hvert frá öðru.
Reuters-fréttastofan greinir frá því að
samráðið kunni að varða við lög um
hringamyndun. Einnig eru viðriðin málið
Adobe Systems, Intuit, Pixar og Lucas-
film.
Kærendur eru fimm forritarar sem
saka fyrirtækin um samantekin ráð sem
hafi komið niður á launum og hreyf-
anleika starfsmanna á milli fyrirtækja.
Halda þeir því fram að hið meinta sam-
ráð hafi valdið starfsfólki fyrirtækjanna
skaða sem meta má á hundruð milljóna
dala. ai@mbl.is
Tæknirisar sakaðir um samráð
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is