Morgunblaðið - 20.04.2012, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2012
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
fyrir bústaðinn og heimilið
Opið: mánudag til föstudags frá 12:30 - 18:00
Dalvegi 16a - Rauðu múrsteinshúsunum, 201 Kópavogi -
S. 517 7727 - www.nora.is - www.facebook.com/noraisland
Traktorakönnurnar komnar
Burleigh
bláa sveitastellið
Eikarborð og stólar
Ég trúi á Guð, föður
almáttugan, skapara
himins og Jarðar. Ég
trúi á Jesú Krist,
hans einkason, Drott-
in vorn, sem getinn
er af heilögum anda,
fæddur af Maríu mey,
píndur á dögum
Pontíusar Pílatusar,
krossfestur, dáinn og
grafinn, steig niður til
heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá
dauðum, steig upp til himna, situr
við hægri hönd Guðs föður almátt-
ugs og mun þaðan koma að dæma
lifendur og dauða. Ég trúi á heilagan
anda, heilaga, almenna kirkju, sam-
félag heilagra, fyrirgefningu synd-
anna, upprisu mannsins (holdsins)
og eilíft líf. Amen.
Sköpunin er lífið sjálft, lífsandi
lifandi Guðs. Þeir sem ekki trúa
sköpunarsögunni eru í þeirri stöðu
að takmarka Guð, og takmarkaður
guð er ekki almáttugur guð.
Almáttugur Guð varð að koma til
jarðar til að endurheimta sköpun
sína, manninn sem hann hafði
skapað eftir sinni mynd. Við
„syndafallið“ hvarf andi Guðs
(guðsmyndin) frá manninum. Skap-
arinn valdi þá auðmjúku leið að
gerast einn af mönnunum og segja
þeim milliliðalaust vilja sinn.
Dæmi, sem auðskilið er: Maura-
þúfa er í kálgarði sem bóndi ætlar
að plægja, hann veit að plógurinn
mun drepa maurana en sér ekki
leið til að bjarga þeim. Bóndinn
segir við sjálfan sig: mér þykir leitt
að eyðileggja maurabúið en ég get
ekki breytt mér í maur og skriðið
inn í mauraþúfuna og sagt maur-
unum að forða sér. Það var einmitt
það sem Guð gerði þegar hann kom
í heiminn í Jesú Kristi, hann
„breytti sér í maur og kom til jarð-
ar“. „Og engillinn sagði við hana:
„Heilagur andi mun koma yfir þig
og kraftur Hins hæsta mun yf-
irskyggja þig. Þess vegna verður
barnið heilagt, sonur Guðs“ ( Lk. 1:
35). „… Jósef, sonur Davíðs, óttast
þú ekki að taka til þín Maríu, heit-
konu þína. Barnið, sem hún gengur
með, er af heilögum anda. Hún
mun son ala og hann skaltu láta
heita Jesú því að hann mun frelsa
lýð sinn frá syndum hans.“ (Mt.
1:20-21). Jesús kemur í stað synda-
fórnarinnar í Móse-lögmáli, þar
sem menn lögðu hönd á höfuð fórn-
arlambsins og trúðu því að syndir
þeirra yfirfærðust í dýrið sem svo
var slátrað og blóð þess hreinsaði
syndasektina. Þegar menn játa
Jesú Krist sem frelsara sinn og
lausnara og trúa því í hjarta sínu
að hann hafi dáið fyrir syndir þess
sem játninguna gerir virkar það í
líkingunni, eins og viðkomandi
leggi hönd sína á Jesú á krossinum
og blóð hans, sem rann til jarðar
leysir játandann frá syndum. Í
jarðvist sinni var Jesús bæði guð
og maður. Hann gat ekki tekið á
sig syndir annarra nema að vera
syndlaus sjálfur. Þess vegna var
Jesús getinn af heilögum anda og
Guð gaf Jósef skilning á hans
stjúpföðurhlutverki. Guð seldi sig
undir hendur „mannlegs stjúp-
föður“ rétt eins og Guð varð í raun
„stjúpfaðir mannkyns“ þegar börn
hans Adam og Eva afsöluðu sér
erfðaréttinum, sem andlega skilget-
in börn hans, með syndafalli sínu.
„Ég dó, en sjá, lifandi er ég um
aldir alda, og ég hef lykla dauðans
og Heljar“ (Opb. 1:18). Í upprisu
sinni tók Jesús aftur þá stöðu sem
hann átti hjá Guði og nú sem Guð
kristinna manna. „Faðir, ger mig
nú dýrlegan hjá þér með þeirri
dýrð sem ég hafði hjá þér áður en
heimur var til“ ( Jh. 17: 5). Heil-
agur andi, gefinn af Guði Föður,
fyrir Jesú Krist tekur sér svo bú-
stað í hverju iðrandi
hjarta, sem leitar sátt-
ar við Skaparann í
hjálpræðisverki Jesú,
og þannig verður hver
andlega endurfæddur
maður aftur sáttur við
Guð og skilgetið af-
kvæmi hans. Kirkjan
er kristinn söfnuður
Guðs, „stofnsett á Gol-
gata“ þegar blóð Jesú
rann niður krossinn.
Kirkjan er almenn að
því leyti að hún stendur öllum þeim
til boða sem þiggja Jesú Krist sem
frelsara sinn og taka við Biblíunni
sem heilögu orði Guðs. Jesús steig
upp til himna í holdi og ræður yfir
holdi og anda, með því að játa hann
sem frelsara stíga menn yfir frá
andlegum dauða til eilífs lífs og
eiga fyrirheit sín í framhaldslífi
með Jesú þegar jarðvistinni lýkur.
Maðurinn rís upp frá dauðum í
andlegum skilningi. „Upprisa
holdsins“ er upprisa alls holds á
jörðinni. Og hefur því víðtækari
merkingu en upprisa mannsins.
Vegna áhrifa manna er jörðin öll
menguð og „hold“ jarðarinnar þarf
að hreinsast. Á endatímunum mun
„hold jarðar“ rísa upp, þegar Jesús
stofnar ríki sitt á jörð. Iðrandi
syndari upplifir hjálpræðið í Jesú
fyrir trú. Eins og Heilagur andi
kom til Maríu og yfirskyggði hana.
Eins yfirskyggir Heilagur andi
hverja iðrandi sál sem leitar Jesú
Krists og endurfæðir. Sá andlegi
„getnaður“ er raunverulegt ferli
náðarinnar sem Drottinn Jesús
einn getur gefið.
Trúarjátningunni þarf því að
fylgja eftir með bæn. „Ef þú játar
með munni þínum: Jesús er drott-
inn, og trúir í hjarta þínu að Guð
hafi upp vakið hann frá dauðum
verður þú hólpinn. Með hjartanu er
trúað til réttlætis, með munninum
játað til hjálpræðis“ (Róm. 10: 9-
10). Þeir sem trúa ekki „sköp-
uninni“ eða „meyfæðingunni“ og
snúa út úr Biblíutextum eru ein-
mitt þeir sem Jesús dó fyrir. Jesús
þráir að þeir sem eru í þeirri stöðu
komi fram fyrir hann í bæn, iðrist
synda sinna, horfi til hans á kross-
inum þar sem hann segir: „Ég dó
fyrir þig.“
Postullega
trúarjátningin
Eftir Ársæl
Þórðarson
Ársæll Þórðarson
» Sköpunin er lífið
sjálft, lífsandi lifandi
Guðs.
Höfundur er húsasmiður.
Með samstilltu
átaki bæjarstjórnar
og starfsmanna Sel-
tjarnarnesbæjar
varð rekstur og af-
koma árið 2011 mun
betri en árið á und-
an. Reikningar bæj-
arins fyrir nýliðið ár
gera ráð fyrir af-
gangi upp á 93 m.
kr. en sambærileg
tala fyrir árið 2010
var 1 m. kr.
Stefnan er að skila ekki síðri
árangri í rekstri fyrir yfirstand-
andi ár. Gangi það eftir eru for-
sendur fyrir lækkun útsvars frá
og með næstu áramótum. Það
hefur ávallt verið stefna Sel-
tjarnarnesbæjar að halda álögum
í lágmarki.
Aðhald í rekstri ásamt skipu-
lagsbreytingum í
samvinnu við bæj-
arstarfsmenn skilar
árangri sem Seltirn-
ingar geta verið
stoltir af. Víðtæk
samstaða er í bæj-
arfélaginu um að
standa vörð um
grunnþjónustuna og
hefur það tekist von-
um framar.
Íbúar á Nesinu
kunna að meta óeig-
ingjarnt framlag
bæjarstarfsmanna og
ábyrga framkvæmdastjórn bæj-
armálefna. Í árlegri þjón-
ustukönnun Capacent eru 91%
íbúa ánægð með búsetuskilyrðin
á Nesinu. Bærinn fær 4,5 af 5
mögulegum stigum og er með
aðra hæstu einkunn af sveit-
arfélögum í landinu.
Samkvæmt könnuninni eru um
91% bæjarbúa mjög ánægð með
aðstöðu til íþróttaiðkunar og er
Seltjarnarnesbær þar í öðru sæti
á landsvísu. Umhverfismálin
skora einnig hátt og er bærinn
með þriðju hæstu einkunnina af
sveitarfélögum á landinu.
Við höfum lagt við hlustir hvað
skiptir máli hjá fjölskyldum bæj-
arins. Lífsgæðin eru á Nesinu, í
samstarfi bæjarstjórnar, starfs-
manna bæjarfélagsins og íbúa á
Nesinu tryggjum við að bæjar-
félagið okkar verði áfram leið-
andi og íbúavænt.
Góð afkoma lækkar útsvarið
Eftir Ásgerði
Halldórsdóttur » Í árlegri þjónustu-
könnun Capacent
eru 91% íbúa ánægð
með búsetuskilyrðin á
Nesinu.
Ásgerður
Halldórsdóttir
Höfundur er bæjarstjóri.