Morgunblaðið - 25.04.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Morgunblaðið
gefur út
stórglæsilegt
blað um garðinn
föstudaginn
18. maí.
Garðablaðð verður með góðum
upplýsingum um garðinn, pallinn,
heita potta,sumarblómin,
sumarhúsgögn og grill. Katrín Theódórsdóttir
Sími 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 12, mánudaginn 14. maí.
Garða
blaðið
SÉ
RB
LA
Ð
Garðablað
Starfsmenn Loftorku í Reykjavík voru við mal-
bikunarframkvæmdir á Hverfisgötunni í gær. Sú
gata kemur afar illa undan vetri og margar hol-
ur sem þarf að fylla í með biki. Er þannig háttað
víða um borgina og því næg verkefnin fram-
undan fyrir Loftorku og aðra verktaka.
Malbikað yfir holur á götum borgarinnar
Morgunblaðið/Golli
Starfsmenn frá Loftorku í viðhaldsframkvæmdum á Hverfisgötu í gær
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ríkisstjórnin ætlar að koma til móts við kröfur um
aðgerðir í skuldamálum heimilanna, meðal annars
af hálfu Hreyfingarinnar, áður en þingið tekur sér
sumarfrí í lok maí.
Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar, vill ná sátt með aðgerðunum.
„Ég tel að stjórnvöld þurfi að vera með lokasvar í
þessum skuldamálum á vorþinginu. Það er mik-
ilvægt að fá einhverja niðurstöðu í þeim málum
sem bærilega víðtæk sátt geti tekist um svo menn
geti skilið þessi mál að baki og farið að horfa fram á
við eins og er mikilvægt á mörgum öðrum sviðum,“
segir Helgi.
Flokksbróðir hans, Lúðvík Geirsson, tekur í
sama streng. „Það er ljóst að skuldamálin eru eitt af
þeim málum sem þarf að ljúka í lok þessa þings í
sumar. Þetta eru verkefni sem þarf að ljúka á næstu
vikum og við munum gera það,“ segir Lúðvík og á
við skuldamálin og stjórnarskrármálið.
Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylking-
ar, er sama sinnis og kveðst sjálfur fylgjandi því að
leitað verði „allra leiða til að ganga lengra með al-
mennari aðgerðum, sérstaklega gagnvart þeim
sem keyptu á þenslutímabilinu“.
Samningsstaðan sé skýr í kosningunum
Hann kveðst aðspurður jafnframt binda vonir
við að línur í Evrópumálum skýrist vorið 2013.
„Ég vona að fyrir kosningarnar liggi fyrir stað-
an í stóru köflunum hvað varðar sjávarútvegs-,
landbúnaðar- og peningamál. Ég held að það
skipti mjög miklu máli að geta gengið til kosn-
inga og sagt fjórum árum eftir að við sóttum um
aðild að meginmálin séu farin að skýrast sem
ráða úrslitum um hvort við förum inn í sam-
bandið eða ekki.
Spurður hvort hann horfi því til þess að að-
ildarsamningur liggi fyrir haustið 2013 von-
ar hann „að það verði aldrei síðar en það“.
Boða lausn í skuldamálum
Þingmenn Samfylkingar lofa aðgerðum áður en þingið fer í sumarfrí í lok maí
Björgvin G. Sigurðsson boðar úrslitastund í Evrópumálum í kosningunum 2013
Nýr veiðivefur hefur verið opnaður
á mbl.is og verða birtar þar veiði-
fréttir frá ám og vötnum landsins.
Einnig verður fjallað um skotveið-
ar, fluguhnýtingar, veiðibúnað og
gefin góð ráð fyrir veiðitúrinn.
Umsjónarmaður efnis á vefinn er
Karl Lúðvíksson. Hvetur hann
lesendur til þess að senda ábend-
ingar, myndir frá veiðiferðum og
stuttar frásagnir af því hvernig
veiðist eða skemmtilegum uppá-
komum í ferðunum, á eftirfarandi
netfang: veidi@mbl.is.
Nýr veiðivefur á mbl.is
Veiði Karl Lúðvíksson er vanur veiðimaður og hefur hér náð einum vænum.
Daði Már Krist-
ófersson, dósent í
hagfræði við Há-
skóla Íslands, og
Stefán B. Gunn-
laugsson, lektor
við viðskipta-
fræðideild Há-
skólans á Ak-
ureyri, munu á
mánudag kynna
atvinnuvega-
nefnd Alþingis niðurstöður úttektar
sem þeir eru að vinna á hag-
fræðilegum áhrifum kvótafrum-
varps ríkisstjórnarinnar. Miðviku-
daginn 2. maí skila þeir svo
skriflegri greinargerð til nefnd-
arinnar. Þingnefndin óskaði eftir út-
tektinni í kringum páska samkvæmt
upplýsingum blaðsins.
„Við erum búin að fá fjölmargar
umsagnir og nú bíðum við eftir þess-
ari úttekt. Málið er komið í þinglega
meðferð og tilgangurinn með því er
að fara í gegnum frumvörp og að
sem flestir gefi sitt álit á þeim,“ seg-
ir Kristján L. Möller, formaður at-
vinnuveganefndar Alþingis.
kjartan@mbl.is
Vinna út-
tekt á kvóta-
frumvarpi
Kristján L.
Möller
Skila niðurstöðu sinni
í byrjun næstu viku
Fjórir pokar af
meintu amfeta-
míni fyrir utan
eldhúsglugga og
einn poki af
meintu kannabis-
efni í nær-
klæðum ungrar
konu var á meðal
þess sem fannst
við húsleit í íbúðarhúsnæði í um-
dæmi lögreglunnar á Suðurnesjum
um síðustu helgi en hún var fram-
kvæmd eftir að fengist hafði hús-
leitarheimild hjá Héraðsdómi
Reykjaness samkvæmt tilkynningu
frá lögreglunni.
Konan kvaðst eiga þessi meintu
fíkniefni og viðurkenndi að hafa
kastað hluta þeirra út um gluggann
þegar hún varð vör við að það var
lögreglan sem knúði dyra.
Þá lagði lögreglan hald á kylfu í
húsnæðinu. Húsráðandi veitti mikla
mótspyrnu við handtöku og brotn-
aði við það hliðarspegill á lögreglu-
bifreið, segir í tilkynningu lögregl-
unnar á Suðurnesjum.
Fíkniefni fundust í
nærklæðum konu
Össur Skarphéðinsson utanrík-
isráðherra bendir á að stækk-
unarstjóri ESB hafi gefið út að
hægt verði að opna alla samn-
ingskaflana fyrir þingkosning-
arnar næsta vor. „Ég þori samt
með engu móti að lofa því að
það verði komin einhver mynd,
t.d. á niðurstöðu í sjávarútvegi,
þegar kemur að næstu kosn-
ingum. En hinu get ég lofað að
komi ekkert óvænt upp á okk-
ar megin verði samnings-
afstaða okkar algerlega
skýr vel fyrir þann tíma,“
segir Össur sem vísar
á formann Sam-
fylkingarinnar þeg-
ar talið berst að
kröfum Hreyfing-
arinnar.
Horft til vors
ÖSSUR RÆÐIR STÖÐUNA
Össur
Skarphéðinsson
Björgvin G.
Sigurðsson
Helgi
Hjörvar
Lúðvík
Geirsson