Morgunblaðið - 25.04.2012, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2012
Eygló Harðardóttir alþingis-maður á pólitískt lögheimili í
þingflokki Framsóknarflokks.
En hún, eins ogsumir aðrir ann-
ars indælir táningar,
villist iðulega að heim-
an og spyrst ekki til
hennar dágóða stund,
jafnvel þótt auglýst sé
á mörgum símastaur-
um, galað nafnið og
gáð fyrir horn.
Þetta er dálítið snú-ið fyrir það fólk
sem gegnir hlutverki
„bonus pater familias“
í Framsókn um þessar mundir.
Og það eykur svo vanda þeirra,sem eru í forsvari á lögheim-
ilinu enn frekar, að eldri þingsystir
Eyglóar, Siv Friðleifsdóttir, sem
lengi hefur átt skráð heimilisfesti á
sama stað, notar hvert tækifæri sem
hún fær, til að frílysta sig annars
staðar og einkum þó þegar verst
gegnir.
Og þar sem allur bærinn veit, ograunar einnig þeir sem fjær
búa, hver flokkslitur Framsóknar er
gengur það einkar nærri þeim sem
gæta sannleikans og halda uppi
merkinu á hólnum að Siv virðist
sannfærð um að grasið sé miklu
grænna niðri á sléttunni, hjá svefn-
genglunum í Samfylkingunni.
Sem er skrítið því allir vita að þaðgras er úr sér sprottið og illa
rætt, enda jarðvegurinn þurr og
þjappaður og bústýran úrill og ann-
álaður skussi. Sér ekki stjörnur á eig-
in himni, en horfir fjarrænum augum
í fjarskann og heldur það hallir sem
aðrir vita að eru hillingar einar.
Hvílík ósköp.
Eygló
Harðardóttir
Umbrot á
bestu bæjum
STAKSTEINAR
Siv
Friðleifsdóttir
Veður víða um heim 24.4., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri 3 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 5 skýjað
Vestmannaeyjar 5 skýjað
Nuuk -6 léttskýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló 10 léttskýjað
Kaupmannahöfn 12 heiðskírt
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 7 skúrir
Lúxemborg 8 léttskýjað
Brussel 10 léttskýjað
Dublin 11 skýjað
Glasgow 7 skúrir
London 12 léttskýjað
París 12 léttskýjað
Amsterdam 8 léttskýjað
Hamborg 12 skúrir
Berlín 15 skýjað
Vín 16 alskýjað
Moskva 17 heiðskírt
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 17 heiðskírt
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 16 skýjað
Aþena 22 skýjað
Winnipeg 16 léttskýjað
Montreal 8 skýjað
New York 10 heiðskírt
Chicago 13 léttskýjað
Orlando 17 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
25. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:19 21:34
ÍSAFJÖRÐUR 5:10 21:52
SIGLUFJÖRÐUR 4:53 21:35
DJÚPIVOGUR 4:45 21:06
Rekja má tildrög umferðarslyss
nærri Kirkjubæjarklaustri á mánu-
dag, sem kostaði einn lífið, til þess að
ökumaðurinn var að teygja sig eftir
einhverju sem lá í gólfinu. Við það
missti hann stjórn á bílnum með
þeim afleiðingum að hann fór nokkr-
ar veltur og farþegi aftur í, sem var
ekki í belti, kastaðist út.
Í bílnum voru þrír vinir á þrítugs-
aldri, tveir karlmenn og ein kona, frá
Suður-Kóreu, sem voru á ferðalagi
um landið.
„Sá sem ók bílnum var að teygja
sig eftir einhverju sem hann hafði
misst í gólfið og lenti út af hægra
megin og á stiku. Hann reyndi að
komast inn á veginn aftur og tókst
það en missti svo aftur stjórn á bíln-
um og fór út af sömu megin,“ segir
Guðmundur Ingi Ingason, varðstjóri
hjá lögreglunni á Kirkjubæjar-
klaustri og Vík. „Bíllinn virðist hafa
oltið og endastungist. Farþeginn aft-
ur í var ekki í belti og kastaðist út um
hliðarrúðuna og gæti mögulega hafa
orðið undir bílnum sem valt áfram
6-7 veltur,“ bætir Guðmundur Ingi
við en samferðafólk hins látna hlaut
aðeins minniháttar meiðsl. Sjúkra-
bílar voru sendir á vettvang, auk
þess sem þyrla Landhelgisgæslunn-
ar var kölluð út og reyndu sjúkra-
flutningamenn endurlífgun í tölu-
verðan tíma en talið er að maðurinn
hafi hlotið það mikla áverka að hann
hafi látist nær samstundis.
Fólkið var flutt á Landspítalann í
Fossvogi þar sem það gekkst undir
læknisskoðun og fékk áfallahjálp.
„Fólkið var þar í (fyrrakvöld), þegar
ég hafði samband, og var í miklu
áfalli. Hinn látni og ökumaðurinn
voru bestu vinir,“ segir Guðmundur
Ingi. Lögreglan var í kjölfarið í sam-
bandi við ræðismann Suður-Kóreu
og hafði honum á mánudagskvöld
tekist að ná í alla aðstandendur og
greina þeim frá slysinu.
ylfa@mbl.is
Missti bílinn tvisvar út af
Þrír ferðamenn frá Suður-Kóreu voru í bílnum Ökumaðurinn teygði sig eftir
hlut á gólfinu og missti stjórn á bílnum Farþegi sem lést var ekki í öryggisbelti
Banaslys við Skaftártunguveg
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Kirkjubæjarklaustur
Mýrdalsjökull
Eldhraun
Meðalland
Álftaver
Skaftártunguvegur (208)
Þjóðvegur 1
Þjóðvegur 1
Kúðafljót
Skaftá
Skaftá
Slysstaður
ISS.IS • SÍMI: 580 0600
LEIÐANDI Í FASTEIGNAUMSJÓN
FASTEIGNAUMSJÓN ISS
Öll þjónusta við fasteignina á einni hendi.
Þjónusta ISS:
• Húseftirlit og daglegur rekstur
• Viðhaldsmál og viðhaldsáætlanir
• Fjármálaumsýsla
• Lóð og umhverfi
• Ræstingar og hreingerningar
• Samskipti við leigjendur
Með FASTEIGNAUMSJÓN ISS losnar þú við
áreiti og umstang ásamt því að tryggja virði
fasteignarinnar.
F J Á R F E S TA R O G F A S T E I G N A E I G E N D U R