Morgunblaðið - 25.04.2012, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 2012
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Flísar framtíðarinnar
gæði og glæsileiki á góðu verði
Stuttar fréttir ...
● Launavísitalan hækkaði um 1,1% í
mars frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf
mánuði hefur launavísitalan hækkað
um 12,1%.
Í kjarasamningum fjármálaráðherra,
fyrir hönd ríkissjóðs, við stærstu stétt-
arfélög opinberra starfsmanna, sem
undirritaðir voru í lok maí 2011, var
kveðið á um hækkun launataxta um
3,5% í mars 2012.
Kaupmáttur launa hækkar um
0,03%.
Vísitala kaupmáttar launa í mars er
112,1 stig og hækkaði um 0,03% frá
fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur
vísitala kaupmáttar launa hækkað um
5,3%, samkvæmt frétt Hagstofu Ís-
lands.
Hækkun um 1,1%
● Hrein raun-
ávöxtun Lífeyris-
sjóðs starfsmanna
ríkisins (LSR) og
Lífeyrissjóðs
hjúkrunarfræðinga
(LH) á síðasta ári
var 1,8%. Um síð-
ustu áramót voru
samanlagðar eignir
sjóðanna 401,8 milljarðar króna og
hækkuðu um 30,1 milljarð frá árinu á
undan eða um 8,1%.
Árið áður var hrein raunávöxtun LSR
2,2%. Raunávöxtun sjóðanna síðustu
fimm árin er neikvæð um 4,5%.
Undanfarin 3 ár hafa eignir LSR og
LH aukist um 95,3 milljarða króna. Það
má að stærstum hluta rekja til ávöxt-
unar sjóðanna.
Í árslok 2011 voru 63,2% af eignum
sjóðanna í innlendum skuldabréfum,
24,0% í erlendum verðbréfum, einkum
hlutabréfum, 3,3% í innlendum hluta-
bréfum og 4,3% í innlánum.
Raunávöxtun LSR á
liðnu ári var 1,8%
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Um 37% af lánum Arion banka til
sjávarútvegsfyrirtækja gætu þurft
að fara í gegnum fjárhagslega
endurskipulagningu verði frumvarp
um hækkun á veiðigjaldi að lögum.
Þau félög sem eru skuldsettari þyrfti
mörg hver að taka til fjárhagslegrar
endurskoðunar í annað sinn. Þetta
kemur fram í umsögn Arion um
frumvarp til laga um stjórn fiskveiða
og hækkun veiðigjalds.
Verði frumvörpin samþykkt í
óbreyttri mynd verða fjárhagslegu
áhrifin á Arion banka töluverð, en í
efnahagsreikningi bankans er
áhætta hans tengd sjávarútvegi um
72 milljarðar króna. Hið fjárhags-
lega tjón sem bankinn yrði fyrir, að
því er kemur fram í umsögn Arion,
myndi þá endurspeglast annars veg-
ar í neikvæðum áhrifum á greiðslu-
getu útgerðarfélaga og hins vegar í
virðisrýrnun aflaheimilda.
Bankinn telur ljóst að hækkun
veiðigjalds muni veikja stöðu sjávar-
útvegsfyrirtækja til muna og gera
mörgum þeirra ókleift að standa við
skuldbindingar sínar, ekki síst í til-
felli lítilla og meðalstórra félaga, en
útreikningar Arion banka sýna að
þau eru talsvert skuldsettari en þau
sem stærri eru. Þegar litið er til árs-
reikninga átta stærstu sjávarútvegs-
fyrirtækjanna árið 2009 kemur í ljós
að þótt þau séu handhafar um 50%
fiskveiðikvótans bera þau engu að
síður aðeins ábyrgð á þriðjungi
skulda geirans í heild. Ef tekið er
mið af skuldsetningu á hvert þorsk-
ígildistonn þá eru skuldir minni út-
gerða tvöfalt hærri en þeirra stærri.
Arion banki telur að stóru sjávar-
útvegsfyrirtækin geti í flestum til-
fellum staðið við skuldbindingar sín-
ar þrátt fyrir verulega hækkun á
veiðigjaldi. Hins vegar mun svigrúm
fyrirtækjanna til fjárfestinga skerð-
ast umtalsvert og jafnframt tak-
marka möguleika þeirra til vaxtar og
þróunar. Sterkt gengi krónunnar á
árunum fyrir hrun bankanna gerði
þeim erfitt um vik að ráðast í fjár-
festingar. Skuldastaðan í dag og
veikt gengi krónunnar ætti að öðru
óbreyttu að veita þeim svigrúm til
fjárfestinga. En með fyrirhugaðri
hækkun veiðigjalds, segir í umsögn
Arion, verður lítið svigrúm til fjár-
festinga sem mun leiða til þess að
nauðsynleg endurnýjun á fiskiskipa-
flotanum verður erfið.
Þyrfti að endurskoða 37%
lána Arion til sjávarútvegs
Skuldir á þorskígildistonn*
*Úthlutun aflahiemilda miðað við upphafsúthlutun í byrjun fiskveiðiárs
Heimild: Ársreikningar fyrirtækja, Hagstofa Íslands, Fiskistofa og Greiningardeild Arion
m. kr/þorskíg.t.
4,0
3,5
3,0
2,5
2,0
1,5
1,0
0,5
0
2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009
8 stærstu fyrirtækin
Meðalstórar/minni útgerðir
(fyrirtæki önnur en 8 stærstu)
Kemur hart nið-
ur á litlum og með-
alstórum félögum
Hagnaður Össur-
ar á fyrsta árs-
fjórðungi nam tíu
milljónum
Bandaríkjadala,
1.268 milljónum
króna, og er það
22% aukning frá
sama tímabili í
fyrra. EBITDA
nam 18 milljónum
Bandaríkjadala
eða 18% af sölu.
Heildarsala Össurar nam 100
milljónum dala á fjórðungnum, sem
er 5% aukning á milli ára, mælt í
staðbundinni mynt. Í tilkynningu frá
félaginu er haft eftir Jóni Sigurðs-
syni, forstjóra, að „söluvöxtur á
fyrsta ársfjórðungi var góður og í
takt við áætlun okkar fyrir árið í
heild. Eins og á undanförnum árs-
fjórðungum þá uxu öll landsvæði og
vörumarkaðir, þar sem Evrópa
sýndi sérstaklega góðan árangur.“
Sala jókst
um 5%
Vöxtur í takt við
áætlun Össurar
Jón
Sigurðsson
Væntingavísitalan mældist 71,3 stig
en aðeins tvisvar áður frá hruni hef-
ur vísitalan farið yfir 70 stig en það
var í janúar og febrúar síðastliðnum.
Í Morgunkorni Íslandsbanka er lagt
út af þessu með því að bjartsýnin sé
að aukast með hækkandi sól en þar
er bent á það að í marsmánuði hafði
vísitalan lækkað um 11 stig frá því í
febrúar. En nú hækkar hún um 5,6
stig. Væntingavísitalan hefur yfir-
leitt sterka fylgni við gengisþróun
krónunnar og því kemur ekki á óvart
að hún hækki lítillega nú þegar veik-
ingarhrina krónunnar sem staðið
hefur yfir síðan um miðjan febrúar
hefur stöðvast um stund.
Greinendur hjá Íslandsbanka
benda á að ennþá séu þó fleiri nei-
kvæðir en jákvæðir en þegar vænt-
ingavísitalan er undir 100 stigum eru
fleiri svarendur neikvæðir en já-
kvæðir. Vísitalan fór síðast yfir 100
stig í febrúar 2008. Það eru því kom-
in rúmlega fjögur ár þar sem svart-
sýnin hefur haft yfirhöndina meðal
íslenskra neytenda.
Allar undirvísitölur væntingavísi-
tölunnar hækka frá fyrri mánuði og
bendir það til þess að landinn er
bjartsýnni nú en í síðasta mánuði
varðandi mat á atvinnuástandinu og
efnahagslífinu, hvort sem horft er til
nútíðar eða framtíðar. Mest hækkar
matið á atvinnuástandi eða um 6,7
stig frá fyrri mánuði. Væntingar til
aðstæðna í efnahags- og atvinnumál-
um eftir 6 mánuði hækka um 5,5 stig
og stendur sú vísitala nú í 98,4 stig-
um en í janúar og febrúar sl. náði
vísitalan að skríða yfir 100 stig. Mat
á núverandi ástandi hækkar um 5,8
stig og mælist nú 30,5 stig og mat á
efnahagslífinu hækkar um 2,2 stig og
mælist nú 58 stig.
borkur@mbl.is
Eftir svartsýniskast í mars er að birta til hjá fólki í apríl
Væntingavísitalan sjaldan
verið hærri en núna í apríl
Morgunblaðið/RAX
Jákvæðni Íslenskir neytendur virð-
ast vera bjartsýnni í dag en í gær.
!"# $% " &'( )* '$*
+,-.,/
,01.2-
+,3.1-
,,.1+1
,+.42/
+2.3++
+12.+5
+.551,
+4/.24
+--.01
+,-.5/
,0/.1-
+,3.31
,,.132
,,.0/4
+2.3--
+12.5/
+.5533
+45./3
+--./4
,,2.5,32
+,-.2/
,0/.2-
+,2.+
,,.//1
,,.++/
+2.2,+
+12.41
+.5-,,
+4-.05
+--.45
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á