Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Búið að klúðra söluferlinu  Hæstbjóðendur í Perluna hafa fallið frá tilboði sínu  Engin stefna um skipulag Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks og fulltrúi flokksins í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, segir í bókun sem hann lagði fram á fundi stjórnar OR í gær að meirihlutinn í Reykja- vík hafi klúðrað sölu Perlunnar. Hópur fjárfesta, sem gert hafði kauptilboð í Perluna og gengið hafði verið frá viljayfirlýsingu við af hálfu stjórn- enda OR, hefur fallið frá tilboði sínu. Sala Perlunnar er liður í fjárhagslegri endur- skipulagningu OR og bárust sex tilboð í eignina þegar hún var auglýst til sölu í haust. Skrifað var undir viljayfirlýsingu við hæstbjóðendur í desem- ber en í fyrirvörum við tilboð þeirra var gert ráð fyrir að byggt yrði við Perluna. Svo virðist þó sem engin stefna hafi verið mörkuð varðandi framtíð- arskipulag umhverfis Perluna, segir Kjartan, og því orðið fátt um svör varðandi mögulega upp- byggingu. „Allt frá byrjun var engin heildarhugsun í dæm- inu af hálfu meirihlutans. Hugsunin var bara sú að selja Perluna og svo var málið ekkert hugsað lengra,“ segir Kjartan. Hann segir ljóst að hæst- bjóðendur hafi ítrekað reynt að leita svara hjá skipulagsyfirvöldum og stjórnendum borgarinnar en án árangurs. Málið hafi svo tekið nýja stefnu í janúar þegar skipulagsráð samþykkti að hefja undirbúning að hönnunarsamkeppni um framtíð- arnýtingu Öskjuhlíðar. „Perlan er einn vinsælasti ferðamannstaðurinn í Reykjavík, hvernig átti að nýta hana áfram sem slíkan ef hún færi til einkaaðila? Hvað um Öskju- hlíðina sem útivistarsvæði? Ég hélt að samhliða sölunni myndu ráð borgarinnar fjalla um þetta. En dæmið var aldrei hugsað til enda,“ segir Kjart- an. Ekkert samráð hafi verið haft milli OR og skipulagsyfirvalda í borginni og tilboðsgjafi engin svör fengið þar sem engin stefna hafi verið mörk- uð um framtíð svæðisins. „Allt frá byrjun var engin heildarhugsun í dæminu af hálfu meirihlutans.“ Kjartan Magnússon Gengið var í gær frá kaupum banda- ríska lyfjafyrirtækisins Watson á Actavis. Kaupverðið er samtals 4,25 milljarðar evra eða um 700 milljarð- ar króna. Langstærstur hluti þeirrar upphæðar felur í sér endurgreiðslu á lánum Novators, fjárfestingafélagi Björgólfs Thors Björgólfssonar. Stærsti lánardrottinn er Deutsche Bank en einnig áttu Landsbankinn, Straumur og Glitnir verulegra hags- muna að gæta. Munu tugir milljarða króna renna til íslensku bankanna við þessa sölu, að því er segir í til- kynningu frá Novator í gærkvöldi. Í samningnum felst að Novator eignast hlut í sameinuðu félagi Wat- son og Actavis. Mun stærð þess hlut- ar ráðast af afkomu Actavis og verð- ur ekki innleysanlegur fyrr en í fyrsta lagi árið 2015. Talsmaður Novators sagði ómögulegt að segja til um verðmæti þess hlutar að svo komnu máli. Núverandi hluthafar Actavis munu fá samtals 5,5 milljónir hluta í Watson í sinn hlut á næsta ári, að því gefnu að áætlanir um Actavis gangi eftir. Við samningagerðina var þessi væntanlegi hlutur metinn á 250 milljónir evra, eða um 40 milljarða króna. Myndi Novator eignast að- eins hluta af þeirri upphæð, stærstur hluti rynni til bankanna. Í kvöld- fréttum Sjónvarps í gærkvöldi kom fram að hlutur Björgólfs Thors gæti orðið allt að sex milljarðar króna. Eftir kaupin verður sameinað fé- lag þriðja stærsta samheitalyfjafyr- irtæki heims. Væntar samanlagðar tekjur á þessu ári eru um átta millj- arðar dollara, eða 960 milljarðar króna. Starfsmenn verða um 17 þús- und um allan heim, 20 verksmiðjur starfandi og meira en 12 rannsókn- ar- og þróunarsetur. Kaupin eru háð ýmsum skilyrðum, m.a. athugun bandarískra sam- keppnisyfirvalda og yfirvalda utan Bandaríkjanna. Actavis selt á 700 milljarða  Stærstur hluti söluandvirðis til Deutsche Bank og ís- lenskra banka  Hlutur Björgólfs talinn um sex milljarðar Kaup Björgólfur Thor og Paul Bis- aro, forstjóri Watson. Arnór Sig- hvatsson aðstoð- arseðla- bankastjóri var gestur á mið- stjórnarfundi ASÍ í gær þar sem gengismál og gjaldeyrishöft voru í brenni- depli. Tilefnið var, að sögn Gylfa Arnbjörnssonar, forseta ASÍ, aukn- ar líkur á forsendubresti kjarasamn- inga, sem koma til endurskoðunar í janúar næstkomandi. „Það eru vaxandi líkur á því að forsendur kjarasamninga varðandi bæði verðbólgu og gengi standist ekki. Og auðvitað er það áhyggju- efni, bæði hvað varðar kjör okkar fólks en líka vegna þess að þá eykst auðvitað óvissan í efnahagslífinu,“ segir Gylfi. Farið hafi verið yfir stöð- una á fundinum og rætt um mögu- legar leiðir til að ná tökum á vand- anum. „Það er alveg ljóst að það verður ekki einfalt og að sumu leyti tengist það því að það hefur ekki tek- ist að mynda samstöðu, hvorki inni á Alþingi né meðal þjóðarinnar, um hvað við viljum gera,“ segir hann. Mikilli orku hafi verið varið í að ræða skyndilausnir en á meðan fljóti þjóð- in hægt og sígandi að feigðarósi. Þá segir Gylfi ljóst að þjóðin verði að taka ákvörðun um framtíð- artilhögun gjaldeyrismála en sveifl- ur í gengi og verðlagi samrýmist engan veginn stöðugleikamark- miðum. holmfridur@mbl.is Hefur ekki tekist að ná samstöðu Gylfi Arnbjörnsson Miðstjórn ASÍ ræddi gjaldeyrishöftin Milli miðnættis og klukkan sex í gærmorgun mældust yfir 100 jarð- skjálftar um tvo kílómetra NNV við Hellisheiðarvirkjun. Þetta kemur fram á vefsvæði Veðurstofu Íslands og að stærstu skjálftarnir voru um 2 að stærð. Langflestir voru þeir þó innan við einn að stærð. Hrinan kemur í framhaldi af hrinu sem var aðfaranótt sunnudags og á svipuðum stað. Skjálftavirknin núna var þó heldur vestar en fyrri skjálftahrinur, líkt og þróunin hefur verið. Enn skelfur á Hellisheiði Magnús Stefánsson garðyrkjumaður var að sinna spínatuppskerunni í Lamb- haga þegar ljósmyndara bar þar að garði í gær en spínat hefur verið ræktað hjá garðyrkjustöðinni í um eitt ár. Hafberg Þórisson, sem stofnaði stöðina 1979, gerði tilraunir með tæplega 100 tegundir áður en hann hóf ræktun en framleiðslugetan er um eitt og hálft tonn á mánuði. „Þetta er mjög skemmtileg viðbót við það sem ég er að gera en þetta er dá- lítið erfið ræktun og gefur ekki mikið af sér,“ segir Hafberg. Ræktun erlend- is, utandyra í heitu loftslagi, sé mun hagkvæmari. Hafberg hyggst þó skoða aðrar ræktunaraðferðir enda er eftirspurn eftir spínatinu gríðarlega mikil og nam innflutningur á því um 60 tonnum á ári fyrir fimm árum. Rækta 18 tonn af spínati á ári í Lambhaga Morgunblaðið/Árni Sæberg –– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS Morgunblaðið gefur út stórglæsilegt blað um garðinn föstudaginn 18. maí. Garðablaðð verður með góðum upplýsingum um garðinn, pallinn, heita potta,sumarblómin, sumarhúsgögn og grill. Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 12, mánudaginn 14. maí. Garða blaðið SÉ RB LA Ð Garðablað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.