Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 17
ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Tíðin hefur verið töluvert önnur í vor en fyrir ári. Myndir segja meira en mörg orð; þær sem hér fylgja, teknar af íþróttasvæði KA um miðjan apríl í fyrra og á sama tíma ári síðar, taka af allan vafa. Þá kól tún illa um allt Norðurland vegna mikils klaka, en bændur þurfa ekki að búa við þau ósköp nú.    Aðeins eru fáeinir dagar þar til Íslandsmótið í knattspyrnu hefst og fyrsti leikurinn á Akureyri verð- ur 12. maí þegar Þór tekur á móti Leikni og daginn eftir tekur Þór/ KA á móti Íslandsmeisturum Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna.    Þórsvöllurinn er orðinn grænn og virkar fallegur, a.m.k. úr fjarska. Gera má ráð fyrir að þar verði leikið bæði 12. og 13. maí. Akureyrarvöllur, heimavöllur meistaraflokks KA, lítur líka vel út.    Vér skíðamenn getum rifið græjurnar aftur út úr bílskúrnum tímabundið. Vertíðinni lauk í Hlíð- arfjalli um síðustu helgi en vegna góðra aðstæðna hefur verið ákveð- ið að fresta sumrinu þar og fólk getur rennt sér í brekkunum fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag.    Guðmundur Karl Jónsson, for- stöðumaður skíðasvæðisins í Hlíð- arfjalli, segir að aðstæður séu nú með allra besta móti og hafi varla verið jafn góðar síðan í febrúar.    Stríð er hafið í bænum gegn munntóbaksnotkun í íþróttamann- virkjum, löngu tímabært stríð. Í samþykkt íþróttaráðs á dögunum voru íþróttafélög í bænum minnt á lög Íþróttabandalags Akureyrar „þar sem kveðið er á um bann við neyslu tóbaks og vímuefna í tengslum við æfingar og keppni“.    Einnig var minnt á reglugerð þar sem öll tóbaksneysla er bönnuð í húsakynnum sem ætluð eru til fræðslu-, félags-, íþrótta- og tóm- stundastarfs barna og unglinga. „Jafnframt hvetur íþróttaráð Íþróttabandalag Akureyrar og íþróttafélög á Akureyri til að banna alla notkun tóbaks í íþróttastarfi félaganna og í og við íþróttamann- virki.“    Ánægjulegt er að sjá að stjórn Þórs hefur í framhaldinu ákveðið að ýta úr vör fræðsluátaki um skaðsemi munn- og neftóbaks með það að markmiði að útrýma notkun hvers kyns tóbaks af félagssvæðinu frá og með 1. júní nk.    Auglýstir hafa verið tveir opnir fyrirlestrar í félagsheimili Þórs, Hamri, þar sem Martha Her- mannsdóttir, tannlæknir og hand- boltakona, fjallar um skaðsemi munn- og neftóbaks. Hrollvekjandi sögur hafa einmitt verið sagðar af skaðsemi munntóbaks á tennur og aðrar gersemar í andliti.    Tónleikar til heiðurs ensku rokksveitinni ELO verða á Græna hattinum í kvöld. Þar leikur ELO- Tribute-bandið, sem stofnað var á þessu ári og er skipað ungum lista- mönnum úr héraði.    Leonard Cohen verður heiðr- aður á Græna hattinum annað kvöld, þar sem hljómsveitin The Saints of Boogie street flytur lög og texta Kanadamannsins kunna, af nýútkomnum diski til heiðurs Co- hen.    Helgi og Hljóðfæraleikararnir halda svo árlegan vorfagnað á Græna hattinum á laugardags- kvöldið og þess má geta að Orð skulu standa, sem einu sinni var vinsæll útvarpsþáttur í Rík- isútvarpinu, en er nú vinsælt skemmtiprógramm á sviði Þjóðleik- húskjallarans, verður á Græna hattinum á mánudagskvöldið. Ljósmynd/Þórir Tryggvason Vorið er komið og grundirnar gróa Ljósmynd/Jón Már Kristinsson Gult og grænt KA-svæðið um miðjan apríl í fyrra, á efri myndinni, og á sama tíma í ár. Nánst eins og svart og hvítt. FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012 Kynnum Ceramide línuna frá Elizabeth Arden. Ceramide er andlitslína með mikilli virkni sem skilar frábærum árangri. 15% kynningarafsláttur á Ceramide-línunni í verslunum HagkaupsCeramide Gold ambúlur fyrir augnsvæðið, með hjálp náttúrulegra efna þéttist húðin og liftist. Ceramide Gold ambúlurnar gefa húðinni aukið „boost“. Kröftug og áhrifarík meðferð fyrir andlit og háls. Byrjaðu strax í dag, gefðu húðinni aukið vítamín og hún viðheldur æskuljóma sínum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.