Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012 Smiðshöfði 1, 110 Reykjavík, sími 587 9700, propack.is, propack@propack.is Sérhæfum okkur í pökkun og frágangi á búslóðum til flutnings milli landa, landshluta eða innanbæjar Við pökkum búslóðinni, önnumst farmbréf, tollafgreiðslu og sjáum um flutning á áfangastað. Flytjum fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Sjáum einnig um að pakka upp búslóðinni á nýju heimili og koma öllu fyrir eins og óskað er. Ef heimilið er ekki tilbúið bjóðum við geymslu búslóða, í nýlegu og glæsilegu húsnæði, með fullkomnu öryggis- og brunavarnakerfi. Stofnað árið 1981 Páll Torfi og Hrönn ásamt Ugga Agnars- syni, sérfræðingi í hjartasjúkdómum, en hann á sæti í stjórn sjóðsins. Tveir 500 þúsund króna styrkir voru veittir úr Styrktar- og verð- launasjóði Bent Scheving Thor- steinsson á aðalfundi Landspítala í vikunni. Styrkina hlutu Hrönn Harð- ardóttir sérfræðilæknir og Páll Torfi Önundarson yfirlæknir og samstarfsaðilar þeirra. Markmið sjóðsins er m.a. að veita styrki og verðlaun fyrir rannsóknir á sviði hjartalækninga og hjarta- og lungnaskurðlækninga. Hlutu vísindastyrki Svandís Svavarsdóttir, umhverf- isráðherra, veitti vefsíðunni Nátt- úrunni.is í gær Kuðunginn, um- hverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverf- ismálum. Við sama tækifæri voru nem- endur í Stórutjarnaskóla í Ljósa- vatnsskarði og Foldaskóla í Graf- arvogi útnefndir Varðliðar umhverfisins. Þá opnaði Svandís einnig nýtt Endurvinnslukort Náttúrunnar.is sem sérstaklega er hannað fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Til- gangur kortsins er að gefa almenn- ingi nákvæmt yfirlit yfir hvar á landinu sé tekið við hvaða úrgangs- flokkum til endurvinnslu. Náttúran.is hlaut Kuðunginn fyr- ir samnefnda „framúrskarandi vef- síðu um umhverfismál, og jákvæð áhrif þess á almenning og fyr- irtæki,“ eins og segir í rökstuðningi valnefndar. Verðlaunagripurinn, Kuðung- urinn, sem Náttúran.is hlaut að þessu sinni, er eftir listakonuna Ingu Elínu. Með Kuðunginn Guðrún Tryggvadóttir og Einar Bergmundur Arnbjörnsson, eigendur Náttúrunnar.is, með Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra til hægri. Náttúran.is fékk Kuðunginn Átján tillögur bárust í samkeppni um hönnun fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík en frestur til að skila til- lögum rann út 16. apríl. Dómnefnd sem skipuð var vegna samkeppn- innar kom saman í gær til að hefja mat á tillögunum. Skrifað var undir samning um út- færslu hönnunarsamkeppninnar 4. janúar á þessu ári. Dómnefnd hafði þá lokið gerð samkeppnislýsingar og mun hún á næstu vikum fara yfir tillögurnar og velja tillögu sem byggt verður á. Dómnefnd skal hafa lokið störf- um eigi síðar en 4. júní. Verður þá tilkynnt hvaða tillaga hefur orðið fyrir valinu og jafnframt opnuð sýning á öllum tillögunum. Í fram- haldi af því verður samið við hönn- unarteymi verðlaunatillögunnar um fullvinnslu teikninga. Nýja fangelsið á Hólmsheiði verður gæsluvarðhalds- og mót- tökufangelsi með deild fyrir kven- fanga og aðstöðu fyrir afplánun skemmri fangelsisrefsinga og vara- refsinga. Gert er ráð fyrir 56 rým- um fyrir fanga og mun byggingin leysa af hólmi Hegningarhúsið í Reykjavík og fangelsið í Kópavogi. 18 tillögur um hönn- un nýs fangelsis Í mars 2012 voru gefin út 4.024 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 3.133 vegabréf í mars 2011. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 28,4% milli ára. Fyrstu þrjá mánuði ársins hafa verið gefin út 10.164 ís- lensk vegabréf samanborið við 7.903 vegabréf á sama tímabili á síðasta ári. Þjóðskrá Íslands annast útgáfu vegabréfa auk nokk- urra annarra skilríkja. Þann 23. maí 2006 styttist gildis- tími almennra vegabréfa úr 10 árum í 5 ár þegar örgjörva var bætt í vega- bréfið. Í maí 2011 runnu fyrstu vegabréfin með örgjörva út og segir stofnunin að það skýri að einhverju leyti aukna vegabréfaútgáfu. Utanríkisráðuneytið hvetur alla sem eru á leið til ríkja utan EES- svæðisins að huga að því að fá nýtt vegabréf ef minna en sex mánuðir eru eftir af gildistíma gamla vegabréfsins þar sem búast megi við að ríkin setji það sem skilyrði fyrir landgöngu að vegabréf gildi a.m.k. sex mánuði fram yfir áætlaðan dvalartíma í viðkomandi ríki. Vegabréfum fjölgar milli ára Náttúruverndarhreyfingin á Ís- landi efnir til Náttúruverndar- þings í Háskólanum í Reykjavík laugardaginn 28. apríl kl. 10- 16:30. Á þinginu verður fjallað um stöðu rammaáætlunar og næstu skref í baráttunni fyrir verndun mikilvægra náttúruverndarsvæða. Á Náttúruverndarþinginu verða í fyrsta skipti veitt verðlaunin Nátt- úruverndarinn, viðurkenning fyrir ötula náttúruverndarbaráttu á Ís- landi. Náttúruverndar- þing um helgina STUTT Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Strandveiðar mega hefjast á mið- vikudag í næstu viku, 2. maí, og er þetta fjórða árið sem þessi veiði- skapur er leyfður. Fiskistofa er byrjuð að taka á móti umsóknum um leyfi, en í fyrra fengu alls 685 bátar leyfi til veiðanna og voru þeir flestir í júlí eða 655. Samkvæmt upplýs- ingum frá Landssambandi smábáta- eigenda var aflaverðmæti strand- veiðiafla um 2,5 milljarðar í fyrra. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri sambandsins, segir að talsverður áhugi virðist vera á strandveiðum. Hann áætlar að fjöldi verði svipaður í ár og var í fyrra. Sumarið 2010 voru bátarnir 747, en Örn segist telja að fjöldinn hafi nú náð jafnvægi. Gjald fyrir hvert veiðileyfi er 72 þúsund og þarf að greiða það til að virkja leyfið. Veiðigjald er 9,46 krón- ur á hvert þorskígildiskíló sem veitt er og verður það innheimt í haust. Þau nýmæli eru í reglugerð um veið- arnar að eigandi verður að vera lög- skráður á bátinn. Ef báturinn er í eigu lögaðila en ekki einstaklings þarf að skrá kennitölu þess af eig- endunum sem verður lögskráður í umsóknina, að því er segir á heima- síðu Fiskistofu. Sumir náðu 50 róðrum Heimildir til strandveiða voru auknar ár frá ári fyrstu þrjú árin, en í sumar verður heimilt að veiða allt að 8.600 tonn af óslægðum botnfiski eins og í fyrra. Strandveiðar má stunda fjóra daga í viku frá mánu- degi til og með fimmtudegi frá byrj- un maí til loka ágústmánaðar. Veið- arnar eru þó þeim takmörkunum háðar að þegar ákveðnum afla er náð á hverju svæðanna fjögurra verður að hætta veiðum. Það hefur haft í för með sér að suma mánuði hefur aðeins mátt stunda veiðar í 4-5 daga á vestursvæðinu þar sem mest sókn hefur verið. Aflinn á meðalbát í fyrra var sam- tals um 12,5 tonn, en aflahæstu bát- arnir komu að landi með um og yfir 40 tonn. Þeir náðu um 50 róðrum, sem er nálægt tvöfalt fleiri róðrar en meðalbáturinn náði. Á síðustu vertíð sendi Fiskistofa út 969 tilkynningar vegna umfram- afla strandveiðibáta. Upphæð gjaldsins sem lagt var á vegna þessa nam um 24,7 milljónum sem renna í Verkefnasjóð sjávarútvegsins. Morgunblaðið/Heiddi Farfuglar Þegar strandveiðar mega hefjast fjölgar bátum víða í höfnum eins og t.d. á Arnarstapa, en margir sækja þaðan yfir sumarið. Hátt í 700 bátar undir- búnir á strandveiðar  Fjórða ár strandveiða  Mega byrja á miðvikudag Undanfarið hefur algengt verð fyr- ir kíló af óslægðum þorski verið 300-350 krónur á fiskmörkuðum. Er það ekki ósvipað verð og fékkst á mörkuðunum í fyrrasumar. Mest hefur fengist fyr- ir millistærðina síðustu vikur. Verð fyrir kíló af óslægðri ýsu hefur undanfarið verið hærra en fyrir þorskinn og jafnvel nokkuð á fimmta hundraðið. Algengt verð fyrir ýsuna er þó á svipuðu róli og fyrir þorskinn. Aflabrögð eru mjög góð í Breiðafirðinum eins og verið hefur í allan vetur og á það við öll veiðarfæri. 300-350 krónur fyrir kílóið VERÐ Á FISKMÖRKUÐUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.