Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012 Hvað eigum við að þurfa sitja lengi undir þessari ríkisstjórn sem ekkert getur gert? Jó- hanna og Steingrímur eru löngu búin að missa allt traust þjóðarinnar og hafa brugðist á öll- um vígstöðum. Það er ekki eitt, það er allt. Nýjasta skoð- anakönnun Capacent Gallup sýnir að fylgi við ríkisstjórnina er um 28% en Sjálfsstæðisflokkur mælist með 38%. Segir þetta okkur ekki eitthvað? Flokkurinn sem var við völd í hruninu og mörg ár áður er aftur orðinn stærsti flokkurinn. Hvort það er ánægja með störf Sjálfsstæðisflokksins eða óánægja með ríkisstjórnina verður hver að meta sjálfur. Þessi ríkisstjórn hefur klúðrað hverju málinu á fætur öðru og það nýjasta er peningaeyðslan sem var það eina sem kom út úr landsdóms- málinu. Hvað eigum við Íslendingar að þurfa greiða oft fyrir þetta hrun? Þeir peningar sem fóru í málið gegn Geir H. Haarde hefðu getað farið í mun þarfari hluti eins og tannlækna- þjónustu fyrir börn, malbikun á löngu ónýtum vegum landsins eða ný tæki á Landsspítalann. En nei, velferð- arstjórninni var svo mikið í mun að klekkja á fyrrum andstæðingi sínum og sýna vald sitt í verki að þessi leið var valin. Það er þá velferðin. Jóhanna og Steingrímur, hvort sem þau átta sig á því eða ekki, virð- ast staðráðin í að grafa algjörlega undan öllum grunnstoðum atvinnu- lífsins og þá ber helst að nefna kvóta- frumvarpið sem endurskoðandafyr- irtæki eru búin að gefa út að muni knésetja flestöll sjávarútvegsfyr- irtæki innan 5 ára. Ég velti því fyrir mér hvort ríkisstjórnin hugsi málin til enda eða hvort þau hugsi bara út í bankabókina sem þau geta sýnt þeg- ar nær dregur kosningum. Þetta frumvarp er ekki til að skapa sátt um auðlindir landsins og er ekki hægt að færa fram rök með því. Við eigum kannski bara að treysta á það að ferðamenn haldi okkur uppi um ókomna framtíð ? Það sem þarf að gerast hér á landi er að öllum atvinnu- greinum sé veittur öruggur rammi til að stunda sín viðskipti í sátt og samlyndi við þjóð, ríkissjóð og önnur lönd. Við megum ekki búa við að ein atvinnu- grein, hvort sem það er fiskveiðar, fjármál eða ferðaþjónusta, ráði yfir mestum mannlegum auðlindum og einkenni afkomu ríkissjóðs. Hér þarf að byggja upp allar greinar atvinnulífsins svo ef að ein bregst þá falli ekki allt kerfið eins og spilaborg. Réttlátar leikreglur þurfa að vera til staðar sem mismuni ekki milli atvinnugreina. Þetta er eitthvað sem við eigum að vera löngu búin að læra á þeim fjölmörgu fjár- málakreppum, stórum eða smáum, sem riðið hafa yfir hinn vestræna heim en við endum alltaf á sama staðnum. Við höfum auðlindirnar til að verða með þeim bestu í heimi en við sitjum uppi með Jóhönnu og Steingrím og lítið sem ekkert gerist. Það er erfitt að setjast niður og hugsa út í þá hluti sem þessi rík- isstjórn hefur gert. Kvótafrumvarpið, ESB-umsóknin, Icesave-klúðrið, skattahækkanir, nýtt hátæknisjúkra- hús, landsdómsmálið, stjórnlagaþing- ið svo fátt eitt sé nefnt. Þessi rík- isstjórn hefur gert nóg af sér og ég vona svo sannarlega að hún fái ekki að lifa út kjörtímabilið. Nægur er skaðinn nú þegar. Hvernig verður fyrir okkur komið eftir ár? Þó svo að Geir H. Haarde hafi ekki séð fyrir allsherjar fjármálahrun árið 2008 þá grunar mig að í honum blundi dálítil skyggnigáfa og hann hafi séð fyrir þessa ríkisstjórn velferðar þegar hann sagði: „Guð blessi Ísland.“ Skyggnigáfa Geirs Eftir Þorvarð Hrafn Ásgeirsson Þorvarður Hrafn Ásgeirsson » Þessi ríkisstjórn hef- ur klúðrað hverju málinu á fætur öðru og það nýjasta er peninga- eyðslan sem var það eina sem kom út úr landsdómsmálinu. Höfundur er nemi í sagnfræði við Háskóla Íslands. Jóhann Tómasson læknir hefur skrifað um árabil í Morg- unblaðið um heil- brigðismál en oftast um Kára Stefánsson, lækningaleyfi Kára, landlæknana Ólaf Ólafsson og Sigurð Guðmundsson, mið- lægan gagnagrunn á heilbrigðissviði, Ís- lenska erfðagreiningu og de- CODE, prófessorana Þórð Harð- arson og Guðmund Þorgeirsson og nú síðast Pál Magnússon útvarps- stjóra. Undirritaður hefur oft fylgt með í þessum pakka vegna starfa sinna fyrir Læknafélag Ís- lands og formennsku þar í mörg ár. Undantekningalaust hafa verið bornar fram alvarlegar ávirðingar og nú síðast 20. apríl er skrifað um „strengjabrúður hugleys- ingja“. Þetta kemur ekki á óvart, þar sem óvild Jóhanns í minn garð nær miklu lengra aftur en saga Íslenskrar erfðagreiningar og Kára Stefánssonar. Lesa má út úr Moggagrein fyrir tæpum 20 árum, að ég sé bæði illa menntaður og ómerkilegur læknir, sem gangi er- inda einkahagsmuna minna í mála- tilbúnaði sem formaður Félags ís- lenskra heimilislækna. En þetta er að vísu aukaatriði. Þar sem þessum skrifum Jó- hanns hefur aldrei verið svarað svo mig reki minni til vil ég bæta um að þessu sinni svo hann verði a.m.k. ekki einn um að skrifa sög- una um samskipti Kára Stef- ánssonar og Læknafélags Íslands. Í septemberhefti Læknablaðsins 2005 fékk Jóhann birta grein und- ir fyrirsögninni „Nýi sloppur keis- arans“. Um leið og ég las þessa grein við útkomu blaðsins var mér ljóst, að til álita væri að Jóhann hefði brotið siðareglur lækna, co- dex ethicus, á Kára með því að varpa rýrð á menntun hans og getu til að stunda lækningar í sinni sérgrein. Ég gerði mér jafn- framt grein fyrir því, að ég yrði sem for- maður stjórnar Læknafélags Íslands að sjá til þess að mál- ið yrði tekið upp í stjórninni vegna þeirrar eftirlitsskyldu, sem á henni hvíldi skv. lögum að siða- reglurnar væru heiðr- aðar. Kári Stefánsson var félagi í Lækna- félagi Íslands og átti sama rétt og allir aðr- ir læknar til að heiður hans væri varinn af stjórn félagsins ef svo bæri undir. Við Jóhann höfðum um árabil verið samstarfsmenn á heilsugæslu hér í borg og því var ljóst að sá málarekstur, sem í hönd færi, yrði erfiður fyrir sam- starfið og myndi hafa þrúgandi áhrif á andrúmsloftið á stöðinni. Yrði hann fleirum en okkur Jó- hanni erfiður. Ég færði þetta í tal við kollega mína og varaði þá við því, sem í vændum væri. Málið var síðan tekið upp í stjórn LÍ nokkr- um dögum síðar. Það eru sem sagt vitni að því að málatilbúnaður stjórnar Lækna- félags Íslands gegn Jóhanni Tóm- assyni var í bígerð dögum áður en Kári Stefánsson hóf að láta lög- fræðinga sína jagast í læknafélag- inu út af þessu með alls kyns kröfugerðum og tilætlunarsemi. Hef ég ekki enn í dag kynnt mér þá rekistefnu alla. Það er því al- ger hugarburður Jóhanns Tóm- assonar, að honum hafi verið stefnt fyrir siðanefnd læknafélags- ins á sínum tíma vegna krafna Kára Stefánssonar. Jóhann sá nánast alveg um þetta sjálfur með óafsakanlegum ummælum um kollega sinn, Kára Stefánsson lækni, í 9. tbl. Læknablaðsins 2005. Við þeim ummælum var stjórn Læknafélags Íslands að bregðast. Jóhann Tómasson læknir virtur svars Eftir Sigurbjörn Sveinsson »Málatilbúnaður stjórnar Lækna- félags Íslands var í bí- gerð dögum áður en Kári Stefánsson hóf að láta lögfræðinga sína jagast í læknafélaginu Sigurbjörn Sveinsson Höfundur er fyrrverandi formað- ur Læknafélags Íslands. Eitt stærsta verk- efni íslenskrar þjóðar á næstu misserum verður að byggja upp lífvænlegt samfélag, segir Guðmundur Valsson í grein sinni 14. mars. Lífvænlegt samfélag er ekki það sem flestir íbúar Skaftártungu sjá fyrir sér með byggingu svo- kallaðrar Búlands- virkjunar. Virkjunin mun hafa mik- il áhrif á umhverfi og byggð. Moldrok, minnkað vatnsrennsli í Tungufljóti og missir á beitilandi með gríðarstóru lóni mun hafa slæm áhrif á búskap í Skaft- ártungu, svo ekki sé meira sagt. Í grein sinni 14. mars segir Guð- mundur Valsson að Búlandsvirkjun sé einn mest rannsakaði virkjunar- kostur landsins, en hann verður að gera sér grein fyrir því að þó svo að þessi virkjanakostur sé mikið rannsakaður er það ljóst að hann hefur gríðarlega slæm áhrif fyrir byggð í Skaftártungu. Ennfremur segir hann að Suðurorka hafi unnið verkið í sátt og samlyndi við sveit- arstjórn Skaftárhrepps. Þetta „verk“ hefur hefur hins vegar eng- an veginn verið unnið í sátt eða samlyndi við íbúa Skaftártungu, en þeir eiga mestra hagsmuna að gæta á þessu svæði. Svæðið sem á að sökkva með uppistöðulóni er í landi Búlands- sels, en það landsvæði er í eigu marga aðila. Ekki hefur verið sam- ið við þá um að sökkva þessu land- svæði en það held ég megi telja mjög sérstakt, að ætla sér að byggja stærðar virkj- un, en hafa ekkert svæði undir lónið. Ef þessi virkjun mun rísa á næstunni tel ég að nýliðun í bú- skap í Skaftártungu verði lítil eða engin. Ég segi fyrir mig, sem hef áhuga á því að stunda búskap í Skaftártungu, að ég hefði minni áhuga á að stunda búskap í sveit þar sem alltaf geisar moldrok í norðanátt- um. Það er ekki mjög spennandi staða. Eins þýðir minna rennsli í Tungufljóti meiri kostnað í girð- ingum og gríðarmikið tap á veiði. Nýlega var hluti af Skaftár- tunguafrétti tekinn í þjóðgarð, með það sjónarmið að auka ferða- mennsku. Stór virkjun með svona mikil áhrif hefði líklega mjög nei- kvæð áhrif á ferðamennsku, en ferðamennskan skapar mun fleiri langtímastörf heldur en virkjunin. Þannig er líka hægt að skapa at- vinnu og verðmæti. Og þess vegna spyr ég eins og Guðmundur Vals- son spyr í grein sinni: Viljum við það ekki öll? Eintóm hamingja með Búlandsvirkjun? Eftir Berg Sigfússon » Stór virkjun með svona mikil áhrif hefði líklega mjög nei- kvæð áhrif á ferða- mennsku, en ferða- mennskan skapar mun fleiri langtímastörf heldur en virkjunin. Bergur Sigfússon Höfundur er íbúi í Skaftártungu. - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is ...þú leitar og finnur KEVIN.MURPHY HÁRSNYRTIVÖRUR www.kevinmurphy.com.au fást á hársnyrtistofum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.