Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 16
BAKSVIÐ
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Hildur Helgadóttir, innlagnastjóri
Landspítalans, telur að breyta þurfi
reglum þannig að þeir sjúklingar
sem bíða eftir plássi á hjúkrunar-
heimilum þurfi að víkja af spítalan-
um ef þeir geta fengið pláss á hjúkr-
unarheimili. Nú geta þeir neitað að
yfirgefa spítalann ef þeir fá ekki inni
á því hjúkrunarheimili sem þeir helst
kjósa.
Í fyrradag lágu 14 manns á bráða-
deildum Landspítalans sem gætu
dvalið á hjúkrunarheimilum. Hildur
bendir á að legudagur á bráðadeild-
um spítalans kosti meira en 110.000
krónur en daggjald á hjúkrunar-
heimili er 23.000 krónur. „Þetta er
brýnt úrlausnarefni,“ segir hún.
Vilja helst fá einbýli
Hildur segir að óvenjumargir
sjúklingar bíði nú eftir vistun á
hjúkrunarheimilum. Skýringin sé
m.a. sú að plássum á hjúkrunarheim-
ilum hafi eitthvað fækkað í höfuð-
borginni og eldra fólk geri, skiljan-
lega, aukna kröfu um að fá inni á
einbýli. Fólk setji sig því á biðlista
eftir einbýlum og bíður síðan á Land-
spítalanum eftir að þau losni. Starfs-
menn spítalans geti aðeins rætt við
viðkomandi og góðfúslega óskað eft-
ir að þeir setji sig á biðlista á fjórum
hjúkrunarheimilum og taki það pláss
sem losni fyrst. Margir verði við
þessu. „En aðrir eru ákveðnir í að
fara á tiltekinn stað. Það getur valdið
erfiðleikum því þeir þurfa jafnvel að
bíða á bráðadeild, til dæmis bækl-
unarskurðdeild, í marga mánuði.“
Alls bíði um 40 manns eftir að
komast af spítalanum yfir á hjúkr-
unarheimili, flestir ýmist á nýopn-
aðri hjúkrunardeild Landspítalans í
Landakoti með 18 rúmum og á end-
urhæfingardeildum á sama stað.
Aðrir bíði á bráðadeildum með til-
heyrandi kostnaði.
Í heildina eru 674 rúm á spítalan-
um og í sumar er gert ráð fyrir að yf-
ir hásumarið verði mest 20% þeirra,
136 rúmum „lokað“ eins og það er
kallað.
Norðmenn fluttir til og frá
Hildur bendir á að í nágrannalönd-
um Íslands séu sjúkrahús í annarri
stöðu, þar sé það á ábyrgð sveitarfé-
laga að leysa mál þeirra sem þurfa
ekki að vera á sjúkrahúsi heldur geta
dvalið á hjúkrunarheimili. „Þar dag-
ar fólk ekki uppi á sjúkrahúsum,“
segir hún. Í Noregi sé lögð rík
áhersla á að flytja fólk á hjúkrunar-
heimili um leið og mögulegt er. Þar
verði sjúklingar að velja fyrsta pláss
sem losnar og skiptir þá engu þótt
það sé langt frá þeirra heimabyggð.
Sjúklingar sem liggi á sjúkrahúsi í
Osló verði t.a.m. að sætta sig við að
vera fluttir langt út á land þar sem
þeir dvelja þangað til pláss losnar í
borginni.
Hildur telur eðlilegt að hugað
verði að svipuðu fyrirkomulagi hér;
að fólk þurfi að taka fyrsta pláss sem
losnar en verði síðan flutt á það
heimili sem það vill helst þegar pláss
losnar.
Bíða eftir eina rétta plássinu
Um 40 manns liggja á Landspítalanum sem gætu verið í hjúkrunarheimilum 14 á bráðadeildum
Legudagur á bráðadeild kostar yfir 110.000 krónur en daggjald á hjúkrunarheimili er 23.000 kr.
Morgunblaðið/Júlíus
Aðgerð Í Noregi er lögð rík áhersla á að fólk yfirgefi spítala eins fljótt og
mögulegt er. Þá er það jafnvel flutt langt frá heimabyggð, til að byrja með.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
Við tökum á
móti netum
Efnamóttakan tekur við
veiðafæraúrgangi úr næloni, þ.e:
• netaafskurði
• hlutum úr flottrolli
• nótaefni
Fáðu hjá okkur sérsniðna poka
undir netaafskurðinn.
Hafðu samband og fáðu
nánari upplýsingar!
Sími 559 2200
www.efnamottakan.is
Hildur segir
að með
breyttu
vinnulagi í
kjölfar efna-
hagshruns-
ins hafi
mátt loka,
þ.e. fækka,
mörgum
sjúkrarúm-
um án þess
að það hafi komið niður á starf-
seminni. Nú sé hins vegar kom-
ið að þolmörkum og á lyflækn-
ingasviði hafi líklega verið
gengið ívið of langt. Helst þyrfti
að opna 10-15 rúm þar aftur en
rekstur spítalans leyfi það ekki.
„Við erum í rosalegri klemmu,
það er allt í járnum,“ segir hún.
Úrelt húsnæðið geri starfs-
mönnum enn erfiðara fyrir.
Eru í rosa-
legri klemmu
FÆKKUÐU RÚMUM
Hildur
Helgadóttir
Álagið á starfsfólk Landspítalans
er mikið og það hefur verið viðvar-
andi í mörg ár. „Fólk er orðið
þreytt og það kemur fram í auknum
veikindum,“ segir Eva Hjörtína
Ólafsdóttir, aðaltrúnaðarmaður
hjúkrunarfræðinga á Landspít-
alanum.
Eva vinnur á lyflækningasviði,
nánar tiltekið á smitsjúkdómadeild-
inni í Fossvogi. Hún bendir á að allt
síðasta ár hafi verið meira en 100%
nýting á deildinni og á fyrstu þrem-
ur mánuðum þessa árs hafi nýtingin
verið 106%. Á deildinni er pláss fyr-
ir 22 sjúklinga í herbergjum og
þurfi fleiri að leggjast inn á deild-
ina sé aðeins pláss fyrir þá á gang-
inum. Þar sé pláss fyrir 2-3 en fleiri
umframsjúklingar séu ekki lagðir
inn því gangurinn bjóði ekki upp á
meira. „En ég spyr hver vill liggja á
ganginum?“ segir Eva. Slíkt sé alls
ekki boðlegt og auk þess brot á
ýmsum lögum og reglugerðum.
Á deildina komi mikið veikir
sjúklingar sem þurfi mikla hjúkrun
og hjúkrunarfræðingar og sjúkra-
liðar finni verulega fyrir álaginu
sem fylgi umframsjúklingum. Álag-
ið sé sömuleiðis mikið á unglækna
og aðstoðarlækna. „Þeir þurfa líka
að hlaupa mikið,“ segir hún.
Eva segir að álagið leggist hvað
þyngst á unga hjúkrunarfræðinga
„sem eru kannski ekki eins harð-
gerðir“. Þeir hugsi sér til hreyfings
ýmist á aðrar sjúkrastofnanir eða
íhugi að hætta hjúkrun og læra eitt-
hvað allt annað.
Í þessu ástandi hlaðist þreytan
upp í starfsfólkinu. Þetta álag verð-
ur til þess að það verður ekki eins
mikil framþróun og áherslan á fag-
legt starf verður svolítið útundan
þegar við þurfum dag eftir dag að
láta okkur nægja að gera aðeins
það helsta fyrir sjúklinga,“ segir
hún. „Það þarf eitthvað að fara að
breytast. Það þarf að setja meiri
peninga í þetta. Við viljum ekki
veita hjúkrun á hlaupum eða kvíða
því að koma í vinnuna.“
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn Starfsmenn finna fyrir auknu álagi og fjarvera hefur aukist vegna veikinda.
Álagið dregur úr þróun
og bitnar á faglegu starfi
Aukið álag
» Sjúklingum á Landspít-
alanum fjölgaði um 9,5% á
fyrstu þremur mánuðum árs-
ins frá sama tíma í fyrra.
» 57 fleiri sjúklingar komu á
dag en rúmum fjölgaði um 2%,
þ.e. 15 fleiri rúm voru opin eða
til reiðu fyrir sjúklinga.
» Komum á bráðamóttökuna
fjölgaði um 5,7% og skurð-
aðgerðum fjölgaði um 2,5%