Morgunblaðið - 26.04.2012, Qupperneq 11
Ljósmynd/Sigrún Þorsteinsdóttir
Dansað í Afríku Íslenskur ferðalangur dansar hefðbundinn Masai-dans í Masai Mara-þjóðgarðinum í Kenýa.
lega grænn og guli liturinn sterk-
gulur, þessi skörpu skil í öllu eru
einkennandi fyrir Afríku. Kenýa er
við miðbaug og því kemur sólin upp
með látum og hún sest líka snöggt.
Allt verður kolsvart þegar dimmir
því þarna er ekki sú ljósmengun
sem við erum vön á Íslandi. Okkur
líður líka vel í þessu loftslagi og hit-
anum. Eftir öll þessi ár getum við
gert okkur nokkurn veginn skilj-
anleg á svahílí, einu af mörgum
tungumálum í Kenýa. Við erum
heimavönust í Kenýa og lítum á það
sem okkar annað heimaland og þar
eigum við fjölskyldu. En það er erf-
itt að gera upp á milli þessara
landa, Úganda er óskaplega grænt
og fallegt, Rúanda hefur sín sér-
kenni og górillurnar, Tansanía
heillar með Sansíbar og svona
mætti lengi telja.“
Milli íslenskra jökla
Afríkuferðir Elínar og Borgars
eru farnar frá september fram í
febrúar en undanfarin fjögur ár
hafa þau rekið gistiheimili í Hríf-
unesi í Skaftártungu yfir sum-
artímann. „Hrífunes er æðislegur
staður milli tveggja jökla, Mýrdals-
jökuls og Vatnajökuls, sem við
sjáum út um eldhúsgluggann hjá
okkur. Útsýnið er dásamlegt, við
sjáum líka út í Hafursey og Hjör-
leifshöfða. Í Hrífunesi eru sléttur
rétt eins og í Afríku, þó að annars-
konar séu. Og þar horfum við á ís-
lenskar antílópur sem eru kind-
urnar í túnunum. Flestir gestir
okkar í Hrífunesi eru erlendir
ferðamenn en það er alltaf eitthvað
af Íslendingum líka,“ segir Elín og
bætir við að þau Borgar eigi ekki
ættir að rekja austur í Skaftár-
tungu, þau hafi einfaldlega heillast
af svæðinu. „Við erum svolítið hrif-
næm.“ Nánar á www.afrika.is og
www.hrifunes.is
Ljósmynd/Sigrún Þorsteinsdóttir
Fjallaferðir Jóhannes Erlingsson fararstjóri á tindi Kilimanjaro í Tansaníu.
Daglegt líf í Kenýa Flest er okkur Íslendingum framandi í henni Afríku.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
WOW ferðir bjóða upp á sannkallaða menningarreisu til Kölnar. Iðandi
mannlíf og menning á hverju götuhorni, pylsur og Picasso-málverk, salt-
kringlur og sætabrauð. Haganlega smíðaðar brýr, undurfagrar byggingar og
traust leiðsögn frá Geir Rögnvaldssyni, fararstjóra.
Verð á
mann
í tvíbýli: 89.800 kr.
Innifalið er flug með
sköttum og gisting í
5 nætur með
morgunverði.
WOW ferðir | Grímsbæ, Efstalandi 26 | 108 Reykjavík | +354 590 3000 | wowair@wowair.is
Margbrotin
menning í Köln
wowferdir.is
14.–19. júní
Sýning á ljós-
myndum Lolu Rebo-
ud, sem hún tók á
Íslandi, verður opn-
uð í dag, 26. apríl,
og stendur til 15.
júní.
Lola hefur mest-
an áhuga á por-
trett-myndatökum,
í lit og í formi fern-
ings en frá því í
september 2007
hefur hún farið til
Íslands í þeim til-
gangi að gera heim-
ildamyndaröð um
andrúmsloftið,
landið og fólkið
sem þar býr. Eins
og er sam-
anstendur mynda-
röðin af um það bil 40 myndum: portrett-, landslagsmyndum og myndum af
daglegu lífi, teknum á öllum tímum ársins og saman mynda þær eina heild.
Sýningin ber heitið Les Climats – A Journey in Iceland og var sýnd á mörg-
um stöðum árið 2010. Einnig var sýningin tilnefnd til hinna virtu verðlauna
HSBC fyrir ljósmyndun árið 2011. Opnun sýningarinnar hefst kl. 17 í Alliance
française, Tryggvagötu 8, að viðstöddum íslenskum listamönnum sem eiga
það sameiginlegt að hafa verið ljósmyndaðir af Lolu. Nánari upplýsingar má
sjá á síðu Alliance française, www.af.is.
Ljósmyndasýning
Heimildaröð ljósmynda
um Ísland og fólkið sem þar býr
Matvælastofnun heldur fræðslufund
um eftirlit með lyfjanotkun og lyfja-
leifum í dýrum í dag, fimmtudaginn
26. apríl kl. 15:00-16:00. Á fundinum
verða kynntar nýjar reglur um raf-
ræna skráningu dýralækna á dýra-
lyfjum. Nýja rafræna skráning-
arkerfið HEILSA verður jafnframt
kynnt þar sem dýralæknum ber að
skrá notkun og ávísun lyfseð-
ilsskyldra lyfja fyrir dýr. Skráning-
arkerfið er þegar í notkun fyrir naut-
gripi og hross og munu aðrar
dýrategundir fylgja í kjölfarið. Til-
gangur skráningarinnar er að stuðla
að aukinni dýravelferð og neyt-
endavernd með því að auðvelda yf-
irvöldum að hafa eftirlit með lyfja-
gjöf dýra og lyfjaleifum í
búfjárafurðum s.s. kjöti, mjólk og
eggjum. Fræðslufundurinn verður
haldinn í umdæmisskrifstofu stofn-
unarinnar í Reykjavík að Stórhöfða
23. Gengið er inn í húsnæði MAST
að norðanverðu (Grafarvogsmegin).
Sjá nánar á www.mast.is.
Fræðslufundur Matvælastofnunar
Aukin neytendavernd
Vortónleikar Kórs Kvennaskólans í
Reykjavík verða haldnir í dag,
fimmtudaginn 26. apríl kl. 20:00 í
Fríkirkjunni í Reykjavík. Á tónleik-
unum verða flutt bæði klassísk ís-
lensk lög og poppuð lög sem margir
ættu að kannast við. Aðgangur á tón-
leikana er ókeypis en veitingasala
verður eftir tónleikana í Uppsölum
Þinholtsstræti 37. Þar er aðgangs-
eyrir 1000 kr. og nóg af kökum og
ýmsu góðgæti í boði. Veitingasalan
er aðalfjáröflun kórsins og eru því all-
ir hvattir til að ná sér í góða hress-
ingu áður en haldið er heim á leið.
Kór Kvennaskólans hefur verið
starfræktur um árabil og hefur und-
anfarin ár getið sér gott orð fyrir fjöl-
breytta efnisskrá. Stjórnandi kórsins
er Gunnar Ben.
Vortónleikar Kórs Kvennaskólans í Reykjavík
Klassísk lög og
poppuð í bland
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Skólastarf Peysufatadagur í
Kvennaskólanum.