Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
Ómar Garðarsson
omar@eyjafrettir.is
Sigmund Jóhannsson, uppfinn-
ingamaður og teiknari, segist í fjögur
ár hafa unnið að hönnun slökkvibún-
aðar sem gæti nýst við erfiðar að-
stæður eins og til dæmis í veggöng-
um. Hann og fjölskyldan hafi loks
fundið lausnina og nú er efnið sem
hentar komið í leitirnar. Væntir hann
mikils af samstarfi við Eyjablikk en
samningur var undirritaður í síðustu
viku.
Sigmund sér fyrir sér að fram-
leiðsla geti hafist eftir nokkra mánuði.
Það er honum kappsmál að ljúka
þessu verkefni nú þegar erfiður sjúk-
dómur hefur tekið sig upp aftur. Hef-
ur hann gengið þannig frá hlutunum
að allur höfundarréttur að búnaðinum
er nú í eigu Hlyns, sonar hans.
„Þetta er algjörlega nýtt efni sem
fellur alveg að því sem ég hef verið að
gera,“ segir Sigmund sem er til í að
útskýra hvernig kerfið vinnur án þess
að kafa djúpt í það. „Það er með þetta
eins og formúluna að Coca Cola, það
verður ekki gefið upp hver er lykillinn
að því að fá þetta til að virka,“ bætir
Sigmund við og segist sjá í þessu
tækifæri fyrir Vestmannaeyjar.
„Það hittist þannig á að Stefán Lúð-
víksson í Eyjablikki var að undirbúa
stækkun og að víkka út starfsemina
um leið og við vorum að leita að sam-
starfsaðila. Þeir munu smíða pallbíl
með slökkvibúnaði sem verður hann-
aður eftir okkar forskrift. Verður
hann notaður til að kynna búnaðinn
og í auglýsingar. Sigmund sér enn
stærri möguleika, t.d. í framleiðslu á
slökkvibúnaði fyrir veggöng sem er
tvenns konar, annars vegar rör með
stútum sem liggja neðst í göngunum
og hins vegar vélmenni á braut uppi
undir lofti.
Fyrsta tæki sinnar tegundar
„Þetta er fyrsta tæki sinnar teg-
undar í heiminum og er hægt að ræsa
búnaðinn frá stjórnborði utan gang-
anna um leið og slys verður, sama þó
rafmagn fari af. Kerfið er einfalt og
það er hægt að opna 20 stúta um leið
og kviknar í og á þeim stað í göng-
unum þar sem eldurinn er. Ef ekki
nægir að opna 20 stúta er hægt að
opna aðra 20 og líka loka eftir þörf-
um,“ segir Sigmund og kemur næst
að vélmennunum sem eru eins konar
slökkvibílar.
Vélmennin eru á 500 metra millibili
á línu og eru með níu lítra tank. „Það
er hægt að færa vélmennið til eftir
þörfum og snilldin er að efnið, Fire-
Stop, er átján sinnum virkara en
vatn. Það slekkur allan eld um leið og
eyðir reyk á stundinni þannig að
slökkvilið og björgunarsveitir geta
komist strax á staðinn. Það er hægt
að úða þessu hvar sem er og það er
um algjörlega stórkostlegt efni að
ræða. Það frýs ekki og það er bæði
hægt að nota vatn og sjó. Öllu
slökkvistarfi er hægt að stýra frá
stjórnborði utan ganganna án þess að
þörf sé á að senda inn björgunarfólk
sem er mikill kostur.“
Alger bylting í brunavörnum
Efnið er umhverfisvænt og segir
Sigmund það algjöra byltingu bæði í
brunavörnum og slökkvistarfi. „Það
er dýrðlegt að vinna þetta, stórkost-
legt tækifæri fyrir Vestmannaeyjar
og góð uppbót fyrst við fengum ekki
göng. Það er hægt að hanna þennan
búnað í skip, álver og aðrar stórar
verksmiðjur og FireStop er besta
efnið. En það eru mörg ljón á veg-
inum því þetta þarf að fara í gegnum
flóknar prófanir og miklir hagsmunir
í húfi. Sumum finnst það kannski galli
að það þarf svo sjaldan að fylla á með
þessu efni. Sjálft efnið, sem er upp-
runnið í Bandaríkjunum, hefur hlotið
viðurkenningu í Evrópu þar sem það
hefur farið í gegnum miklar prófanir.
Það er eina slökkviefnið sem dugar
gegn öllum eldi, sama hvað brennur.“
Samstarfið við Eyjablikk verður
með þeim hætti að Hlynur kemur að
hönnun og eftirliti með framleiðsl-
unni. „Þetta verður mjög flott, allt úr
ryðfríu og mjög vandað. Þetta ætti að
geta verið komið í gang eftir tvo til
þrjá mánuði. Við byrjum á pallbílnum
og sýnum hann. Þá tekur við þróun-
arvinna á hinum slökkvibúnaðinum. “
Enginn veit sína ævina fyrr en öll
er en Sigmund segir að nú sé komið
að lokakaflanum hjá sér. Og hann lít-
ur sáttur til baka. „Ég er búinn að
vera með þetta lengi á teikniborðinu
og ég er dauðfeginn að losna við þetta
í hendurnar á öðrum,“ sagði Sigmund
og taldi að hér væri rétt að kæmi
amen eftir efninu.
Fann upp slökkvibúnað í jarðgöng
Sigmund Jóhannsson hefur unnið að búnaðinum í 4 ár Fyrsta kerfið sinnar tegundar í heiminum
Í samstarfi við Eyjablikk í Vestmannaeyjum Sér mikla möguleika fyrir Eyjamenn
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Skrifað undir samninginn Fremst situr Sigmund. Fyrir aftan hann frá vinstri eru Stefán Lúðvíksson og Andrea
Atladóttir, eigendur Eyjablikks, sonurinn Ólafur, tengdadóttirin Katarína og tengdadóttirin Helga Ólafsdóttir, sem
lengi hefur staðið vaktina með Hlyni, sínum manni og syni Sigmundar, sem er lengst ti hægri.
„Við tökum að okkur að smíða
kerfið og það lítur út fyrir að
efnið, sem hönnunin byggist á,
sé alveg frábært. Kerfið sjálft
byggist annars vegar á róbótum
og hins vegar röralögnum.
Þetta kerfi myndi henta fyrir
Hvalfjarðargöngin en markaður
fyrir þetta er ekki á Íslandi held-
ur í Noregi þar sem er mikil þörf
fyrir svona búnað og svo víðar í
Evrópu,“ sagði Stefán Lúðvíks-
son, framkvæmdastjóri Eyja-
blikks.
„Við þurfum að fá einhvern til
að smíða rafeindabúnaðinn og
stýringuna á róbótunum; ég
ætla að byrja á því að athuga
hér innanbæjar og það væri
vissulega gaman ef hægt væri
að framleiða það hér í bænum
líka. Sigmund er alfarið með
hönnunina á þessu og mark-
miðið er að frumgerðin verði
tilbúin á þessu ári. Þá verða
gerðar prófanir og vonandi
hægt að selja framleiðsluna eft-
ir það.“
Markaðurinn
er í Noregi
FRAMKVÆMDASTJÓRI
EYJABLIKKS
Landhelgisgæslan hefur sent at-
vinnuveganefnd Alþingis umsögn
um frumvarp til laga um stjórn
fiskveiða. Meðal annars er gerð at-
hugasemd við að hlutur Gæslunnar
sé fyrir borð borinn í annarri grein
frumvarpsins, sem fjallar um
stjórnvöld.
Í athugasemdum segir: „Í 2. gr.
frumvarpsins er greint frá því
hvaða stjórnvöld hafa hlutverk
samkvæmt lögunum. Algerlega er
sleppt að nefna Landhelgisgæslu
Íslands, sem þó hefur ærinn starfa
við fiskveiðieftirlit, m.a. í stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar (fjareftirlit),
auk eftirlits landhelgisgæsluflug-
vélar og þyrlna, varðskipa og ann-
arra eftirlitsskipa.“
Leggur stofnunin til breytingar á
þessari grein frumvarpsins.
Gæslan vill breytingar á frumvarpi
Morgunblaðið/Kristinn
TF-SYN Þyrlan við komuna til landsins í vet-
ur, en hún er leigð frá Noregi til 12 mánaða.
Mælst er til þess í umsögn Haf-
rannsóknastofnunar um frumvarp
til laga um veiðigjöld að komið
verði á jöfnun á milli ára þannig
að fjármögnun haf- og fiskirann-
sókna verði óháð breytilegri af-
komu í atvinnugreininni. Sam-
kvæmt annarri grein
frumvarpsins er gert ráð fyrir að
veiðigjöld séu m.a. lögð á til að
mæta kostnaði ríkisins við rann-
sóknir.
Tryggja þurfi fjármögnun ár-
legs rekstrarkostnaðar, en fram-
lög hafi dregist nokkuð saman að
raungildi og eru talin þurfa að
hækka verulega til að betur megi
standa að rannsóknastarfinu, m.a.
í auknu úthaldi rannsóknaskipa,
eins og segir í umsögninni. Hins
vegar þurfi, eins og fram komi í
skýringum með frumvarpinu, að
vera til staðar fjármunir til end-
urnýjunar á skipakosti og annars
kostnaðarsams rannsóknabúnaðar.
Í umsögn um frumvarp um
stjórn fiskveiða segir að í frum-
varpinu séu afar mikilvæg nýmæli
um langtímanýtingarstefnu við
stjórn fiskveiða, sem séu í sam-
ræmi við stefnur og strauma á al-
þjóðavettvangi. aij@mbl.is
Fjármögnun rannsókna verði óháð sveiflum
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Brúðkaup 2012
Persónuleg þjónusta
og mikið úrval
úr eðalstáli skreyttur
Íslenskum steinum
Íslensk hönnun
og handverk
Kökuhnífur 11.800.-
Borðbúnaður
Salattöng
17.800.-
Ostahnífur
5.900.-
Smjörhnífur
5.900.-
Settu upp óskalista
hjá okkur og fáðu
15% af andvirði
þess sem verslað er
fyrir í brúðkaupsgjöf
frá Jens!