Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
veislusalir
Tökum á móti litlum og stórum
hópum í rómaðar veislur
Suðræn stemming
þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Sjálfbært borgarskipulag
Donald Miller
er prófessor í
skipulagsfræði
við University
of Washington í
Seattle. Hann er
einn af stofnendum
International
urban planning
and environment
association, sem
hefur staðið fyrir
alþjóðlegum ráð-
stefnum m.a. í Kína
og Ástralíu, og hefur
hann verið virkur sem
höfundur og ritstjóri á
fræðasviði sínu.
Prófessor Donald Miller heldur opinn fyrirlestur í boði forseta
Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands, Norræna hússins og
Skipulagsfræðingafélags Íslands.
Donald Miller hefur um langt skeið rannsakað hvernig nýta má borgarskipulag
til að auka lífsgæði og stuðla að sjálfbærni þéttbýlissvæða. Hann hefur
einnig skoðað hvernig leggja má mat á réttlæti í tengslum við umhverfismál
sem og þróun mælikvarða á sjálfbærni og hvernig nýta má þá við skipulag
þéttbýlissvæða.
Í erindinu mun Donald Miller m.a. fjalla um notkun mælikvarða á sjálfbærni
í verkefninu Sjálfbær Seattle og stefnu hins opinbera í Washingtonfylki um
sjálfbæra þróun, einkum í tengslum við vöxt þéttbýlissvæða.
Fyrirlesturinn, sem fluttur verður á ensku, verður haldinn í Norræna
húsinu föstudaginn 27. apríl kl. 12:00 og eru allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
Karlakór Sjómannaskólans, sem
kenndur er við Tækniskólann,
mætti færandi hendi í húsnæði
Mæðrastyrksnefndar í gær. Til-
gangurinn var að afhenda nefndinni
bretti af gosi sem þessir vösku piltar
unnu í Söngkeppni framhaldsskól-
anna um nýliðna helgi. Taldi kórinn
að drykkjarföngin nýttust betur
þeim sem ættu um sárt að binda.
Þegar vitað var hvað kórinn hugðist
fyrir með vinninginn bætti Ölgerðin
um betur og tvöfaldaði framlagið.
Þótti kórnum við hæfi að afhenda
vinninginn Mæðrastyrksnefnd en
upphaf hennar má rekja til þess að
góðgerðarfélagi var komið á fót í
kjölfar hörmulegs sjóslyss undan
Stafnesi árið 1928 sem skildi marga
eftir í sárum og börn föðurlaus.
Auk þess að afhenda drykkjar-
föngin nýttu kórfélagar tækifærið
til að fræðast um starf Mæðra-
styrksnefndar og tóku að sjálfsögðu
lagið fyrir viðstadda.
gunnhildur@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Komu færandi hendi
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Þetta er allt saman í mikilli óvissu.
Starfsáætlun þingsins segir að því
eigi að ljúka um mánaðamótin maí/
júní. Það er auðvitað aðeins áætlun
sem getur breyst. Engu að síður er
tíminn knappur. Það veldur óvissu
um afdrif þeirra stóru mála sem
stjórnin hefur lagt fram, ekki síst
vegna þess að efnisatriði þeirra eru
mjög umdeild og þá ekki aðeins á milli
stjórnar og stjórnarandstöðu heldur
líka, að því er virðist, innan stjórn-
arflokkanna,“ segir Birgir Ármanns-
son, þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
spurður út í síðustu vikur vorþings.
Birgir rifjar upp að tugir mála hafi
verið lagðir fram í lok mars og síðan
verið gert hálfs mánaðar hlé á þing-
fundum. Hvað stóru málin snertir er
hann efins um að stjórnin hafi meiri-
hluta fyrir þeim öllum.
„Ég get nefnt nokkur mál sem ég
tel óljóst á þessari stundu hvort
meirihluti sé fyrir. Þar get ég nefnt
rammaáætlun, breytingar á stjórnar-
ráðinu, Vaðlaheiðargöng og sjávarút-
vegsfrumvörpin. Sjávarútvegsmálin
eru að umfangi stærstu og flóknustu
málin, þessi tvö frumvörp um sjávar-
útveginn. Það er alveg ljóst að mikil
vinna á eftir að fara fram í báðum
þessum málum, rammaáætlun og
sjávarútvegsmálunum. Ég hygg að
það megi fullyrða að eins og staðan er
í dag sé mjög ólíklegt að þau hafi
meirihluta í óbreyttri mynd.“
Sýnir hvað staðan er veik
Birgir telur aðspurður að krafa
Hreyfingarinnar um aðgerðir, ellegar
kunni flokkurinn að styðja vantraust
á ríkisstjórnina, til vitnis um erfiða
stöðu ríkisstjórnarinnar.
„Þetta sýnir auðvitað að staða
stjórnarinnar er afskaplega veik. En
ég held að atburðarásin verði að leiða
í ljós hvað út úr því kemur. Undir
venjulegum kringumstæðum er það
ekki sérstaklega fréttnæmt að þing-
menn í stjórnarandstöðu lýsi sig
reiðubúna að styðja vantraust á ríkis-
stjórn. Hinn formlegi meirihluti ríkis-
stjórnarinnar hangir á einu atkvæði.
Það er ljóst að í stjórnarflokkunum er
mikill ágreiningur en á þessari stundu
er óljóst hvert það leiðir. Þess vegna
hef ég litið svo á að ríkisstjórnin hafi í
raun frá áramótum ætlað sér að
treysta á stuðning eða að minnsta
kosti hlutleysi einhverra þingmanna
úr stjórnarandstöðunni og þá horfir
maður einkum til þingmanna Hreyf-
ingarinnar og Guðmundar Stein-
grímssonar,“ segir Birgir.
Á eftir að meta áhrifin
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins, hef-
ur miklar efasemdir um að stjórninni
takist að ljúka stóru málunum í vor.
„Ef menn ætla að vinna þau al-
mennilega er ekki með nokkru móti
hægt að afgreiða þau á þessum tíma.
Ég nefni þar til dæmis sjávarútvegs-
málin en þar á eftir að meta til fulls
áhrifin af fyrirhuguðum lagabreyt-
ingum. Stjórnvöld þurfa að sýna fram
á að þær séu efnahagslega forsvar-
anlegar og það tekur auðvitað tíma ef
menn ætla að gera það almennilega.
Við höfum lent í því alltof oft með
þessa ríkisstjórn að mál hafa verið
keyrð í gegn á síðustu stundu sem
hafa svo reynst gölluð. Fyrir liggja
stór mál sem á að afgreiða á knöppum
tíma á vorþinginu.
Það eykur vissu-
lega líkur á mis-
tökum. Reynslan
sýnir okkur það.
Þetta hefur verið
óvenjuslæmt hvað
þessa ríkisstjórn
varðar og náð al-
veg nýjum lægð-
um.“
Þór Saari, þing-
maður Hreyfingarinnar, telur að
naumur tími kunni að koma niður á
gæðum lagasetningar.
„Það er alveg gefið mál. Vinnu-
brögðin sýna að þingið hefur ekkert
lært og ætlar ekkert að læra. Stór
hluti af vinnu þingsins fer í að laga
ófullkomin lög. Vinnubrögðin á
þinginu eru ekki góð og þau hafa ekki
tekið breytingum til batnaðar.“
Leynisamkomulag um jól
Atli Gíslason þingmaður efast um
að stjórnin geti klárað málin. „Það er
útilokað að afgreiða þessi mál með
viti. Þetta er alltof skammur tími og
þetta eru alltof stór mál. Stjórnin hef-
ur hins vegar meirihluta. Ég tel að
þetta sé í nösunum á þingmönnum
Hreyfingarinnar. Stjórnin hefur auk
þess stuðning Guðmundar Stein-
grímssonar. Hreyfingin er að reyna
að beita þvingunum á lokasprettinum.
Ég fullyrði að það var gert leynisam-
komulag við Hreyfinguna um jóla-
leytið í fyrra um að þeir yrðu varahjól
undir ríkisstjórnarsamstarfinu. Það
var forsenda ráðherraskiptanna.“
Stjórnarandstaðan varar
við flumbrugangi á þingi
Telur tímaþröng auka líkur á mistökum við lagasetningu
Morgunblaðið/Ómar
Ár til kosninga Tími til afgreiðslu stórra mála styttist í annan endann.
Birgir
Ármannsson
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Þór
Saari