Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300
Opnunartími: 08:00 - 17:00 alla virka daga
www.ispan.is - ispan@ispan.is
CE-VOTTUN ER
OKKAR GÆÐAMERKI
Sérfræðingar í gleri
… og okkur er nánast ekkert ómögulegt
HERT GLER:
Í sturtuklefa • Í handrið • Í skjólveggi
Sími 568 1090 - www.bilson.is - bilson@bilson.is
Opnunartímar: Mánudagur til fimmtudags kl. 8-17, föstudagur kl. 8-16
GÆÐAVOTTAÐ
BÍLAVERKSTÆÐI
• Sérhæft og vottað þjónustuverkstæði fyrir VW og Skoda.
• Hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins
með úttekt frá BSI á Íslandi.
• Starfsleyfi til endurskoðunar frá Umferðarstofu.
• Forvarnarverðlaun VÍS 2010.
ÞJÓNUSTA SEM ÞÚ GETUR TREYST
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Leveson-rannsóknin svonefnda á
vinnubrögðum og siðferði í breskum
fjölmiðlum og samskiptum þeirra við
stjórnmálamenn veldur nú miklu
írafári, ekki einvörðungu í Bretlandi
heldur einnig í Bandaríkjunum. Ru-
pert Murdoch, eigandi News Corp-
fjölmiðlasamsteypunnar, kom fyrir
rannsóknarnefndina í gær og harð-
neitaði að hafa nokkurn tíma reynt
að hafa óeðlileg áhrif á stefnu stjórn-
málaleiðtoga landsins.
Murdoch sagðist hafa verið aðdá-
andi Margaret Thatcher en aldrei
hafa misbeitt fjölmiðlavaldi sínu.
Hann studdi lengi Íhaldsflokkinn
eindregið og beitti óspart fjölmiðlum
sínum í þeirri baráttu. En 1997 sneri
hann við blaðinu og studdi Verka-
mannaflokk Tony Blairs sem sigraði
í þingkosningum sama ár. Frá 2009
hafa fjölmiðlar hans stutt Íhalds-
flokkinn.
„Alger fjarstæða“
„Það er alger fjarstæða að ég hafi
notað áhrif Sun (víðlesnasta götu-
blaðs Bretlands) eða meint pólitískt
vægi þess til að fá fyrirgreiðslu,“
sagði Murdoch. Hann hefði aldrei
beðið nokkurn forsætisráðherra um
nokkurn skapaðan hlut.
Birt hafa verið tölvuskeyti sem
benda eindregið til þess að Murdoch
og samstarfsmenn hans hafi reynt
að tryggja sér stuðning lykilmanna í
stjórnmálum, m.a. til að ná fullum
yfirráðum í Sky-sjónvarpsstöðinni.
News Corp dró þá ósk sína til baka
2010 vegna hleranahneykslisins sem
kennt var við blaðið News of the
World.
Ráðgjafi segir af sér
Leveson-nefndin er kennd við for-
manninn, Sir Brian Leveson dóm-
ara. Náinn ráðgjafi Jeremy Hunts
menningarmálaráðherra, sem fer
með málefni fjölmiðla, sagði af sér í
gær og margir gera því skóna að
ráðherrann verði einnig látinn víkja.
Hann virðist hafa lekið mikilvægum
upplýsingum um stefnu stjórnvalda
varðandi Sky. Núverandi forsætis-
ráðherra, David Cameron, er auk
þess í vinahópi sumra æðstu manna
News Corp.
Gögn nefndarinnar sýna að ráðu-
neyti Hunts var í stöðugu sambandi
við aðalhagsmunavörð News Corp,
Fred Michel, gaf fyrirtækinu ráð,
sagði frá fyrirhuguðum yfirlýsingum
ráðherra á þingi um málið og skil-
yrðum sem Ofcom, eftirlitsráð fjöl-
miðla, setti fyrir yfirtökunni.
Murdoch er grunaður um að hafa
beitt mútum í Bretlandi og hafi hann
gert það vestanhafs gæti hann hlotið
fangelsisdóm, að sögn fréttaskýr-
enda. Murdoch er nú bandarískur
ríkisborgari en er fæddur í Ástralíu
þar sem hann á einnig stóra fjöl-
miðla.
Reuters
Valtur Jeremy Hunt, ráðherra fjöl-
miðlamála, á leið í þinghúsið í gær.
Fjölmiðlar og leið-
togar undir smásjá
Leveson-rannsóknin í Bretlandi sýnir náin tengsl ráðu-
neyta gegnum árin við fjölmiðlaveldi Ruperts Murdochs
Umfangsmikil rannsókn
» Leveson-rannsóknin hófst í
fyrra að tilstuðlan Davids
Camerons forsætisráðherra í
kjölfar símahlerana á vegum
News of the World.
» Sjónvarpsstöðin Sky er
helsta mjólkurkýr News Corp í
Bretlandi en félagið á tæp 39%
í stöðinni. Murdoch, sem er 81
árs, á einnig bresku blöðin
Sun, Times og fleiri miðla.
» Hann er einnig öflugur í
Bandaríkjunum. Fyrirtæki hans
vestra eiga Fox-sjónvarpsstöð-
ina og blaðið Wall Street Jo-
urnal.
Starfsmenn stálsmiðju ArcelorMittal í Frakklandi á úti-
fundi við aðalstöðvarnar í Saint-Denis gær þar sem
þess var krafist að framleiðsla hæfist á ný en henni var
hætt vegna lítillar eftirspurnar. Maðurinn á myndinni
hefur sett upp grímu með skopmynd af Nicolas Sar-
kozy forseta. Kosið verður milli hans og François Hol-
lande, forsetaefnis sósíalista, 6. maí. Báðir biðla nú
ákaft til kjósenda hægrisinnans Marine Le Pen.
AFP
Vilja gangsetja stálverksmiðjur