Morgunblaðið - 26.04.2012, Page 24
KORTIÐ GILDIR TIL
31. maí 2012
MOGGAKLÚBBURINN
– MEIRA FYRIR ÁSKRIFENDUR
25% AFSLÁTTUR
Á ÚTGÁFUTÓNLEIKA
KLEZMER KAOS
Á NASA 28. APRÍL NK.
Fransk-íslenska verðlaunahljómsveitin
Klezmer Kaos blæs til útgáfutónleika
í tilefni fyrstu plötu sveitarinnar, Froggy.
Hljómsveitina skipa fimm tónlistarmenn úr gjörólíkum
áttum - með bakgrunn í m.a. klassískri tónlist, þjóð-
lagatónlist, djassi og spuna, poppi og rokki.
Úr hrærigrautnum brjótast fram eldfimar útsetningar
á hefðbundinni klezmer-tónlist, jiddískum og íslenskum
þjóðlagaarfi, í bland við frumsamin lög meðlima.
Almennt miðaverð 3.000 kr.
Moggaklúbbsverð 2.250 kr.
MOGGAKLÚBBUR
Húsið opnar kl. 20:30 og sér hin fjöruga
hljómsveit Varsjárbandalagið um upphitun.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á MBL.IS/ASKRIFT
EÐA Í SÍMA 569 1122
Allir fastir áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa félagar
í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á mbl.is/moggaklubburinn.
Glatist kortið sendu þá póst á askrift@mbl.is.
Hvernig nota ég afsláttinn?
Farðu inn á midi.is, veldu þér miða til kaups og í auða reitinn
í skrefi #3 sláðu þá inn eftirfarandi: GOLDENSHTEYN
Smelltu á „Senda“ og þú sérð afsláttinn koma inn um leið.
ATH: Staðfestið EKKI greiðslu fyrr en afsláttur er orðinn virkur.
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
Í gildandi stjórn-
arskrá okkar er að
finna eftirfarandi
greinar:
„62. gr. Hin evang-
eliska lúterska kirkja
skal vera þjóðkirkja á
Íslandi, og skal rík-
isvaldið að því leyti
styðja hana og
vernda. Breyta má
þessu með lögum.
63. gr. [Allir eiga rétt á að
stofna trúfélög og iðka trú sína í
samræmi við sannfæringu hvers
og eins. Þó má ekki kenna eða
fremja neitt sem er gagnstætt
góðu siðferði eða allsherj-
arreglu.]1) 1)L. 97/1995, 1. gr.
64. gr. [Enginn má neins í missa
af borgaralegum og þjóðlegum
réttindum fyrir sakir trúarbragða
sinna, né heldur má nokkur fyrir
þá sök skorast undan almennri
þegnskyldu. Öllum er frjálst að
standa utan trúfélaga. Enginn er
skyldur til að inna af hendi per-
sónuleg gjöld til trúfélags sem
hann á ekki aðild að. Nú er maður
utan trúfélaga og greiðir hann þá
til Háskóla Íslands gjöld þau sem
honum hefði ella borið að greiða
til trúfélags síns. Breyta má þessu
með lögum.]1) 1)L. 97/1995, 2. gr.“
Á grundvelli þessara stjórnar-
skrárákvæða höfum við hér þjóð-
kirkju sem greiðir kostnað við
kirkjur og klerka. Þar kemur á
móti framlag okkar skattborg-
aranna og greiðsla til presta fyrir
ákveðna einkaþjónustu, s.s. gift-
ingar og skírnir.
Aðskilnaður?
Um nokkurn tíma hefur borið á
umræðu gegn ríkisstuðningi við
þjóðkirkjuna og kristinfræði-
kennslu í skólum. Fer þar m.a.
fólk sem ekki trúir á Guð og hafn-
ar því að börn þess séu látin sitja
undir „kristniboði“ og iðka kristna
trú í skólum – enda sé ósannað að
Guð sé yfirleitt til. Rökstuðning
og dæmi um þetta má td. finna á
www.siðmennt.is.
Stundum er bent á að margir
hafi undanfarið sagt sig úr þjóð-
kirkjunni og það talið
vitna um minnkandi
trúhneigð lands-
manna. Ég leyfi mér
hinsvegar að halda
því fram að stór hluti
þessa hóps hafi ekki
fallið frá trú sinni
heldur ofboðið æðsta
stjórn kirkjunnar
enda hefur hún feng-
ið á sig alvarlega
gagnrýni á síðustu
árum. Það er von mín
að sú þögla ádeila
sem í úrsögnum felst verði stjórn-
endum hennar áminning og hvatn-
ing til úrbóta sem endurveki
traust þjóðarinnar á henni. Kirkj-
an verður að rísa undir eðlilegum
væntingum þeirra sem þar vilja
eiga sitt trúarlega heimili.
Þjóðkirkjan hefur í það heila
notið trausts umfram ýmsar stofn-
anir ríkisins og verið ómissandi
þáttur í lífi þjóðarinnar. Nú
bregður hins vegar svo við að úr
tveimur hornum hillir undir að
tengsl kirkju og ríkis verði rofin.
Annars vegar liggja fyrir drög að
nýrri stjórnarskrá þar sem kveðið
er á um trúfrelsi en ekki er
minnst á þjóðkirkju. Hins vegar
má á vefsíðu innanríkisráðuneyt-
isins finna „drög að frumvarpi til
breytinga á lögum um skráð trú-
félög, til umsagnar“. Í þessum
lagadrögum er þjóðkirkju hafnað,
t.d. með fyrstu grein: „Staða
skráðra lífsskoðunarfélaga verður
jöfn stöðu skráðra trúfélaga“.
Þessi drög eru allýtarleg og hvet
ég lesendur til að kynna sér þau á
www.innanrikisraduneyti.is/frettir/
nr/27331.
Þá vekur það athygli að: „Ráð-
herra leitar álits sömu nefndar og
þegar um er að ræða trúfélög og
lífsskoðunarfélög en lagt er til að
nefndin verði styrkt með því að
bæta við fjórða fulltrúanum í
nefndina. Skal sá nefndarmaður
vera tilnefndur af sagnfræði- og
heimspekideild Háskóla Íslands.“
Ljóst er að ef ofangreindar
stjórnarskrártillögur eða lög taka
gildi er horfið frá þjóðkirkju og
félög trúaðra og vantrúaðra sett
undir sama hatt í lagalegum skiln-
ingi séð.
Gildi þjóðkirkju
Ég ætla mér ekki þá dul að
sanna eða afsanna að Guð sé til.
Kristin trú er líka einmitt það –
trú en ekki vísindi. Hitt vil ég
segja að trúuðum er mikils virði
að eiga Guð í hjarta sínu og að
ekki sé á nokkurn hátt sé gert lít-
ið úr honum og kirkju hans. Krist-
in gildi leiða lög okkar og breytni
og hafa þannig verið sterkur þátt-
ur í uppbyggingu íslensks þjóð-
félags. Kristin fræði hafa einnig
verið hluti af uppeldi okkar – sam-
eiginlegur grunnur sem hver ein-
staklingur hefur síðan byggt á að
eigin vild. Barnatrúin býr í okkur
flestum og stór hluti þjóðarinnar
fyllir Guðshús á trúarhátíðum.
Margir fara þangað miklu oftar. Í
gleði, sorg og ótta leitar fólk einn-
ig þjónustu presta í kirkju eða
heima. Þá er þjóðkirkja eitt af því
sem sameinar okkur í eina þjóð.
Allt er þetta af hinu góða.
Þjóðkirkjan og meðlimir hennar
hafa að sjálfsögðu ekki amast við
því að aðrar kirkjur og sérsöfn-
uðir starfi í landinu. Heldur ekki
því að þeir, sem það kjósa, standi
utan hennar og stofni um það fé-
lög. Það er meira en leyfist í sum-
um löndum.
Ég leyfi mér að hvetja stjórn-
völd til að vega hvergi að þjóð-
kirkjunni heldur „styðja hana og
vernda“. Jafnframt væri rétt að
endurskoða starf hennar með það
fyrir augum að hún taki í auknum
mæli að sér mannúðar- og líkn-
armál, svo og sálgæslu sem vax-
andi þörf er fyrir.
Á páskum 2012.
Kirkjan og ríkið
Eftir Baldur
Ágústsson
» Þjóðkirkjan hefur í
það heila notið
trausts umfram ýmsar
stofnanir ríkisins og
verið ómissandi þáttur í
lífi þjóðarinnar.
Baldur Ágústsson
Höf. er fv. forstj.
og forsetaframbjóðandi.
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður