Morgunblaðið - 26.04.2012, Page 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
✝ Kristín Hall-dórsdóttir
fæddist á Akureyri
3. júlí 1920. Hún
andaðist á Hjúkr-
unarheimilinu
Sunnuhlíð í Kópa-
vogi 16. apríl 2012.
Foreldrar henn-
ar voru Halldór
Þorgrímsson, sjó-
maður, f. 17. maí
1882, d. 19. febr-
úar 1962 og kona hans, Guðrún
Jósefsdóttir, húsmóðir, f. 14.
febrúar 1884, d. 20. ágúst 1945.
Systkini hennar eru Dagrún
Halldórsdóttir, Baldur Hall-
dórsson, Aðalbjörg Halldórs-
dóttir, Guðmundur Hall-
dórsson, Bergþór Njáll
Halldórsson og Jósefína Hall-
björg Ketilsdóttir. Hildur
Högnadóttir, f. 9. desember
1946. Hennar dætur eru Kristín
Völundardóttir, Anna Guðrún
Gylfadóttir og Þórhildur Gylfa-
dóttir. Haukur Högnason, f. 1.
ágúst 1950. Hans synir eru
Arnar Hauksson og Högni
Snær Hauksson. Lang-
ömmubörnin eru 16 talsins.
Kristín og Högni hófu bú-
skap sinn hjá tengdaforeldrum
hennar á Ísafirði. Árið 1943
fluttu þau til Reykjavíkur. Árið
1948 fluttu þau síðan í Kópavog
að Kópavogsbletti sem síðar
varð Kópavogsbraut 97. Eftir
lát Högna 1990 flutti Kristín að
Fannborg 8 í Kópavogi en síð-
ustu 2 árin dvaldi hún á Hjúkr-
unarheimilinu Sunnuhlíð við
Kópavogsbraut. Kristín vann
utan heimilis frá 35 ára aldri
og allt fram yfir sjötugt.
Lengst af við verslunarstörf í
vefnaðarvöruverslunum.
Útför Kristínar fer fram frá
Kópavogskirkju í dag, 26. apríl
2012 kl. 15.
dórsdóttir. Þau eru
öll látin.
15. júní 1940
giftist Kristín,
Högna Helgasyni,
skrifstofumanni frá
Odda á Ísafirði, f.
26. september
1916, d. 14. apríl
1990. Börn þeirra
eru Guðrún
Högnadóttir, f. 18.
desember 1941, d.
20. nóvember 1969. Hennar
sonur er Arnar Þórsson, f. 12.
júlí 1967, d. 6. ágúst 1968. Ket-
ill Högnason, f. 20. maí 1944, d.
19. júní 2005, eftirlifandi eig-
inkona hans er Hildigunnur
Davíðsdóttir, f. 27. janúar 1943.
Þeirra börn eru Helgi Ket-
ilsson, Davíð Ketilsson og Guð-
Í dag kveð ég ömmu og góða
vinkonu. Lífshlaup hennar var
langt og farsælt og áttum við
margar góðar stundir saman
sem seint gleymast. Það er ekki
öllum gefið að ná tíræðisaldri en
það eru ekki nema tæp tvö ár
síðan amma Día eins og hún var
alltaf kölluð fagnaði 90 ára af-
mæli sínu í faðmi vina og vanda-
manna. Stuttu eftir afmælið
veiktist amma og hrakaði heilsu
hennar stöðugt eftir það. Hún
flutti því á hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð þar sem hún lést.
Amma giftist afa Högna 1940 og
bjuggu þau sér heimili í Kópa-
vogi. Mikil nánd var með ömmu
og afa og barnabörnum og rif-
umst við systurnar ávallt um
það hver fengi að gista hjá þeim
þegar kom að helgarfríi í skól-
anum. Allir vaxa þó úr grasi og
því lauk næturgistingum þegar
kom á unglingsárin. Eftir andlát
afa Högna varð samband okkar
ömmu nánara og var hún ekki
lengur bara amma heldur líka
vinkona. Við hittumst á hverjum
degi eftir að ég lauk námi 1994
þar sem vinnustaður minn var í
göngufæri frá heimili hennar.
Hún eldaði hádegisverð fyrir
okkur og ræddum við menn og
málefni líðandi stundar. Þá
kynntist ég annarri hlið á
ömmu, hún var víðsýn og vel
upplýst og laus við alla fordóma.
Hádegisfundir okkar stóðu yfir í
meira en 12 ár en fækkaði eftir
að ég flutti út á landsbyggðina.
Fundum var þó fram haldið
þegar farið var í bæjarferð og
héldum við því góðu sambandi
allt til loka. Ömmu þótti gaman
að lesa ævisögur og skáldsögur
og skipti ekki máli hvort þær
voru á íslensku, norðurlanda-
máli eða ensku, hún var fullvíg
á öll þessi tungumál þrátt fyrir
stutta skólagöngu. Það voru ófá-
ar skáldsögurnar sem henni
voru færðar á síðastliðnum 30
árum og las hún þær allar og
geymdi sumar til að lesa síðar.
Hún kenndi sér sjálf erlend
tungumál, enda kjarnakona með
stálvilja.
Amma átti sér áhugamál en
það voru ferðalög og bollasöfn-
un frá erlendum borgum. Amma
ferðaðist víða um heim og oftast
með móður minni. Minnist ég
sérstaklega þegar þær heim-
sóttu mig til Kanada 1993 og við
þrjár fórum á veitingahús eitt
laugardagskvöld. Amma tók eft-
ir því að kona á næsta borði
fékk fagurlega skreytta köku
með einu kerti og að þjónarnir
sungu afmælissöng. Amma
gerði sér lítið fyrir og upplýsti
starfsfólkið að hún ætti einnig
afmæli og fékk hún þar með
sömu þjónustu. Til að gera
langa sögu stutta þá var afmæl-
ið hennar tveim vikum síðar en
kakan, kertið og amma voru
fest á filmu og þótti henni mjög
vænt um þá mynd. Nánasta fjöl-
skylda ömmu tók þátt í bolla-
söfnun hennar og þegar komið
var til erlendrar borgar var leit-
að að smábolla sem hægt var að
færa henni. Hún safnaði yfir 100
bollum eða fingurbjörgum, því
ef enginn bolli fannst var tekið
á það ráð að færa henni fing-
urbjörg. Var safninu komið hag-
anlega fyrir í glerskáp. Mun
bollasafnið varðveitt áfram og
fylgist hún vafalaust vel með því
með glettnisglampa í augum.
Nú er komið að leiðarlokum
ömmu hér á jörð en önnur ferð
er hafin þar sem hún mun hitta
fyrir afa Högna, Guðrúnu og
Ketil og aðra látna ættinga. Ég
óska elsku ömmu góðrar ferðar
og þakka fyrir samfylgdina.
Kristín Völundardóttir.
Amma Día hefði orðið 92 ára
í sumar. Hún hefur nú kvatt
okkur en ég hugsa að hún sé
hvíldinni fegin. Mér er það
huggun að vel er tekið á móti
henni á nýjum stað.
Þegar ég var barn þótti mér
hús ömmu og afa á Kópavogs-
brautinni ævintýralegt. Hvert
einasta herbergi hafði sérstakt
andrúmsloft og ákveðinn kar-
akter. Bókaherbergið var rólegt
og virðulegt, kjallarinn spenn-
andi með langar og brattar
tröppur, garðurinn var yndis-
legur og í minningunni var alltaf
gott veður. Háaloftið geymdi
einhverjar gersemar, enda
mátti sjaldan fara þangað upp.
Stundum fékk ég að skoða
skartgripina hennar ömmu og
gömlu kjólarnir voru engu líkir.
Það var erfitt að láta sér leiðast
hjá ömmu og afa.
Eftir fráfall afa flutti amma í
einstaklingsíbúð í Fannborg.
Nokkrum árum síðar fluttu ég
og mamma í nágrennið og þá
fór ég að kíkja oftar í heimsókn
til ömmu. Mínar bestu minn-
ingar um ömmu eru þegar við
sátum og spjölluðum. Samtölin
okkar voru einlæg og þægileg,
um allt og ekkert. Við ræddum
sjaldan um pólitík og þess hátt-
ar, heldur um okkur sjálfar.
Þannig kynntist ég ömmu vel og
hún mér. Amma studdi mig í
öllu sem ég tók mér fyrir hend-
ur. Hún trúði á mig. Það var
mér mikilvægt. Hún var blíð og
góð, alveg eins og ömmur eiga
að vera. Hún var líka víðsýn og
umburðarlynd. Hún sýndi mér
væntumþykju og að sama skapi
þótti mér afar vænt um hana.
Amma var skvísa og hafði
mikinn áhuga á tísku, skóm og
skarti. Við deildum þessum
áhuga og oft fékk ég lánað hjá
henni skart eða flík, jafnvel skó,
því við notuðum sama númer.
Ég kom svo stundum til hennar
með nýja flík sem ég hafði
keypt og sýndi henni. Hún
kunni alla tíð að meta falleg föt.
Ég kveð ömmu með söknuði
en jafnframt þakklæti fyrir að
hafa haft hana í lífi mínu. Hvíl í
friði, elsku amma.
Þórhildur Gylfadóttir.
Elsku amma eða „langa“ mín
eins og sum okkar kölluðu þig
svo gjarnan. Það er með mikilli
sorg sem við nú kveðjum þig.
Minningarnar hafa hrannast
upp síðustu daga og ófá tár hafa
fallið. Mér er minnisstæður
kandísinn í eldhússkápnum á
Kópavogsbrautinni, öll jólaboðin
með hangikjötinu og tartalett-
unum og það hvernig við vorum
alltaf að spila þegar við hitt-
umst, fyrst við barnabörnin í
kjallaranum sem krakkar og svo
seinna voru það fjölskylduspil
sem tóku við þegar við öll fjöl-
skyldan komum saman hjá þér.
Hláturinn þinn, brosið þitt og
húmorinn sem aldrei var langt í
er mér einnig minnistæður en
þú skelltir iðulega uppúr við
góðlátlegum athugasemdum
eins og: „Hefur þú minnkað,
amma mín?“
Í seinni tíma var alltaf gott
að koma til þín í Fannborgina
þar sem við sátum gjarnan við
eldhúsborðið þitt og spjölluðum
um daginn og veginn yfir kaffi-
bolla. Uppúr stendur hjá okkur
öllum minning um þá yndislegu,
hlýju, brosmildu og góðu konu
sem þú varst, elsku amma mín.
Við erum þakklát fyrir þann
tíma sem við áttum með þér og
munum varðveita minningu þína
í hjörtum okkar um ókomna tíð.
Davíð, Drífa,
Hildur og Kjartan.
Elsku amma Dían mín. Nú er
komið að tímamótum hjá okkur.
Ég læt hugann reika og
hugsa til þeirra stunda sem við
áttum saman og þær minningar
sem ég á um þig.
Ætli það séu ekki minning-
arnar um heimsóknirnar til ykk-
ar afa á Kópavogsbrautina sem
sitja hvað sterkast eftir.
Jóladagur ár hvert með allri
fjölskyldunni. Alltaf var mætt
rétt fyrir hádegi þar sem beið
okkar hlaðborð af góðgæti.
Tartaletturnar voru langbestar.
Á eftir fórum við klíkan niður í
kjallara og spiluðum. Þegar
kom að kvöldi þá var það hangi-
kjötið, uppstúfurinn og síðan ís-
inn með loftkökum. Allt þetta
sáuð þið afi um að bera á borð
fyrir okkur.
Gamlárskvöldin voru nú ögn
öðruvísi. Á meðan flestir voru
úti í garði, þá sat ég við
gluggann inni í borðstofuholinu
með þig og mömmu í öruggri
fjarlægð og horfði á hina hengja
stjörnuljósin á tréð við
gluggann og skjóta upp flug-
eldum. Þessi staðsetning kom
sér vel eitt árið þegar neisti fór
í flugeldapokann, sem var alltaf
settur undir gluggann. Allt í
einu varð allt rautt og rakettur í
allar áttir.
Þegar við mamma og syst-
urnar komum í heimsókn til
ykkar afa um helgar, þá end-
uðum við Kristín oft í komm-
óðunni þinni að skoða skartgrip-
ina þína, máta föt og klæða
okkur upp á. Fyrir litlar stelpur
var þetta ein stór gullkista þeg-
ar kom að fylgihlutum og fínum
fötum. Enda varstu alltaf fín og
vel til fara. Þú hafðir auga fyrir
fallegum hlutum.
En eftir að afi dó fluttir þú í
Fannborgina. Samveran breytt-
ist enda ég komin með litla
skottu í pilsfaldinn og lífið og
tilveran rædd á ögn þroskaðri
nótum. Ég man þegar ég spurði
þig hvernig væri að vera komin
í nýtt húsnæði. Jú, íbúðin var
fín en þér fannst fólkið í húsinu
heldur í eldri kantinum. En það
var nú meira sagt í gríni en al-
vöru.
Elsku amma, ég ásamt fleiri
ástvinum fékk að fylgja þér síð-
asta spölinn og veit að nú hafa
aðrir ástvinir tekið vel á móti
þér. Þangað til seinna, þá biðj-
um við, ég og stelpurnar mínar,
að heilsa.
Kveðja,
Anna Guðrún og dætur.
Það er fátt öruggt í lífinu
nema það eitt að við verðum jú
öll að yfirgefa það. Það er orðið
ljóst að nú var þinn tími runn-
inn upp og þú varst búin að eiga
gæfuríka og góða ævi sem ég
var svo lánsamur að fá að vera
hluti af. Nú ertu farin til afa
Högna eftir góð 91 ár og Hauk-
ur Helgi og Silja Rún munu
minnast langömmu sinnar. Mér
er efst í huga öll þau mörgu
skipti sem ég kom á Kópavogs-
brautina til ykkar afa en það
var mikill ævintýraheimur og
gaman að fá að leika sér þar og
gista hjá „ömmu og afa í Kópa-
vogi“.
Við munum minnast þín með
hlýjum hug um þær góðu stund-
ir sem við áttum saman.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson)
Högni Snær og fjölskylda.
Kristín
Halldórsdóttir
Sendum
frítt
hvert á land sem
er
Helluhrauni 12 • Hafnarfjörður • 544 5100 • www.granithusid.is
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
MARÍA GUÐNADÓTTIR,
Sunnubraut 3,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
sunnudaginn 22. apríl.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn 30. apríl
kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Gigtarfélag Íslands.
Jóel Bachmann Jóelsson,
Þórhildur Bachmann Jóelsdóttir, Konráð Gíslason,
Guðríður Bachmann Jóelsdóttir, Kristján Hannesson,
Guðný Bachmann Jóelsdóttir, Kjartan Halldórsson,
barnabörn og barnbarnabarn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
BERTHA GÍSLADÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum
að kvöldi mánudagsins 23. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Rósa Martinsdóttir, Ársæll Lárusson,
Emilía Martinsdóttir, Sigurður Ingi Skarphéðinsson,
Sigríður Sylvía Jakobsdóttir,
Lárus Ársælsson, Sveinborg Lára Kristjánsdóttir,
Bertha María Ársælsdóttir, Kolbeinn Gunnarsson,
Jóhanna María Eyjólfsdóttir,
Martin Eyjólfsson, Eva Þengilsdóttir,
Drífa Kristín Sigurðardóttir,
Martin Ingi Sigurðsson, Anna Björnsdóttir,
Hildur Erna Sigurðardóttir, Steinar Sigurðsson,
barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ÓLAFÍA KRISTÍN ÞORSTEINSDÓTTIR,
Stína frá Firði,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Víðihlíð,
miðvikudaginn 18. apríl.
Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju
föstudaginn 27. apríl kl. 14.00.
Jens V. Óskarsson, Bára Ágústsdóttir,
Einar Óskarsson, Ása Sigurlaug Halldórsdóttir,
Þorsteinn Óskarsson, Hrönn Ágústsdóttir,
Þórður J. Óskarsson, Guðrún Aðalsteinsdóttir,
Bergljót Ó. Óskarsdóttir, Sveinn Arason,
Brynjólfur Óskarsson, Lydía Fannberg Gunnarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
DAGBJÖRT JÓNSDÓTTIR,
Nesvöllum,
áður Sýrfelli Bergi,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
mánudaginn 23. apríl.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 8. maí
kl. 14.00.
Ólafur J. Guðmundsson, Halla J. Guðmundsdóttir,
Sveinbjörn G. Guðmundsson, Hildur Jóhannsdóttir,
Aðalsteinn K. Guðmundsson, Auður H. Jónatansdóttir,
Brynjólfur S. Guðmundsson, Elín R. Ólafsdóttir,
Kristín Guðmundsdóttir, Sverrir G. Hauksson,
Guðmundur Á. Guðmundsson, Hafdís L. Guðlaugsdóttir,
Dagbjartur H. Guðmundsson, Tatjana Latinovi?.
✝
Ástkær sonur minn, eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
ÁGÚST G. BERG
arkitekt,
lést á heimili sínu laugardaginn 21. apríl.
Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn
2. maí kl. 15.00.
Björg Baldvinsdóttir,
Signý Guðmundsdóttir,
Guðrún Björg Ágústsdóttir, Ágúst Ómar Ágústsson,
Guðmundur R. Ágústsson, Ármann Pétur Ágústsson
og aðrir aðstandendur.