Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Að viðurkenna mistök jafnast á við
pyntingar í huga þínum, ekki síst ef þér finnst
næg afsökun að hafa reiðst eða gleymt ein-
hverju. Þú hreinlega elskar hið breytilega og
margslungna.
20. apríl - 20. maí
Naut Áætlanir ganga eftir, ekki síst með full-
tingi vinar. Athugaðu fyrst hvað þú getur gert
þér til góða án mikilla fjárútláta.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér finnst dagarnir hver öðrum líkir
og ert gripinn leiða útaf því. Tíminn er nægur,
slakaðu á og njóttu þess að vera til.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert hugrökk/rakkur með sannfær-
inguna að vopni, sem er allt sem þarf til að ná
fram breytingum. Hugsaðu áður en þú talar
og reyndu að taka tillit til annarra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert forstjórinn í þínu eigin lífi. Farðu
þér hægt í kynnum við aðra og láttu þá sanna
sig áður en þú treystir þeim.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Segðu hug þinn svo samstarfsmenn
þínir fari ekki í grafgötur um afstöðu þína.
Taktu þátt í samræðunum því þú getur lært
ýmislegt sem þú átt eftir að meta mikils síð-
ar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þig dreymir um að flytja á landsbyggðina
eða a.m.k. rétt út fyrir bæinn. Þú getur
sjarmerað fólk upp úr skónum þegar sá gáll-
inn er á þér og enginn skortur á aðdáendum
er fyrirsjáanlegur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vei sé þeim sem reynir að hemja
þig þessa dagana og setja þér fyrir verkefni
til að leysa. Gleðin mun ráða ríkjum í kvöld.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er auðveldara að yfirvinna
hindranir í peningamálum ef maður fer ekki á
taugum. Reyndu að temja þér þakklæti fyrir
það sem þú hefur og láta aðra finna að þér
þyki vænt um þá.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Haltu að þér höndum með stór-
brotið verkefni þitt og sinntu minniháttar
málum í dag. Erfiðast er að bíða – notaðu
tímann og gerðu eitthvað fyrir sjálfa/n þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er nauðsynlegt að huga að
hverju smáatriði ef heildarútkoman á að vera
rétt. Vertu staðföst/fastur og þá fer allt vel
hjá þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Spurningarnar sem hvíla á þér virðast
ýktar, óþolandi flóknar og allt of áríðandi.
Gerðu verkefni með bros á vör. Misskilningur
og ruglingur er allsráðandi.
Andinn kom yfir Pétur Stefánsson
þegar bróðurdóttir eiginkonu
hans fermdist og hann skellti
þessari vísu í fermingarkortið
með matarskattinum:
Drottinn veiti þér vegferð bjarta,
verndi og styðji þig hvar sem er.
Óska ég þess af hug og hjarta
að hamingjan ætíð fylgi þér.
„Ólíkt höfumst við að,“ skrifaði
Jón Ingvar Jónsson honum að
bragði. „Ég orti vísu í ferming-
arboði systurdóttur minnar fyrir
17 árum, held ég. Hún var svona:
Hulda líf sitt guði gaf,
gott er það að vita,
matsár fjandinn missti af
meiri háttar bita.“
Jón Ingvar er oft nefndur leir-
löggan á Leirnum, póstlista hag-
yrðinga, og Sigmundur svaraði í
léttum dúr:
Þér skal senda orð í eyra,
um þig löggan standi vörð.
Auðséð hvorn þú metur meira
meður hástafanna gjörð.
Ferming og fjandinn koma
einnig fyrir í vísu sem Hreiðar
Karlsson orti árið 2005. Tilefnið
var að Bobby Fisher kom til Ís-
lands eftir dvöl í japönsku fang-
elsi og var fúlskeggjaður og úf-
inn:
Eftir að villast á eyðihjarni
utan við rétt og skjól og grið
Fisher er líkastur fermingarbarni
sem fjandinn rænir við altarið.
Kominn er vorhugur í Ingólf
Ómar Ármannsson, sem kastar
fram þremur vorvísum:
Vonir stækka, veröld hlær
vors á degi blíðum,
bjarkir laufgast, lyngið grær,
lifna blóm í hlíðum.
Morgunsunna brosir blíð,
birtu Fróni gefur,
glóa sund og grænkar hlíð,
á græði bára sefur.
Foldin skartar blíð á brá,
birtan lýði gleður,
lækir hjala, lóan þá
ljúfum rómi kveður.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahornið
Af fermingarvísum,
Fisher og hlæjandi veröld
G
æ
sa
m
a
m
m
a
og
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
áf
ó
lk
H
ró
lfu
r
h
ræ
ð
ile
g
i
Fe
rd
in
a
nd
ÉG ER
FLUTTUR
ÓDÝRIR
KLEINUHRINGIR
ÉG
ÆTTI EKKI
AÐ VERA ÚTI
AÐ LEIKA
MÉR
ÉG ÆTTI AÐ VERA INNI AÐ
LESA „GÚLLÍVER Í PUTALANDI”
OG SKRIFA RITGERÐ UM HANA
ÞÚ HEFUR
SAMT GOTT AF ÞVÍ
AÐ FÁ ÞÉR SMÁ
FERSKT LOFT
ÞAÐ
ER
RÉTT
KALLI BJARNA ER
ALLTAF JAFN
AGAÐUR
ÉG GET EKKI
NÁÐ ÞESSUM
BLÓÐBLETTUM ÚR
SKYRTUNNI ÞINNI!
ÉG VAR AÐ
BERJAST!
HVAÐ ÆTLASTU
TIL ÞESS AÐ ÉG GERI!?
ÞÚ GÆTIR
ALLAVEGANA LÆRT AÐ
VÍKJA ÞÉR UNDAN
NÁGRANNI OKKAR HANN
MIKAEL KOKKUR, SEGIR AÐ
ÞAÐ SÉ HÆGT AÐ MÓTA
ÞETTA TÓFÚ ÞANNIG AÐ
ÞAÐ LÍTI ÚT EINS OG
KALKÚNN
JÁ, ÞAÐ ER
EKKERT MÁL AÐ
BREYTA ÞESSU Í
FURÐUFUGL
ÉG HELD
AÐ ÞETTA HAFI
EKKI VERIÐ ÞAÐ
SEM HANN
HAFÐI Í HUGA
Snjallir afbrotamenn eru algengir íbíómyndum, en minna fer fyrir
þeim í raunveruleikanum. Víkverji
rakst á nokkrar frásagnir af mis-
heppnuðum afbrotamönnum á vef-
síðu Der Spiegel og gat ekki stillt sig
um að láta nokkrar þeirra ganga.
x x x
Ungur maður braust inn í hús íbænum Joshua Tree í Kali-
forníu. Þegar hann hafði látið greipar
sópa ákvað hann að opna kampavíns-
flösku. Þar sem kampavín bragðast
ekki vel á tóman maga afréð hann að
fá sér snarl með. Að því loknu kvikn-
aði þörf til að baðast og fór hann í
sturtu. Á meðan hann var í sturtunni
kom eigandi hússins heim, heyrði
vatnsniðinn og hringdi á lögregluna.
Maðurinn heyrði ekki í lögreglunni
þegar hún kom að handtaka hann.
x x x
Við höldum okkur við Bandaríkin.Haustið 2010 faldi innbrots-
þjófur í Oak Hill sig á efri hæðinni
þegar íbúarnir komu heim. Hann
kom hins vegar upp um sig þegar
hann sprakk úr hlátri vegna þess að
einn húsráðenda sagði brandara.
x x x
Bankaræningi í Wuppertal íÞýskalandi vildi koma í veg fyrir
að skelfing gripi um sig þegar hann
hugðist ræna banka. Í stað þess að
hrópa lét hann gjaldkerann hafa
miða, sem á stóð „Þetta er banka-
rán“. Hann komst á braut með ráns-
fenginn, en náðist brátt vegna þess
að hinum megin á umslaginu var
heimilisfangið hans.
x x x
Í mars braust átján ára unglingurinn í hús í Münster og tók meðal
annars með sér aðgangsupplýsingar
um heimabanka fórnarlambanna. Því
næst tæmdi hann reikninga þeirra,
en var ekki séðari en svo að hann
millifærði féð á eigin reikning.
x x x
Og svo var það innbrotsþjófurinn íSilver Springs í Flórída, sem
braust inn og ákvað að hlaða farsím-
ann á meðan hann var að athafna sig.
Hann hafði sig síðan á braut, en
gleymdi farsímanum.
Víkverji
Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa
öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir
hann enn ekki eins og þekkja ber.
(I.Kor. 8, 2.)