Morgunblaðið - 26.04.2012, Blaðsíða 37
Chick Corea og Gary Bur-ton hafa ruglað samantónlistarreytum sínum í40 ár og það heyrist. Þeir
eru eins og síamstvíburar, sam-
vaxnir tónlistarlega, og spila eins og
einn maður, flétta, spinna og rekja
sundur og saman. Corea og Burton
eru lifandi goðsagnir. Saga þeirra
samofin sögu djassins á seinni hluta
liðinnar aldar og tónleikarnir á
þriðjudag voru að drjúgum hluta
óður til áhrifavaldanna.
Félagarnir lýstu í upphafi tón-
leikanna ánægju yfir dvöl sinni á Ís-
landi og óskuðu viðstöddum til ham-
ingju með tónlistarhúsið. Burton
rifjaði upp að hann hefði komið
hingað til lands árið 1980 og réttu
þó nokkrir í salnum upp hönd þegar
hann spurði hvort einhverjir hefðu
verið viðstaddir þegar hann var hér
þá. „Ég man eftir honum í Gamla
bíói,“ heyrðist einn gesturinn segja.
Bítlar og bossa nova
Meginuppistaða tónleikanna var
efni af plötunni Hot House, sem er
nýkomin út og hefur að geyma út-
setningar þeirra á lögum, sem höfðu
áhrif á þá í árdaga, en í upphafi
tóku þeir tvö lög af plötu sinni Na-
tive Sense, sem kom út fyrir 15 ár-
um, titillagið og Love Castle, „til að
koma blóðinu af stað“, eins og Co-
rea orðaði það. Síðarnefnda lagið er
dæmigert fyrir tónsmíðar Corea,
keyrt áfram af stríðum takti og
hljóðfæraleikararnir eins og óþreyt-
andi veðhlaupahestar, sem skiptast
á forustunni.
Þá tóku áhrifavaldarnir við og
var lagið Can’t We Be Friends, sem
Art Tatum hljóðritaði upp úr 1940
og Ella Fitzgerald og Louis Arms-
trong sungu með eftirminnilegum
hætti með tríói Oscar Peterson á
þeim sjötta, fyrst á dagskrá. Út-
setning Corea og Burton á þessu
ljúfa lagi var einstaklega smekkleg
og lifandi.
Í kjölfarið kom lagið Strange
Meadow Lark af metsöluplötu Da-
ves Brubecks, Time Out, og var út-
gáfan af því fagmannleg, en kannski
ekki sérlega eftirminnileg.
Mun meiri innblástur var hins
vegar í útsetningu Corea og Bur-
tons á laginu Chega de Saudade eft-
ir Antonio Carlos Jobim, sem þeir
lærðu báðir er þeir léku með Stan
Getz á sínum tíma og tileinkuðu
þeir leik sinn minningu hans. Þarna
blandaðist saman djass og bossa
nova þannig að unun var á að hlýða.
Bítlarnir kunna að hafa verið
kynlegur kvistur í þessum kokkteil,
en meðhöndlun Corea og Burtons á
laginu Eleanor Rigby eftir þá Len-
non og McCartney, ærslafengin og
hröð, var hreinasta skemmtun.
Síðasta lagið fyrir uppklapp var
ný tónsmíð eftir Corea, eina frum-
samda lagið á nýju plötunni, Mozart
Goes Dancing. Þar komu hin klass-
ísku áhrif í tónlist Corea glöggt í
ljós, blönduð sveiflu djassins.
Eftir stutt uppklapp undu Corea
og Burton sér í eitt þekktasta lag
þess fyrrnefnda, Spain, léku af
miklum móð og kórónuðu kvöld þar
sem tveir af fremstu djasstónlistar-
mönnum samtímans létu hunang
drjúpa í eyru áheyrenda.
Óður til áhrifavaldanna
Harpa
Chick Corea og Gary Burton
bbbbn
Píanóleikarinn Chick Corea og víbrafón-
leikarinn Gary Burton á tónleikum í Eld-
borg í Hörpu þriðjudaginn 24. apríl.
Eins og einn maður Chick Corea og Gary Burton voru innblásnir og fullir af leikgleði í Hörpu á þriðjudagskvöld.
KARL
BLÖNDAL
TÓNLEIKAR
Morgunblaðið/Kristinn
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2012
(1990). Bubbi flakkar nokkuð á milli
stíla á plötunni, við fáum vals
(„Skipstjóravalsinn“) og kliðmjúk
kántrílög („Vonir og þrár“ og hið
frábæra lokalag „Fjórtán öskur á
þykkt“). Rennslið er síðan brotið
upp tvisvar með grallaralegum og
barnagælulegum lögum, „Banka-
gæla“ og „Það er kona að blogga á
mig“. Bubbi beitti svipaðri aðferð í
„Jakkalakkar“ (Von, 1992) og fyrr-
nefnda lagið minnir nokkuð á jóla-
lagið góða „Must Be Santa“ sem
Bob Dylan sendi frá sér fyrir fáein-
um árum.
Langbesta lagið og það áhrifarík-
asta er samt „Óskin“ sem heimild-
armyndin er nefnd eftir. Naktara
gerist það ekki, bara Bubbi og gít-
arinn sem hann pikkar af miklu list-
fengi (og það er engu líkara en tveir
gítarleikarar séu að spila). Á einum
stað beygir hann nótuna óvænt,
magnað „útspil“ sem gerir lagið.
Bubba og Sólskuggunum tekst
það sem var lagt upp með á þessari
plötu, að knýja fram innilega, hlýja
og „lifandi“ stemningu þar sem tón-
listin sjálf er yfir öllu. Það er eitt-
hvað satt við þetta allt saman. Eða
eins og Bubbi sjálfur orðar það í
upplýsingabæklingi:
„Sá sem syngur með hjartanu
getur aldrei verið falskur …“
Bræður og systur Bubbi og Sólskuggarnir hafa gefið út sína aðra plötu, Þorpið.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
- séð og heyr/kvikmyndir.is
MÖGNUÐ SPENNUMYND
Hörku Spennutryllir
frá framleiðendum
“Girl with the Dragon
Tattoo” og “Safe
House”.
Ö Ý Í
SAM WORTHINGTON ROSAMUND PIKE RALPH FIENNES LIAM NEESON
EGILSHÖLL
16
16
16
14
12
12
12
12
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
16
ÁLFABAKKA
12
12
12
14
VIP
VIP
L
CABIN IN THEWOODS KL. 5:50 - 8 - 10:10 2D
CABIN IN THEWOODSVIP KL. 8 2D
BATTLESHIP KL. 5:20 - 8 - 10:402D
BATTLESHIP VIP KL. 5:20 - 10:10 2D
COLDLIGHTOFDAYKL. 5:50 - 8 - 10:10 2D
AMERICANPIE KL. 5:50 - 8 - 10:202D
WRATHOF THE TITANS KL. 8 - 10:10 3D
FJÖRFISKARNIRM/ÍSL.TALI KL. 5:50 2D
16
14
12
12
AKUREYRI
THECABIN IN THEWOODS KL. 10:10 2D
THECOLDLIGHTOFDAY KL. 8 2D
GONE KL. 8 2D
WRATHOF THE TITANS KL. 10:10 2D
7
12
12
LBATTLESHIPKL. 5:10 - 8 - 10:50 2D
THECOLDLIGHTOFDAY KL. 5:50 - 10:20 2D
WRATHOF THE TITANS KL. 5:40 - 8 3D
TITANIC KL. 8 3D
CABIN IN THEWOODS KL. 5:50 - 8 - 10:10 2D
COLDLIGHTOFDAY KL. 5:50 - 8 - 10:10 2D
GONE KL. 5:50 - 8 2D
WRATHOF THE TITANS KL. 10:10 3D
CABIN IN THEWOODS KL. 10:20 2D
21 JUMPSTREET KL. 8 2D
GONE KL. 8 2D
SVARTURÁLEIK KL. 10 2D
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
Svarið við spurningu dagsins
HVAÐ ER Í MATINN?
Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar@fylgifiskar.is - fylgifiskar.is
Tilbúnir fiskréttir · Ferskur fiskur
Heitur matur í hádeginu · Veisluþjónusta