Morgunblaðið - 26.04.2012, Page 40
FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 117. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Ráðist á íslensk hjón …
2. Asíska tígris-moskítóflugan …
3. Reyktu að vild á Austurvelli
4.Gubbupestin versnaði …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Árið 1997 lagðist Óháð listahátíð
af, en hún er grasrótarhátíð fyrir
unga sem reyndari listamenn. Hátíð-
in verður endurvakin í ár og haldin á
Selfossi, 29. júní til 8. júlí. Jóhann
Sigmarsson kvikmyndagerðarmaður
er umsjónarmaður hátíðarinnar.
Hugsanlegir þátttakendur eru hvattir
til að senda umsókn á netfangið
hljomalinda@gmail.com fyrir 8. júní.
Morgunblaðið/Sverrir
Óháð listahátíð end-
urvakin á Selfossi
Stuttskífan Half
Dream með Sin
Fang kemur út á
12 tomma vínyl á
vegum Morr
Music í lok maí.
Stór plata, Flow-
ers, kemur svo út
í byrjun árs 2013.
Sin Fang heldur í
þriggja vikna tónleikaferð um Evrópu
í lok maí ásamt Sóleyju. Útgáfu-
tónleikar verða svo haldnir á Íslandi í
júní, strax eftir tónleikaferðina.
Ný plata með Sin
Fang í lok maí
Mugison og
Valgeir á Bræðslunni
Á föstudag Hæg suðvestlæg átt, skýjað og dálítil rigning eða
slydda um tíma norðan- og vestantil á landinu. Hiti 2 til 8 stig.
Á laugardag Sunnan 8-15 m/s og rigning. Hiti 5 til 10 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dálítil slydda eða rigning vestantil á landinu,
smáél austast en þurrt annars staðar. Hiti 2 til 8 stig, en um frost-
mark á norðaustanverðu landinu.
VEÐUR
Íslandsmeistarar FH leika
til úrslita í úrvalsdeildinni í
handknattleik karla annað
árið í röð. Það var staðfest
eftir þriðja sigur liðsins á
Akureyri í undanúrslitum,
28:25, á Akureyri í gær-
kvöldi. FH-ingar voru sterk-
ari í leiknum í gær og verð-
skulduðu sigur í kveðjuleik
Atla Hilmarssonar sem
þjálfara nyrðra. FH-ingar
mæta HK í úrslitum. Fyrsti
leikurinn verður 1. maí. »2
FH-ingar í úrslit
annað árið í röð
Bayern spilar til úrslita
á eigin heimavelli
Handknattleiksdeild Víkings, í um-
boði nokkurra félaga, leggur fram
breytingar á keppnisfyrirkomulagi í
úrvalsdeild karla, fyrir ársþing Hand-
knattleikssambands Íslands sem
fram fer á laugardaginn í Íþrótta-
miðstöðinni Laugardal. Í tillögunni er
lagt til að leikið verði í einni 14 liða
deild á næsta keppnistímabili í stað
úrvalsdeildar með átta liðum. »1
Vilja að öll liðin
leiki í einni deild
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir
gunnhildur@mbl.is
Eftir því sem dagarnir lengjast
fækkar óðum þeim skíðasvæðum
sem enn eru opin á landinu og fer
hver að verða síðastur að skella
sér í brekkurnar.
Helgin sem í hönd fer er víðast
hvar sú síðasta sem svæði verða
opin á þessari vertíð. Stefnt er að
því að halda opnu í Bláfjöllum og
Hlíðarfjalli fram á sunnudag svo
fremi sem veður leyfir. Á Siglu-
firði er einnig nægur snjór ennþá
og mun verða opið á skíðasvæðinu
í Skarðsdal fram á mánudag að
öllu óbreyttu.
Álíka aðsókn og í fyrra
Aðsókn á helstu skíðasvæði
landsins virðist hafa verið með
álíka móti í ár og í fyrra þrátt fyr-
ir að víða hafi verið opið ívið
sjaldnar en áður. Er þar einkum
við veðrið að sakast en framan af
ári var mikið um vætu og vind víð-
ast hvar á landinu og aðstæður allt
annað en hliðhollar skíðaiðkendum
á köflum. Heldur tók þó að rætast
úr eftir því sem á leið vorið og er
færi almennt gott og snjór víðast
hvar nægur nú undir lok tímabils-
ins.
Skíðasvæðin um landið
Í Bláfjöllum hefur fjöldi gesta í
ár numið hátt í 60 þúsund manns
að sögn Magnúsar Árnasonar,
framkvæmdastjóra skíðasvæða
höfuðborgarsvæðisins. Munar þar
mikið um sólríka og veðursæla
daga undanfarinn mánuð í kjölfar
arfaslaks veðurs í febrúar og
mars. Skíðasvæðið í Tindastóli er
komið í sumarfrí en snjór þar er
enn nægur, að sögn Viggós Jóns-
sonar, forstöðumanns svæðisins. Í
Skarðsdal á Siglufirði er færi einn-
ig ennþá gott að sögn Egils Rögn-
valdssonar umsjónarmanns og
verður opið þar fram á mánudag.
Hafa um 12.000 manns rennt sér á
skíðum í Skarðsdal í vetur sem er
svipuð aðsókn og í fyrra og það
þrátt fyrir rysjótt veður. Töluvert
hefur verið um að gestir innan af
Akureyri nýti sér nýju göngin til
að bregða sér á skíði á Siglufirði
og það er skemmtileg þróun.
60 þúsund í Hlíðarfjalli
Útlit er fyrir að allt að sextíu
þúsund manns hafi sótt Hlíðarfjall
heim þegar yfir lýkur í ár að sögn
Guðmundar Karls Jónssonar for-
stöðumanns. Eins og víðar á land-
inu var færi þar lélegt framan af
og páskarnir blautir. Þurfti m.a.
að nýta snjóvélarnar á svæðinu við
undirbúning Andrésar Andar leik-
anna í ár. Heldur rættist þó úr eft-
ir páska og er ennþá nægur snjór
fyrir norðan. Í Hlíðarfjalli verður
einnig opið um helgina. Í Odds-
skarði var opið í 75 daga þennan
veturinn og aðsókn ágæt að sögn
Dagfinns Smára Ómarssonar, for-
stöðumanns skíðasvæðisins. Tölu-
vert skorti reyndar á snjóinn þar
framan af en suðlægar áttir og
hlýindi ríktu frá janúar og fram í
mars. „Síðan hefur snjóað vel og
er fjallið fagurt á að líta.“
Þeir verða eflaust ófáir sem
nýta sér þessa síðustu daga til að
bruna niður brekkurnar.
Skíðavertíðinni senn að ljúka
Opið í Bláfjöll-
um, Hlíðarfjalli
og á Siglufirði
Ljósmynd/Egill Rögnvaldsson
Siglufjörður Þessir kátu krakkar skemmtu sér hið besta á skíðasvæðinu á Siglufirði. Þar lítur allt út fyrir að verði
opið fram á mánudag, ef veður leyfir. Nokkrum skíðasvæðum hefur verið lokað eftir veturinn, m.a. í Tindastóli.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Í Hlíðarfjalli Bjarney Hilma Jó-
hannesdóttir rennir sér niður.
Tónlistarveislan Bræðslan á
Borgarfirði eystra fer fram í átt-
unda skiptið í sumar, helgina 26.-
29. júlí. Þeir listamenn sem fram
koma í ár eru
Mugison, Val-
geir Guð-
jónsson,
Contalgen
Funeral frá
Sauðár-
króki og
Fjalla-
bræður.
Bayern München fær tækifæri til að
spila um Evrópumeistaratitilinn í
knattspyrnu á eigin heimavelli eftir
að hafa sigrað Real Madrid á drama-
tískan hátt í vítaspyrnukeppni í Madr-
íd í gærkvöld. Bayern mætir Chelsea í
úrslitaleiknum 19. maí en þar verða
sjö leikmenn liðanna fjarri góðu
gamni vegna leikbanna. »2