Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 3. M A Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  103. tölublað  100. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG Á́HRIF VÍMUEFNA Á BÖRN VERÐ- ANDI MÆÐRA SYNGUR Í HAPPANÆR- BRÓKUM EINLEIKUR MEÐ SIGURÐI SKÚLASYNI Í SLÁTURHÚSINU FINNUR.IS OG VIÐSKIPTABLAÐ VEISLA FYRIR AUSTAN 36GRÍPA ÞARF FLJÓTT Í TAUMA 10 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Gjaldtaka samkvæmt frumvarpi um veiðigjöld yrði langt umfram það sem útgerðin getur staðið undir. Nokkur hluti stærstu útvegsfyrirtækjanna myndi ekki ráða við núverandi skuld- ir, ef gjöldin yrðu lögð á, og þau myndu einnig hafa slæm áhrif á sjáv- arbyggðir. Kemur þetta fram í áliti sérfræðinga sem atvinnuveganefnd Alþingis fékk til að meta áhrif frum- varpa ríkisstjórnarinnar. Daði Már Kristófersson, dósent við Háskóla Íslands, og Stefán B. Gunn- laugsson, lektor við Háskólann á Ak- ureyri, kynntu á fundi atvinnuvega- nefndar í gærkvöldi niðurstöður greinargerðar sinnar um efnahagsleg og byggðaleg áhrif samþykktar stjórnarfrumvarpa um fiskveiði- stjórnun og veiðigjöld. Alvarlegur galli á mati Í umfjöllun um álagningu veiði- gjalda kemur fram að þeir telja alvar- lega galla á mati auðlindarentu til grundvallar sérstöku veiðigjaldi. Álagningin byggir á tæplega tveggja ára gömlum rekstrargögnum og telja höfundar skýrslunnar að rentan sé of- metin svo nemi tugum prósenta. Sem dæmi hefði sérstakt veiðigjald orðið 140% af metinni auðlindarentu ef að- ferðinni hefði verið beitt á árunum 2006 til 2010. Ekki verði búið við svo mikla skekkju. Þeir nefna einnig að tvísköttun í uppsjávarveiðum hlaupi á hundruðum milljóna á ári. Þá telja þeir fjármagns- þörf vanmetna og það leiði til rang- lega ákvarðaðs sérstaks veiðigjalds. Loks telja þeir skatthlutfall veiði- gjalds mjög hátt. „Að teknu tilliti til allra þessara ágalla er niðurstaðan sú að umfang gjaldtöku samkvæmt frumvarpinu sé langt umfram það sem útgerðin getur staðið undir. Verulegar breytingar þarf að gera á aðferðafræði frumvarpsins við mat á auðlindarentu áður en hægt er að ákvarða hvað mundi teljast hófleg gjaldtaka,“ segja skýrsluhöfundar og lýsa þeirri skoðun sinni að nauðsyn- legt sé að fram fari frekari rannsókn áður en ráðist er í skattlagningu af því umfangi sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Skýrsluhöfundar segja að gild- istaka frumvarpanna myndi hafa mik- il neikvæð áhrif á rekstur og greiðslu- getu stærstu fyrirtækjanna. Nokkur hluti þeirra muni ekki ráða við núver- andi skuldir og skuldastaða fyrir- tækja sem eingöngu stunda útgerð verði yfirleitt óviðráðanleg. MGagnrýni borin undir »2 Langt umfram getu útvegsins  Sérfræðingar sem atvinnuveganefnd Alþingis kallaði til telja að nokkur hluti stærstu sjávarútvegsfyrirtækjanna myndi ekki ráða við áformað veiðigjald Grindvíkingar urðu í gærkvöld Íslandsmeistarar í körfuknattleik karla í fyrsta skipti í sextán ár þegar þeir sigruðu Þór, 78:72, í hörkuspennandi leik í Þor- lákshöfn. Þetta var fjórða viðureign liðanna og Grinda- vík vann því einvígið 3:1. Niðurstaðan er sanngjörn því Grindavík er einfaldlega með besta liðið. » Íþróttir Grindvíkingar Íslandsmeistarar Morgunblaðið/Árni Sæberg  Þegar litið er til þess að aflands- krónustabbinn í íslenska hagkerf- inu nemur tæplega þúsund millj- örðum króna og stýrivextir Seðlabankans eru 4,75% þá er ljóst að tugir milljarða bætast við snjó- hengjuna árlega í formi vaxta. Þótt gert yrði ráð fyrir 3,5% af- gangi á vöruskiptum – um 58 millj- örðum á þessu ári – þá myndi engu að síður vanta 40 milljarða til að standa skil á bæði vöxtum og höf- uðstólsgreiðslum af aflandskrón- um. Einn viðmælandi Morgunblaðsins segir að vaxtahækkanir myndu því „aðeins fóðra ófreskjuna.“ Sigurður Hannesson, fram- kvæmdastjóri Júpiter, tekur í svip- aðan streng. „Vaxtahækkanir hafa þveröfug áhrif og auka á aflands- krónuvandann.“ »Viðskipti Vaxtahækkanir „fóðra aðeins ófreskjuna“  „Með þessu má því segja að ver- ið sé að breyta stjórnsýslunni til að bregðast við kröfum og aðlög- un að ESB löngu fyrr en nokkur ákvörðun hefur verið tekin um að- ild,“ segir Jón Bjarnason, þingmaður VG, um fyr- irhugaða uppstokkun ríkis- stjórnarinnar á skipan ráðuneyta í stjórnarráðinu. Jón horfir í þessu efni sér- staklega til landbúnaðar og sjávar- útvegs og tengir áform um sam- einingu ráðuneyta við fyrirhugaða IPA-styrki frá ESB, sem ríkis- stjórnin áætlar að geti orðið sem svarar um 5 milljarðar kr. vegna tímabilsins 2011-2013. Vikið er að íslenska stjórnkerf- inu í áfangaskýrslu Evrópuþings- ins sem birt var 14. mars sl. með þeim orðum að það fagni þeirri sameiningu ráðuneyta sem unnið sé að. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir skort á undirbúningi við samein- ingu ráðuneyta en eins og rakið er í Morgunblaðinu í dag hafa for- ystumenn stjórnvalda haft ólíka skoðun í málinu. »4, 14 Stjórnkerfi breytt til aðlögunar við ESB Jón Gunnarsson, fulltrúi Sjálf- stæðisflokksins í atvinnumála- nefnd, segir nauðsynlegt að fara yfir sjávarútvegs- frumvörpin í grundvallar- atriðum nú þegar skýrsla sér- fræðinga liggur fyrir. „Það er engin skynsemi í öðru en að þingið sendi frum- varpið í endurvinnslu,“ segir Jón. Frumvarp til endurvinnslu VILL FARA YFIR MÁLIÐ Skákmunir, sem tengjast „einvígi aldarinnar“, keppni Boris Spass- kys og Bobbys Fischer um heims- meistaratitilinn í skák 1972, og til stendur að selja á uppboði í Kaup- mannahöfn í sumar, voru upp- haflega framleiddir í fjáröfl- unarskyni fyrir Skáksamband Íslands og reynt var að selja þá erlendis án árangurs fyrir um 35 árum. Þetta kemur fram í grein Guð- mundar G. Þórarinssonar, fyrrver- andi forseta Skáksambands Ís- lands, í Morgunblaðinu í dag. Guðmundur hætti sem forseti Skáksambandsins í maí 1974. Hann segir að ný stjórn hafi, í samráði við Sverri Kristinsson fasteignasala, látið smíða tvö skákborð, eftirlíkingar borðsins sem notað var í einvíginu, í fjár- öflunarskyni fyrir Skáksambandið og hafi Sverrir kostað smíðina. Borðin hafi meðal annars verið boðin Íranskeisara og háttsettum mönnum hjá Alþjóðaskák- sambandinu og annað borðið hafi verið verðlaun í hlutaveltu Skák- sambandsins en ekki gengið út. Þá hafi Páll G. Jónsson komið sam- bandinu til hjálpar og keypt munina, þar á meðal taflplötuna, sem 7.-21. skákin í heimsmeist- araeinvíginu var tefld á og fer nú á uppboð. »21 Keisari Írans vildi ekki kaupa skákborðið Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson Skák 1972 Boris Spassky og Bobby Fischer tefla í Laugardalshöll.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.