Morgunblaðið - 03.05.2012, Síða 2

Morgunblaðið - 03.05.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ómissandi á pizzuna, í ofn- og pastaréttina, á tortillurnar og salatið. Heimilis RIFINN OSTUR NÝJUNG ÍSLENSKUR OSTUR 100% Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verið er að athuga möguleika barnaverndaryf- irvalda til að vista fimmtán ára ungling sem dæmdur hefur verið til fangelsisvistar fyrir að framvísa fölsuðum skilríkjum við komuna til landsins. Forstjóri Barnaverndarstofu telur ekki viðunandi að setja svo ungt barn í fang- elsi. Sérstakar verklagsreglur gilda um meðferð mála ungmenna undir 18 ára aldri, sem hingað koma án forsjármanna, eru stöðvuð með fölsuð skilríki eða biðjast hælis hér á landi. Hefur slíkum málum mjög fjölgað að undanförnu. Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndar- stofu, segir að sjö tilvik af þessu tagi hafi komið upp á fimm ára tímabili, frá 2007 til 2011. Svip- aður fjöldi mála hafi hins vegar komið upp það sem af er þessu ári, þar af fimm á allra síðustu vikum. Tveir karlmenn sem taldir eru vera frá Norður-Afríku voru stöðvaðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fyrir helgi þegar þeir framvísuðu fölsuðum vegabréfum. Annar er talinn vera um 15 ára og hinn 16-17 ára, en eftir er að kanna nánar aldur og aðstæður þeirra. Þeir voru dæmdir til fimmtán daga fangelsisvistar fyrir að framvísa fölsuðum skilríkjum. Ungmennin eru í vörslu lögreglu. Lögreglan er að afla upplýsinga um viðkom- andi einstaklinga. Hér á landi hefur ekki tíðk- ast að láta fara fram aldursgreiningu á ungum flóttamönnum, þótt stundum hafi verið efast um að uppgefinn aldur sé réttur. Bragi Guð- brandsson segir það vel koma til greina að taka upp það verklag. Flest ungmennin sem hingað koma án for- sjármanna gefa upp að þau séu 16 eða 17 ára. Óvanalegt er að þau séu yngri. Bragi telur ekki viðunandi að setja fimmtán ára ungmenni í fangelsi. Þess vegna sé verið að athuga hvort hægt sé að finna lausn á vistun drengsins í gegnum samning Fangelsismálastofnunar og Barnaverndarstofu. Telur Bragi að best væri að finna honum eins konar fósturheimili en tekur fram að erfitt kunni að vera að fá hentugt heimili. Reynt að finna fósturheimili  Forstjóri Barnaverndarstofu telur ekki viðunandi að setja fimmtán ára flóttamann í fangelsi  Barnaverndaryfirvöld og Fangelsismálastofnun athuga aðra möguleika á afplánun dóms Morgunblaðið/Billi Skoðun Nokkrir erlendir ríkisborgarar hafa framvísað fölsuðum skilríkjum við komuna. „Segja má að slóðin sé friðuð, við erum nánast einir. Bátarnir eru búnir með kvótann og þeir sem eru eitt- hvað að róa reyna að ná í eitthvað annað en þorsk,“ segir Brynjar Kristmundsson, skipstjóri á Steinunni SH, eftir löndun í Ólafsvík. Steinunn fór út um klukkan sjö í gærmorgun og var komin í land fyrir fjögur. Afl- inn var tæp 43 tonn og þar af 25 tonn úr einu kasti. Mjög góð veiði hefur verið á öll veiðarfæri í Breiða- firði frá áramótum, eins og raunar undanfarin ár. Margir strandveiðibátar voru búnir að ná dagsskammt- inum og komnir inn til löndunar um hádegi. Steinunn SH er á snurvoð og hóf áhöfnin veiðar að nýju eftir langt frí sem tekið var vegna hrygningar- stopps og til að ljúka ekki kvótanum of snemma. Land- að var þrjátíu tonnum fyrsta daginn og því er búið að veiða rúm 70 tonn af þeim 230 tonna kvóta sem geymd- ur var. „Það virðist vera töluvert af fiski, ekki er hægt að kvarta,“ segir Brynjar og vonast til að geta við- haldið gömlu hefðinni og hætt á lokadaginn, 11. maí. helgi@mbl.is Ekki hægt að kvarta undan fiskleysi Morgunblaðið/Alfons Finnsson Skipstjóri Mokfiskirí hefur verið hjá Brynjari Krist- mundssyni og félögum á Steinunni SH frá áramótum.  Mikill afli í Breiðafirði  Steinunn SH með 43 tonn Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is „Ég er afar sæll og ánægður að vera kominn aftur á sjó- inn,“ sagði Daði Pétursson strandveiðisjómaður og veit- ingahúseigandi eftir að hann kom að landi í Hafnarfirði í gær með um 800 kíló af vænum ufsa. Daði hefur ekki verið til sjós í 15 ár en hann var einn þeirra sem reru til fiskjar í gær þegar strandveiðitímabilið hófst. Þá höfðu alls borist 487 umsóknir til Fiskistofu um leyfi til strandveiða í sumar, langflest á vestursvæði. „Mér líst mjög vel á þetta fyrirkomulag og ég mun nýta mér þetta í allt sumar,“ segir Daði en strandveiðisjó- menn geta veitt fram í ágúst. Skipulag strandveiða er þannig að landinu er skipt í fjögur veiðisvæði. Leyfi til strandveiða eru veitt á því svæði þar sem heimilisfesti útgerðaraðila viðkomandi báts er skráð og eingöngu er heimilt að landa afla innan þess landsvæðis á veiðitímabilinu. Aflamagn er háð tak- mörkunum fyrir hvert landsvæði innan hvers mánaðar. Erill hjá Gæslunni Nokkur erill var hjá Landhelgisgæslunni í gær enda voru um 700 skip í fjareftirliti stjórnstöðvar hennar klukkan 7 í gærmorgun. Um miðjan dag þurfti TF-SIF að fara í eftirlitsflug og skyggnast um eftir báti sem ekki sinnti tilkynningarskyldu sinni. Að lokum náðist í manninn og fékk hann tiltal um að hann yrði að vera með útbúnað um borð sem virkar fyrir tilkynningarskyldu. Maðurinn lofaði betrun. Morgunblaðið/Árni Sæberg Strandveiðar hafnar Daði Pétursson reri á fyrsta degi strandveiða og sótti um 800 kíló af vænum ufsa. Afar sæll og ánægður á strandveiðunum  Strandveiðitímabil hófst í gær  487 umsóknir hafa borist Atvinnuvega- nefnd Alþingis mun fara yfir það hvort þær for- sendur sem frum- varp um veiði- gjöld var grund- vallað á standist. „Því munum við fá þá sérfræðinga sem stóðu að baki frumvarpinu til að svara fyrir þá gagnrýni sem fram kemur í umsögninni,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, fulltrúi Samfylking- arinnar. Nefndin fékk í gær greinargerð tveggja sérfræðinga um efnahagsleg og byggðaleg áhrif sjávarútvegs- frumvarpa ríkisstjórnarinnar. Fund- að verður stíft um málið á næstunni, að sögn Lilju Rafneyjar Magnúsdótt- ur, þingmanns VG og 1. varafor- manns atvinnuveganefndar. „Þetta er gott innlegg í þá vinnu sem nú er í gangi og verður skoðað með hliðsjón af öðrum upplýsingum sem nefndin hefur fengið,“ segir Lilja Rafney. Áfellisdómur yfir frumvarpi „Þessi greinargerð er alger áfell- isdómur yfir þessu frumvarpi. Ekki er hægt að nota annað orð en fúsk um þessi vinnubrögð,“ segir Jón Gunn- arsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í atvinnuveganefnd. Hann segir að skýrsluhöfundar hafi sýnt fram á að sá reiknigrunnur sem ráðuneytið hafi notað í frumvarpinu sé rangur og þar með verði allar niðurstöður kolrang- ar. Hann segir nauðsynlegt að fara yf- ir þessi mál í grundvallaratriðum á ný. „Það er engin skynsemi í öðru en að þingið sendi frumvarpið í endur- vinnslu,“ segir Jón. Lilja Rafney tekur ekki undir það sjónarmið að hugsa þurfi málið frá grunni en tekur fram að ýmsar góðar ábendingar sé að finna í greinargerð- inni. Hún bendir á að verulegar breytingar hafi orðið á skuldastöðu sjávarútvegsfyrirtækja, meðal ann- ars vegna afskrifta og gengislána- dóma. Því sé ekki hægt að fullyrða að úttektin byggi á allra nýjustu upplýs- ingum. ,,Það þarf að ganga úr skugga um það hvort þessi spá um afkomu fyr- irtækjanna, verði frumvarpið óbreytt að lögum, standist. 60% fyrirtækja í sjávarútvegi eru í slæmri stöðu og ljóst er að hluti þeirra mun ekki þola neinar breytingar. Upplýsingarnar benda til þess að mörg þessara fyr- irtækja muni ekki lifa af þó ekkert frumvarp komi til,“ segir Ólína. Hún segir að nú taki við frekari vinna við að greina það sem fram kom í umsögninni. ,,Það kæmi mér ekki á óvart þótt frumvarpið þyrfti að taka breytingum. Ég tek þó fram að í um- fjölluninni kemur fram að aðskilja þurfi veiðar og vinnslu líkt og ég hef haldið fram, í það minnsta bókhalds- lega,“ segir Ólína. helgi@mbl.is, vid- ar@mbl.is Gagnrýni borin undir höfunda  Jón Gunnarsson: Áfellisdómur og fúsk Jón Gunnarsson Ólína Þorvarðardóttir Lilja Rafney Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.