Morgunblaðið - 03.05.2012, Side 6

Morgunblaðið - 03.05.2012, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012 Skúli Hansen skulih@mbl.is Fiskskurðarvél sem notast við röntgentækni og vatnsskurð var á meðal þess sem fjallað var um á fundi um aukið virði sjávarfangs sem var hald- inn á veitingastaðnum Tveimur á Garðsskaga í gærmorgun. „Í stuttu máli þá kemur flak á færibandið, röntgenvél tekur mynd af flakinu og sér þá bein- garðinn, hvar hann liggur, svo fer það yfir á skurðarfæriband, þar erum við með aðra mynda- vél sem greinir staðsetninguna og við fáum þá nákvæma staðsetningu á skurðarbandinu með þeirri myndavél, og svo er beingarðurinn skorinn úr með vatnsskurði, en hann getur líka skorið í bita,“ segir Helgi Hjálmarsson, framkvæmda- stjóri Völku ehf., en hann hélt erindi um vélina og önnur verkefni sem fyrirtækið vinnur að á fundinum í gær. Verkefnið, þ.e. hönnun og þróun á vélinni, er unnið í samstarfi við útgerðarfélagið HB Granda og hefur hlotið styrk frá AVS, rannsóknarsjóði í sjávarútvegi, sem starfar á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Bætt nýting og aukið virði Röntgenfiskskurðarvélin sparar bæði tíma, vinnslu og eykur virði aflans. „Í staðinn fyrir að tapa kannski 10% í beingarð þá ertu kannski að tapa 5%. Það er þá verðmætaaukning, þannig að það sem að þú skerð af með beingarðinum fer í marning en hitt geturðu selt sem hávirðisvöru,“ segir Helgi. Hann segir skurðarvélina vera nýj- ung, þó svo að menn hafi lengi reynt að gera svipaða vél. „Það er búið að vinna í þessu í mjög mörg ár, menn hafa reynt þetta mjög lengi en þetta er svona fyrsta græjan sem lítur út fyrir að virka og skilar því sem að skila þarf,“ segir Helgi. Að sögn Helga er fyrirtækið búið að smíða fyrstu frumgerð skurðarvélarinnar og gera prófanir á henni. Aðspurður hvort vélin sé ætluð fyrir inn- lendan eða erlendan markað segir Helgi: „Bæði. Það er náttúrlega mikill stórmarkaður hérna heima og erlendis líka. Við sjáum einmitt tæki- færi m.a. til þess að skera og auka sjálfvirkni vinnslu á t.d. smáýsu sem er seld mikið til óunn- in úr landi.“ Valka ehf. hefur nú sótt um styrk, í samvinnu við HB Granda, Ný-Fisk og Samherja, vegna framhaldsverkefnis í tengslum við fisk- skurðarvélina, en það verkefni mun felast í því að bæta við vélina svokölluðum hallandi skurði, en slíkur skurður mun að sögn Helga gera vél- inni kleift að skera þorsk og stærri fisk. Dýr hátækni „Já, þetta er býsna dýr tækni, þannig að þú þarft talsvert magn til þess að réttlæta þetta,“ segir Helgi aðspurður hvort dýrt sé að kaupa svona vél, og bætir við að vélin geti ráðið við það sem svarar til 1-2 flökunarvéla. „Þannig að það ætti ekki að þurfa stærri vinnslu en það í sjálfu sér, ef menn eru með góða nýtingu á flökunarvél þá gætu kaup á svona vél skilað sér,“ segir Helgi. Hann segir að Valka hafi kynnt vélina á sjávarútvegssýningunni European Seafood Ex- position sem haldin var í Brussel í Belgíu í síð- ustu viku. Segir hann viðbrögðin við vélinni hafa verið mjög jákvæð og að mikill spenningur sé fyrir henni. „Við erum búnir að vera að kynna þetta á sjávarútvegssýningum hér heima síðan í haust,“ segir Helgi og bætir við að formleg markaðskynning hefjist þegar fyrsta tækið fari í gang í sumar. Spurður út í það hvort sjávarútvegurinn sé orðinn að hátækniiðnaði segir Helgi: „Já, það er engin spurning“ og bætir við „svo sjáum við núna með þessari nýju tækni að þetta breytir eiginlega öllu vinnslumynstrinu“. Hann segir Völku vera að vinna í þó nokkrum verkefnum en megináherslan í þróunarvinnu fyrirtækisins sé á beinaskurð og hugbúnað. Að sögn Helga starfa um það bil 14 starfsmenn hjá fyrirtækinu sem starfrækt hefur verið frá árinu 2003 og fer hratt vaxandi. Röntgentækni notuð til þess að skera karfa  Valka ehf. þróar hátækni röntgen-fiskskurðarvél í samvinnu við HB Granda Röntgen Hér má sjá röntgenmynd sem tekin var af karfaflaki í skurðarvél Völku ehf. Morgunblaðið/Ernir Hélt erindi Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Völku ehf. Fulltrúar danska uppboðshússins Bruun Rasm- ussen eru á leið til Íslands og bjóða almenningi að fá gamla muni verðmetna dagana 10.-11. maí nk. Verður bæði hægt að hitta sérfræðinga upp- boðshússins á Hótel Loftleiðum umrædda daga eða fá þá í heimahús eftir nánara samkomulagi. Að sögn Torbens Ringtveds, hjá Bruun Rasm- ussen, er þetta í annað sinn sem sérfræðingar danska uppboðshússins leggja leið sína hingað til lands í slíkum erindagjörðum. Að þessu sinni er verið að leita eftir listaverkum af öllu tagi, hönn- unargripum, fornmunum, gull- og silfurmunum, skartgripum, víni, frímerkjum, gömlum um- slögum og póstkortum svo og mynt, minnispen- ingum og gömlum peningaseðlum. Verðmat er án endurgjalds og skuldbindinga, en með hugsanlega sölu á uppboðum í huga. Fá helminginn greiddan fyrirfram Að sögn Torbens býðst seljendum söluvænlegra muna að fá fyrirframgreiðslu upp á allt að 50% af verðmati hlutar kjósi þeir svo. Áhersla er lögð á að farið sé að lögum og reglum sem um slík við- skipti gilda og mun öllum munum, sem uppboðs- húsið flytur úr landi, verða framvísað við tolla- yfirvöld. Hér áður fyrr lagði uppboðshúsið Thomas Høil- and Auktioner reglulega leið sína til landsins til að verðmeta mynt og frímerki í eigu Íslendinga. Bruun Rasmussen eignaðist það fyrirtæki árið 2011 og jók með því umsvif sín á markaðnum með forna mynt og frímerki. Áhugi á íslenskum munum Töluverður áhugi er á íslenskum munum hjá Bruun Rasmussen en uppboðshúsið mun í byrjun júní nk. bjóða upp skákmuni úr „einvígi ald- arinnar“ 1972 þegar Boris Spassky og Bobby Fischer áttust við hér á landi. Reiknar uppboðs- húsið með að fá á bilinu 27-40 milljónir króna fyr- ir hlutina sem boðnir verða upp. gunnhildur@mbl.is Leita að gömlum munum hér á landi Eftirsóttir munir Uppboðsfyrirtækið leitar m.a. eftir mynt og minnispeningum.  Sérfræðingar Bruun Rasmussen verðmeta muni fyrir almenning  Hægt að fá helming af verðmati greiddan út fyrirfram Bauhaus mun ekki bjóða upp vaxt- arábyrgð á fjölærum garðplöntum á Íslandi. Verslunin hafði áður aug- lýst slíka ábyrgð á vefsíðu sinni en ábyrgðin felst í því að ef fjölær garðplanta deyr innan árs eftir kaup þá fær viðskiptavinurinn nýja plöntu frá Bauhaus í staðinn. Síðastliðinn þriðjudag var greint frá því að fyrirtækið myndi bjóða upp á slíka ábyrgð hér á landi en nú hafa blaðinu borist upplýsingar um að svo sé ekki. Þær upplýsingar fengust frá Bauhaus að aldrei hafi staðið til að veita slíka ábyrgð hér á landi, en upplýsingar um ábyrgðina hafi verið settar inn á vef versl- unarinnar hér á landi fyrir mistök. Opna á laugardaginn Verslun Bauhaus verður loks opnuð næstkomandi laugardags- morgun klukkan átta, en fyrst var tilkynnt um opnun verslunarinnar árið 2008. Forsvarsmenn hennar hvetja viðskiptavini til að vera mættir snemma enda verður happ- drættismiðum dreift fyrir utan verslunina á milli klukkan 7 og 8 á laugardaginn. Til mikils er að vinna í happdrættinu, en tíu heppnir þátt- takendur hljóta hundrað þúsund krónu úttekt í Bauhaus í vinning. Dregið verður úr happdrættinu við opnun verslunarinnar. Að sögn forsvarmanna versl- unarinnar verður nóg um að verða á opnunardaginn, en Felix Bergs- son leikari mun sjá um að opna þessa nýju byggingavöruverslun. skulih@mbl.is Munu ekki bjóða upp á vaxtarábyrgð Stuðningur við ríkisstjórnina hefur aukist um þrjú prósentustig frá fyrra mánuði og mælist nú 31 prósent. Þetta er niðurstaða nýs þjóðarpúls Gall- ups sem sagt var frá í kvöldfréttum RÚV í gær. Stjórnarflokkarnir hafa báðir auk- ið fylgi sitt lítillega samkvæmt könnuninni. Samfylkingin mælist með 18,7 prósent og Vinstri græn með 11,5 prósent. Framsóknarflokkurinn og Sjálf- stæðisflokkurinn tapa báðir fylgi frá síðustu könnun. Sjálfstæð- isflokkurinn er með 37 prósenta fylgi en 12,5 prósent styðja Fram- sóknarflokkinn. 5,6 prósent styðja Bjarta framtíð, 5,4 prósent styðja Dögun og 6,9 prósent styðja Sam- stöðu. 5.400 voru í úrtaki Gallup, svar- hlutfallið var tæp 62 prósent. Þar af tóku tæp 72 prósent afstöðu til flokka en 15 prósent ætla að skila auðu eða kjósa ekki. Stuðningur við ríkis- stjórn mælist 31% Tilboð voru opnuð í gær hjá Siglingastofnun í sjóvörn á Sel- tjarnarnesi, en um byggingu 55 metra sjóvarnargarðs er að ræða. Fjögur tilboð bárust í verkið og var mikill munur á upphæðum til- boðanna. Það lægsta var upp á tæp- ar þrjár milljónir króna, en það hæsta upp á tæpar 28 milljónir. Kostnaðaráætlun Siglingastofn- unar nam 4,3 milljónum króna. Mikill munur á til- boðum í sjóvörn Fjölmenni var á fundi um aukið virði sjávarfangs sem haldinn var á veitinga- staðnum Tveir vitar við Garðskaga í gærmorgun, en fundargestir voru um 30-40. Á fundinum fluttu þeir Pétur Bjarnason, starfsmaður AVS rannsóknarsjóðs í sjávar- útvegi, Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís ohf,. og Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Völku ehf., er- indi. Að sögn Ásmundar Friðrikssonar, bæj- arstjóra í Garði, var ekki farið yfir kvótamálin á fundinum heldur einungis tækniþróun í sjávar- útvegi. Hann segir sjávarútveginn vera há- tækni-starfsgrein. „Tekjuaukning sjáv- arútvegsins mun í framtíðinni byggjast rannsóknum og þeirri reynslu sem við Íslend- ingar höfum,“ segir Ásmundur. Aðspurður hvað hafi staðið upp úr á fundinum segir Ás- mundur að það hafi verið kynning Helga á rönt- genskurðartækninni sem Valka ehf. er að þróa. Ræddu sjávarút- vegstækni FJÖLMENNUR FUNDUR Í GARÐI Ásmundur Friðriksson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.