Morgunblaðið - 03.05.2012, Síða 12

Morgunblaðið - 03.05.2012, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012 Fyrsta flug Iceland Express til Prag í sumar verður miðvikudag- inn 16. maí næstkomandi og mark- ar upphaf á flugi félagsins til þessa áfangastaðar. Í fréttatilkynningu frá Iceland Express er vakin at- hygli á að með í för í fyrstu ferðinni verða Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú, en þau verða í opinberri heimsókn í Prag dagana 17. til 18. maí. Það verður síðasta opinbera heimsókn forsetans á kjörtíma- bilinu. Í tilkynningu Iceland Express segir að farþegar í þessari fyrstu ferð geti fylgst með hátíðlegri at- höfn fyrir utan forsetahöllina í Prag þegar Vas- láv Klaus, forseti Tékklands, tekur á móti forseta Ís- lands. Fram kemur að sam- starf Iceland Ex- press við Holi- days Czech Air- lines og systur- félag þess, Czech Airlines, opni algerlega nýja og spennandi ferða- möguleika fyrir Íslendinga í Aust- ur-Evrópu og geri íbúum álfunnar kleift að ferðast til Íslands allt árið. Síðasta opinbera heimsókn forseta- hjónanna á kjörtímabilinu er til Prag Ólafur Ragnar Grímsson Liðlega 450 manns sóttu um sumarstörf hjá Alcoa Fjarðaáli og hefur rúmlega eitt hundrað manns verið ráðið úr þeim hópi, samkvæmt upplýsingum fyrirtæk- isins. Þetta er svipaður fjöldi og undanfarin ár. Guðný Björg Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri mannauðsmála hjá Fjarðaáli, segir í fréttatilkynningu að um 40% þeirra sem ráðin voru hafi áður starfað í sumarafleysingum hjá fyr- irtækinu. Um 60% þeirra sem sækja um sumarstörf eru að austan eða eigi nákomna ættingja þar. Um 30% koma af höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi og 10% koma að norðan. Um 100 manns hafa verið ráðin í sumar- afleysingar hjá Alcoa Fjarðaáli Morgunblaðið/ÞÖK Álver Mikil eftirspurn er eftir sumar- störfum hjá Alcoa Fjarðaráli. Umhverfis- og samgönguráð hefur samþykkt tillögu um göngugötur í borginni í sumar. Pósthússtræti við Kirkjustræti verður breytt í göngu- götu frá 1. júní til 3. september. Hafnarstræti verður lokað fyrir bílaumferð frá 17. júní til 3. sept- ember að austanverðu frá Póst- hússtræti. Umferð verður heimiluð í Hafn- arstræti frá Tryggvagötu. Laugavegi verður breytt í göngu- götu milli Vatnsstígs og Skóla- vörðustígs frá 17. júní til 20. ágúst. Skólavörðustígur verður göngu- gata frá Bergstaðastræti að Lauga- vegi frá 17. júní til 20. ágúst. Göngugötur í mið- borginni í sumar Morgunblaðið/Ómar Hluti Laugavegar verður göngugata. Fjallað verður um hvað Ísland get- ur gert til að vernda og verja nátt- úrurauðlindir sínar í ljósi Evrópu- löggjafar og alþjóðlegra laga á opnum fundi Lagastofnunar í Há- skólabíói í dag kl. 12-13.30. Niklas Maydell lögmaður, hjá alþjóðlegu lögmannsstofunni Cleary Gootlieb Steen & Hamilton LLP, flytur fram- söguerindi á fundinum. Ræða Evrópulöggjöf og náttúruauðlindir Fjallað verður um tækifæri til efl- ingar menningar- og sögu- ferðaþjónustu og m.a. litið til reynslu Ferðamálaráðs Írlands í þeim efnum á málþingi Samtaka um söguferðaþjónustu (SSF) í Þjóð- menningarhúsinu á morgun, 4. maí kl. 14-17. Meðal þeirra sem flytja erindi eru Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, Rögnvaldur Guð- mundsson, formaður SSF, Val- gerður Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri menningarsviðs Reykjanesbæjar, og Aidan Pender, þróunarstjóri hjá Ferðamálaráði Írlands, og Kristján Baldursson, ferðaskrifstofunni TREX. Þá fjalla Dagný Marín Sigmarsdóttir, Spá- konuhofinu á Skagaströnd, Birna Þórðardóttir, Menningarfylgd Birnu, og Jóhannes Viðar Bjarna- son, Fjörukránni Hafnarfirði, um hvernig fanga má athygli ferða- manna. Upplýsingar um skráningu og málþingsgjald á soguslodir.is. Tækifæri í sögu- ferðaþjónustu Bandalag kvenna í Reykjavík hefur auglýst eftir styrkumsóknum frá konum sem hyggjast stunda nám á komandi vetri. Tilgangur sjóðsins er að hvetja og styðja konur, sem ekki eiga kost á námslánum, til að afla sér aukinnar menntunar. Á 17 árum hefur bandalagið úthlutað 109 styrkjum, alls 12,2 milljónum. Nánari upplýsingar má sækja á net- fangið bandalag@simnet.is Styrkja konur í nám „Starfsemi Sorpu í Álfsnesi hefur nánast frá upphafi valdið íbúum Mos- fellsbæjar ýmsum óþægindum vegna lyktarmengunar frá urðunar- staðnum. Þrátt fyrir að Sorpa hafi unnið að úrbótum við frágang sorps til urðunar þá hafa íbúar í Leirvogstungu og víðar í bænum kvartað og farið fram á að gerðar verði frekari úrbætur,“ segir í frétt frá Samfylkingunni í Mosfellsbæ, sem boðar til íbúafundar í kvöld um framtíðarskipan urðunar- mála á höfuðborgarsvæðinu. Bent er á að starfsleyfi Sorpu í Álfsnesi er að renna út. Er fulltrúum allra flokka sem starfa í Mosfellsbæ boðið að taka þátt í fundinum, sem fer fram í Listasal Mosfellsbæjar og hefst kl. 20. Boða íbúafund um starfsemi Sorpu STUTT ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Kristján Kristjánsson hefur sagt upp starfi sínu sem ritstjóri Viku- dags á Akureyri og hættir síðsum- ars. Kristján varð ritstjóri í árs- byrjun 2006 eftir að KEA og Vikudagur eignuðust blaðið.    Hjónin Kristján og Borghildur Kjartansdóttir ætla að láta gamlan draum rætast og gerast bændur á æskuheimili hennar í Aðaldal. Að vísu aðeins tímabundið, í eitt ár (á meðan bróðir Borghildar og fjöl- skylda hans dvelur erlendis), og óljóst er með framhaldið.    Kristján hefur starfað við blaða- mennsku liðlega tvo og hálfan ára- tug; var fyrst 10 ár og þrjá daga á Degi sáluga og síðan 10 ár og þrjá mánuði á Morgunblaðinu, áður en hann tók við Vikudegi. Hann sagði upp frá og með 1. maí og stjórn blaðsins er í þann mund að hefja leit að nýjum ritstjóra.    Von er á hljómdiski í sumar með ýmsum Akureyrarlögum og ljóðum, í tilefni 150 ára afmælis bæjarins. Það eru Óskar Pétursson söngvari og Bjarni Hafþór Helgason, laga- og textahöfundur með meiru, sem standa fyrir verkefninu. Á diskinum, sem á að heita Ég sé Akureyri verð- ur m.a. samnefnt lag Bjarna Haf- þórs í flutningi Marínar Óskar Þór- ólfsdóttur sem nýlega var frumflutt í útvarpi.    Nefna má að á diskinum verða m.a. tvö ný lög Gunnars Þórðar- sonar við lög Kristjáns frá Djúpalæk en Gunnar útsetur einmitt alla tón- list á diskinum. Þá verður þar að finna lagið Emma (M.A.) sem Bjarni Hafþór samdi og gaf gamla skól- anum sínum fyrir hönd árgangsins og var flutt fyrst á MA-hátíð fyrir nokkrum árum. Þá verður áðurnefnt lag hans, Ég sé Akureyri, einnig á diskinum nýja í flutningi Óskars Péturssonar og Jóhanns Vilhjálms- sonar (Vilhjálmssonar).    Akureyri birtist heimsbyggðinni á tveimur frímerkjum sem gefin verða út í dag, annað í tilefni af 100 ára afmæli Lystigarðsins á Akur- eyri, hitt vegna 150 ára afmælis kaupstaðarins.    Akureyringum og nærsveit- ungum er boðið til móttöku á póst- húsinu að Strandgötu 3 í miðbænum vegna útgáfunnar, í dag frá 9 til 18. Frímerkin verða til sýnis og léttar veitingar í boði.    Hátíðin List án landamæra á Norðurlandi hófst í gær en verður formlega sett í menningarhúsinu Hofi í dag kl. 14. Hátíðin er einstök í sinni röð þar sem fatlaðir og ófatl- aðir mætast í listinni, eins og það er orðað í tilkynningu. „Hátíðin á Norðurlandi er búin að festa sig í sessi og á hverju ári færir hún áhugasömum viðburði sem spanna allt litróf listanna,“ segir þar.    Við setninguna í dag spila og syngja nemendur í tónlistarhópi Fjölmenntar, undir stjórn Láru Sól- eyjar Jóhannsdóttur, og fjölmennur leikhópur Fjölmenntar sýnir leik- ritið um Mjallhvíti og dvergana sjö í leikstjórn Sögu Jónsdóttur.    Síðast en ekki síst verður við setninguna í dag frumflutt nýtt lag eftir tónskáldið Jón Hlöðver Áskels- son og er lagið tileinkað hátíðinni. Lagið er flutt af Jóni Hlöðveri sjálf- um, sem sest nú aftur við píanóið eft- ir mikla fjarveru vegna veikinda, Barnakór Giljaskóla undir stjórn Ástu Magnúsdóttur syngur og fleiri hljóðfæraleikarar taka þátt í flutn- ingnum. Nemendur Fjölmenntar og Hæfingastöðvarinnar við Skógar- lund opna sýningu í Hofi á munum sem þau hafa unnið í vetur. Að lok- inni dagskrá verður boðið upp á létt- ar veitingar. Opnunarhátíðin hefst sem fyrr segir klukkan 14 og eru all- ir hjartanlega velkomnir, að því er segir í tilkynningu.    Hinn árlegi eyfirski safnadagur er á laugardaginn og þá verður frítt inn á söfn í firðinum frá kl. 13 til 17. Sums staðar verða veitingar í boði og boðið upp á skemmtun og fróð- leik.    Tvennir Evróvisjóntónleikar verða í Hofi á laugardaginn. Fljót- lega seldist upp á tónleika kl. 18 og því var öðrum bætt við kl. 21. Frið- rik Ómar og Regína Ósk koma fram ásamt fulltrúum Íslands í ár, Gretu Salóme og Jónsa, félögum úr Sinfón- íuhljómsveit Norðurlands og nem- endum Tónlistarskólans á Akureyri.    Vortónleikar Karlakórs Akur- eyrar, Geysis, verða í Glerárkirkju á laugardaginn og hefjast kl. 15. Þeir eru jafnan hápunktur starfsársins. Kristján hættir með Vikudag Morgunblaðið/Skapti Frumflutningur Jón Hlöðvar ásamt Víkingi Heiðari Ólafssyni áður en sá síðarnefndi frumflutti sex píanólög eftir tónskáldið í Hofi fyrr á árinu. NÝ www.avon.is Glæsileg heimasíða og vefverslun Frábær opnunartilboð Skráðu þig á póstlista www.avon.is Þú gætir dottið í lukkupottinn og unnið Avon Gjafabréf að verðmæti 10.000 kr. Nýjir sölufulltrúar velkomnir! Þær sem gerast sölufulltrúar fyrir 11. maí fá glæsilegar gjafir. Sjá nánar á www.avon.is Dalvegi 16B, 201 Kópavogi, sími 577 2150 Baðolían frá AVON er komin aftur. Baðolían sem beðið hefur verið eftir!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.