Morgunblaðið - 03.05.2012, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 03.05.2012, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012 Sigmundur Sigurgeirsson Selfossi Hveragerðisbær hefur um skeið notað sérstakt rafgreint og salt- blandað vatn til þrifa í helstu stofn- unum bæjarins með góðum ár- angri. Saltvatnið er rafgreint í búnaði sem ber nafnið Toucan, frá fyr- irtækinu Centreco í Bretlandi. Með þeirri tækni sem þróuð hefur verið af fyrirtækinu er hægt að nota hefðbundið salt blandað við vatn til þrifa og sótthreinsunar. Hveragerðisbær fyrsta sveit- arfélagið sem notar efnið Við rafgreininguna verður bland- an að einhverskonar klórvatni. Í Hveragerði hefur efnið verið notað til þrifa í leikskólanum, grunnskól- anum, sundlauginni og víðar með góðum árangri, auk þess sem kostnaðurinn við þrif hefur minnk- að og efnið er fullkomlega nátt- úrulegt og mengar ekki. Á dögunum veitti Geoff Bowers, framkvæmdastjóri Centerco, Hveragerðisbæ viðurkenningu fyr- ir að vera fyrsta sveitarfélagið til að nota efnið í þrifum í öllum sín- um stofnunum. Binda miklar vonir við tæknina Bowers sagði við þetta tækifæri, að fyrirtækið byndi miklar vonir við tæknina, sem fæli í sér að hægt yrði að draga úr notkun mengandi efna við almenn þrif og sótthreins- un, ásamt því að spara fjármuni. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjar- stjóri Hveragerðis, sagði það skipta miklu fyrir bæjarfélagið að geta í hvívetna nýtt sér aðferðir og tækni við að draga úr mengun og notkun Toucon-tækninnar félli vel að stefnu Hveragerðisbæjar sem umhverfisvæns samfélags. Innan tíðar verður hægt að kaupa hér á landi rafgreiningar- búnað þann, sem ætlaður er til heimilisnota. Eina sem þarf er vatnið úr krananum og lítið magn af borðsalti til að mynda blönduna sem á að geta komið í stað meng- andi hreinsivökva. Rafgreint vatnið spar- ar og mengar ekki Morgunblaðið/Sigmundur Viðurkenning Geoff Bowers, forstjóri Centrego, afhenti Aldísi Hafsteins- dóttur, bæjarstjóra, viðurkenningarskjöld, vegna notkunar nýja tækisins.  Nýr búnaður notaður við þrif með góðum árangri Ný tækni Úðabrúsi á hleðslutæki, sem ætlaður er til notkunar á heim- ilum. Þessi búnaður kemur á mark- að hér á landi á næstunni. Morgunblaðinu hefur borist eftir- farandi athugasemd frá umhverfis- ráðuneytinu: Í frétt Morgunblaðsins frá því í (gær)morgun segir að umhverfis- ráðherra hafi farið með rangt mál í svari við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar á Alþingi fyrr í vik- unni. Ráðherra sagði í svari sínu að ekki væri hægt að segja til um hversu margir svartfuglar væru veiddir af hlunnindakortshöfum, en þingmaðurinn vísar til þess að Um- hverfisstofnun hafi látið honum í té sundurliðaðar veiðitölur frá því í fyrra á fimm fuglategundum.Töl- urnar sem þingmaðurinn fékk frá Umhverfisstofnun sýna sundur- liðun á þeirri hlunnindaveiði sem er skráð sem slík á veiðiskýrslum. Þeim möguleika var bætt við skila- vef veiðiskýrslna í fyrsta sinn fyrir skýrslur ársins 2011 að veiðimenn gætu skráð hversu stór hluti heild- arveiðinnar væri hlunnindaveiði. Sérfræðingar Umhverfisstofnunar og umhverfisráðuneytisins telja slíkar tölur geta gefið ákveðnar vís- bendingar, en þessari fyrstu skrán- ingu þurfi að taka með nokkrum fyrirvara. Aukna reynslu þurfi á skráningu hlunnindaveiða á veiði- skýrslum áður en telja megi töl- urnar áreiðanlegar og því sé ekki hægt að segja með öryggi til um heildarveiði handhafa hlunn- indakorta á grundvelli þessarar einu mælingar. Þá hafa ekki allar skýrslur fyrir árið í fyrra skilað sér að fullu enn, svo ekki er um endan- legar tölur að ræða. Af framan- greindu má sjá, líkt og fram kom í svari umhverfisráðherra, að ekki er hægt að segja með vissu til um hversu margir svartfuglar eru veiddir af hlunnindakortshöfum. Taka þarf skrán- ingu með fyrirvara Framkvæmdir við endurnýjun og fegrun Klapparstígs ofan Lauga- vegar, sem hafa staðið yfir frá apr- ílbyrjun, ganga vel þrátt fyrir að fleyga hafi þurft meira af klöpp undir götunni fyrir lögnum en áætl- að var. Í samræmi við áfangaskiptingu verksins hefur til þessa aðeins verið unnið á kaflanum frá Laugavegi upp að Grettisgötu. Nú í vikunni hefst nýr áfangi þegar eldra yfir- borð verður hreinsað af gatnamót- um Grettisgötu og Klapparstígs. Við það breytast hjáleiðir vegna takmarkana á umferð um Grettis- götu og þar sem gatnamótin verða hvort sem er lokuð var ákveðið að heimila verktaka að hefja einnig vinnu í þessari viku við þriðja áfanga, sem er götukaflinn frá Grettisgötu að Njálsgötu. Það er tveimur vikum fyrr en áætlað var og skapar sú breyting á tímaáætlun svigrúm í slagnum við harða klöpp- ina, segir í frétt frá borginni. Klapparstígurinn stendur undir nafni Í blaðinu í gær bls. 26 var grein eftir Þorvald Jó- hannsson um Lá- varða og Riddara GSF. Ekki tókst betur til en svo að birt var mynd af Ósk- ari Friðrikssyni með greininni í stað höfundar. Við birtum hér mynd af Þorvaldi og biðjum hann, Óskar og lesendur blaðsins velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Þorvaldur Jóhannsson Röng mynd ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939 Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00 Opið um helgar frá 18:00 - 23:00 frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar ÞrÍr frakkar Café & Restaurant Nýr soðinn rauðmagi í hádeginu Eigendurað34,38%hlut íHSVeitumhf.hafafaliðFyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á eignarhlut sínum í félaginu. Þessi hlutur er í dag í eigu Reykjanesbæjar, Orkuveitu Reykjavíkur, Grindavíkurbæjar, Sand- gerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitarfélagsins Voga. HS Veitur hf. eru dreifiveita rafmagns samkvæmt Raforkulögum nr. 65/2003 og annast að auki dreifingu heits vatns og ferskvatns á starfssvæðum sínum.Höfuðstöðvar félagsins eru í Reykjanesbæ en jafnframt eru starfsstöðvar í Árborg, Hafnarfirði og í Vestmanna- eyjum. Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði um að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007umverðbréfaviðskipti,aukaðilasembúayfirfullnægjandi þekkingu og reynslu og geta sýnt framá eiginfjárstöðu umfram300 milljónir kr. Seljendur áskilja sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, meðal annars í þeim tilvikum þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna. Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við Fyrir- tækjaráðgjöf Íslandsbanka í síma 440 4000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið hsveitur2012@islandsbanki.is. Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðaryfirlýsingu ásamt því að leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Í kjölfarið fá fjárfestar afhentar frekari upplýsingar um tímasetningar og skilmála söluferlisins auk upplýsinga um fjárhag og starfsemi félagsins. 34,38% hlutur í HS Veitum hf. í söluferli - Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka falið að annast söluferli - Söluferlið opið öllum fjárfestum sem uppfylla tilgreind skilyrði Fyrstu fjóra mánuði þessa árs fóru að meðaltali 433 bílar á sólar- hring um Héðinsfjarðargöng, sam- kvæmt tölum, sem Friðleifur I. Brynjarsson hjá Vegagerðinni hef- ur tekið saman fyrir Siglfirðing.is. Þetta er svipuð umferð og í fyrra, en þá fóru 436 bílar um göngin að meðaltali. Munurinn er aðeins 0,7%. Mest var umferðin 30. apríl í ár, eða 1.262 bílar. Á sama tímabili á síðasta ári var metið 1.029 bílar. Páskaumferðin var minni í ár en í fyrra, sem gæti skýrst af því að páskarnir voru frekar snemma í ár. Á móti kemur að um síðustu helgi var mjög mikil umferð nyrst á Tröllaskaga vegna fjölmenns blakmóts. Svipuð umferð um Héðinsfjörð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.