Morgunblaðið - 03.05.2012, Síða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012
Talíbanar sem gengið hafa til liðs við stjórnar-
hermenn í borginni Herat í vesturhluta Afgan-
istan sýna vopnabúnað sinn. Mjög hefur dregið
úr árásum talíbana víða í landinu síðustu mánuði
en þeir hafa þó gert öflugar sjálfsmorðsárásir í
Kabúl. Talsmenn talíbana sögðu í yfirlýsingu í
gær að vorsókn þeirra myndi hefjast í landinu
öllu á morgun, fimmtudag. Skotmörkin yrðu „út-
lendu innrásarmennirnir, ráðgjafar þeirra,
verktakar þeirra, allir sem veita þeim aðstoð á
sviði hernaðar og upplýsinga“.
Barack Obama forseti Bandaríkjanna og Ha-
mid Karzai, forseti Afganistan, undirrituðu á
þriðjudag samning um áframhaldandi aðstoð
Bandaríkjamanna eftir að erlenda herliðið
hverfur frá landinu fyrir árslok 2014. Tekið hef-
ur nær tvö ár að klára samninginn enda margir
ásteytingarsteinar í samskiptunum. Í honum er
ákvæði um að Afganar heiti því að draga úr
gríðarlegri spillingu sem grefur undan barátt-
unni gegn talíbönum. Heimild er til að banda-
rískir hermenn aðstoði við þjálfun eftir 2014.
Ekki er kveðið á um að Bandaríkjamenn hætti
þegar að gera árásir með mannlausum sprengju-
vélum sem oft hafa valdið mannfalli í röðum
óbreyttra borgara. Karzai hefur áður krafist
þess að slíkum árásum verði hætt.
AFP
Talíbanar segja vorsóknina að hefjast
Skotmörkin verða útlendingar og þeir sem aðstoða þá við hernaðinn í Afganistan
Allt að 20 manns
féllu í mótmæl-
um í Kaíró í gær.
Hópur manna
gerði árás á mót-
mælendur úr
röðum stuðn-
ingsmanna harð-
línuklerks ísl-
amista, Hazem
Abu Ismail, sem
ekki fær að bjóða sig fram í emb-
ætti forseta í fyrri umferð forseta-
kosninganna 23.-24. maí.
Ismail er salafisti, flokkur þeirra
hreppti um fjórðung sæta í fyrstu
þingkosningum eftir fall Hosni
Mubaraks. Herforingjastjórnin sem
þá tók við völdum sagði í gær að
hún myndi láta strax af völdum ef
forseti næði kjöri í fyrri umferð.
kjon@mbl.is
Mannfall í mót-
mælum gegn stjórn
herforingjanna
Hazem Abu Ismail
EGYPTALAND
Risaeðlur urðu að sætta sig við of-
sóknir af hendi smávaxinna óvina.
Flær, sem reyndar voru um 10 sinn-
um stærri en flærnar sem plaga
hunda samtímans, réðust á mjúkan
kvið dýranna og stungu með geysi-
lega öflugum sograna sínum.
„Þetta hefur verið eins og að fá
stungið í sig lyfjasprautu,“ segir
vísindamaðurinn George Poinars
við ríkisháskólann í Oregon en
hann sérhæfir sig í fornum og út-
dauðum lífverum.
Risaflærnar gátu auðveldlega
náð með klóm sínum góðu taki á
húð risaeðlunnar, sem var þakin
litlum flögum. Kínverskir vísinda-
menn fundu nýlega steingerðar
leifar af flónum. kjon@mbl.is
Risaflær ofsóttu
risaeðlurnar
BANDARÍKIN
Leiðtogi stjórn-
arandstöðunnar í
Búrma, Aung
San Suu Kyi, tók
í gær sæti á
þingi. Suu Kyi
hefur að mestu
leyti verið í
stofufangelsi
undanfarin 22 ár.
Þjóðar-
bandalag hennar um lýðræði, NLD,
vann stórsigur í aukakosningum
um nokkra tugi sæta 1. apríl. Her-
foringjastjórn landsins ógilti þing-
kosningar sem bandalag Suu Kyi
vann með um 90% atkvæða árið
1988. Hún hlaut friðarverðlaun
Nóbels árið 1990.
kjon@mbl.is
Suu Kyi tekur
sæti sitt á þingi
Aung San Suu Kyi
BÚRMA
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Kínverjar hvöttu í gær Bandaríkjamenn til að
hætta að „blekkja almenningsálitið“ með yfir-
lýsingum um mál Chens Guangchengs, blinds
andófsmanns sem yfirgaf bandaríska sendiráð-
ið í Peking í gær eftir nær vikudvöl. Hann er
nú á sjúkrahúsi í Peking vegna meiðsla sem
hann hlaut á flóttanum en Chen leitaði verndar
hjá Bandaríkjamönnum eftir að hafa flúið úr
stofufangelsi í Shandong-héraði. Chen vill að
sögn vina sinna ekki yfirgefa Kína.
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, ræddi í síma við Chen í gær og segir
að stjórnvöld í Washington séu sem fyrr stað-
ráðin í að gæta hagsmuna hans. Segja banda-
rískir diplómatar m.a. að samið hafi verið um
að Chen, sem er fertugur, fengi frelsi og leyfi
til að stunda háskólanám en hann er sjálflærð-
ur lögfræðingur.
Einnig hafi því verið heitið að láta eiginkonu
Chens og börn í friði en andófsmaðurinn hefur
sakað lögreglumenn um að hafa barið þau og
angrað með ýmsum hætti. Náinn vinur Chens
sagði í gær að hann hefði sætt sig við samning-
inn milli Kínverja og Bandaríkjamanna vegna
þess að embættismenn hefðu hótað að láta ella
misþyrma fjölskyldu hans og vinum. Ljóst
þykir að standi Kínastjórn ekki við samninginn
muni það verða vopn í höndum andstæðinga
Baracks Obama Bandaríkjaforseta í barátt-
unni vegna forsetakosninganna í nóvember.
Gangist við ábyrgð
Talsmaður kínverska utanríkisráðuneytis-
ins, Liu Weimin, sagði að Bandaríkjamenn
yrðu að biðjast afsökunar á sínum þætti í mál-
inu, gangast við ábyrgð sinni og „fleygja henni
ekki yfir á aðra“. Chen flúði úr stofufangelsi í
Kína fyrir liðlega viku. Hann varð fyrst þekkt-
ur í júní 2005 þegar hann sakaði embættis-
menn í Shandong um að hafa neytt konur með
ofbeldi til að fara í ófrjósemisaðgerð eða í fóst-
ureyðingu seint á meðgöngu.
Bandaríkin biðjist afsökunar
Kínastjórn sögð hafa heitið því að láta andófsmanninn Chen og fjölskyldu hans í friði
Vinur hans segir að Chen hafi yfirgefið sendiráðið vegna ofbeldishótana gegn konu og börnum
AFP
Frjáls? Chen Guangcheng ekið í hjólastól á
sjúkrahúsinu í Peking í gær.
LAUGAVEGI 32 · SJADU.IS
SÍMI 561 0075
Full búð af nýjum og flottum gleraugum
KOMDU OG SJÁÐU