Morgunblaðið - 03.05.2012, Qupperneq 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2012
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
07
53
HVERT SEM
TILEFNIÐ ER
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sýndu þeim leyndarmálum sem þér
hefur verið trúað fyrir fyllstu virðingu og
geymdu þau hjá þér. Ekki skuldbinda þig til
neins sem þú ert eitthvað efins um. Þú getur
allt sem þú vilt.
20. apríl - 20. maí
Naut Stundum kunna breytingar að vera
nauðsynlegar breytinganna vegna. Skrifaðu
hjá þér minnispunkta fyrir seinni tíma. Ein-
hver sýnir þér áhuga, en þú veist ekki um til-
finningar þínar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ókláruð verk kalla á þig að hefjast
handa. Þú ættir að taka að þér að skemmta í
veislum, þú hefur alveg hæfileikana í það.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Í dag er dagurinn til að hefja lífsstíls-
breytinguna. Þú veist nákvæmlega hvað þú
vilt og líka hvernig þú átt að fá því fram-
gengt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert tilfinninganæmari en ella. Ástin
sigrar allt með smá slatta af þolinmæði í far-
teskinu. Þú ættir að fara oftar út að ganga.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Að vera innan um fólk sem trúir á þig
og hvetur hefur áhrif á viðhorf þitt og þar
með hæfileika og framleiðni. Notaðu krafta
þína til þess að laða nýjan vin að vinahópn-
um.
23. sept. - 22. okt.
Vog Samræður við aðra eru uppörvandi og
hvetjandi í dag. Tilfinningar þínar eru sterkari
en vanalega, ekki síst gagnvart þínum nán-
ustu. Mundu eftir morgunmatnum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þig hefur langað að kaupa viss-
an hlut í langan tíma. Leyfðu öðrum að hjálpa
til þegar þú þarft hjálp, það er ekki veik-
leikamerki, þvert á móti.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ættingi þinn réttir þér hjálp-
arhönd í minniháttar vandamáli. Reyndu að
útiloka stress þó ekki sé nema í fimmtán
mínútur. Hvernig væri að taka hjólið fram?
22. des. - 19. janúar
Steingeit Hættu að vorkenna þér og drífðu
þig til starfa. Láttu vonbrigði ekki ná tökum á
þér þó hlutirnir gangi ekki alveg upp.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert árásargjarnari en áður. Ein-
hver ágreiningur gæti komið upp varðandi
heimilisstörfin, virkjaðu fjölskylduna betur og
þá er það vandamál úr sögunni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Hugur þinn er einstaklega skapandi í
dag. Sýndu hugmyndaauðgi og útsjónarsemi
þegar þú leitar aðstoðar annarra. Hjólaðu í
vinnuna ef þú mögulega getur. Þú saknar
einhvers en veist ekki hvers.
Sigurður Sigurðarson orti vísur í„gáttlæti um roskin hjón“, sem
hann heimsótti nýlega: „Ég færði
þeim mynd, sem ég hafði tekið af
þeim í hlýjum armlögum. Þau unn-
ast heitt eftir meira en hálft stórt
hundrað ára í sambúð:
Höndin lögð að hálsi og vanga
hjartans kenndum miðlað fær.
Snerting lífgar alla anga
allt frá kolli og niður í tær.
Hún með blíðu honum strýkur
hjartað svo að slái rótt.
Unaðurinn engu líkur
endist fram á rauða nótt.
Gæfu njóti á láði og legi
ljúfu hjón, sem hér fæ kvatt.
Ykkar lífs að endadegi
ástarbálið logi glatt.“
Á dögunum birtist vísa Davíðs
Hjálmars Haraldssonar um Hall-
mund Kristinsson, sem tók langan
tíma í að mála grindverkið heima
hjá sér. Hallmundur lætur ekki
eiga inni hjá sér:
Rannsóknirnar rengt ég gat
sem reyndust lítið unnar;
hérinn lagði hæpið mat
á hraða skjaldbökunnar.
Eiríkur Páll Sveinsson sendi vísu
í Vísnahornið, sem varð til eftir
lestur gærdagsins:
Ekki varð mér alveg rótt,
er ég heyrði um slysið.
Kristján, Jón og Friðrik fljótt,
finna ekki risið.
Hjálmar Freysteinsson yrkir að
gefnu tilefni:
Árborgar skilst mér íbúar
um allar götur stikli.
Hátíðlegur er haldinn þar
Hundaskítsdagurinn mikli.
Flestir þekkja jú til fiskidagsins
mikla á Dalvík.
Og Davíð Hjálmar klykkir út
með: „Íbúar Árborgar eru engir
meðalmenn. Ekki er nóg með að
þeir haldi hátíðlegan Hundaskíts-
dag, nú segja þeir að á Selfossi
verði í sumar boðin til sölu fjósalykt
í tunnu. Maður bíður eftir því að
þeir fari að bera sólskinið í bæinn í
húfum sínum.
Sumarlangt í sólar roða
Selfyssingar brosa hýrt,
fjósalykt í tunnur troða
og túrhestunum selja dýrt.“
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af gáttlæti, unaði og
hundaskítsdeginum
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
F
er
d
in
a
n
d
ÉG HELD AÐ ÉG HAFI
ORÐIÐ LÍSU TIL SKAMMAR
AF HVERJU
MAN ÉG
ALDREI...
AÐ NOTA
HNÍFAPÖRIN!
OG SLEPPT
ÞVÍ
AÐ PANTA
BÚÐING MEÐ
SPAGHETTÍ OG
BANANABRAGÐI
ÖMURLEGT
VEÐUR!
ERTU AÐ KVARTA? ÞÚ GERIR
EKKERT ANNAÐ EN AÐ
KVARTA ALLAN DAGINN!
ÉG HEF FULLA ÁSTÆÐU
TIL AÐ KVARTA!
ÞAÐ ER ÞAÐ EINA SEM
ÉG ER VIRKILEGA GÓÐ Í!
„VANTAR ÞIG
SKOTFÆRI Í
VALSLÖNGVUNA ÞÍNA?
GUNNAR OG JÓN,
FRAMLEIÐA SKOTFÆRI AF
ÖLLUM STÆRÐUM OG
GERÐUM OG...
...VIÐ
SENDUM HEIM”
ÞANNIG AÐ
RUNÓLFUR
SPRENGDI
„HELLO KITTY”
BLÖÐRUNA, Í
SKRÚÐGÖNGUNNI?
JÁ, HANN
GAF HENNI
NÆLU TIL AÐ
VERA MEÐ Á
STEFNU-
MÓTINU
ÞEIRRA
ER
ALLT Í
LAGI MEÐ
HANN?
JÁ, EN
ÞEIR FÓRU
SAMT MEÐ
HANN Á
SPÍTALANN
TIL
ÖRYGGIS
HVERS Á ÉG
AÐ GJALDA?!
Lionel Messi hafði það af að slámarkametið, sem Gerd Müller
setti fyrir 39 árum. Messi skoraði
þrjú mörk í 4-1 sigri Barcelona á
Malaga í gærkvöldi. Þar með hefur
hann skorað 68 mörk fyrir liðið á
þessu keppnistímabili og getur enn
bætt við. Müller skoraði 67 mörk fyr-
ir Bayern München tímabilið 1972-
73. Þótt Messi hafi verið frábær eru
stærstu titlarnir þó utan seilingar.
Liðið sér á eftir Spánartitlinum í
hendur Real Madrid og verður fjarri
góðu gamni þegar leikið verður til
úrslita í meistarakeppni Evrópu í
München síðar í mánuðinum.
x x x
Þar mun Bayern mæta Chelsea,sem sló hitt spænska stórveldið,
Madrid, út í meistarakeppninni.
Bæjarar hafa verið frekar lánlausir í
búndeslígunni í vetur – ef kalla má
annað sæti í deildinni lánleysi. Þeir
hafa í það minnsta ekki haft roð við
Dortmund þegar mest hefur legið
við. Dortmund komst hins vegar ekk-
ert áleiðis í meistaradeildinni.
x x x
Bayern hefur verið þekkt fyrir aðdraga fram veskið í hvert skipti
sem örlar á hæfileikum hjá þýskum
leikmanni, en hefur minna gert af því
að leita á alþjóðlegan stjörnumarkað.
Frakkinn Franc Ribery og Hollend-
ingurinn Arjen Robben eru þó und-
antekingar frá því. Hann fer í fýlu
þegar hann er ekki með boltann, vill
helst halda honum þegar hann fær
hann og er kallaður „Aleinikow“ af
félögum sínum fyrir vikið. Í leik gegn
Dortmund, sem í raun réð úrslitum
um þýska meistaratitilinn, var hann
að veiflast inni í teig eftir hornspyrnu
og gerði að verkum að leikmaður
Dortmund var réttstæður þegar liðið
komst yfir. Því næst tók hann víti,
sem hann skaut beint í fang mark-
varðar Dortmund. Að síðustu skaut
hann himinhátt yfir mark andstæð-
inganna af þriggja metra færi. Sumir
segja að hann hafi þarna kostað Bay-
ern meistaratitilinn. Der Spiegel
kallar Robben stórslys fyrir Bæjara
og áhangendur þeirra. Þegar honum
takist best upp sé hann hins vegar
óviðjafnanlegur og því sé hann besta
stórslys, sem fyrir Bæjara gat kom-
ið. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Og ég veit að boðorð
hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það
tala ég því eins og faðirinn hefur sagt
mér. (Jh. 12, 50.)