Morgunblaðið - 11.06.2012, Blaðsíða 23
á sæti í miðstjórn Framsóknar-
flokksins, sat í blaðstjórn Tímans og
var formaður hennar 1987-91, sat í
stjórn Landssambands samvinnu-
starfsmanna 1980-83, var forseti
neðri deildar Alþingis 1987-88, sat í
þingmannasambandi Norður-
Atlantshafsríkja 1985-87 og 1991-
2001, sat í Norðurlandaráði 1990-91
og 2006-2007, sat þing SÞ 1989, var
formaður fjárlaganefndar Alþingis
1995-2001, sat í utanríkisnefnd og
forætisnefnd 2006-2007, var stjórn-
arformaður Kaupfélags Héraðsbúa
1987-95, formaður Leikfélags
Fljótsdalshéraðs í tvö ár, varafor-
maður Ferðamálaráðs Íslands 1998-
2001, sat í Markaðsráði ferðaþjón-
ustunnar 1999-2001, var stjórnar-
formaður Upplýsingamiðlunar
ferðamála í Reykjavík 1998-2001 og
sat í stjórn Náttúrustofu Austur-
lands 1994-2001.
Jón ritstýrði ársriti Kaupfélags
Héraðsbúa, Samherja, 1969-85 og
hefur unnið að samantekt á sögu fé-
lagsins.
Fer í sund á hverjum morgni
Það verður ekki sagt að Jón hafi
setið auðum höndum eftir að hann
hætti í pólitíkinni: „Ég fer í sund á
hverjum morgni, held góðu sam-
bandi við vini og félaga sem ég
kynntist í pólitíkinni – alveg þver-
pólitískt – sæki námskeið, geng
mikið og ferðast bæði innan lands
og utan.
Þá les ég töluvert og get legið yfir
ljóðabókum en meðal minna uppá-
hald skálda eru Steinn Steinarr,
Hannes Pétursson, Þorsteinn frá
Hamri og Guðmundur Böðvarsson,
auk þess sem ég nýt stórkostlegra
þýðinga Magnúsar Ásgeirssonar og
Guðbergs Bergssonar.
Ég hlusta líka á djass, einkum
gamla „swingið“, og fer stundum á
djasstónleika og við hjónin förum
töluvert á málverkasýningar.
Síðast en ekki síst er það ómet-
anlegt að hafa rúman tíma fyrir þá
sem standa manni næst, eiginkonu,
börn, tengdabörn og barnabörn.“
Fjölskylda
Jón kvæntist 25.12. 1964 Mar-
gréti Einarsdóttur, f. 19.11. 1946,
fyrrv. þjónustufulltrúa í Lands-
banka Íslands. Hún er dóttir Einars
Ólafssonar, rafvirkjameistara á Eg-
ilsstöðum, og Ásgerðar Guðjóns-
dóttur húsmóður sem bæði eru lát-
in.
Börn Jóns og Margrétar eru Við-
ar Jónsson, f. 30.11. 1964, verkfræð-
ingur, en kona hans er Védís Birg-
isdóttir viðskiptafræðingur og eiga
þau tvö börn; Ásgerður Edda Lang-
worth Jónsdóttir, f. 10.1. 1968, BA í
útgáfu- og fjölmiðlafræði í Vancou-
ver í Kanada, gift Kent William
Russsel Langworth og eiga þau tvo
syni; Einar Kristján Jónsson, f.
23.11. 1973, lögfræðingur á fyrir-
tækjasviði Landsbankans, kvæntur
Áslaugu Björnsdóttur kennara og
eiga þau tvö börn auk þess sem Ás-
laug á son frá fyrri sambúð.
Systkini Jóns: Margrét Kristjáns-
dóttir, f. 7.8. 1933, búsett á Sauð-
árkróki; Þóra Kristjánsdóttir, f.
11.9. 1936, búsett á Sauðárkróki;
Svava Kristjánsdóttir, f. 9.6. 1947,
búsett á Hvanneyri.
Foreldrar Jóns: Kristján Jóns-
son, f. 27.12. 1905, d. 8.9. 1994, bóndi
að Óslandi, og Ingibjörg Jónsdóttir,
f. 1.4. 1907, d. 20.10. 1955, húsfreyja.
Úr frændgarði Jóns Kristjánssonar
Erlendur Jónsson
b. í Gröf
Ingibjörg Jónsdóttir
húsfr.
Rögnvaldur Þorleifsson
b. í Brekkukoti
Guðrún Jónsdóttir
frá Hreppendaá
Friðrika Kristjánsdóttir
húsfr.
Kristján Gíslason
b. í Krossanesi í Eyjaf.
Margrét Hálfdánarddóttir
húsfr. í Krossanesi
Jón
Kristjánsson
Kristján Jónsson
b. á Óslandi í Skagaf.
Ingibjörg Jónsdóttir
húsfr. á Óslandi
Anna Rögnvaldsd.
húsfr. í Marbæli
Jón Erlendsson
b. í Marbæli
Níelsína Kristjánsdóttir
húsfr. í Stóragerði
Jón Sigurðsson
smiður í Stóragerði
Sigurður Árnason
b. í Grímsgerði í Fnjóskad, af Mýrarætt
Málverkaunnandinn Jón virðir fyr-
ir sér gjöf frá náttúruunnendum.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2012
90 ára
Erna Árnadóttir
85 ára
Hörður Sigurjónsson
Jóhanna Sigurjónsdóttir
Steinþór I. Nygaard
80 ára
Jónína S. Guðjónsdóttir
Jón Sigurðsson
Njáll Þórðarson
75 ára
Anna Ingvarsdóttir
Gunnar Friðjónsson
Hafsteinn Valgarðsson
Ingibjörg Óskarsdóttir
Jónas Runólfsson
Lillian Kristjánsdóttir
Málfríður Jónsdóttir
Ragnhildur Aðalsteins-
dóttir
Þorvaldur Kristjánsson
70 ára
Eiríkur Eiðsson
Erla M. Frederiksen
Ingveldur Guðbjörnsdóttir
Jón Kristjánsson
Kristinn Antonsson
Lára Jónasdóttir
Magnús Haraldsson
60 ára
Auðbjörg Þorsteinsdóttir
Eyþór Vilhjálmsson
Guðlaugur T. Óskarsson
Guðmundur Ólafur
Ingvarsson
Helga Gísladóttir
Jóhanna Linnet
Kristín Brynjólfsdóttir
Páll Stefánsson
Tamara I. Suturina
Þuríður Yngvadóttir
50 ára
Aðalbjörg D. Guðjónsdóttir
Auðunn Hermannsson
Ágústa Kristín Bragadóttir
Ásgeir Þór Tómasson
Guðmundur Guðlaugsson
Gunnar Stefán Jónasson
Jóhanna H. Hreinsdóttir
Margrét Gunnlaugsdóttir
Oddný Vala Kjartansdóttir
Sigurlaug Grétarsdóttir
Örn Pálmason
40 ára
Helgi Sigurðsson
Kjartan Ari Pétursson
Lilja Margrét Óladóttir
Óskar Sigurðsson
Renata Agnes Kubielas
Theodór Elvar Haraldsson
Tommy Fredsgaard Nielsen
Þórdís Rúnars Þórsdóttir
30 ára
Áslaug Pálsdóttir
Grétar Berg Þorláksson
Guðfinnur Ólafur Ein-
arsson
Guðmundur S. Gunnarsson
Jóhann Fannar Ólafsson
Jóhann Gunnar Jónsson
Jón Berg Jóhannesson
Lísa Björg Lárusdóttir
Ragna Karen Sigurð-
ardóttir
Rúnar Bogi Gíslason
Til hamingju með daginn
40 ára Elfa Dögg er fædd
og búsett á Selfossi. Hún
er hótelstýra Frosts og
funa í Hveragerði sem
hún nýverið festi kaup á.
Hún situr í bæjarstjórn
Selfoss og gegnir form-
ensku SASS.
Börn Birkir, f. 1987, Arn-
ór, f. 1997, Sandra, f.
2000, Einar Dagur, f.
2006, Jónsbörn.
Maki Jón Þórir Frantzson,
f. 1961, forstjóri Íslenska
gámafélagsins.
Elfa Dögg
Þórðardóttir
40 ára Ingvar ólst upp á
Ísafirði en er búsettur á
Selfossi. Ingvar er verk-
stjóri hjá VHE, Vélsmiðju
Hjalta Einarssonar á
Selfossi.
Maki María Pálsdóttir, f.
1974, kennari á Selfossi.
Börn Björn Leví, f. 2002,
Daníel Örn, f. 2003, Vikt-
or Ingi, f. 2008 og Ásta
Sóley, f. 2010.
Foreldrar Björn Ingvars-
son, f. 1946, og Guðrún
Arnardóttir, f. 1946.
Ingvar
Björnsson
Jónas Guðmundsson, alþingismaður
og ritstjóri, fæddist 11. júní 1898 á
Skálanesgrund við Seyðisfjörð. For-
eldrar hans voru Guðmundur Jón-
asson, bóndi og útgerðarmaður í
Brimneshjáleigu við Seyðisfjörð, og
Valgerður Hannesdóttir. Jónas
kvæntist Sigríði Lúðvíksdóttur og
eignuðust þau tvær dætur, Ingi-
björgu og Guðnýju.
Jónas lauk kennaraprófi árið 1920
og hélt í framhaldsnám til Kaup-
mannahafnar einn vetur, þá sótti
hann íþróttanámskeið í Reykjavík
1922.
Fyrst um sinn var hann kennari
við barna- og unglingaskólann á
Norðfirði 1921-1933. Samhliða
kennslunni sinnti hann ýmsum störf-
um. Jónas var formaður Verkalýðs-
félags Norðfjarðar nær óslitið frá
1924-1937. Hann var virkur í sveit-
arstjórnarmálum og sat fyrst sem
oddviti Neshrepps í Norðfirði, síðar
bæjarfulltrúi í Neskaupstað og loks
forseti bæjarstjórnar frá 1936-1938.
Hann var framkvæmdastjóri Al-
þýðuflokksins í eitt ár og fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
sveitarfélaga 1945-1967 og forstjóri
Bjargráðasjóðs Íslands í tæp fimm-
tán ár.
Jónas var landskjörinn alþing-
ismaður fyrir Alþýðuflokkinn 1934-
1937.
Í starfstíð sinni sat hann í mörg-
um nefndum, allt frá bankaráðum til
velferðamála. Auk þess sinnti hann
störfum fyrir norrænar félagsmála-
nefndir og fátækra- og heilbrigð-
isnefnd Evrópuráðsins svo fátt eitt
sé nefnt. Hann var í forsvari fyrir
ýmis málefni og stofnaði meðal ann-
ars áfengisvarnafélagið Bláa bandið
1955 og var formaður þess til 1973
og formaður stjórnar vistheimilisins
í Víðinesi í tíu ár.
Jónas skrifaði töluvert um hugð-
arefni sín; þjóðfélags- og sveit-
arstjórnarmál, dulspeki, áfengis-
varnir og bókmenntir. Hann var í
eitt ár ritstjóri Unga Íslands, sem
var tímarit fyrir börn og birti meðal
annars smásögur og annað skemmti-
efni. Þá ritstýrði hann pólitískum
tímaritum á borð við Jafnaðarmann-
inn, Alþýðublaðið, Sveitarstjórn-
armál og Dagrenningu.
Jónas Guðmundsson dó 4. júlí
1973.
Merkir Íslendingar
Jónas Guð-
mundsson
30 ára Þórey er Reykvík-
ingur og starfar sem
snyrtifræðingur á snyrti-
stofunni Verði þinn vilji.
Maki Rafn Stefán Rafns-
son, f. 1978, versl-
unarstjóri í Golfversl-
uninni Erninum.
Börn Emilía Karítas, f.
2005, og Stefanía Gyða,
f. 2011, Rafnsbörn.
Foreldrar Þráinn Garðar
Þorbjörnsson, f. 1955, og
Kristjana Óladóttir, f.
1958.
Þórey Gyða
Þráinsdóttir
Opnunartímar: Mánudaga til föstudaga 9-18 og laugardaga 11-14
Smiðjuvegur 6 (rauð gata) // 200 Kópavogur // Sími 567 7777 // parketbudin.is
ÞAÐ DETTUR
ALLT Í DÚNALOGN
Heimsins besta parketundirlag
fæst nú á Íslandi
• Hentar bæði í fljótandi lögn og til
niðurlímingar
• Framúrskarandi kostur fyrir samlímt,
gegnheilt, eða harðparket
• 21db hljóðdempun milli hæða
• 33% dempun í rými
• Verndar og minnkar álag á allar
læsingar parkets eða harðparkets
• Mesta pressa sem um getur
eða 1/10 úr mm
• Dúkurinn er léttur, sterkur og
meðfærilegur í notkun
• Dúkurinn er einstaklega rakaþolinn
og þarf ekki rakaþolið plast undir
The FloorMufflertm er verkfræðilegt undur,
hannað til að mæta og fara fram úr kröfum
markaðarins um hljóðdempun og pressu.
KYNNINGARTILBOÐ Á FLOORMUFFLER
Tilboðsverð: 790 kr. pr. m2
Fullt verð: 1.313 kr. pr. m2
Meðan birgðir endast
Hægt er að
sendamynd og texta
af nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is