Morgunblaðið - 11.06.2012, Síða 27
við sögu og mótuðu viðhorf Íslend-
inga til náttúru Íslands. Hér er
ekki á ferðinni lítilvægt atriði í
sögu landsins enda hafa okkar erf-
iðustu og djúpstæðustu átök inn-
byrðis sem þjóðar snúist um virkj-
anir. Sú saga snýr ekki aðeins að
náttúrunni okkar heldur líka að
lífsstíl, lífssýn og sjálfsmynd okkar
sem Íslendinga, bæði sem ein-
staklinga og sem þjóðar. Þetta er
margbrotin og flókin saga sem
spannar rúma öld. Mig minnir að
niðurstöðukaflinn í bókinni minni
um íslenska náttúrusýn og virkj-
anir sé um tíu blaðsíður, þannig að
ég vísa bara þangað hverjum þeim
sem langar til að lesa um nið-
urstöður mínar í ekki of löngu
máli.
Ég hef einnig rannsakað sögu
rasisma og skrifaði bók um mann-
kynbætur, sem ég byggði á mast-
ersrannsókn minni og kom út árið
1998. Þegar átökin voru í Júgó-
slavíu fyrrverandi á tíunda ára-
tugnum ætlaði ég að skoða baksvið
þess að menn takast á í blóðugri
orrustu í nafni þjóðernis. Þegar ég
fór að kynna mér málið betur, það
er sögu kynþáttastefnu og þjóð-
ernishyggju, sneri ég mér hins
vegar að því að skoða sögu kyn-
þáttastefnu hér á landi og þá
dúkkaði líka kynbótastefnan fljót-
lega upp í heimildum. Ýmsir hér á
landi á fyrri hluta 20. aldar að-
hylltust rasisma og mann-
kynbótastefnu og töldu að hafa
ætti sjónarmið þessarar hug-
myndastefnu að leiðarljósi við
uppbyggingu íslensks nútíma-
samfélags. Í dag held ég að enginn
myndi tala fyrir mannkynbótum,
að minnsta kosti ekki með sama
sniði og þá var gert, en við erum
ekki alveg laus við rasisma, því
miður.“
Þessi fyrsta skáldsaga þín er vel
heppnuð. Ætlarðu að skrifa aðra
skáldsögu?
Ég er með aðra bók í smíðum.
Ég var byrjuð á henni en þessi
kom inn á milli og var einfaldari í
vinnslu þannig að ég lauk við hana
ásamt því að vinna í dokt-
orsritgerðinni. Fram að þessu hef-
ur bókin fengið jákvæðar viðtökur
sem er mjög hvetjandi fyrir mig.
Með haustinu ætla ég að líta á
þetta ólokna handrit, sjá hvert ég
er komin og íhuga hvort ég haldi
áfram með þá sögu. Hún er
kannski dálítið flókin þannig að
það er áskorun að takast á við
hana, en ég er nokkuð viss um að
ljúka við hana. Hún gerist úti á
landi en tengist borgarsamfélag-
inu. Hún fjallar ekki síst um það
hvað lífið getur verið ófyr-
irsjáanlegt og um það að stundum
er ekki allt sem sýnist.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
» „Ég er að skoða hvað það merkir fyrir okkurkonur að vera íslenskar, hvað við höfum gengið
í gegnum og hvernig það fylgir okkur þótt við för-
um inn í allt aðra veröld, eins og sögupersóna mín
gerir“
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JÚNÍ 2012
Breski rithöfundurinn Barry Uns-
worth er látinn, 81 árs að aldri.
Banamein hans var lungnakrabba-
mein. Unsworth hlaut Booker-
bókmenntaverðlaunin árið 1992
fyrir Sacred Hunger, deildi verð-
laununum með Michael Ondaatje
sem hlaut þau fyrir skáldsögu sína
The English Patient. Hann komst
einnig á stuttlista verðlaunanna ár-
ið 1980 fyrir Pascali’s Island og ár-
ið 1995 fyrir Morality Play. Fyrsta
bók Unsworths, The Partnership,
kom út árið 1966.
Látinn Barry Unsworth.
Booker-verðlaunahafinn
Barry Unsworth látinn
www.lifandimarkadur.is
Borgartúni 24 | Reykjavík
Hæðasmára 6 | Kópavogi
Sími: 585 8700
Kókoslínan frá DR. GOERG er
framleidd á einstakan hátt úr
fyrsta flokks lífrænum kókos-
hnetum í gegnum sérstakt
„fair trade“ verkefni.
Þessi miklu gæði koma fram
í einstökum bragðgæðum
og næringargildi.
Spennandi
hráfæði
kókosvörur
Hráfæði kókoshveiti
- frábært í baksturinn
Kókosmjólk
úr 3 lífrænum
kókoshnetum
Nýtt
Unaðsleg kókosolía
- góð í þeytinginn
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 15/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Lau 16/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Níu Grímutilnefningar! Allra síðasta sýning 22. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Lau 16/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Allra síðasta sýning 16. júní.
Afmælisveislan (Kassinn)
Lau 1/9 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30
Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu.
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Fim 14/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Hringurinn - athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins
(Kassinn)
Fös 22/6 kl. 19:30
Aeðins þessi eina sýning!
Vesalingarnir HHHHH og 9 grímutilnefningar
- SÍÐUSTU SÝNINGAR!