Morgunblaðið - 04.07.2012, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 4. J Ú L Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 154. tölublað 100. árgangur
ÍSLENDINGAR
ERU BJARTSÝNIR
OG KÆRULAUSIR
HÁTÍÐAHÖLD
UM ALLT LAND
HÆGT AÐ SKEMMTA
SÉR OG HLÆJA
Á DANSSÝNINGUM
TÓNLEIKAR OG DRULLUMALL 30 HRINGRÁS OG HEIMSÓKNARTÍMI 33BÓK UM ÞJÓÐARSÁL ÍSLENDINGA 10
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég tel að við þurfum að ljúka samn-
ingaviðræðum þannig að samningar
liggi fyrir áður en næsta fiskveiði-
tímabil hefst. Það er markmið okkar.
Það þýðir að við þurfum að ná sam-
komulagi í haust,“ segir Maria Dam-
anaki, sjávarútvegsstjóri ESB, um
þau tímamörk sem sambandið gefur
til að finna lausn á makríldeilunni.
Damanaki ítrekar í samtali við
Morgunblaðið að hún vilji fara
samningaleiðina
en tekur jafn-
framt fram að
fyrirhuguðum
refsiákvæðum
gegn ríkjum sem
stunda ofveiði
verði beitt sé tal-
in ástæða til.
Hvað snertir
það sjónarmið að
ákvæðin brjóti í bága við EES-
samninginn og ákvæði samninga á
vegum Alþjóðaviðskiptastofnunar-
innar telur Damanaki lagarökin með
ESB.
Úrvalshópur lögfræðinga
„Lögmenn okkar hafa séð um
málið og þeir geta sagt þér að fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
hefur upp á að bjóða bestu lagalegu
ráðgjöfina sem fyrirfinnst. Úrræðin
verða í samræmi við alþjóðalög. Ég
er ekki lögfræðingur en ég treysti
lögmönnum okkar. Þeir eru afar
færir,“ segir Damanaki sem telur að
Ísland verði sem umsóknarríki að
ESB að virða heildarlöggjöf sam-
bandsins, líkt og aðrir nýliðar sem
sækja um inngöngu. Á hún með því
við að Ísland verði að fara samn-
ingaleiðina við ESB í deilunni, ella
gangi landið gegn þessari hefð.
Damanaki segir ekki hægt að full-
yrða að það takist að ljúka aðildar-
viðræðum fyrir kosningarnar 2013.
Skiptar skoðanir séu innan ESB um
hvenær eigi að opna sjávarútvegs-
kaflann.
MRefsiákvæðin tilbúin í haust »12
Ögurstundin er í haust
Sjávarútvegsstjóri ESB segir traust lagarök fyrir refsiákvæðum vegna ofveiði
Slík úrræði gegn þjóðum sem taldar eru stunda ofveiði verða tiltæk í haust
Maria Damanaki
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Flugfélagið WOW Air og flugþjón-
ustan Keflavík Flight Services hafa
kært meintar viðskiptanjósnir af
hálfu Pálma Haraldssonar, Björns
Vilbergs Jónssonar og annarra ótil-
greindra starfsmanna Iceland Ex-
press til lögreglu.
Í kæru sem Jóhannes Sigurðsson,
hrl., sendi til rannsóknardeildar lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
fyrir hönd WOW Air og KFS, kemur
fram að starfsmaður Isavia hafi orð-
ið þess var í hefðbundnu eftirliti að
flugstjórnarmiðstöð hjá Iceland Ex-
press á Keflavíkurflugvelli, OCC,
hleraði svokallaða tetrarás KFS.
Þá segir einnig í kærunni að Björn
Vilberg Jónsson hafi viðurkennt í
samtali við viðkomandi starfsmann
Isavia að tilgangur hlerunarinnar
væri sá að afla upplýsinga um far-
þegatölur og annað sem snúi að
starfsemi félagsins WOW Air og að
þær upplýsingar sem þannig hafi
fengist væru sendar beint til Pálma
Haraldssonar, aðaleiganda og
stjórnarformanns Iceland Express.
Að mati kærenda bendir þetta til
þess að Pálmi hafi gefið starfs-
mönnum sínum fyrirmæli um hler-
unina og einnig að upplýsingar sem
þannig fengjust hafi verið kynntar
öðrum stjórnendum Iceland Ex-
press. »4
WOW
sakar IE
um njósnir
Njósnir IE er sakað um njósnir.
Kært til lögreglu
Kríuvarpið virðist víða líflegra í sumar en verið hefur
undanfarin ár og útlit fyrir að fleiri ungar komist á
legg. Á Álftanesi var líf og fjör í varpinu og unginn
fúlsaði ekki við sílinu sem boðið var upp á í gærkvöldi.
Líflegt hjá kríunni á Álftanesi
Morgunblaðið/Ómar
Landssamband íslenskra útvegs-
manna (LÍÚ) vill að íslensk stjórn-
völd krefjist þess að dregin verði
miðlína milli efnahagslögsögu Sval-
barða og Noregs við Bjarnarey,
syðsta útvörð Svalbarðaeyjaklas-
ans. Einnig að Svalbarðasáttmálinn
gildi Svalbarðamegin við miðlínuna.
Við það myndi efnahagslögsaga
Svalbarða stækka um 83.000 km2.
Nú nær lögsaga Noregs langleiðina
til Bjarnareyjar.
LÍÚ hefur einnig ítrekað fyrri
áskoranir til stjórnvalda um að
hagsmunir Íslands á Svalbarða-
svæðinu verði varðir með því að
stefna Norðmönnum fyrir Alþjóða-
dómstólinn í Haag vegna túlkunar
þeirra á Svalbarðasamningnum.
Friðrik sagði Norðmenn hafa
helgað sér efnahagslögsögu við
Svalbarða, frá 12 mílna landhelgi
eyjaklasans og út í 200 sjómílur.
Þetta geri þeir á grundvelli norskra
laga um efnahagslögsögu Noregs og
kalli svæðið „fiskverndarsvæði“.
Þar eru þó stundaðar veiðar.
gudni@mbl.is »4
Hagsmun-
ir verði
tryggðir
LÍÚ vill miðlínu
við Bjarnarey
Smugan
Sv
alb
ar
ði
Bj
ar
na
re
y
Miðlína við
Bjarnarey
Heimild: LÍÚ
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Eftirlaunaaldur miðist við 67 ár en
breytist með breytingum á meðalævi
landsmanna, þó þannig að fyrir liggi
með 5-10 ára fyrirvara hver eftir-
launaaldurinn er hjá viðkomandi
sjóðsfélaga,“ segir í nýjum drögum
að stefnu ASÍ í lífeyrismálum, sem
taka á til afgreiðslu á 40. þingi ASÍ í
haust. Miðstjórn ASÍ hefur þegar af-
greitt drögin sem verða til umfjöll-
unar í aðildarfélögunum um allt land í
sumar.
Fjölmargar tillögur að breytingum
eru lagðar til, m.a. um að sveigjanleiki
verði aukinn í töku eftirlauna bæði hjá
Tryggingastofnun og lífeyrissjóðum
og tekjutengingar örorkubóta verði af-
lagðar, en bótaréttur skilgreindur
miðað við starfsgetumat.
Þá vill ASÍ skv. drögunum breyta
reglum um starfsemi og skipulag líf-
eyrissjóðanna. Við það verði m.a. mið-
að að forseti ASÍ og formaður Sam-
taka atvinnulífsins ásamt
framkvæmdastjórum ASÍ og SA taki
ekki sæti í stjórnum sjóða, og 8 ára
hámark verði sett á samfellda setu
fulltrúa í stjórn hvers sjóðs. Stjórn-
armönnum og starfsmönnum sjóð-
anna verði gert að upplýsa um verð-
bréfaeign og viðskipti sín og
siðanefnd lífeyrissjóða verði komið á
fót á vettvangi Landssamtaka
lífeyrissjóða.
MBoða umbætur »6
Eftirlaunaaldur breytist
Breytingar í lífeyrismálum lagðar til í nýjum drögum ASÍ Tekjutengingar
örorkubóta verði aflagðar Stífari reglur og aukið gagnsæi hjá lífeyrissjóðum
Afgreitt á þingi í haust
» Lagt er til að horfið verði frá
tekjutengingum milli heilbrigð-
iskerfisins og lífeyristekna í
gjaldtöku á dvalar- og hjúkr-
unarheimilum fyrir aldraða.
» 40. þing ASÍ fær tillögurnar
til afgreiðslu en það verður
haldið 17.-19. október.