Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 27
1968-69, sat í bæjarstjórn Grinda- víkur 1994-2000, sat í hafnarnefnd um árabil og starfaði í Lionsklúbbi Grindavíkur. Hann var heiðraður af Sjómannadagsráði á sjómanna- daginn, nú 2012. Áhugi á því að gera ekki neitt Sverrir lét af störfum um síðustu áramót. Því liggur beinast við að spyrja hann um áhugamálin. „Fólk hefur miklar áhyggjur af því að maður sitji auðum höndum. Það eru allir að benda mér á áhuga- mál. En mitt áhugamál núna er að gera ekki neitt. Eftir annasaman starfsferil er iðjuleysið afskaplega ljúft. Ég á að vísu golfkylfur en ég er ekkert farinn að handfjalla þær ennþá og veit ekkert hvenær eða hvort ég geri það. Ég held að vísu áfram að vakna snemma á morgnana en ég leyfi svo bara deginum að líða í rólegheitum. Mér finnst afar notalegt að þurfa ekki að mæta einhvers staðar á til- teknum tíma. Við hjónin eigum hús- bíl sem við notum mikið. Þá förum við á flakk um landið og látum kylfu ráða kasti hvar við sofum næstu nótt. Þetta finnst mér notalegt.“ Fjölskylda Eiginkona Sverris er Elín Þorsteinsdóttir, f. 16.4. 1949, sjúkra- liði. hún er dóttir Þorsteins Helga- sonar, verkamanns í Reykjavík og Önnu Guðrúnar Sigurðardóttur hús- freyju. Börn Sverris og Elínar eru Heiðar Örn Sverrisson, f. 9.7. 1972, krana- maður í Grindavík en kona hans er Ágústa Bjarnadóttir húsmóðir og eiga þau þrjú börn; Anna Dóra Sverrisdóttir, f. 6.8. 1978, nagla- og snyrtifræðingur, búsett í Reykjavík en maður hennar er Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, verslunarstjóri hjá Nýherja og eiga þau tvö börn. Börn Sverris frá fyrra hjónabandi eru Helga Þórey Sverrisdóttir, f. 8.6. 1962, dagmóðir á Akureyri en maður hennar er Sverrir Torfason bílstjóri og eiga þau fjögur börn; Jóhann Dal- berg Sverrisson, f. 30.1. 1964, stein- smiður í Kópavogi en kona hans er Ósk Elísdóttir lögfræðingur og eiga þau einn son; Vilbergur Flóvent Sverrisson, f. 14.6. 1967, kjötiðn- aðarmaður í Reykjavík en kona hans er Guðrún Elísabet Árnadóttir og eiga þau tvö börn. Dætur Elínar frá fyrra hjóna- bandi eru Þorbjörg Stefánsdóttir, f. 16.9. 1966, matreiðslumeistari í Dan- mörku og á hún einn son; Stefanía Stefánsdóttir, f. 3.11. 1967, tækni- teiknari í Grindavík en maður henn- ar er Guðmundur Einarsson, bygg- ingafræðingur og fiskeldisfræðingur og eiga þau þrjú börn. Systkini Sverris eru Pétur Vilbergsson, f. 6.8. 1944, fyrrv. sjó- maður og eftirlitsmaður, búsettur í Grindavík; Gunnar Vilbergsson, f. 25.3. 1946, lögreglumaður og um- boðsmaður Sjóvá í Grindavík; Theo- dór Vilbergsson, f. 18.7. 1947, neta- gerðarmaður í Grindavík; Eyjólfur Vilbergsson, f. 4.11. 1948, starfs- maður Hitaveitu Suðurnesja; Elín María Vilbergsdóttir, f. 4.7. 1950, húsmóðir í Grindavík. Kjörforeldrar Sverris voru Vil- bergur Flóvent Aðalgeirsson, f. 3.7. 1918, d. 15.10. 1973, starfaði við raf- virkjun í Grindavík, og Eileen Þórey Breiðfjörð, f. 5.9. 1918, d. 13.1. 2000, húsmóðir. Úr frændgarði kjörforeldra Sverris Vilbergssonar Guðmundur Sveinsson b. í Brekku í Geiradal María Pétursdóttir forstöðuk. ellih. Grundar í Rvík Guðrún S. Sigurpálsdóttir húsfr.á Árbakka Eyjólfur Björnsson í Krosshúsum í Grindavík Vilborg Þorsteinsdóttir húsfr. í Krosshúsum Sverrir Vilbergsson Vilbergur Flóvent Aðalgeirsson rafvirki í Grindavík Eileen Þórey Breiðfjörð húsfr. í Grindavík Dorothy Mary Breiðfjörð frá Hove í Englandi Páll Breiðfjörð trésm. í Rvík og Vesturheimi Guðrún Eyjólfsdóttir húsfr. í Grindavík Aðalgeir Flóventsson form. í Grindavík Flóvent Sigurðsson b. á Árbakka á Húsavík Helgi Flóventsson form. á Húsavík Hallmar Helgas. vélstj. á Húsavík Sigurður Hallmarsson, skólastj. á Húsavík Á lóðsinum Hafnarvörðurinn á lóðsinum í Grindavíkurhöfn. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012 Sveinbjörn Beinteinsson, bóndi,allsherjargoði ásatrúarmannaog rímnaskáld, fæddist 4. júlí 1924 í Grafardal í Skorradal í Borg- arfirði. Foreldrar hans voru Bein- teinn Einarsson bóndi, frá Litla- botni á Hvalfjarðarströnd, og Helga Pétursdóttir húsfreyja frá Draghálsi í Svínadal. Sveinbjörn var af Berg- sætt, Klingenbergsætt af Akranesi og ýmsum þekktum ættum úr Kjós og Borgarfirði, eins og Fremra- Hálsaætt, Deildartunguætt og loks Efstabæjarætt og því frændi Magn- úsar Ásgeirssonar skálds og Leifs prófessors. Sveinbjörn flutti með foreldrum sínum að Draghálsi í Svínadal 1934 og var þar bóndi frá 1944. Hann eignaðist tvo drengi, Georg Pétur og Einar með Svanfríði Hagvaag. Sveinbjörn orti og sendi frá sér fjölda rímna- og ljóðabóka. Þær voru honum hjartfólgnar og drakk hann þær í sig með móðurmjólkinni líkt og Þorsteinn frá Hamri kemst að orði í eftirmælum um Sveinbjörn. Hann lifði og hrærðist í þessum forna arfi og lagði sitt af mörkum til að halda honum á lofti. Eftirfarandi kvæði liggja eftir hann: Gömlu lögin, rímur, 1945, Bragfræði og háttatal, 1953, Stuðlagaldur, kvæði, 1954, Vandkvæði, ljóð, 1957, Reiðljóð, 1957, Heiðin, kvæðabók, 1984, Gátur I-III, 1985-91, og Bragskógar, 1989. Þá sá hann um útgáfu á rímum s.s. Rímnavöku, 1959, Rímnasafni, sýn- isbók, 1966, Fúsakveri, 1976 og Rímnasafni Sigurðar Breiðfjörð 1-6, 1961-73, auk Eddukvæða á hljóm- plötum og átti þátt í útgáfu Borg- firðingaljóða 1991. Hann las einnig fjölda rímna í út- varpi og á mannamótum. Sveinbjörn kom einnig oft fram á tónleikum á pönktímabilinu og kvað rímur á milli atriða og má sjá hann í Rokk í Reykjavík. Sveinbjörn var forstöðumaður Ásatrúarfélagsins og síðan allsherjargoði frá 1972. Hann tengdi trúariðkun sína sterklega við náttúruna; að dýrka hana á sinn hátt en nýta hana í hófi. Sveinbjörn lést á jóladag 1994. Merkir Íslendingar Sveinbjörn Beinteinsson 90 ára Steingerður Ingólfsdóttir 85 ára Ásdís Ásgeirsdóttir Einar Brynjólfsson Gunnar Sumarliðason Jón Þorsteinn Eiríksson Kristín Ágústsdóttir 80 ára Gunnsteinn Karlsson Haukur Ármannsson Hörður Sævar Óskarsson Unnur Sigursteinsdóttir Vilborg Ísberg 75 ára Guðný Anna Jónasdóttir Haukur L. Halldórsson Kristín Anna Karlsdóttir Reynir Guðmannsson Svanlaug Sigurjónsdóttir Tryggvi Gunnarsson 70 ára Árni Ingvarsson Guðmundur Ingólfsson Hrönn I. Hafliðadóttir Ingibjörg Kristvinsdóttir Magnhildur Ólafsdóttir Sverrir Vilbergsson 60 ára Auður Adolfsdóttir Ásdís H. Hafstað Guðfinna Óskarsdóttir Guðmundur Helgi Helgason Gyða Gunnarsdóttir Ingibjörg Sveinsdóttir Kristín Klara Einarsdóttir Margrét B. Sigmundsdóttir Soffía Kristjánsdóttir Stefán Haraldsson 50 ára Ásdís Hildur Finnbogadóttir Eggert Sigþór Sigurðsson Guðbjörg Björnsdóttir Haraldur Ragnar Ólafsson Klara Hjálmtýsdóttir Rosina Vilhjálmsdóttir Sigríður S. Friðjónsdóttir Stefán Gunnarsson Þuríður Ósk Gunnarsdóttir 40 ára Arndís Þorvaldsdóttir Beata Piszcz Berglind Jóhannsdóttir Einar Aðalsteinn Jónsson Heimir Þór Hermannsson Ingólfur Guðni Árnason Íris Guðmundsdóttir Jóhannes Geir Númason Kristjana Ingrid Ásta Welch Ragnheiður Halldórsdóttir Una Sigurðardóttir 30 ára Antoine Jean-Fernand V. Lochet Davíð Skúlason Egill Örn Bjarnason Elsa María Blöndal Freyr Helgason Guðrún Ösp Sigurmundardóttir Halla María Ólafsdóttir Jurgita Jokubauskiene Marcin Michalowski María Ólafsdóttir Sigrún Björk Sigurðardóttir Valgeir Helgi Bergþórsson Til hamingju með daginn 30 ára Ólöf Vigdís er fædd og uppalin á Akra- nesi og er búsett þar í dag. Hún starfar sem verkefnisstjóri á Skaga- stöðum, virknisetri fyrir unga atvinnuleitendur. Ólöf Vigdís lauk ferða- málafræði frá Háskól- anum á Hólum og meist- aranámi í menningar- stjórnun frá háskólanum á Bifröst. Foreldrar Guðni Jónsson, f. 1942, bifvélavirki og Ingveldur M. Sveinsdóttir, f. 1953, starfar við kaffi- umsjón á bæjarskrifstofu Akranesbæjar. Ólöf Vigdís Guðnadóttir 50 ára Lára er búsett á Fáskrúðsfirði. Hún er föndurkona og býr m.a. til brúðabækur og kort undir merkjum Föndurfjósakon- unnar. Hún er menntaður húsgagnasmiður og út- skrifaðist meðal fyrstu kvenna í stéttinni 1981. Í tilefni dagsins verður veisla í mömmuhúsi. Maki Ólafur Þ. Pálsson, f. 1954, fyrrv. skipstjóri. Börn Smári, f. 1987 og Katla Boghildur f. 1995. Foreldarar Elín Kröyer, f. 1937 og Björn Helgason, f. 1935. Lára Björnsdóttir 30 ára Kristbjörg Sess- elja ólst upp í Borgarnesi og fluttist að Tröðum ung að aldri og er búsett þar í dag. Þar stundar hún sauðfjárbúskap ásamt fjölskyldu sinni. Maki Gunnar Þorkelsson, f. 1979, bóndi og verka- maður. Börn Hallbjörn Gísli, f. 2005, Hjalti, f. 2007, og Silja, f. 2011. Foreldrar Heiða Helga- dóttir, f. 1952, bóndi að Gaul í Staðarsveit og Birgir Pálsson, f. 1947, bifreiðastjóri. Kristbjörg Sess- elja Birgisdóttir Sími 568 5170 UÉÄ|Ü fÇçÜà|ä≠ÜâÜ cxçáâÜ UPPLIFÐU HRAUSTLEGT ÚTLIT MEÐ TERRACOTTA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.