Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012 María Ólafsdóttir maria@mbl.is Íbókinni The Little Book ofthe Icelanders má lesa umalla þessa litlu, skrýtnu hlutiog ávana sem einmitt gera okkur svo íslensk. Bjartýnin, hæfi- lega kæruleysið, næturlífið og mik- ilvægi fjölskyldunnar eru meðal þess sem þar ber á góma. Höf- undur bókarinnar, Alda Sigmunds- dóttir, hefur stóran hluta ævi sinn- ar búið erlendis og byggir skrifin á þeirri upplifun að flytja aftur til landsins fyrir 18 árum eftir ára- langa búsetu erlendis. Ólík þjóðarsál „Ég hafði búið mjög víða en ólst upp að mestu leyti í Kanada og enska er því mitt fyrsta mál. Frá Kanada flutti ég til Bretlands og síðan bjó ég fimm ár í Þýskalandi. Auk þess hef ég líka búið í skemmri tíma á Spáni og Kýpur. Mér hefur alltaf fundist gaman að fylgjast með fólkinu í kringum mig og reyna að greina þjóðarsál hvers lands. Hún er mjög ólík í þeim löndum sem ég hef búið í. Í Þýska- landi fann ég til að mynda fyrir því að enn gætti mikilla áhrifa frá fyrri heimsstyrjöldinni. En Kanada er aftur á móti allt öðruvísi því þjóðin er ung og þetta er land innflytjenda sem verða fyrir miklum áhrifum frá Bandaríkjunum,“ segir Alda. Upphaf bókarskrifanna má rekja til þess að Alda hélt úti bloggsíðu í ein sex ár þar sem hún skrifaði sér til skemmtunar um Ís- Duglegir og kærulausir í senn Þó ekki sé hægt að alhæfa um heila þjóð með nokkrum orðum má almennt séð segja að Íslendingar séu óstundvísir, hæfilega kærulausir, bjartsýnir og afar slæm- ir ökumenn. Um þetta og margt fleira má lesa í bók Öldu Sigmundsdóttur, The Little Book of the Icelanders, en þar skrifar Alda í léttum dúr um þjóðarsál Íslend- inga. Alda hefur búið í mörgum löndum og hefur löngum verið forvitin um fólk. Morgunblaðið/Eggert Höfundur Alda skrifar í léttum dúr um íslensku þjóðarsálina. Vefsíðan ilovewildfox.com er skemmtileg og fjölbreytt tískusíða sem ætluð er að veita fólki inn- blástur. Að vefsíðunni standa vin- konurnar Emily og Kimberley sem búsettar eru í Los Angeles. Þær hanna saman litríka boli og töskur og upp úr því ákváðu þær að fara að blogga til að „hvetja aðra listamenn til að skapa, læra, taka ljósmyndir, mála, halda partý, klæða sig upp á og vera hamingjusamir,“ eins og stendur í lýsingunni um þær stöllur á síðunni. Á síðunni má sjá flotta innanhús- hönnun, fallegar ljósmyndir og skoða skissubækur sem Kimberley hannar. Þær eru gerðar úr endur- unnum pappír og eru ætlaðar til að skrifa niður ýmiss konar tísku- og förðunarráð. Ilovewildfox.com er öðruvísi og töff síða sem vert er að kíkja á og skoða sig um. Vefsíðan www.ilovewildfox.com AFP Litagleði Þær stöllur Emily og Kimberley halda úti tískubloggi. Hamingjusamir tískubloggarar Nú er um að gera að dusta rykið af rokkabillý-sporunum en Háskóla- dansinn heldur rokkabillý-kvöld nú á föstudagskvöldið 6. júlí á The Big Lebowski Bar. Er mælt með að fólk finni til flottu kjólana og brillj- antínið og mæti glimrandi flott á dansgólfið. Fyrir þá sem vilja fylla á magann og fá orku fyrir dansinn skal þess getið að gómsæta borgara eða samlokur og ljúffenga mjólkurhrist- inga verður hægt að fá til klukkan 22. Eftir það tekur plötusnúðurinn til við að þeyta skífurnar og verður spiluð rokkabillý tónlist alla nóttina. Dans- skórnir ættu því að nýtast vel. Endilega… …æfið rokka- billý-sporin Morgunblaðið/Ernir Dansstuð Rokkabillý fram á nótt. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. ÍS L E N SK A SI A .I S U T I 60 20 8 06 /1 2 MARGVERÐLAUNAÐIR BAKPOKAR SEM ÞÚ GETUR TREYST! KOMDU VIÐ OG SJÁÐU ÚRVALIÐ. VERÐ: 25.990 KR. DEUTER FUTURA 28 Léttur vandaður dagpoki. Aircomfort bak sem loftar betur. Regnvörn fylgir. VERÐ: 59.990 KR. DEUTER AIRCONTACT PRO 55 +15 SL Sá vandaðasti úr smiðju Deuter. Frábært stillanlegt burðarkerfi. Öll smáatriði þaulhugsuð. Regnvörn fylgir. Einnig til aðrar stærðir og herraútfærslur. TILBOÐ: 23.192 KR. DEUTER FUTURA 32 Vinsælasti dagpokinn. Frábært burðarkerfi með loftun. Einnig til aðrar stærðir og dömuútfærslur. Regnvörn fylgir. Almennt verð: 28.990 kr. NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS GÓÐIR FERÐAFÉLAGAR Í SUMAR VERÐ: 49.990 KR. DEUTER AIRCONTACT 50 + 10 SL Frábær verðlaunabakpoki til notkunar í lengri ferðir. Vandað stillanlegt burðarkerfi. Einnig til aðrar stærðir og herraútfærslur. Regnvörn fylgir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.