Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012
Gaman Þær Isis Helga og Ísafold léku sér og sópuðu Hjartagarðinn í miðbæ Reykjavíkur af miklum myndarskap undir vökulu auga teiknimyndapersónunnar Svamps Sveinssonar.
Eggert
Með skipulegum
hætti (og oft fremur
ógeðfelldum) hefur
verið reynt að stilla Ís-
lendingum upp við
vegg. Takmarka þá
möguleika sem þeir
eiga og draga um leið
úr sjálfstrausti sjálf-
stæðrar þjóðar. Það
eru ekki erlend ríki
sem beita Íslendinga
ofbeldi. Það eru ekki sterkt fjár-
málaöfl – innlend eða erlend – sem
beita valdi og hótunum. Nei, það er
ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
með stuðningi og samþykki Stein-
gríms J. Sigfússonar og Vinstri
grænna.
Í blindri trú hefur öllum meðulum
verið beitt. Hótunum jafnt sem fögr-
um loforðum um að allt verði betra
um leið og Ísland kemst undir
„verndarvæng“ Brussels. Oftar en
einu sinni hefur verið komið í veg
fyrir að Íslendingar hafi nokkuð um
það að segja hvort sækja eigi um að-
ild að Evrópusambandinu. Afleið-
ingin er sundrung þjóðarinnar. Þeg-
ar löggjafi og ríkisstjórn ganga fram
með þeim hætti sem gert hefur verið
á engan að undra að traust almenn-
ings á þingi og ríkisstjórn sé jafnlítið
og raun ber vitni.
Umræðan um utanríkismál og
framtíðarhagsmuni Íslendinga hefur
verið mörkuð af einstrengingslegri
stefnu ríkisstjórnarinnar og aðlög-
unarviðræðum við ESB. Andstæð-
ingar aðilar hafa verið of uppteknir í
baráttunni til þess að benda á hið
augljósa: Íslendingar eiga gríð-
arlega möguleika með samvinnu við
aðrar þjóðir – möguleika sem eru
efnahagslega og póli-
tískt fýsilegri en að
ganga í Evrópusam-
bandið.
Ríkisstjórnin mun
ekki beita sér fyrir um-
ræðum um utanrík-
isstefnu landsins og þá
kosti sem í boði eru. Til
þess hafa stjórn-
arflokkarnir fjárfest of
mikið í aðildarviðræð-
unum við ESB. Sam-
fylkingin er orðin að
einsmáls stjórn-
málaflokki þar sem ESB-aðild er
upphaf og endir alls. Vinstri grænir
hafa svikið of mikið til að snúa af
villu síns vegar.
Þess vegna verður Sjálfstæð-
isflokkurinn að beita sér fyrir víð-
tækum og opnum umræðum um
stefnuna í samskiptum við aðrar
þjóðir. Markmiðið er að hefja nýja
stefnumörkum í utanríkismálum þar
sem tvennt skiptir mestu. Annars
vegar að tryggja öryggi landsins og
hins vegar að tryggja frjáls og opin
viðskipti við aðrar þjóðir.
Það er ekki síst þrennt sem Ís-
lendingar verða að ræða af hrein-
skilni. Aðildina að Schengen-
svæðinu, kosti og galla Evrópska
efnahagssvæðisins (EES) og frí-
verslunarsamstarf í Norðurhöfum.
Schengen
Margt bendir til þess að hags-
munum Íslands sé betur borgið utan
en innan Schengen-svæðisins. Sam-
eiginlegt landamæraeftirlit með af-
námi innri landamæra á meginlandi
Evrópu kann að vera skynsamlegt
en hið sama gildir ekki um eyríki
sem hefur náttúruleg landamæri.
Þetta gerðu Bretar sér ljóst og hafa
því staðið utan Schengen ásamt Ír-
landi. Bæði löndin taka hins vegar
þátt í miðlægum gagnabanka Schen-
gen-ríkjanna – SIS.
Sjálfstæðisflokkurinn á að lýsa því
skýrt yfir fyrir komandi kosningar
að hafin verði endurskoðun á þátt-
töku Íslands í Schengen. Markmiðið
verður fyrst og fremst að tryggja ör-
yggi landsins og hagsmuni Íslend-
inga sem sjálfráða þjóðar.
Evrópska efnahagssvæðið
Í upphafi næsta árs verða 20 ára
síðan Alþingi samþykkti lög um Evr-
ópska efnahagssvæðið. Lögin tóku
gildi í ársbyrjun 1994. Íslendingar
hafa notið góðs af EES en einnig
þurft að gjalda fyrir ókostina, þá
ekki síst vegna gallaðs regluverks
um fjármálamarkaði. Gera verður
víðtæka úttekt á reynslunni af EES,
ekki bara efnahagslega heldur einn-
ig pólitískt. Sú úttekt hlýtur að fara
fram samhliða því að kanna mögu-
leika á stofnun fríverslunarsvæðis
með Noregi, Grænlandi, Færeyjum,
Kanada og Bandaríkjunum, líkt og
undirritaður lagði til í grein hér í
Morgunblaðinu 25. október 2010.
Með fríverslunar- og samstarfs-
samningi þessara landa getur orðið
til eitt mesta hagvaxtarsvæði heims-
ins.
Áhrif Evrópusambandsins á ís-
lenska laga- og reglugerðarsetningu
hafa verið mikil og margir hafa bent
á að slíkt kunni að ganga gegn
stjórnarskrá. Frá október og fram
að sumarfríi þingmanna lagði ríkis-
stjórnin fram 49 mál – frumvörp og
þingsályktunartillögur – þar sem
vitnað er til EES-reglna eða ákvarð-
ana EES-nefndarinnar. Tólf frum-
vörp voru samþykkt sem lög og
átján þingsályktunartillögur náðu
fram að ganga.
Þingsályktunartillögurnar eru
vegna ákvarðana EES-nefnd-
arinnar. Oftast er um ræða breyt-
ingar á EES-samningnum vegna til-
skipana frá Evrópuþinginu og/eða
framkvæmdastjórn ESB. Óhætt er
að fullyrða að lítil umræða er meðal
þingmanna um störf EES-
nefndarinnar.
Svipað gildir um frumvörp. Þar er
verið að innleiða tilskipanir sem eiga
uppruna sinn hjá Evrópusamband-
inu. Í a.m.k. nokkrum tilfellum ber
Íslendingum engin skylda til að inn-
leiða í lög slíkar tilskipanir eða vafi
leikur á því hvort sú skylda sé fyrir
hendi.
Endurskoðun á EES-samn-
ingnum er ekki síst nauðsynleg með
hliðsjón af þeim breytingum sem lík-
lega verða á Evrópusambandinu
sem aukinni samþættingu ríkisfjár-
mála evruríkjanna.
Það er söguleg skylda Sjálfstæð-
isflokksins að hefja vinnu við nýja
stefnumótum í utanríkismálum.
Þeirri vinnu lýkur ekki þegar kjós-
endur ganga næst að kjörborði og
velja sér nýtt þing, heldur er mik-
ilvægt verkefni á komandi árum. Þar
mega ofsatrú og blindni ekki ráða
ferðinni líkt og síðustu ár.
Eftir Óla Björn
Kárason » Það er ekki síst
þrennt sem Íslend-
ingar verða að ræða af
hreinskilni. Aðildina að
Schengen, kosti og galla
EES og fríverslunar-
samstarf í Norður-
höfum.
Óli Björn Kárason
Höfundur er varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Endurskoðun á Schengen og EES
Samtök í ferðaþjónustunni
fá hland fyrir hjartað í hvert
sinn sem rætt er um að taka
gjald til að viðhalda fjölsóttum
ferðmannastöðum.
„Ef það er verið að selja inn
á staði, þar sem einhver þjón-
usta er veitt, þá er það nátt-
úrlega eðlilegt,“ sagði for-
svarsmaður þeirra í
Morgunblaðinu í gær. Þessir
forkólfar skilja ekki orðið
þjónusta. Þeir halda að orðið
þýði það sama og salerni. Þess
vegna má taka gjald fyrir að
fara á klósettið, svokallað
þvaggjald.
Ekki má taka gjald til að
halda stöðunum í góðu ástandi
til dæmis með vönduðum
göngustígum; laga til eftir
ferðamennina svo þeir geti
haldið áfram að koma. Hvað
skyldu ferðasamtökin ætla að
sýna ferðamönnunum eftir
nokkur ár þegar landið verður
allt niðurtroðið og úttraðkað?
Kannski klósettin?
Nú fer að verða ágætt að
ferðasamtökin átti sig á því að
það er skammgóður vermir að
pissa í skó sinn.
Óskar
Magnússon
Þvag-
gjald og
þjónusta
Höfundur er stjórnarformaður
Kerfélagsins ehf.