Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012
Ný
ju
ng
!
Ljótur frá MS er bragðmikill og spennandi
blámygluostur. Láttu hann koma þér á
óvart og dæmdu hann eftir bragðinu.
Ljótur að utan
– ljúfur að innan
Vallarstarfsmenn á íþróttavelli í New Jersey
koma fyrir risastórum uppblásnum bandarískum
fána í tilefni þjóðarhátíðardagsins 4. júlí.
Fáninn er sá stærsti sinnar tegundar í Banda-
ríkjunum en hann er um 380 fermetrar og vegur
um 240 kíló.
Eftir að hátíðarhöldunum lýkur í dag verður
fánanum flogið í árlegri loftbelgjakeppni sem
haldin er í New Jersey.
Uppblásinn fáni flögrar yfir velli
AFP
Bandaríkjamenn fagna þjóðhátíðardeginum með margvíslegum hætti
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Sýrlenska leyniþjónustan heldur úti neti 27 pynt-
ingarmiðstöðva um allt landið þar sem fangar eru
kerfisbundið pyntaðir. Á meðal þeirra aðferða sem
notaðar eru á fangana er að berja þá með kylfum
og köplum, brenna þá með sýru og misnota þá
kynferðislega. Þetta kemur fram í skýrslu mann-
réttindasamtakanna Human Rights Watch
(HRW) um ástand mannréttindamála í Sýrlandi
sem birt var í gær.
Frásagnir fyrrverandi fanga og liðhlaupa sem
skýrslan byggir á varpa ljósi á staðsetningu þess-
ara miðstöðva, hvaða stofnanir standa að baki
þeim, hvaða pyntingaraðferðum er beitt og jafnvel
nöfn þeirra yfirmanna sem stjórna þeim.
„Með því að birta staðsetningarnar, lýsa aðferð-
unum og nafngreina þá sem stjórna þessu erum
við að senda skilaboð til þeirra sem bera ábyrgð
um að þeir muni þurfa að svara fyrir þessa hræði-
legu glæpi,“ segir Ole Solvang, einn rannsakenda
hjá HRW.
Samtökin hvetja jafnframt öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna til þess að vísa málefnum Sýrlands
til Alþjóðasakamáladómstólsins og að setja á sér-
hæfðar refsiaðgerðir gegn þeim embættismönn-
um sem bendlaðir eru við pyntingarnar.
Harmar tyrknesku þotuna
Tala fallinna hélt áfram að rísa í Sýrlandi í gær
en þá létust að minnsta kosti 38 manns um allt
landið, þar á meðal 16 stjórnarhermenn og fjórir
uppreisnarmenn. Á mánudag höfðu 78 manns fall-
ið, þar af 44 óbreyttir borgarar.
Haft var eftir Bashar al-Assad, forseta Sýr-
lands, í viðtali við tyrkneskt dagblað í gær að hann
sæi „100%“ eftir því að her landsins hefði skotið
niður tyrkneska orrustuþotu með tveimur flug-
mönnum um borð þegar hún flaug inn í sýrlenska
lofthelgi yfir Miðjarðarhafið í síðasta mánuði.
Vildi hann meina að vélin hefði verið á flugi á
svæði sem ísraelski herinn hefði áður notað. At-
vikið hefur valdið mikilli spennu í samskiptum
tyrkneskra og sýrlenskra stjórnvalda. „Við leyf-
um þessu ekki að snúast upp í vopnuð átök á milli
landanna tveggja,“ er haft eftir Assad.
Beita kerfisbundið pyntingum
Mannréttindasamtök varpa ljósi á net pyntingarmiðstöðva út um allt Sýrland
Assad forseti segist sjá eftir að tyrknesk herþota hafi verið skotin niður í júní
AFP
Átök Yfirgefinn skriðdreki stjórnarhersins í bæn-
um Atareb í norðurhluta Sýrlands.
Hugsanlegt er að
hægt sé að spá
fyrir um hvernig
krabbamein
þróast og dreifir
sér og valda
þannig byltingu í
meðhöndlun á
sjúkdómnum
með því að beita
útreikningum
þróunarkenningar Charles Darwins.
Þetta kemur fram í nýrri rannsókn
sem birt hefur verið í vísinda-
tímaritinu Nature.
Þau lyf sem notuð eru í dag og
virka á ákveðnar frumustökkbreyt-
ingar ná oft að minnka æxli fyrstu
mánuðina áður en frumurnar verða
ónæmar og sjúkdómurinn blossar
upp aftur. Læknum við rannsóknina
tókst hins vegar að reikna út hvar og
hvenær slíkar breytingar áttu sér
stað. Þá komust þeir að því að breyt-
ingin var þegar til staðar í krabba-
meinsfrumunum en var ekki svar við
meðferðinni.
Aðeins um ein af hverjum milljón
krabbameinsfrumum í sjúklingum
eru ónæmar fyrir sértækri lyfja-
meðferð og það eru þær sem halda
áfram að fjölga sér þótt búið sé að
eyða stærstum hluta æxlisins.
Læknarnir telja að hægt sé að
framleiða tiltölulega fá lyf sem virka
á stóran hluta krabbameinssjúkl-
inga. Í heild gæti hins vegar þurft
hundruð lyfja til að vinna á öllum
stökkbreytingum frumna. Hver
sjúklingur ætti þó aðeins að þurfa
um 2-3 lyf gegn sínu meini, að sögn
Martins Nowaks, prófessors við
Harvard-háskóla. kjartan@mbl.is
Darwin
gegn
krabba
Charles Darwin
Spá fyrir um þróun
krabbameinsfrumna
Mögulega var eitrað fyrir Yasser
Arafat, fyrrverandi leiðtoga Palest-
ínumanna, með geislavirka efninu
pólóníum. Þetta eru niðurstöður
rannsókna sem voru framkvæmdar í
Sviss, að því er fréttastofan Al-
Jazeera segir frá. Arafat veiktist
skyndilega haustið 2004 og lést
nokkrum vikum síðar á sjúkrahúsi í
Frakklandi.
Francois Bochud, yfirmaður
geislaeðlisfræðideildar háskólans í
Lausanne, segir að lífsýni, sem hafi
verið að finna á eigum og í fatnaði
Arafats, hafi verið rannsökuð. Nið-
urstaðan var sú að töluvert magn af
póloníum fannst.
Var eitrað
fyrir Arafat?