Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012 14 flytjendur af Suðurnesjum eiga lög á hinni nýútkomnu breiðskífu Aftan festival 2, framhaldi skíf- unnar Aftan festival 1. Að baki út- gáfunni stendur samnefndur hóp- ur, Aftan festival, sem staðið hefur fyrir tónleikahaldi á Suðurnesjum, einkum í Sandgerði, í ein átta ár. Á þeim tónleikum hafa komið saman reyndir tónlistarmenn sem og tón- listarmenn sem eru að stíga sín fyrstu skref í listinni, þ.e. grasrótin. Platan var tekin upp með heldur óvenjulegum hætti, hver flytjandi fékk þrjár til fjórar klukkustundir í hljóðverinu Geimsteini og mátti nýta þann tíma eins og honum sýndist. Útkoman er afar fjölbreytt plata, allt frá hressandi pönki yfir í dúnmjúkar ballöður. Plötukápu prýðir forvitnilegur skúlptúr eftir eina af aðalsprautum Aftan festi- val, tónlistarmanninn Matta Óla, Martein Ólafsson, sem á eitt lag á plötunni. Listaverkið sýnir svið með nokkrum hljóðfærum sem skorin hafa verið út í við; gítar, kontrabassa, fiðlu og magnara sem og hljóðnema og -stand, allt klárt til tónleikahalds sumsé en flytjendur hvergi sjáanlegir. Matti segir plöturnar tvær vera söguheimild. „Við höldum utan um það sem við höfum verið að gera, kaupum tíma í Geimsteini og út- hlutum þeim til listamanna. Síðan skiptum við okkur ekkert af því sem þau gera,“ segir hann. Á Aftan festivali hafi komið fram stór- efnilegir tónlistarmenn og nefnir Matti sem dæmi hljómsveitina Klassart. „Hún kom í fyrsta skipti fram hjá okkur,“ segir Matti um Klassart og nefnir einnig hljóm- sveitirnar Eldar og 1860. Aftan festival hópurinn er misstór, allt eftir því hverjir eru virkir hverju sinni, að sögn Matta. Starfsemi hópsins sé mjög lýðræðisleg, tón- listarlífið öflugt í Sandgerði, sam- keppnin töluverð við Keflavík, nema hvað. helgisnaer@mbl.is Morgunblaðið/Sigurgeir S. Dúett Fríða Dís Guðmundsdóttir er í hljómsveitinni Klassart með tveimur systkinum sínum. Klassart kom fyrst fram á tónleikum Aftan festival. Grasrótartónlist á Suðurnesjum  Breiðskífan Aftan festival 2 gefin út Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is „Okkur langar fyrst og fremst að sýna fólki að danssýningar eru gott leikhús, þar sem hægt er að skemmta sér og hlæja,“ segir dans- höfundurinn Unnur Elísabet Gunn- arsdóttir. Hún er höfundur tveggja nýrra dansverka, Hringrásar og Heimsóknartíma. Sýningarnar tvær verða eingöngu settar upp einu sinni, í dag 4. júlí í Gaflaraleikhús- inu í Hafnarfirði. Dansflokkurinn kallar sig Undúla og er hópur stelpna á aldrinum 17- 21 árs. Þær stunda ýmist nám í list- dansskólanum eða eru nýútskrif- aðar. „Okkur langaði að skapa vettvang fyrir nýja, efnilega og flotta dansara til að sýna hvað í þeim býr. Og reyna að vinna á móti hugmyndum fólks að danssýningar séu eitthvað skrýtnar og öðruvísi því reynsla margra er á þá leið að þetta sé ekki nærri eins furðulegt og það bjóst við. Markmiðið er að fá sem flesta til að mæta. Þetta er fyrst og fremst hressilegt „show“ þar sem fólk get- ur hlegið og haft gaman,“ segir Unnur Elísabet. Kómísk dansverk Verkin tvö eru kómísk en þó ólík að mörgu leyti. Hringrás er ögn al- varlegra og fjallar um klassíska efniviðinn; hringrás lífsins eins og nafnið getur til kynna. Allar tilfinn- ingar fá útrás; gleði, sorg og allt þar á milli. Heimsóknartími er öllu kóm- ískara að efni og byggingu. Verkið fjallar um tíu konur sem hafa verið lokaðar inni í fjölda ára og kapp- kosta við að finna sér eitthvað til dundurs. Óvæntar uppákomur sem reyna á þolrif þeirra munu vonandi kveikja á hláturtaugum áhorfenda þar sem reynt verður að ná sat- írískum undirtón. Finnskur texti fær einnig að fljóta með í nokkrum vel völdum senum. Hlutverkin eru öll jafn fyrirferð- armikil og ekkert eitt stórt burðar- hlutverk er um að ræða. Sýning- arnar eru 30 og 40 mínútna langar og munu reyna mikið á dansarana. Hvíldin verður kærkomin eftir sýn- ingarnar og Unnur Elísabet tekur undir að þetta hafi verið mikil törn og undirbúningurinn hafi gengið vonum framar. Dans, dans, dans Nokkrir úr hópnum tóku þátt í Dans, dans, dans sem Rúv var með á dagskrá síðastliðinn vetur. Mikil vakning varð í kringum dansinn og mátti greina í kjölfarið aukinn áhuga fólks á að kynna sér ýmsa kima dansmenningarinnar. Unnur Elísabet lenti í þriðja sæti í keppninni ásamt vinkonu sinni til margra ára, Emilíu Benediktu, en þær hafa báðar dansað með Ís- lenska dansflokknum. Í keppninni reyndi meðal annars á hæfileika þeirra beggja til að semja dans og ýmsar útfærslur á nútímadanslist- inni. Samhæfing þeirra var með ólíkindum á sviðinu. Spennandi veður að sjá útfærslu á dansverkinu en miðaverð er lægra en á bandaríska bíómynd. „Danssýningar eru gott leikhús“  Undúla flytur dansverkin Hringrás og Heimsóknartíma Morgunblaðið/Eggert Kraftur Frá æfingu Undúlu á dansverkunum í gær. „Þetta er fyrst og fremst hressilegt „show“ þar sem fólk getur hlegið og haft gaman,“ segir Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, höfundur verkanna Hringrásar og Heimsóknartíma. Leikhúsið Lyric í hverfinu Ham- mersmith í Lundúnum hefur greint frá því hvaða verk verða sýnd á næsta leikári þess og eru Hamskipti leikhópsins Vesturports þeirra á meðal en Vesturport er sagt með- framleiðandi uppsetningarinnar, á vefnum Playbill. Hamskiptin voru fyrst sýnd í leikhúsinu árið 2006 og svo aftur árið 2008. Sýningar á verkinu hefjast í Lyric 17. janúar á næsta ári. Hamskipti Úr hinni farsælu sýningu Vesturports, Hamskiptunum. Hamskiptin í Lyric Hammersmith Morgunblaðið/Eggert SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI - SÝND Í 2D OG 3D Ástir, kynlíf og Rokk og Ról Tom Cruise er stórkostlegur sem rokkarinn Stacy Jaxx kvikmyndir.is Spennuhrollur sem fær hárin til að rísa ! ÞAUHÉLDUAÐENGINNHAFIORÐIÐ EFTIR Í CHERNOBYL…EN SVOVAREKKI. FráORIN PELI, höfundi Paranormal Activity - „Spooky as hell“ – S.B. - Dread Central  EGILSHÖLL 12 12 12 16 VIP 12 12 12 12 12 12 L L L L ÁLFABAKKA 12 L L AKUREYRI 16 16 16 KEFLAVÍK 12 12 16 TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á AMAZINGSPIDER-MAN KL. 5 - 8 - 10:50 3D AMAZINGSPIDER-MANVIP KL. 5 - 8 - 10:50 2D AMAZINGSPIDER-MAN KL. 4 - 10:10 2D CHERNOBYLDIARIES KL. 8 - 10:50 2D ROCKOFAGES KL. 5:30 - 8 - 10:502D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 3D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 3:40 - 5:50 2D SNOWWHITE KL. 8 - 10:10 2D THEDICTATOR KL. 8 2D UNDRALAND IBBA ÍSL.TALI KL. 3:40 2D 10 12 12 L L L KRINGLUNNI 16 ROCKOFAGES KL. 5:20 - 8 2D CHERNOBYLDIARIES KL. 10:40 2D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 5:50 - 8 3D MADAGASCAR3M/ÍSL.TALI KL. 5:50 2D MADAGASCAR3M/ENSKU.TALI KL. 10:10 2D LOL KL. 8 2D THEAVENGERS KL. 10:10 2D AMAZINGSPIDER-MANKL. 5:10 - 8 - 9 - 10:50 3D AMAZINGSPIDER-MAN KL. 6 - 10 2D CHERNOBYLDIARIES KL. 8 - 10:40 2D ROCKOFAGES KL. 5:20 - 8 2D MADAGASCAR3 ÍSLTAL KL. 6 3D MADAGASCAR3 ÍSLTAL KL. 6 3D ROCKOFAGES KL. 8 2D CHERNOBYLDIARIES KL. 10:20 2D UNDRALAND IBBA ÍSLTAL KL. 6 2D LOL KL. 8 2D SAFE KL. 10:20 2D THEAMAZINGSPIDERMAN KL. 8 - 10:50 3D LOL KL. 8 2D SAFE KL. 10 2D VINSÆLASTA SÖGUPERSÓNA VERALDAR SNÝR AFTUR Á HVÍTA TJALDIÐ Í SUMARSTÓRMYND ÁRSINS! MISSIÐ EKKI AF ÞESSARI“ ÚTSALA 38 ÞREP Laugavegi 49 / sími 561 5813

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.