Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012
Það verður nú ekkert sérstakt gert til hátíðabrigða, enda verð-ur konan í Ameríku, en hún starfar sem flugfreyja hjá Ice-landair,“ segir Sveinn Guðjónsson sem fagnar 65 ára afmæli í
dag. „Ég fer í sund í Laugardalslaugina og kíki svo líklegast í Flóru
í grasagarðinum.“ Hann segist ætla að bíða með hátíðahöld, „Ég
hugsa að meiri ástæða sé til að fagna eftir tvö ár, þegar ég verð lög-
gildur ellilífeyrisþegi. Þá verður blásið til veislu uppi í sum-
arbústað,“ segir Sveinn en í bústaðnum var veglegt sextugsafmæli
haldið fyrir 5 árum. Sveinn skemmti þjóðinni um árabil sem hljóm-
borðsleikari Roof Tops, auk þess sem hann spilaði með hljómsveit-
inni Haukum. „Þetta voru skemmtileg ár, bæði Roof Tops og Hauk-
ar voru ballhljómsveitir og þá var venjan að ferðast út á land og
halda alvöru sveitaböll. Það voru hörkusamkomur en mér skilst að
þær séu að mestu dottnar upp fyrir. Ég held að sjónarsviptir sé af
þessum gömlu góðu sveitaböllum,“ segir Sveinn. Hann tvinnaði sam-
an kennslu í Víðistaðaskóla og blaðamennsku á sínum yngri árum
en færði sig svo alfarið yfir í blöðin. „Ég fór í fullt starf hjá Morg-
unblaðinu ’81 og var í því með spilamennskunni í gegnum árin,“ seg-
ir Sveinn sem starfaði sem blaðamaður allt til ársins 2007, en þá hóf
hann störf sem skrifstofustjóri hjá Oddfellowreglunni á Íslandi.
„Þetta hefur allt farið ágætlega saman og verið bæði skemmtilegt
og lærdómsríkt,“ segir Sveinn að lokum. gudrunsoley@mbl.is
Sveinn Guðjónsson 65 ára
Morgunblaðið/Golli
Þúsundþjalasmiður Sveinn, sem starfaði áður sem kennari og
blaðamaður, vinnur nú hjá Oddfellowreglunni á Íslandi og líkar vel.
„Meiri ástæða til
að fagna eftir 2 ár“
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Leif Halldórsson,
fyrrverandi skip-
stjóri og útgerð-
armaður á Pat-
reksfirði, verður
sjötugur 7. júlí
næstkomandi.
Árnað heilla
70 ára
England Freyja Ellie fæddist 9. októ-
ber kl. 23.56. Hún vó 4.090 g og var
54,5 cm löng. Foreldrar hennar eru
Brynja Pálsdóttir og Julian Pool.
Nýir borgarar
S
verrir fæddist á Eskifirði
en flutti þriggja ára til
Grindavíkur og ólst þar
upp hjá kjörforeldrum
sínum.
Hann var í Barnaskóla Grindavík-
ur, lauk gagnfræðaprófi frá Héraðs-
skólanum að Skógum, stundaði síðar
nám við Stýrimannaskóla Íslands og
lauk þaðan prófum til skipstjórn-
arréttinda fiskiskipa 1962.
Sverrir fór fimmtán ára til sjós,
var eina vertíð á bát frá Vest-
mannaeyjum en síðan á bátum frá
Grindavík. Eftir skólann var hann
lengst af stýrimaður en stundaði út-
gerð 1964-66 og 1969-76, Hann var
skipstjóri á Grindavíkurbátum 1976-
87, lengst af á Vörðunesi GK og
Reyni GK, var vigtarmaður við höfn-
ina 1987-95, vaktstjóri þar 1995-2000
og hafnarstjóri Grindavíkurhafnar
2000-2012.
Sverris starfaði í Sjómannafélagi
Grindavíkur og var formaður þess
Sverrir Vilbergsson, fyrrverandi hafnarstjóri í Grindavík, 70 ára
Heiðraður Hjónin Sverrir og Elín af því tilefni að Sverrir var heiðraður af Sjómannadagsráði sl. sjómannadag.
Hið ljúfa líf iðjuleysis
Á Norðurlandi 2002 Sverrir og Elín með börnunum. Frá vinstri: Vilbergur
Flóvent; Jóhann Dalberg; Helga Þórey; Sverrir; Elín; Stefanía og Þorbjörg.
Að neðan: Anna Dóra og Heiðar Örn.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
- nýr auglýsingamiðill
569-1100
finnur@mbl.is
Verslunarrými
Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík
Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is
Verslunarhillur
Verðmerkilistar
Gínur
Útiskilti
Fataslár