Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012
Öllum ber saman um að Samfylk-ingin komi illa löskuð frá for-
setakosningunum.
Þannig á sig kom-in verður hún
að fást við þrjú stór-
mál sem öll standa í
henni. Styrmir
Gunnarsson orðar
þetta svo:
Á næstu mán-uðum verða þrjú mál efst á
dagskrá í pólitíkinni, ESB-málið,
þ.e. með hvaða hætti á að ljúka að-
lögunarferlinu, stjórnarskrármálið,
þ.e. að finna leið til að hraða endur-
skoðun stjórnarskrár m.a. til að
taka af öll tvímæli um stöðu og
hlutverk forseta Íslands og leið-
togaskipti í Samfylkingunni.
Gera má ráð fyrir að veruleghreyfing komist á umræður
innan Samfylkingarinnar í sumar
um eftirmann Jóhönnu Sigurð-
ardóttur og þrýstingur á hana mun
fara vaxandi um að taka af skarið í
haust og tilkynna, að hún hyggist
ekki gefa kost á sér til endurkjörs.
Hins vegar má búast við að Jó-hanna vilji sitja í embætti for-
sætisráðherra fram til næstu þing-
kosninga.
Um það verður áreiðanlegaágreiningur innan flokksins
af þeirri einföldu ástæðu, að það
yrði mjög erfitt fyrir nýkjörinn for-
mann, sem kosinn yrði annaðhvort í
haust eða í síðasta lagi í janúar að
hafa forystu í kosningabaráttu á
meðan Jóhanna sæti í stjórn-
arráðinu.
Ganga má út frá því sem vísu, aðum þetta verði miklar deilur
innan Samfylkingar.“
Styrmir
Gunnarsson
Missir einsmáls
flokkurinn málið?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 3.7., kl. 18.00
Reykjavík 13 léttskýjað
Bolungarvík 12 skýjað
Akureyri 14 skýjað
Kirkjubæjarkl. 10 alskýjað
Vestmannaeyjar 10 alskýjað
Nuuk 10 skýjað
Þórshöfn 9 þoka
Ósló 17 léttskýjað
Kaupmannahöfn 18 skýjað
Stokkhólmur 22 heiðskírt
Helsinki 21 heiðskírt
Lúxemborg 22 léttskýjað
Brussel 22 léttskýjað
Dublin 15 skýjað
Glasgow 18 léttskýjað
London 17 skúrir
París 22 skýjað
Amsterdam 21 léttskýjað
Hamborg 22 skýjað
Berlín 22 skýjað
Vín 29 skýjað
Moskva 23 skýjað
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 33 heiðskírt
Barcelona 26 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 28 heiðskírt
Aþena 27 léttskýjað
Winnipeg 26 léttskýjað
Montreal 23 skýjað
New York 28 heiðskírt
Chicago 31 skýjað
Orlando 30 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
4. júlí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:14 23:52
ÍSAFJÖRÐUR 2:14 25:02
SIGLUFJÖRÐUR 1:52 24:49
DJÚPIVOGUR 2:31 23:33
Engar reglur virðast gilda um hvað
megi merkja „Made in Iceland“, eða
„Búið til á Íslandi“, en ýmsir vilja
meina að lopapeysur sem framleiddar
séu erlendis sigli undir fölsku flaggi
sem íslensk framleiðsla.
Erna Björnsdóttir, verkefnisstjóri
hjá Íslandsstofu, segir ljóst að þegar
komi að tollamálum sé upprunaland
flíkur ávallt það land þar sem hún er
framleidd, burtséð frá því hvort hönn-
unin eða hráefnið er íslenskt. Hins
vegar séu ekki til neinar reglur um
hvaða vörur megi kalla íslenskar.
„Í rauninni eru ekki til reglur um
hvað má kalla íslenskt og eftir því
sem ég best veit þá eru heldur ekki
gerðar kröfur um að það þurfi að
standa á flík hvar hún er framleidd,“
segir Erna. Hún hafi þó ekki orðið
vör við að fólk merki vörur sem fram-
leiddar eru erlendis „Made in Ice-
land“, heldur sé lögð áhersla á að
hönnunin og hráefnið sé íslenskt.
Í svari frá Samtökum iðnaðarins,
við fyrirspurn um það hvernig sam-
tökin skilgreini íslenska framleiðslu,
kemur fram að SI hafi stuðst við þá
skilgreiningu að ef hráefni sé um-
breytt á Íslandi og skilji eftir sig virð-
isauka, þá teljist það íslensk fram-
leiðsla. Þó sé ekki til einhlítt svar við
því hvenær vara telst íslensk.
„Almennt má þó segja að um leið
og hráefnum er umbreytt á Íslandi í
verðmætari afurð geti hún talist ís-
lensk. Við þetta verður til innlendur
virðsauki sem felst í því að launa-
greiðslur renna til starfsmanna sem
vinna við framleiðsluna og reksturinn
skilar eigendum arði,“ segir m.a. í
svarinu. holmfridur@mbl.is
Liggur ekki fyrir hvað er íslenskt
Morgunblaðið/Ómar
Ull Lopapeysan stendur fyrir sínu.
Bryndís Eiríksdóttir, framkvæmda-
stjóri Handprjónasambands Íslands,
segir fulla þörf á því að upprunavotta
íslenska framleiðslu úr íslensku hrá-
efni. Hins vegar dugi það ekki til, þar
sem vara framleidd erlendis yrði
áfram seld undir villandi formerkj-
um.
„Við höfum oft verið skammaðar
að sumrinu fyrir það að vörur séu á
markaðnum sem eru ekki fram-
leiddar á Íslandi en líta alveg eins út,“
segir Bryndís. „Vörurnar eru merkt-
ar þannig að maður getur engan veg-
inn ráðið í það hvaðan þær koma og
endar á því að halda að þetta sé nú
sennilega íslenskt,“ segir hún.
Bryndís kallar það útúrsnúning að
merkja vörurnar „Icelandic design“
eða „Design from Iceland“, það þurfi
einnig að taka það fram hvaðan vör-
urnar komi þannig að viðskiptavin-
urinn geti tekið upplýsta ákvörðun.
Villandi merking?
Þær reglur sem Neytendastofa
hefur eftirlit með kveða ekki á um að
textíll skuli upprunamerktur, að sögn
Þórunnar Önnu Árnadóttur, sviðs-
stjóra neytendaréttarsviðs. Hins veg-
ar kannar stofnunin nú hvort merk-
ingar og kynning á lopapeysum sem
framleiddar eru erlendis séu villandi
en þess má vænta að sú vinna standi
eitthvað fram eftir sumri.
holmfridur@mbl.is
Nauðsynlegt
að uppruna-
merkja
Með nýrri kynslóð öryggismyndavélakerfa hjá Svar tækni getur þú núna fylgst
með beinni útsendingu úr myndavélunum hvar sem þú ert staddur, hvort sem
er í gegnum tölvu, iPad eða snjallsíma. Hærri upplausn en þekkst hefur hjá
eldri kynslóðum gerir þér svo kleift að þekkja þann sem er á myndinni.
Ný kynslóð
öryggismyndavéla
SÍÐUMÚLA 35 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS