Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012 ✝ Kristinn HelgiBenediktsson, ljósmyndari og blaðamaður, fædd- ist í Hafnarfirði 4. október 1948. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 23. júní 2012. Foreldrar hans eru Benedikt Sveinsson, f. 23. mars 1926, skipasmiður og að- albókari frá Mjóafirði eystri og Þórdís Kristinsdóttir, f. 23. október 1930, húsmóðir og bókari, Hafnarfirði. Foreldrar Benedikts voru Sveinn Bene- diktsson, útvegsbóndi, Borg- areyri, Mjóafirði eystri og kona hans Steinunn Þorsteins- dóttir. Foreldrar Þórdísar voru Kristinn Jóel Magnússon, málarameistari, Hafnarfirði og kona hans María Albertsdóttir. Systur Kristins eru Steinunn María, f. 23. apríl 1952 og Svava Björk, f. 25. janúar 1957. Kristinn kvæntist 1974 Gunnhildi Guðrúnu Guðlaugs- dóttur frá Grindavík, þau skildu. Börn Kristins eru; Hildur Sigrún, f. 2. desember 1972, gift Pétri Lentz, þau visst úti á sjó fyrir tímaritið Sjávarfréttir sem þá var gefið út og var forveri Fiskifrétta. Um árabil bjó Kristinn í Grindavík þar sem hann starf- aði við verkstjórn í salt- fiskverkun auk þess sem hann stundaði sjómennsku í nokkur ár. Hann var framkvæmda- stjóri Bláa lónsins um tíma. Undanfarin ár vann hann í blaðamennsku og ljósmyndun í sjávarútveginum, ritstýrði m.a. Sjómannadagsblaði Grindavík- ur sem er um 100 síðna mynd- arlegt blað en það var eitt af síðustu verkum Kristins að koma blaðinu fyrir árið 2012 í prentun og fékk að sjá það líta dagsins ljós á sjómannadaginn. Kristinn var mjög öflugur í fé- lagsstarfi, starfaði m.a. með Sjálfstæðisflokknum í Grinda- vík, Lions og JC-Grindavík en hann var einn af stofnendum þar. Hann tók líka þátt í mörgum af uppákomum Grindavíkurbæjar með sínu vinnuframlagi s.s. dagskrá „Sjóarans síkáta“ o.m.fl. Eftir Kristin liggur aragrúi mynda og hefur hann haldið fjölda ljósmyndasýninga um allt land og þá fyrst og fremst með myndum frá sjómennsku og landvinnslu á fiski. Síðasta sýning Kristins var opnuð sl. sjómannadag í Víkinni – Sjó- minjasafni Reykjavíkur. Kristinn verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafn- arfirði í dag, 4. júlí 2012, kl. 15. eiga tvö börn; Rakel, f. 19. apríl 1973, hún á einn son; Svala, f. 10. júlí 1976, sam- býlismaður hennar er Baldur Knúts- son, þau eiga þrjá syni; Jóel, f. 25. nóvember 1977, kvæntur Lindu Þóru Grétars- dóttur, þau eiga einn son, fyrir á Linda tvær dætur. Kristinn ólst upp í Hafn- arfirði. Hann stundaði nám hjá Þóri Óskarssyni ljósmyndara í Reykjavík á árunum 1966- 1970. Samhliða náminu starf- aði hann hjá Morgunblaðinu undir handleiðslu Ólafs K. Magnússonar ljósmyndara. Að námi loknu var Kristinn fast- ráðinn ljósmyndari Morg- unblaðsins til 1975 en þá fór hann til frekara náms í faginu í Bandaríkjunum. Á árunum 1976-1979 starfaði Kristinn sem ljósmyndari og blaðamað- ur fyrir tímaritið Sjávarfréttir og einnig starfaði hann sem fréttaritari Morgunblaðsins í Grindavík á níunda áratug síð- ustu aldar. Árið 1976 fór Kristinn að taka myndir mark- Hjarta mitt er uppljómað af kærleik og visku. Faðir minn, þú varst hugsjónamaður, bar- áttumaður og mikill listamaður. Við vorum ekki bara lík í útliti. Áhugamál og störf okkar sam- einuðu okkur undanfarinn ára- tug. Samskipti okkar lituðust af kærleik, gagnkvæmri virðingu og skilningi. Ég var ekki lengur barn í leit að föður mínum og viðurkenningu. Í núinu vorum við jafningjar og vinir. Ég er þakklát fyrir þær stundir sem við áttum saman; löngu sam- tölin, leikhúsferðirnar og alla samvinnuna. Það var erfitt að sjá þig mik- ið veikan. Þú kvartaðir aldrei og kunnir að lifa fyrir núver- andi stund. Þú fagnaðir öllum verkefnum sem á veg þinn féllu og varst alls ekki á förum. Það var hreint ótrúlegt að sjá hvað þú varst duglegur, kjarkaður og sterkur. Þögull og æðrulaus beiðst þú lífsins handan dauð- ans, pabbi minn. Þú varst sann- færður um kærleikann sem beið þín. Ég er þakklát fyrir að hafa getað kvatt þig í sátt. „Pabbi, ég er að koma til þín!“ símtalið var stutt og þú sóttir mig heim. Ég var átta ára. Huggunar leita ég í minn- ingum okkar. Þornaðir farvegir tára toga í brosið sem fæðist yfir gleðinni og þakklætinu að þú þjáist ekki lengur. Við mun- um hittast á ný því ég veit að þú munt halda loforð þitt. Guð styrki alla fjölskyldu okkar og vini á þessum tímamótum! Þú verður alltaf elsku pabbi minn. Rakel. Elsku besti pabbi minn, nú hefur þú kvatt okkur. Minning um þig lifir í ljós- myndum. En ég á frábærar æskuminningar um þig sem ekki koma fram á ljósmyndum. Þú sem vildir allt fyrir mig gera og fékk ég alltaf að vera með þér og taka þátt í því sem þú varst að gera. Man svo vel allar ferðirnar inn á Morgunblaðið, sem þá var við Aðalstræti, eftir körfubolta- leiki hjá Grindavík seint um kvöld, því fréttin varð að ná blaðinu daginn eftir. Og á heim- leiðinni ræddum við um öll heimsins mál og þú lagðir fyrir mig lífsreglurnar og gildin. Oft í þessum heimferðum var ég yf- irbugaður af þreytu og fékk ég að leggjast með höfuðið í kjöltu þína og þú straukst á mér ljós- hærða kollinn til svefns. Man svo vel Skotlandsferð- ina okkar saman, þar sem Mogginn vildi að þú færir að fylgja eftir frétt um svikamál í viðskiptum með fisk og auðvit- að fékk ég að fara með þá um 10 ára gamall. Í þeirri ferð var þér svo umhugað um fréttina að gisting var aukaatriði. Enda kom á daginn seint um kvöld þegar vinnudegi var lokið að þá átti að fara að reyna að útvega gistingu. Eina hótelið á stóru svæði í Norður-Skotlandi neit- aði okkur um gistingu og þú sagðir bara: „við gistum bara í bílnum, þetta verður ekkert mál“. Þetta voru svo kjörorð þín í mínu uppeldi „þetta er ekkert mál, við reddum þessu“. En hótelstjórinn sá aumur á okkur og skaut yfir okkur gist- ingu heima hjá sér. Þetta er ferð sem ég mun aldrei gleyma. Man svo vel þegar við bekkj- arsystkinin í 10. bekk í Grunn- skóla Grindavíkur vorum svikin um útskriftarferð og þú sættir þig ekki við það heldur fékkst annað foreldri með þér í lið, pantaðir rútu og skipulagðir ferðina á 10 mínútum, svo var bara farið af stað – ógleyman- legur dagur og tala fyrrverandi bekkjarfélagar mínir enn um þennan dag og hvernig þú bjargaðir honum. Man svo vel þegar þú varst á sjónum og hve erfitt var að vera án þín. Eitt skipti vildi ég koma með í túr og fékk að fara með auðvitað. Ég hef aldrei upplifað annan eins hrylling og í þessa 10 daga úti á sjó, greini- legt að sjómannseiginleikar voru ekki innra með mér. En þú stóðst við hliðina á mér og við bakið á mér og hjúkraðir mér á milli þess sem þú þurftir að sinna þínum skyldum og í raun hélst mér á lífi. Man svo vel þegar þú vannst í Hópsnesi í Grindavík. Þar ólst ég upp og alltaf fékk ég að sniglast í kringum þig þar. Þú lést mig alltaf fá skemmtileg- ustu verkefnin eins og t.d. að hjálpa Viggó heitnum í mót- tökunni að moka síldinni á færi- bandið eða að hjálpa frænkum mínum með að raða síldinni í botninn á tunnunum. Elsku pabbi minn, þetta er bara brot af þeim minningum sem ég á um okkur saman sem ég mun varðveita um ókomna tíð. Þegar ég hugsa til baka þá myndi ég óska þess að öll börn gætu átt svona pabba eins og ég átti. Hvíl í friði elsku besti pabbi í heimi, þinn sonur Jóel. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Elsku tengdapabbi minn og afi okkar, við kveðjum þig með þakklæti, virðingu og hlýju í hjarta okkar, fyrir allar minn- ingarnar okkar saman. Öll jólin í bústaðnum sem okkur þótti svo gott að vera með þér og sama hversu veikur þú varst eða þreyttur mættir þú, tókst ekki annað í mál eins að fara í jólamessu í Skálholti á jóladag þar sem þú dottaðir oftast. Eins varst þú ávallt mættur að taka myndir af flestum dans- mótum hjá Jóel Þór og það er ómetanlegt að eiga þessar myndir í dag. Þú varst alltaf boðinn og búinn að leggja það á þig að mæta þó heilsan hafi ekki verið góð og aldrei tókstu í mál að ég mætti hjálpa þér að bera ljósmyndatöskuna þína. Þú varst svo mikill eljumaður og ósérhlífinn, duglegur og hlýr, mér þótti það ómetanlegt að fá að hlúa að þér, vaka yfir þér og annast þig síðustu dag- ana þína með þínu yndislega fólki þar til yfir lauk. Þú barð- ist hetjulega allan tímann en núna ertu búinn að fá hvíldina og er þjáningunni þinni lokið. Minning þín lifir í hjörtum okkar. Guð blessi þig, kallinn minn. Þín tengdadóttir, Linda Þóra og afabörnin. Kveiktu þessari kolu á kvölda þegar fer, og minningarnar minna þá á margt, sem yljar þér. Lát svo streyma um þanka þinn þær fögru minningar. Þær orna munu þér enn um sinn allar, svo frábærar. (Þorgeir Ibsen) Bróðir minn er fallinn frá langt fyrir aldur fram, í átta ár barðist hann hetjulega við krabbameinið sem hefur nú lagt hann að velli. Minningarnar streyma fram eins og myndir á tjaldi, myndir frá bernskuárunum eru fyrir- ferðarmiklar, um stóra bróður sem lét sér mjög annt um syst- ur sína. Mín fyrsta bernskuminning er þar sem við kútveltumst á eldhúsgólfinu heima í Fögruk- inn, hann var reiðhesturinn minn og ég hafði oltið af baki og æpti upp „þú ert að (d)repa mig“, svo var orgað, síðan hleg- ið, svo var aftur stigið á bak og þeyst um eldhúsgólfið. Hann var leiðtogi, við lékum okkur saman í bófaleikjum, boltaleikjum, bílaleikjum og fleirum hefðbundnum strákal- eikjum því það var bara þannig að ef mig langaði að vera með í leikjunum hans var ekki nema sjálfsagt að ég fengi að vera með, hann tilkynnti bara vinum sínum að ef ég fengi ekki að vera með þá gæti hann ekki leikið við þá og alltaf fékk ég að vera með í öllum leikjunum. Það voru forréttindi að eiga hann fyrir stóra bróður enda öfunduðu vinkonur mínar mig af honum. Hann lánaði mér dót- ið sitt og bækurnar sínar, hann átti frábærar bækur; Ævintýra- bækurnar, Dularfullubækurnar og Fimmbækurnar eftir Enid Blyton, bækurnar um Árna í Hraungerði eftir Ármann Kr. Einarsson o.fl., hann var enn að lána mér bækur nokkrum dög- um fyrir andlát sitt. Aldrei kvartaði hann eða am- aðist við mér þótt ég væri að gramsa í herberginu hans en þar fann ég margan fjársjóðinn því hann var mikill safnari, safnaði m.a. frímerkjum og úr- klippum, hann klippti úr Morg- unblaðinu skrýtlur, myndirnar eftir Sigmund og teiknimynda- sögur sem hann límdi snyrti- lega inn í gamlar stílabækur, það var mikið ævintýri að fletta þessum bókum og ég fletti þeim aftur og aftur. Á haustin beið ég spennt eft- ir að stóri bróðir kæmi heim úr sveitinni því þá héldu ævintýrin áfram. Það voru forréttindi að sitja í horninu í myrkrakompunni þegar hann var að framkalla og kópera myndirnar sínar, sjá hvernig útlínur ljósmyndarinn- ar byrjuðu að myndast á papp- írnum og smám saman sjá myndina fullgerast og hann að lýsa fyrir mig þessum undrum. Ég kynntist nýju byltingunni í tónlist í gegnum hann, Bítl- arnir, Rolling Stones, Kinks o.fl. Á leið úr vinnu kom hann við í Vesturveri, keypti nýjustu plötuna hverju sinni og ég spil- aði á ferðagrammófóninn hans eins oft og ég vildi, hann var alæta á tónlist og ég naut góðs af. Hann sá til þess að ég fengi miða á tónleika með útlensku hljómsveitunum sem komu til landsins, Kinks, Led Zeppelin o.fl. Minningarbrotin eru ótelj- andi. Í veikindum hans rifjuðum við oft upp þessa tíma, hlógum og skemmtum okkur yfir þess- um góðu æskuminningum, þá gat ég sagt honum hversu dýr- mætar allar þessar minningar væru mér. Elsku bróðir, Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem) Þín systir, Steinunn. Kristinn minn, Guð er í öllu sem lifir. Andi þinn yfirgaf jarðlíkamann og allar þjáningar hans. Þú lifir áfram og Guð sendi þér kærleiksveru til að leiða þig inn í ljósið. Ég veit það af því ég bað hann um það. Á himnum er haldin veizla til að bjóða þig velkominn í enda- lausan kærleika. Þig þarf ekki lengur að hugga eða styrkja, þú ert himnanna barn. Foreldrar þínir, Þórdís og Benedikt, hafa það erfiða verk- efni að kveðja þig, fallega, sterka, elsku drenginn sinn. Þau fagna að veikindum þínum er lokið, en réttara væri að hafa þig hér áfram, hraustan og á fullu í list þinni. Tíminn er á milli okkar, en Guð ræður. Sú stund kemur að við skiljum af hverju foreldrar þurfa að sjá á eftir barni sínu. Þar til bregður þér fyrir í snöggum svipbrigð- um foreldra þinna og ættingja. Lítill gutti á bak við brosin og glæsimenni bak við stoltið í röddum þeirra. Stundum stutt í hláturinn yfir þrjózku þinni, óendanlegum dugnaði og bar- áttuvilja. Guð geymi foreldra þína og systur, Steinunni og Svövu. Þeim þótti undur vænt um þig, bróður sinn. Þú lifir áfram hér, í börn- unum þínum og barnabörnum. Rakel, dóttir okkar, hefur sama dugnað og baráttuvilja og þú. Hún ber svipbrigðin þín og fal- legu brúnu augun þín. Hún sér þig líka í Jöklinum sínum og við munum segja honum frá afa sínum með virðingu og elsku. Myndirnar þínar munu auka ímyndunaraflið og gefa barna- börnunum ástæðu til að spyrja og hugsa um afa sinn. Börnin þín, Rakel, Svala, Sigrún og Jóel, missa þig of fljótt. Ég veit að þú elskar þau öll, þótt þú ættir kannski erfitt með að tjá það. Þau eru öll ein- staklega falleg og vel gerðir einstaklingar. Guð gefi þeim öllum styrk og fallegar minn- ingar um þig. Góða ferð heim, elsku vinur. Bergný H. Guðmundsdóttir. Brennandi áhugi á lifandi flutningi popptónlistar leiddi okkur Kristin saman fyrir nærri 45 árum. Hann vildi fanga innlifun tónlistarmann- anna á mynd; ég vildi skrifa um frammistöðu þeirra. Morgun- blaðið varð samstarfsvettvang- ur okkar næstu árin. Við vörð- um fjölmörgum kvöldum saman á tónleikum, dansleikjum og öðrum viðburðum og síðan í myrkrakompunni þar sem Kristinn fínpússaði myndirnar, dró fram það sem skipti máli. Þarna stofnaðist traust vinátta sem síðar leiddi til mikilvæg- ustu ákvörðunar lífs míns. Kristinn var hugmyndaríkur og fylginn sér, dreif í að fram- kvæma það sem hugur hans stóð til. Ég var um sumt ólíkur honum, varfærnari og þurfti að hugsa mig lengur um. Þessir eiginleikar okkar nýttust vel í poppumfjöllun; hann var fljótur að grípa tækifærin, smella af á réttu augnabliki, en ég fékk lengri tíma til að pæla, greina og koma orðum að því sem fyr- ir augu og eyru bar. Minnisstæðar eru ferðir okk- ar út á land á popphátíðir, sveitaböll og í almenna frétta- öflun. Í einni ferðinni leiddi Kristinn mig til vinafólks í Svarfaðardal þar sem hann hafði verið í sveit á sumrin og þar fann ég glöggt hve vin- margur og vinsæll hann var, enda átti hann afar auðvelt með að ná til fólks, glaðvær að eðlisfari, hjartahlýr og bjart- sýnn. Á þessum árum vann menntaskólastúlka í afleysing- um sem símadama á ritstjórn Morgunblaðsins og á meðan filmur voru í framköllun settist Kristinn gjarnan hjá henni og ræddi málin. Þegar færi gafst reyndi hann að vekja athygli hennar á mér, fór um mig fögr- um orðum – en sagði mér ekk- ert frá þessum tilraunum. Með sama hætti sætti hann lagi til að beina athygli minni að stúlk- unni og hvatti mig til að bjóða henni á árshátíð Moggans sem var framundan. Feimnin hrjáði mig, en Kristinn gafst ekki upp og á endanum steig ég skrefið, hringdi í stúlkuna fyrir hans áeggjan – og hún þáði boðið. Þetta skot ljósmyndarans hitti í mark og við Lilja Jón- asdóttir höfum nú verið gift í rúm 40 ár. Hann fylgdi hjú- skaparmiðluninni vel eftir, tók myndir í brúðkaupi okkar og við ýmis tækifæri næstu árin. Við eigum Kristni mikið að þakka og sem betur fer nýttum við margar samverustundir undanfarin ár til að þakka hon- um. Við Kristinn létum af störf- um hjá Morgunblaðinu um líkt leyti á áttunda áratugnum, fór- um í ólíkar áttir og leiðir lágu sjaldan saman. Fyrir nokkrum árum mættust þau Lilja á krabbameinsdeildinni og hann naut umönnunar hennar í erf- iðri glímu við sjúkdóminn. Þarna voru vinatengslin end- urvakin, eitt leiddi af öðru og fyrir ári ákváðum við Kristinn að vinna saman að útgáfu ljós- myndabókar um popptónlist ár- anna 1967-1975 með eftirminni- legum myndum hans og frásögnum mínum. Gerð bók- arinnar er komin vel á veg, þökk sé eljusemi Kristins. Hon- um var kappsmál að bókin yrði gefin út, en honum entist ekki aldur til að sjá þann draum rætast. Það kemur í minn hlut að ljúka verkinu og það er mér huggun að geta þannig þakkað Kristni með verðugum hætti fyrir ánægjulegt og árangurs- ríkt samstarf og fyrir einstakt framlag til lífshamingju minn- ar. Stefán Halldórsson. Fallinn er frá eftir hetjulega baráttu Kristinn Benediktsson ljósmyndari og blaðamaður. Kristinn var sjálfstæðismaður og starfaði með Sjálfstæðis- félaginu í Grindavík. Hann var félaginu styrk stoð í útgáfumál- um hvort heldur í ritstörfum eða ljósmyndun og átti hann stóran þátt í allri útgáfu félags- ins síðustu árin, ritstýrði m.a. tímariti félagsins Hrungnir. Kristinn var á lista Sjálfstæð- isfélagsins í síðustu bæjar- stjórnarkosningum og var um árabil í ritnefndinni. Hann var bóngóður maður og ávallt gott að leita til hans þegar eitthvað stóð til hjá félaginu. Sjálfstæð- ismenn þakka Kristni Bene- diktssyni samfylgdina og minn- ast hans með mikilli virðingu, hans er sárt saknað í Grinda- vík. Aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd stjórnar Sjálf- stæðisfélags Grindavíkur, Kristín Gísladóttir. Kristinn Helgi Benediktsson HINSTA KVEÐJA Guð geymi þig afi minn. Það var alltaf nóg af kossum og knúsum, Pepsi og myndum, mat og skemmtun, brosi og brönd- urum, fótboltadóti og gleði. Þinn afastrákur, Jóel Þór.  Fleiri minningargreinar um Kristinn Helga Benedikts- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.