Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.07.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012 Skúli Hansen skulih@mbl.is Flugfélagið WOW Air ehf. og flug- þjónustan Keflavík Flight Services (KFS) hafa kært meintar viðskipta- njósnir af hálfu Pálma Haraldsson- ar, aðaleiganda og stjórnarfor- manns flugfélagsins Ísland Express ehf. (Iceland Express), Björns Vil- bergs Jónssonar, rekstrarstjóra Iceland Express, og annarra ótil- greindra starfsmanna þess félags til lögreglu. Fara WOW Air og KFS fram á það að lögreglan hefji þegar opinbera rannsókn á málinu. Samkvæmt kæru sem Jóhannes Sigurðsson hæstaréttarlögmaður hefur lagt inn til rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu fyrir hönd WOW Air og KFS eru atvik málsins þau að hinn 16. júní sl. varð starfsmaður Isavia ohf. þess var í reglulegu eftirliti að flug- stjórnarmiðstöð hjá Iceland Ex- press á Keflavíkurflugvelli, OCC eða Operational Control Center, hleraði tetrarás KFS, þjónustuaðila WOW Air á Keflavíkurflugvelli. Þegar viðkomandi starfsmaður Isavia spurði Björn Vilberg Jóns- son, rekstrarstjóra Iceland Ex- press, út í málið þá viðurkenndi sá síðarnefndi að tilgangur hlerunar- innar væri sá að afla upplýsinga um farþegatölur og annað sem snýr að starfsemi WOW Air og að þær upp- lýsingar væru síðan sendar beint til Pálma Haraldssonar, aðaleiganda og stjórnarformanns Iceland Ex- press. Í kjölfarið tilkynnti viðkom- andi starfsmaður Isavia yfirmanni sínum atvikið og hafði hann auk þess samband við framkvæmda- stjóra Isavia ohf. og forsvarsmenn WOW Air. Læst talstöðvartíðni Eftir að WOW Air öðlaðist vitn- eskju um málið gerði það KFS við- vart. Í kærunni kemur fram að allar talstöðvar sem forritaðar eru með þeirri tíðni sem KFS notar séu í vörslu þess félags. Sú tíðni sé læst og telji KFS útilokað að starfsmenn Iceland Express hafi komist yfir þau samskipti sem þar fara fram nema þeir hafi annaðhvort komist yfir tal- stöð frá KFS eða hakkað sig inn á tíðnina. Þess ber þó að geta að Neyðarlín- an annast rekstur Tetra-talstöðvar- kerfisins. Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Neyðarlínunnar er Tetra- kerfið sérsniðið að þörfum við- bragðsaðila þar sem hröð og örugg samskipti skipta máli. Telja gróflega brotið gegn sér Í kærunni segir að WOW Air telji hina kærðu aðila hafa brotið gróf- lega gegn hagsmunum og réttindum sínum með því að hlera umrædda tetrarás án samþykkis og vitneskju WOW Air og KFS. Jafnframt kemur þar fram að WOW Air þyki ljóst að auðgunartilgangur hafi legið að baki meintum brotum hinna kærðu. Þá þykir WOW Air hin meintu brot vera sérstaklega ámælisverð og ófyrirleitin í ljósi þess að flugfélagið hóf nýlega starfsemi sem er í sam- keppni við starfsemi Iceland Ex- press. Loks telur WOW Air að líkur séu á því að hinir kærðu aðilar hafi ekki látið af meintum brotum sín- um, en fyrrnefndur starfsmaður Isavia telur að umrædd hlerun hafi staðið yfir í talsverðan tíma. KFS tekur í kærunni í svipaðan streng, en í kærunni segir að það sé ólíðandi að fyrirtæki með opinber starfsleyfi í flugrekstri, sem auk þess kaupi þjónustu á sama mark- aði og KFS starfar á, skuli hlera samskipti KFS við viðskiptamenn sína og þannig afla sér upplýsinga um atvinnuleyndarmál þeirra og mögulega persónuupplýsinga. Þá telur KFS ljóst að hinir kærðu að- ilar hafi vegið að starfsemi félagsins og brotið gegn réttindum viðskipta- manna þess. Þá segir í kærunni að umrædd brot hinna kærðu aðila kunni að varða við almenn hegningarlög, lög um fjarskipti (einkum 47. gr.) og lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu (einkum 16. gr. c). Brotin gætu varðað allt að tveggja ára fangelsi Samkvæmt 47. gr fjarskiptalaga er hvers kyns hlustun, upptaka, geymsla eða hlerun fjarskipta með öðrum hætti óheimil nema í þeim tilfellum þegar hún fer fram með samþykki notenda eða samkvæmt heimild í lögum. Kveðið er á um við- urlög við brotum gegn lögunum í 74. gr. þeirra en þar segir í 1. mgr.: „Brot á lögum þessum og reglu- gerðum settum samkvæmt þeim varða sektum, en [fangelsi allt að tveimur árum] ef sakir eru miklar eða brot ítrekuð.“ Í 16. gr. c laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetn- ingu er síðan kveðið á um að óheim- ilt sé, í atvinnustarfsemi þeirri er lögin taka til, að afla sér eða reyna að afla sér með ótilhlýðilegum hætti upplýsinga um eða umráða yfir at- vinnuleyndarmálum starfseminnar. Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. sömu laga varða brot gegn ákvæðum lag- anna fésektum eða allt að 6 mánaða fangelsi ef sakir eru miklar. Pálmi sakaður um viðskiptanjósnir  Rekstrarstjóri Iceland Express er sagður hafa viðurkennt fyrir starfsmanni Isavia að starfsmenn Iceland Express hleruðu fjarskipti WOW Air og sendu upplýsingar beint til Pálma Haraldssonar WOW Air er nýtt flugfélag sem hóf formlega áætlunarflug sitt hinn 3. júní síðastliðinn. Að- eins þremur dögum áður, eða 31. maí síðastliðinn, hafði flugfélagið flogið sitt jómfrú- arflug til Parísar. WOW Air flýgur til 13 áfangastaða í Evr- ópu. Flugfloti félagsins sam- anstendur af tveimur 168 sæta Airbus A320 farþegaþot- um sem félagið er með á leigu frá litháíska flugfélaginu Av- ion Express. Þegar WOW Air hóf starf- semi sína boðaði félagið aukna samkeppni á markaði og lægri fargjöld en áður höfðu sést. Boðuðu samkeppni UNGT FLUGFÉLAG Guðni Einarsson gudni@mbl.is Landssamband íslenskra útvegs- manna (LÍÚ) vill að íslensk stjórn- völd krefjist þess að dregin verði miðlína milli efnahagslögsögu Svalbarða og Noregs við Bjarnarey, syðsta útvörð Svalbarða- eyjaklasans. Einnig að Sval- barðasáttmálinn gildi Svalbarða- megin við miðlín- una. Við það myndi efnahags- lögsaga Svalbarða stækka um 83.000 km2. Nú nær lögsaga Noregs lang- leiðina til Bjarnareyjar. LÍÚ hefur einnig ítrekað fyrri áskoranir til stjórnvalda um að hagsmunir Ís- lands á Svalbarðasvæðinu verði varðir með því að stefna Norðmönn- um fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag vegna túlkunar þeirra á Svalbarða- samningnum. „Það þarf að skýra réttarstöðuna á Svalbarðasvæðinu,“ sagði Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ. Hann sagði að nú nýverið hefðu háttsettir norskir embættis- menn hótað því að segja upp Smugu- samningnum við Íslendinga. „Geri þeir það þá eigum við að fara og veiða bæði í Smugunni og við Sval- barða. Við Íslendingar og allir aðrir teljum að lögsaga Svalbarða eigi að byggjast á Svalbarðasamningnum þannig að sami réttur gildi frá fjöru- borði og út að 200 mílna mörkun- um.“ Friðrik sagði Norðmenn hafa helgað sér efnahagslögsögu við Sval- barða, frá 12 mílna landhelgi eyja- klasans og út í 200 sjómílur. Þetta geri þeir á grundvelli norskra laga um efnahagslögsögu Noregs og kalli svæðið „fiskverndarsvæði“. Þar eru þó stundaðar veiðar. Umdeild túlkun samningsins Svalbarðasamningurinn var und- irritaður í París 9. febrúar 1920. Ís- land varð aðili að honum 1994. Sam- kvæmt honum er viðurkenndur fullveldisréttur Noregs yfir Sval- barða en skip og þegnar aðildar- landa Svalbarðasamningsins eiga að njóta jafns réttar til auðlindanýting- ar innan efnahagslögsögu Sval- barða, svo fremi þeir fari að lögum og reglum. Friðrik sagði Norðmenn halda því fram að Svalbarðasamningurinn gildi aðeins á landi og út að landhelg- ismörkum eyjaklasans. Þau voru 4 sjómílur þegar samningurinn var gerður 1920 en síðar færðu Norð- menn landhelgina út í 12 sjómílur. Þeir túlka fullveldisrétt sinn þannig að þeir megi helga sér 200 mílna efnahagslögsögu frá 12 mílna land- helgislínu Svalbarða og út í 200 míl- ur kringum eyjaklasann. „Þessa túlkun samþykkja engir aðrir,“ sagði Friðrik. „Norðmönnum var falið fullveldi á Svalbarða, því einhver þurfti að stjórna þessu einskismannslandi, með því skilyrði að það gilti jafn réttur allra sem ættu aðild að samningnum. Við vilj- um meina að hann gildi alveg út að 200 sjómílna mörkunum og viljum láta reyna á það með því að stefna Norðmönnum fyrir Alþjóðadómstól- inn.“ Málsókn var undirbúin 2004 Friðrik rifjaði upp að ríkisstjórn Íslands hefði ákveðið 17. ágúst 2004 að hefja undirbúning málsóknar gegn Noregi vegna Svalbarða fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Það var gert vegna ítrekaðra meintra brota Norðmanna gegn ákvæðum Sval- barðasamningsins, m.a. með því að segja upp síldarsamningi við Íslend- inga og meina okkur að veiða norsk- íslenska síld á Svalbarðamiðum. LÍÚ hefur árum saman skorað á íslensk stjórnvöld að framfylgja rétti Íslendinga til veiða við Svalbarða og að fara í mál við Norðmenn. Áskor- unin hefur verið ítrekuð hvað eftir annað og henni beint ýmist til sitj- andi sjávarútvegsráðherra eða utan- ríkisráðherra. Á þessu ári hefur LÍÚ sent bæði utanríkisráðherra og sjávarútvegsráðherra nokkur erindi vegna Svalbarðamálsins og farið þess á leit að utanríkisráðuneytið krefjist þess að norsk stjórnvöld gefi út veiðileyfi fyrir íslensk skip til rækjuveiða á Svalbarðasvæðinu. Krefjast miðlínu við Bjarnarey Heimild: LÍÚ G ræ nl an d Ja n M ay en Sv alb ar ði Bj ar na re y Miðlína við Bjarnarey N or eg ur Færeyjar Ísland Smugan Guli reiturinn sýnir hvernig 200 mílna lögsögur Svalbarða og Noregs skarast við Bjarnarey. LÍÚ vill að þar verði dregin miðlína.  Lögsaga Svalbarða myndi stækka um 83.000 km2  Norðmenn hafa helgað sér umdeilt hafsvæði Friðrik J. Arngrímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.