Morgunblaðið - 04.07.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Páll Fannar Einarsson
pfe@mbl.is
Úlfar Eysteinsson, kenndur við
veitingastaðinn „Þrjá Frakka“ í
miðborg Reykjavíkur, mun bjóða
upp á heldur óhefðbundinn fiskrétt,
en hann fékk á borð til sín tunglfisk
á dögunum. Fiskurinn verður á
matseðlinum meðan birgðir endast.
„Ég fékk fiskinn hjá áhöfninni á
Sighvati Bjarnasyni VE sem fékk
hann fyrir slysni í netið hjá sér. Ég
er nú þekktur fyrir fisk og annað og
var mjög heppinn að fá hann til
mín,“ segir Úlfar, en skipið fékk
fiskinn í veiðarfærin þegar það var
á makrílveiðum.
Líkist skötu
Eftir að hafa skorið í tunglfisk-
inn, tók Úlfar eftir því að fiskurinn
er mjög líkur skötu. „Ég hef boðið
upp á ferska skötu hér hjá mér. Ég
mun því matreiða hann á svipaðan
hátt og skötuna og pönnusteikja
tunglfiskinn upp úr smjörlíki og
smjöri,“ segir Úlfar, en hann hefur
trú á því að þessi fiskur hafi aldrei
áður verið matreiddur á Íslandi.
„Fyrir tæpum 8 árum kom tungl-
fiskur í höfnina í Þorlákshöfn. Sá
fiskur var tekinn og stoppaður upp
og ég veit ekki til þess að kjötið hafið
verið nýtt til matreiðslu,“ segir Úlf-
ar og bætir við að menn þurfi svo að
fara 100 ár aftur í tímann til að finna
frásagnir um tunglfisk á Íslandi.
Fiskurinn bannaður
Tunglfiskar eru eitraðir og hefur
sala á þeim verið bönnuð í Evr-
ópulöndum með tilskipun frá 1991.
„Ég vissi þetta nú ekki, en við látum
bara reyna á þetta með sjálfan mig,“
segir Úlfar, en hann hefur þegar
smakkað fiskinn og segist ekki finna
fyrir neinum neikvæðum breyt-
ingum. „Ef ég verð eitthvað slappur
þá stroka ég réttinn út af seðl-
inum,“ segir Úlfar glettn-
islega, en hann hefur ekki
mikla trú á því að fisk-
urinn sé hættulegur
heilsu manna.
Fiskurinn verður á mat-
seðlinum í hádeginu í dag, en
um 12-15 kg eru í boði.
Sjaldséður tunglfiskur
fékkst á makrílveiðum
Tunglfiskur á matseðlinum Vafasamur en líkur skötu
Viðar Guðjónsson
Ómar Friðriksson
Óskir berast um breytingar á 70%
greiðsluaðlögunarsamninga í Nor-
egi á samningstíma. Í langflestum
tilfellum er það vegna þess að
skuldarar geta ekki staðið við upp-
haflegan greiðslusamning sem gerð-
ur var við kröfuhafa. Að sögn Svan-
borgar Sigmarsdóttur,
upplýsingafulltrúa hjá umboðs-
manni skuldara, má búast við svip-
aðri þróun á Íslandi.
Hún segir að óskir hafi einungis
borist um breytingar á 5-10 samn-
ingum hér á landi af þeim 889 sem
endað hafa með samningi. Svanborg
segir að það sé vegna þess hve stutt
sé síðan flestir samningar tóku gildi.
„Samningar fóru ekki að koma inn í
neinu magni fyrr en árið 2011. Bú-
ast má við því að stór hluti muni
biðja um breyttar samningsforsend-
ur á samningstímanum þegar
lengra er liðið síðan samningur var
gerður,“ segir Svanborg.
Heildarútgjöldin
um milljarður
Miklu færri mál berast nú til um-
boðsmanns en á seinasta ári. Að
meðaltali berast nú um 50 umsóknir
um greiðsluaðlögun á mánuði en
þær voru rúmlega 200 á mánuði í
fyrra. Í frétt blaðsins í gær var mis-
sagt að 1.755 málum hefði verið lok-
ið með samningum. Hið rétta er að
vinnslu 1.755 mála er lokið og þar af
hefur 889 málum verið lokið með
samningum milli skuldara og kröfu-
hafa og 14 með nauðasamningum,
að sögn Svanborgar.
Við afgreiðslu fjárlaga fyrir yfir-
standandi ár var samþykkt 455
milljóna viðbótarfjárheimild vegna
aukins málafjölda og alls gert ráð
fyrir 1.050 milljóna heildarútgjöld-
um umboðsmanns á þessu ári.
Ákveðið var að ráðast í stórátak til
að ljúka afgreiðslu mála og var því
spáð að á síðari hluta þessa árs
myndi umfang stofnunarinnar drag-
ast verulega saman. Það er að
ganga eftir, að sögn Svanborgar.
70% samninga
breytast í Noregi
Býst við svipaðri þróun á Íslandi
Greiðsluaðlögun
» Óskir berast um breytingar
á greiðsluaðlögunarsamn-
ingum í 70% tilfella í Noregi.
» Búast má við svipaðri þróun
á Íslandi.
» Um 50 mál berast embætt-
inu á mánuði. Í fyrra bárust um
200 á mánuði.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Kerfið var orðið þannig að hinir
efnameiru voru þeir einu sem gátu
nýtt sér tannlækningar fyrir börn sín.
Hlutur sjúklings var orðinn allt of
hár. Vonandi leiðir þetta til þess að
fleiri börn geti nýtt sér tannlækning-
ar hér á landi,“ segir Sigurður Bene-
diktsson, formaður Tannlæknafélags
Íslands, en um 42% barna á aldrinum
0-17 ára fara ekki til tannlæknis á
hverju ári skv. tölum frá árinu 2010.
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra hefur falið Sjúkratrygging-
um Íslands að hækka gjaldskrá vegna
almennra tannlækninga barna yngri
en 18 ára um 50%. Gjaldskrárbreyt-
ingin er tímabundin og gildir frá 1.
júlí til næstu áramóta. Áætlað er að
með þessu hækki hlutfall endur-
greiðslu raunkostnaðar úr tæpum
42% að meðaltali í 62,5% og hefur það
ekki verið hærra í tæpan áratug.
Ákvörðun velferðarráðherra er í sam-
ræmi við tillögu starfshóps um að 174
milljóna króna afgangur af fjárveit-
ingum ríkisins til tannlækninga verði
nýttur með þessum hætti.
„Þetta snýst um að nýta afgang af
framlögum sem alþingismenn hafa
ákveðið að setja í tannlækningar í
þágu barnafólks,“ segir Sigurður
Benediktsson, formaður Tannlækna-
félags Íslands.
Niðurskurður til tannlækninga árið
2012 nam um 121 milljón króna.
Heildarfjárframlög ríkisins í þennan
málaflokk eru um 500-550 milljónir
kr. Þessi upphæð skiptist á 70-80 þús-
und börn að sögn Sigurðar. Hann
vonast til þess að hærri framlög verði
veitt til tannlækninga barna á næsta
ári.
„Við vonumst til þess að fjárveit-
ingarvaldið skili til baka því sem tekið
var í síðustu fjárlögum. Þannig mætti
halda sömu gjaldskrá áfram á næsta
ári að minnsta kosti,“ segir Sigurður.
Samkvæmt ráðherragjaldskrá um
tannlækningar kostar hefðbundin
viðgerð nú 14.310 krónur, en fyrir
breytingarnar kostaði hún 9.450
krónur. Framlag ríkisins er 75% af
ráðherragjaldskrá og fer úr 7.155
krónum í 10.733 krónur. Hafa ber í
huga að tannlæknar eru með eigin
verðskrá sem er óháð ráðherragjald-
skrá. Samkvæmt upplýsingum frá
Tryggingastofnun eru dæmi þess að
gjald fyrir hefðbundna viðgerð kosti
um 100% meira hjá tannlæknum en
ráðherragjaldskrá gerir ráð fyrir.
Fleiri börn fari til tannlæknis
Morgunblaðið/Kristinn
Ódýrara Barnafólk borgar minna.
Niðurgreiðsla til tannlækninga barna eykst Fer úr 7.155 kr. í 10.733 kr.
Tímabundið til áramóta Formaður vonast eftir auknu framlagi
Tunglfiskur er þyngsti bein-
fiskur jarðar og getur verið yfir
tvö tonn að þyngd og rúmir þrír
metrar á lengd. Meðalþyngd er
um eitt tonn og meðallengd
tæpir tveir metrar.
Tunglfisk er aðallega að finna
í hlýjum sjó og nærast þeir eink-
um á marglyttum, smokkfiskum
og krabbadýrum. Munnur þeirra
er líkur goggi sem gerir þeim
kleift að brjóta harða skel
krabbadýranna.
Tunglfiskar eru ekki
hættulegir mönnum,
en helstu óvinir
fisksins eru sæ-
ljón, háhyrningar
og hákarlar.
Þyngsti bein-
fiskur jarðar
TUNGLFISKUR
Morgunblaðið/Ómar
Aðgerð Úlfar Eysteinsson ásamt syni sínum Stefáni Úlfarssyni og matreiðslumanninum Rúnari Þórarinssyni.
Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi
Capacent Gallup fengi Sjálfstæðis-
flokkurinn 30 þingmenn, Samfylk-
ingin 14 þingmenn, Framsóknar-
flokkurinn 10 þingmenn og Vinstri-
hreyfingin - grænt framboð 9
þingmenn, ef gengið yrði til kosn-
inga nú, samkvæmt upplýsingum
frá fyrirtækinu.
Samfylkingin mælist nú með 19%
fylgi og bætir við sig einu prósentu-
stigi frá fyrri mælingu, en Vinstri
grænir bæta við sig tveimur pró-
sentum og mælast með 12% fylgi.
Samkvæmt könnuninni er Sjálf-
stæðisflokkurinn stærsti flokkur
landsins með 38% fylgi. Framsókn-
arflokkurinn mælist með 13% fylgi.
Samstaða mælist með tæplega 5%,
Björt framtíð og Dögun með rúm-
lega 4% og Hægri grænir með tæp-
lega 4%.
Ofangreind skipting þingmanna
er eins, hvort sem reiknað er út frá
heildarfylgi á landsvísu eða út frá
hverju kjördæmi. Þeir flokkar sem
fá meira en 5% fylgi ná mönnum á
þing.
Könnunin var gerð 31. maí til 28.
júní. 5.400 voru í úrtakinu en svar-
hlutfallið var 60,2 prósent. 72 pró-
sent þeirra sem svöruðu tóku af-
stöðu til flokka. 14% kjósenda hafa
ekki gert upp hug sinn. pfe@mbl.is
Sjálfstæðismenn
fengju 30 þingsæti
Stjórnarflokkar bæta aðeins við sig
Þyrlur Landhelgisgæslunnar voru
kallaðar út 26 sinnum í júní vegna
sjúkraflutninga, leitar, björgunar og
aðstoðar við lögreglu og slökkvilið,
að því er fram kemur á vef LHG.
Samtals voru fluttir 22 sjúklingar og
voru flest útköllin vegna sjúkra-
flutninga eða samtals 17.
Til samanburðar má nefna að á
sama tíma í fyrra voru þyrlurnar
kallaðar út 17 sinnum, 6 útköll voru
vegna sjúkraflutninga. Þá voru 15
sjúklingar fluttir með þyrlunum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LHG Nóg að gera hjá þyrlunum í júní.
Annir í júní hjá
þyrlum Gæslunnar