Morgunblaðið - 04.07.2012, Page 9

Morgunblaðið - 04.07.2012, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JÚLÍ 2012 Starfsmenn ÍAV hf. vinna í sumar af fullum krafti við gerð Sauðárveitna á Hraunum. Með þessum framkvæmd- um mun afkastageta Fljótsdalsstöðv- ar Kárahnjúkavirkjunar aukast um 40 GWst á ári. Innri- og Ytri-Sauðá eru tvær austustu árnar á virkjunarsvæði Kárahnjúkavirkjunar. Vatni frá væntanlegri Sauðárveitu verður veitt í Grjótá en frá Grjótárlóni liggja jarð- göng yfir í Kelduárlón, sem er hluti af mannvirkjum Kárahnjúkavirkjunar. Tilboð voru opnuð í stíflufram- kvæmdir og skurði í vor og var geng- ið til samninga við ÍAV hf. Eru verk- lok áætluð 1. október næstkomandi. Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Landsvirkjunar, segir að gerðar verði tvær fremur lágar stíflur auk skurðarmannvirkja. Stíflan sem reist verður í Innri-Sauðá verður sjö metra há. Skurðir eru misdjúpir en dýpstur skurður verður grafinn við Innri-Sauðá sem verður 14 metra djúpur. Framkvæmdir í sumar gátu ekki hafist fyrr en 20. júní vegna mikilla snjóa en þær fara fram í um 800 metra hæð yfir sjávarmáli. „Núna eru 16 manns á verkstað en áætlað er að 20 til 30 starfsmenn verði þarna í sumar,“ segir Óli Grét- ar. Á seinasta sumri var lokið við vegagerð vegna Sauðárveitu, settar voru upp vinnubúðir og hafinn gröft- ur veituskurða. Sauðárveita verður að öllu óbreyttu tekin í notkun 1. október nk. omfr@mbl.is Framkvæmdir í fullum gangi Fyrirsögn hér Fyrirhuguð Innri-Sauðárveita og Ytri-Sauðárveita Kortið er byggt á gögnum Landmælinga Íslands ÚRVAL FATNAÐAR OG GJAFAVÖRU Opið virka daga frá 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646 Þrír karlar voru handteknir á sunnudag í aðgerðum lög- reglunnar í tengslum við rannsókn hennar á umfangs- miklu smygli. Lagt var hald á áfengi, tóbak og mikið magn af töflum, en talið er að um steratöflur sé að ræða. Töfl- urnar eru um 10 þúsund talsins. Lögreglan tók einnig í sína vörslu 200 ampúlur og verulegt magn af sterum í vökvaformi. Þremenningarnir, sem allir eru skipverjar hjá Eimskipi, hafa játað aðild sína að málinu, segir í frétt frá lögreglunni. Tveir mannanna voru handteknir í Vestmannaeyjum, en þeir fóru þaðan á litlum fiskibáti og sóttu varninginn þegar honum varpað í sjóinn af skipverja á Brúarfossi. Skipið var þá á siglingu á milli lands og Vestmannaeyja, en lögreglu- menn fylgdust með ferðum þess og sáu þegar fimm plast- dunkum, festum við flotholt, var varpað í sjóinn. Mennirnir á fiskibátnum sigldu með góssið til Vest- mannaeyja og voru að bera það í land þegar lögreglan handtók þá, eins og að framan greinir. Áðurnefndur skip- verji var svo handtekinn þegar Brúarfoss kom til Reykja- víkur á sunnudagskvöld. Í rannsókn í nokkrar vikur Rannsókn málsins hófst fyrir nokkrum vikum, eða þeg- ar lögreglan komst á snoðir um fyrirhugað smygl. Rann- sóknin var unnin í samvinnu við lögregluna í Vestmanna- eyjum og tollgæsluna. Sóttu smyglgóss á smábáti  Þrír menn hafa játað smygl á áfengi, tóbaki og sterum Matvöruverslun Iceland-keðjunnar verður opnuð 28. júlí í Engihjalla í Kópavogi í húsnæði sem áður hýsti verslun 10/11. Búið er að ráða starfsfólk í allar stöður, um níu manns, og hefur það þegar hafið störf. Jóhannes Jónsson, áður kenndur við Bónus, er fram- kvæmdastjóri Iceland á Íslandi. Iceland-verslun opn- uð í Engihjallanum Egill Einarsson hefur lagt fram kæru á hendur stúlku sem kærði hann fyrir nauðgun. Hann hefur einnig lagt fram kæru á hendur vinkonum hennar og óskað eftir lögreglurannsókn á kæru stúlk- unnar. Í yfirlýsingu segist hann hafa einsett sér að komast til botns í þessu máli. Hefur kært stúlku sem kærði nauðgun Dauð vogmær fannst í fjörunni við vitann í Kálfshamarsvík í gær. Þar voru á göngu Jónas Skaftason og barnabarn hans, Silja Marín Róberts- dóttir, og kom rekinn þeim á óvart. Jónas var lengi til sjós, en segist í samtali við fréttaritara ekki hafa séð svona fisk áður. Vogmærin var 1,4 metrar á lengd. Á vísindavef HÍ segir að vogmær geti orðið um þrír metrar á lengd. Heimkynni hennar eru í Norðaustur-Atlantshafi og þar segir að hún virðist vera algeng allt í kringum Ísland, nema undan ströndum Norð- austurlands og Austurlands. Vogmær finnst undan ströndum Noregs, í Norðursjó og umhverfis Bretlandseyjar og allt suður til Madeira. Vogmær Jónas Skaftason og Silja Marín Róbertsdóttir með fiskinn. Óvæntur reki í Kálfshamarsvík Morgunblaðið/Jón Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.